Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009
FRÁ LEIKSTJÓRA QUENTIN TARANTINO
KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG
STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA.
HÖRKUSPENNANDI MYND UM METNAÐARFULLAN
BLAÐAMANN SEM TEKUR Á SIG SÖK Í MORÐMÁLI
TIL ÞESS EINS AÐ UPPLJÓSTRA UM HINN SVIKULA
SAKSÓKNARA MARTIN HUNTER(MICHEAL DOUGLAS)
Uppgötvaðu ískaldan sannleikann
um karla og konur
Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins
SÝND Í REGNBOGANUM
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í RegnboganumSími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
The Ugly Truth kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
The Final Destination kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14 ára Beyond Reasonable Doubt kl. 5:40 - 8 750 kr. B.i.16 ára
Inglorious Bastards kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára
Halloween 2 kl. 10:20 750 kr. B.i.16 ára
HHHHH
- H.G.G,
Poppland/Rás 2
HHHHH
“ein eftirminnilegasta
mynd ársins og ein
sú skemmtilegasta”
S.V. - MBL
HHHH
„Gargandi snilld
allt saman bara.“
Þ.Þ – DV
SÝNDUR Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI
ALLIR ÞEIR SEM FRAMVÍSA LEIKHÚSMIÐA FRÁ
HELLISBÚANUM FÁ 25% AFSLÁTT Á BÍÓMYNDINA: MIÐASALAÍ FULLUMGANGI!theuglytruth
FRUMSÝND 18. SEPTEMBER
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG!
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann
SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
Íslandsvinirnir í Rammstein, þvíþað eru þeir svo sannarlega,gefa út nýja breiðskífu um
miðjan október. Liebe ist für alle da
kallast verkið og er sjötta hljóð-
versplata sveitarinnar. Síðasta
plata, Rosenrot, kom út 2005 og olli
nokkrum vonbrigðum líkt og sú á
undan, Reise, Reise. Þeir þýsku bún-
ir með bensínið að því er virtist.
Fyrstu þrjár plöturnar, Herzeleid,
Sehnsucht og Mutter eru hins vegar
skotheldir gripir, allir sem einn.
Á yfirborðinu kann Rammstein að
hljóma sem fremur einfeldningsleg
þungarokkssveit sem hamrar á því
sem virkar trekk í trekk fyrir korn-
unga flösuþeytara. Að mínu viti er
Rammstein þó mun glúrnari sveit en
svo og vil ég ganga svo langt að
grípa til hins ofnotaða orðs „snilld“ í
því samhenginu. Það var engin til-
viljun að David Lynch sirkaði sveit-
ina út fyrir hina mögnuðu mynd
sína, Lost Highway.
Rammstein hefur gengist upp íþví í gegnum tíðina að kanna
þanþol hins boðlega í gegnum tón-
list sína, ekki með henni sem slíkri
þó, heldur því sem er hengt við
hana. Hér er ég að tala um plötu-
umslög, tónleika og einkum mynd-
bönd þar sem duldar hvatir mann-
skepnunnar eru skoðaðar og þær
settar undir mæliker. Þannig kall-
ast fyrsta smáskífan af plötunni
nýju hinum eðla titli „Pussy“ en lag-
ið kom út 1. september. Í myndbandi
lagsins fylgjumst við með með-
limum sveitarinnar í ástaratlotum
við ólíka kvenmenn og allt er þetta á
ljósbláum nótum, það er ýjað að
hlutum en þeir ekki sýndir. En rétt
undir restina breytist myndbandið
skyndilega, verður vel dökkblátt –
breytist í 100% klám. Myndbandinu
var leikstýrt af Jonas Åkerlund
(hefur gert myndbönd fyrir U2,
Madonnu, Rolling Stones og fleiri
kanónur). Og svo öllu sé haldið til
haga, sjá „statistar“ um grófasta
þátt myndbandsins – en ekki að það
skipti neinu máli, þannig.
