Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 20
20 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009 Eftir Guðna Einarsson og Kristinn Ingvarsson Þetta er heimili,“ sagði Guð-björg R. Guðmundsdóttir,samskiptafulltrúi dvalar-og hjúkrunarheimilisins Grundar um hjúkrunarheimilið Bæj- arás í Hveragerði sem verður tekið formlega í notkun á morgun. Hjúkr- unarheimilið er mótað eftir svo- nefndri Eden-hugmyndafræði. „Lyk- ilatriðið er að hér á heimilisfólkið heima og við hin erum gestir á heimili þess. Við komum til að hjálpa heim- ilisfólkinu að njóta lífsins,“ sagði Guð- björg. Rekstur Bæjaráss hófst fyrir um mánuði. Eden-stefnan leggur áherslu á að heimilisbragur á hjúkrunarheim- ilum sé sem líkastur og á venjulegu heimili. Þar eigi stofnanabragur ekki heima. Heimilismenn hafa heilmikið að segja um heimilishaldið. Þeir fara á fætur þegar þeim hentar og í bað eftir þörfum en ekki samkvæmt dag- skrá. Starfsfólkið klæðist ekki ein- kennisbúningum heldur þeim fötum sem það kýs að klæðast. Bæjarás er um 300 m2 hús við Hverahlíð. Þar var áður læknisbú- staður og síðar bæjarskrifstofur Hveragerðis. Í húsinu eru fimm stór svefnherbergi, auk setustofu, eldhúss og snyrtinga. Bæjarás tilheyrir hjúkrunarheimilinu Ási og nýtur þjónustu frá miðlægu eldhúsi, þvotta- húsi, skrifstofu o.fl. Í Bæjarási eiga fjórir fast heimili, eitt herbergi er notað fyrir hvíldarinnlagnir auk þess sem gert er ráð fyrir að allt að fimm manns komi úr Hveragerði til dag- þjálfunar. Að jafnaði eru því 9-10 í heimili. Heimabakað með kaffinu Í Bæjarási er morgunmatur útbú- inn á staðnum og bakað með kaffinu. Steinunn Svanborg Gísladóttir for- stöðukona segir að lummur og vöfflur njóti mestra vinsælda. Hádegismatur kemur frá sameiginlegu eldhúsi Áss en kvöldmatur er lagaður á staðnum. Sjö starfsmenn eru í Bæjarási. Steinunn Svanborg er í fullu starfi en aðrir eru í hlutastörfum. Blaðamönnum Morgunblaðsins var boðið í heimsókn í Bæjarás. Þar var glaðlegt andrúmsloft og gaman að vera. Heimiliskötturinn Hnoðri naut óskiptrar athygli heimilisfólksins og meðan við stöldruðum við kom hund- urinn Kubbur í heimsókn. Honum var launuð heimsóknin með hundasæl- gæti sem geymt er á vísum stað. Úti á lóð voru smiðir að ganga frá glænýj- um hænsnakofa. Þar verða þrjár hænur til að byrja með og gleðja heimilisfólkið sem mun gefa þeim. Einnig er gert ráð fyrir útiræktun matjurta í beðum í vinnuhæð fyrir fólk í hjólastólum. Rætt hefur verið við grunnskólann og leikskóla í Hveragerði um að börn þaðan komi í heimsóknir í Bæjarás. Börn úr leikskólanum Undralandi komu um daginn og nutu samvista við eldri kynslóðina. Börnin fóru með fingraþulu og fengu að heyra í stað- inn gamlar þulur og hestavísur. Höfðu allir gaman af þessari brúun kynslóðabilsins. Nýtt hjúkrunarheimili í Hveragerði er mótað eftir Eden-hugmyndafræði og áhersla lögð á heimilisbrag Bæjarás er fremur heimili fólks en heilbrigðisstofnun Nýtt hjúkrunarheimili sem tekur mið af Eden- hugmyndafræðinni verð- ur formlega opnað í Hveragerði á morgun. Þar er lögð áhersla á heimilislegt andrúmsloft og samveru fólks. Léttleiki Sigríður Sæbjörnsdóttir heimilismaður hnýtti svuntuna á Stein- unni Svanborgu Gísladóttur forstöðukonu fyrir hádegismatinn. Vinir Hundurinn Kubbur kemur stundum í heimsókn. Eðvarð Torfason launaði Kubbi með hundanammi. Á heimilinu er einnig heimilisköttur. HUGMYNDAFRÆÐIN sem kennd er við Eden er upprunnin í Banda- ríkjunum. Höfundur hennar er læknir að nafni William Thomas. Hann var yfirlæknir á öldrunardeild og einu sinni þegar Thomas var á stofugangi spurði hann rúmfasta konu um líðan hennar. Hún hikaði en sagði svo: „Ég er einmana.