Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 19
Fréttir 19ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009 ÞVÍ fylgir mikil eftirvænting og spenna þegar fólk er að fara á stefnumót við einhvern eða ein- hverja, sem því líst vel á. Ósjaldan veit það samt fátt um viðkomandi og þá er gott að eiga DateCheck að. Þar er hægt að fletta upp flestu um þann eða þá, sem hitta skal. Það er bandaríska fyrirtækið Intelius, sem býr yfir risastórum gagnabanka, sem boðar þessa nýju tækni. „Hann pabbi minn var naskur við að sjá út vonbiðlana mína en DateCheck slær honum alveg við,“ sagði Katherine Herman, fram- leiðslustjóri Intelius, en til að nýta sér tæknina þarf fólk að vera með Apple-snjallsíma. Með honum má sjá hvort viðkom- andi er á sakaskrá eða í hjónabandi og ef allt lítur vel út, er rétt að skipta yfir í New Worth-kerfið. Þar má sjá í hve stóru húsi viðkomandi býr og hvað það kostar. Sem sagt, rómantíkin á fullu. svs@mbl.is Með allt á þurru í ástamálum DateCheck býr fólk undir stefnumótið Ástarblossi Hvað skyldi DateCheck hafa að segja um þessar turtildúfur? SÆNSKA lögreglan leggur nú allt kapp á að finna þjófa sem stóðu að bíræfnu ráni í gærmorgun en þá lentu nokkrir menn þyrlu á þaki seðlageymslu skammt norður af Stokkhólmi og brutust inn í hana. Tveir menn voru handteknir en þeir liggja ekki lengur undir grun. Talið er hugsanlegt að um svokall- að innanhússmál sé að ræða, að ein- hver mjög kunnugur hafi komið að ráninu og augljóslega kunni einhver ræningjanna að fljúga þyrlu. Þykir það og fleira benda til að um vel þjálfaða menn sé að ræða, hugsan- lega fyrrverandi hermenn. Fannst úti í skógi Skömmu eftir ránið fannst þyrlan úti í skógi um 10 km frá Stokkhólmi og ljóst, að þar hafa samstarfsmenn ræningjanna beðið þeirra. Þyrlunni stálu þeir fyrr um nóttina frá fyr- irtæki, sem annast þyrluflug. Lögreglan vildi ekki gefa neitt upp um það með hvaða hætti maðurinn, sem nú er í haldi, tengdist ráninu og ekki er ljóst hve ránsfengurinn er mikill. Er það þó sumra sögn, að um einn milljarður sænskra króna, um 18 milljarðar ísl. kr., hefði átt að vera í geymslunni á þessum tíma. Sænska lögreglan hefur sett upp fjölmenna miðstöð, sem stýrir leit- inni að ræningjunum, og mikið eftir- lit er á flugvöllum. svs@mbl.is Óvenju bíræfið rán Reuters Yfirgefin Ljóst, að aðeins kunnáttumaður gat lent þyrlunni innan um trén.  Komu á þyrlu og rændu seðlageymslu rétt við Stokkhólm  Tveir teknir til yfirheyrslu og viðbúnaður lögreglu mikill ÞAÐ verður æ vinsælla í Dan- mörku að koma fyrir örflögu í því, sem líklegast er til að lenda í þjófahöndum. Hefur það gefið svo góða raun með reiðhjólin, að yfirvöld í Kaup- mannahöfn eru farin að dreifa örflögunum ókeypis. Að minnsta kosti 16.000 reið- hjólum er stolið í Kaupmannahöfn á ári hverju og til að vinna gegn þessu tóku borgaryfirvöld upp á því í sum- ar að gefa örflögurnar. Mætti fólk með hjólin sín á Ráðhústorgið 4. júní, á Israel-torgið 28. ágúst og í gær fékk það flögurnar við útibú Kaupmannahafnarháskóla á Ama- ger. Ef hjólunum er stolið er strax hægt að sjá hvar þau eru niður- komin. svs@mbl.is Danir fengu fríar örflögur í reiðhjólin Í paradís allra hjól- reiðamanna. Vísindavaka 2009 Allir velkomnir. Láttu sjá þig!vísindamenn. Stefnumót við Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Öll fjölskyldan finnur eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku. www.rannis.is/visindavaka Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Menntamálaráðuneytið Iðnaðarráðuneytið H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Á morgun!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.