Myndbandið hefur að vonum vak-
ið athygli og hneykslan og á ekki
möguleika á að komast í almenna
dreifingu. Og í úthugsaðri markaðs-
setningu var það frumsýnt á bona
fide klámsíðu.
Tvennt kemur til greina. Ramm-
stein-menn eru orðnir það örvænt-
ingarfullir að þeir gera hvað sem er
til að reisa ferilinn við. Eða: Ramm-
stein er með þessu að rýna í holan
og ódýran klámmarkaðinn; henda
að honum grín og spyrja spurninga
um eðli hans og inntak. Persónulega
hallast ég að hinu síðarnefnda og þá
skoðun er auðveldast að rökstyðja
með því að skoða feril sveitarinnar,
þar sem viðlíka hlutir hafa verið
stundaðir. Franska heimspek-
ingnum Michel Foucault var tíðrætt
um hvernig mannskepnan kæfir og
felur sínar innstu þrár og langanir,
t.a.m. hvað varðar kynlífshvatir sem
eru í grunninn dýrslegar. Ramm-
stein er Foucault rokksins.
Þessu tengt er líka merkilegt að
skoða aðra miðla sem hafa farið
áþekkar leiðir. T.a.m. mynd Lars
Von Triers, Idioterne, þar sem farið
er „alla leið“ eins og hjá Rammstein
(og að maður tali nú ekki um nýj-
ustu mynd Von Triers, Antichrist).
Of oft dettur fólk í það að hugsa um
meðlimi Rammstein sem arfavit-
lausa rokkara, fremur en hug-
myndafræðilega þenkjandi menn
sem setja upp „leikrit“ í myndbönd-
unum til að segja eitthvað. Ég get
ekki séð að Rammstein eigi að vera
á einhverjum öðrum palli en Von
Trier eða þá myndlistarmaðurinn/
tónlistarmaðurinn Egill Sæbjörns-
son sem fór einn og sjálfur „alla
leið“ í frægu myndbandsverki sem
sýnt var á Kjarvalsstöðum árið
1998.
En heyrðu, ég var alveg búinn að
gleyma að minnast á sjálft lagið.
Það er fínt. Þrjár stjörnur.
arnart@mbl.is
Hversu langt geta menn gengið?
» Of oft dettur fólk íþað að hugsa um
meðlimi Rammstein
sem arfavitlausa rokk-
ara, fremur en hug-
myndafræðilega þenkj-
andi menn
Herra Sársauki Hinn geðþekki bassaleikari Rammstein, Oliver Riedel, í hlutverki sínu.
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
LEIKSTJÓRI framtíðartryllisins
Gattaca, Andrew Niccol, mun leik-
stýra kvikmynd eftir fyrstu skáld-
sögu Stephenie Meyer sem ætluð
er fullorðnum lesendum, The
Host. Meyer er þekkt af unglinga-
vampírubókasyrpunni Twilight
sem notið hefur mikilla vinsælda í
á Vesturlöndum.
Niccol mun skrifa handritið að
myndinni auk þess að leikstýra.
Sagan gerist í framtíðinni, þegar
geimverur hafa tekið völdin. Ein
geimveranna tekur sér bólfestu í
líkama dauðvona konu í því skyni
að finna þær örfáu manneskjur á
jörðinni sem veita geimverunum
enn andspyrnu. Geimveran verður
hins vegar ástfangin af maka
hinnar dauðvona konu sem hún
hefur tekið sér bólfestu í og vand-
ast þá málið.
Meyer mun koma að kvik-
myndatúlkun bókarinnar líkt og
hún gerði með kvikmyndirnar sem
byggðar voru á Twilight-syrpunni.
Næsta kvikmyndin úr þeirri
syrpu, New Moon, verður frum-
sýnd í Bandaríkjunum 20. nóv-
ember n.k.
Gattaca Ethan Hawke og Uma
Thurman í mynd Andrew Niccol.
Geimvera
verður
ástfangin