“ Við því átti Thomas læknir hvorki ráð né lyf en orð konunnar viku ekki úr huga hans. Hann tók sér frí í nokkra daga og prófaði að vera vist- maður á hjúkrunarheimilinu. Thom- as komst að því að margir þjáðust þar af einsemd, leiða og hjálp- arleysi. Thomas ákvað að bregðast við og stofnaði nýtt hjúkrunarheimili þar sem reyna átti að vinna bug á ein- manaleikanum, leiðanum og hjálp- arleysinu auk þess að veita heimilis- fólki umönnun. Hugmyndafræðina kenndi hann við Eden. Nú eru um 15 ár síðan Thomas stofnaði fyrsta Eden-hjúkrunar- heimilið. Á hverju heimili eru ekki nema 10-12 heimilismenn að jafnaði. Víða er því verið að skipta stærri hjúkrunarheimilum upp í litlar heimiliseiningar samkvæmt hug- myndafræðinni. Í dag starfa um 500 hjúkrunarheimili eftir þessari hug- myndafræði í Bandaríkjunum auk heimila í mörgum öðrum löndum. Færeyingar stefna t.d. að því að öll hjúkrunarheimili þeirra verði rekin á grundvelli Eden-hugmyndafræð- innar. Hér á landi hefur Akureyrar- bær unnið að innleiðingu Eden- hugmyndafræði á öldrunar- heimilum bæjarins. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir, samskiptafulltrúi Grundar, sagði að Bæjarás væri fyrsta hjúkrunar- heimilið sem er byggt frá grunni á Eden-hugmyndafræðinni hér á landi. Eden Guðbjörg R. Guðmundsdóttir hefur kennt Eden-hugmyndafræðina. Eden-aðferð gegn einsemd og leiða HEIMILISFÓLKIÐ í Ási getur sýslað við margt eftir því sem heilsa og kraftar leyfa. Þar er stór fönd- urstofa þar sem m.a. er unnið við ýmsar hannyrðir, smíðastofa og sumir leggja lið í gróðurhúsunum. Munir sem heimilisfólk útbýr eru til sölu í föndurstofunni við vægu verði. Una Runólfsdóttir var í gróður- húsinu að lesa paprikur. Hún játaði því að hún væri með græna fingur og sagðist vinna í gróðurhúsinu þegar hana langaði til. „Mitt mesta yndi er að planta og rækta, sérstaklega úti,“ sagði Una. Hún hefur aðgang að landskika í Hveragerði þar sem hún ræktar tré og runna. „Þar vil ég helst vera alla daga. Trén kjafta ekki frá neinu sem ég segi þeim!“ Í smíðastofunni voru tveir fyrr- verandi bændur við smíðar. Eiríkur Jónsson, áður bóndi á Bálkastöðum í Hrútafirði, var að smíða bakka. Eft- ir að hann brá búi starfaði hann hjá Ási í 14 ár við allt mögulegt og er því hagvanur á staðnum. Sverrir Gunnarsson, áður bóndi í Hrosshaga í Biskupstungum, var að smíða litla hestvagna. Hann tálgar einnig út hesta, útbýr aktygi og spennir hestana fyrir vagnana. Sverrir er úr Reykjavík en var send- ur í sveit. „Ég hef líklega verið óþekkur,“ sagði Sverrir. Honum lík- aði dvölin svo vel að hann strauk aft- ur í sveitina fimmtán ára gamall. Heimilisfólk í Ási hefur margt að sýsla Smíða, rækta og sauma út Grænir fingur Una Runólfsdóttir sagðist hafa mikla ánægju af að rækta. Hún hefur aðgang að skika í Hveragerði þar sem hún ræktar tré og runna. Bændur Félagarnir Eiríkur Jónsson (t.v.) og Sverrir Gunnarsson voru í smíðastofunni. Þeir voru báðir bændur og hafa gaman af smíðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.