Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „ÞETTA var mjög ánægjulegur og góður fundur og ég er nokkuð öruggur á því að við munum finna farsæla lausn á þessu máli,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, um fund með Katrínu Júl- íusdóttur iðnaðarráðherra í gær vegna sam- þykktar sveitarstjórnar Norðurþings um að viljayfirlýsing um byggingu álvers á Bakka við Húsavík verði framlengd. Katrín Júl- íusdóttir segir mikilvægt að orkan verði nýtt fyrir norðan og að búast megi við farsælli at- vinnuuppbyggingu á svæðinu. Viljayfirlýsing ríkisins, Alcoa og Norð- urþings um að kanna möguleika á því að reisa álver á Bakka rennur út 1. október næstkomandi. Málið hefur verið í biðstöðu og verkefninu hefur seinkað um ár, meðal ann- ars vegna þess að ríkisstjórnin vildi skoða aðra möguleika en álver, en í liðinni viku sagði Bergur Elías Ágústsson að góð hreyf- ing væri að komast á umræðu um mögulega orkunýtingu gufuaflsins á Þeistareykjum og nágrenni. Sameiginleg markmið Bergur Elías og Gunnlaugur Stefánsson, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, héldu á fund Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra í aðalatriðið að huga að atvinnuuppbygging- unni, sama hvaða nafni hún nefnist, og þau hafi verið sammála um að setja málið í ákveð- inn farveg til að tryggja það. Næsta skref verði að tala við aðra sem hlut eiga að máli og unnið verði að fullum heilindum í rétta átt. Norður- og Norðausturlands og það verður gert,“ segir Bergur Elías að endingu. Katrín Júlíusdóttir segir mikilvægt að ork- an fyrir norðan verði nýtt á svæðinu og eðli- legast hafi verið að byrja á því að tala við full- trúa sveitarfélagsins um málið. Hún segir gær og segir sveitarstjórinn að unnið verði áfram að málinu á næstu dögum. „Það verður bara unnið hratt og vel,“ segir hann og bætir við að Katrín Júlíusdóttir hafi verið mjög já- kvæð. „Við eigum náttúrlega sameiginleg markmið, að nýta þessa orku þarna í þágu Farsæl lausn í sjónmáli á Bakka  Fulltrúar sveitarstjórnar Norðurþings ánægðir með fund með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráð- herra  Ráðherra segir að búast megi við jákvæðri niðurstöðu fyrir atvinnuuppbygginguna Í HNOTSKURN » Orkufyrirtækið Þeistareykirehf. var stofnað fyrir um áratug til að kanna möguleika á jarðvarmavinnslu á Þeista- reykjasvæðinu í Þingeyjarsýslu og er Bergur Elías Ágústsson stjórnarformaður. » 16. maí 2006 var skrifaðundir viljayfirlýsingu um rannsóknir á hagkvæmni þess að reisa álver við Bakka og hafa verið boraðar sex rannsóknar- holur sem má nota sem vinnslu- holur. » Um níu milljarðar hafa far-ið í verkefnið og þar af hef- ur sveitarfélag Norðurþings lagt fram um einn milljarð. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fundur Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra tekur á móti Bergi Elíasi (t.v.) og Gunnlaugi. Eftir Sigrúnu Ernu Geirsdóttur sigrunerna@mbl.is AALBORG Portland Íslandi ehf. hefur krafist rannsóknar Sam- keppnistofnunar á því hvort um- mæli Jóns Steindórs Valdimarsson- ar, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, ályktun bæjarstjórnar Akraness, sveitarstjórnarmanna og Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um málefni Sementsverksmiðjunnar hf. og Aal- borg Portland Íslandi standist ákvæði samkeppnislaga. Í ummælunum eru opinberir að- ilar sem aðrir hvattir til þess velja íslenska framleiðslu frekar en inn- flutta. Í bréfi til Samkeppnisstofn- unar segir að Jón Steindór hafi í viðtölum við fjölmiðla ítrekað brotið gegn 12. gr. samkeppnislaga sem leggur bann við því að samtök fyrir- tækja, stjórnarmenn og aðrir sem samtökunum tengjast hvetji til hindrana sem bannaðar eru sam- kvæmt lögunum, með því að hvetja ítrekað til þess að félagsmenn sam- takanna, og í raun landsmenn allir, velji vöru frá einu tilteknu fyrirtæki fremur en öðru; þ.e. velji sement frá Sementsverksmiðjunni frekar en Aalborg Portland. Enn alvarlegra telur þó Aalborg Portland vera að Jón Bjarnason ráðherra taki í grein á vefsíðu Skessuhorns undir orð Jóns Stein- dórs. Þá virðist Jón gagnrýna sam- keppnislögin á Pressunni og segir það undarlegt að opinberir aðilar kaupi innflutta vöru meðan íslenskt fyrirtæki berjist í bökkum. Spyr Aalborg Portland í bréfinu hvort ráðherranum sé alvara með þessari gagnrýni sinni á samkeppnislögin og hvort vænta megi breytinga á þeim til samræmis við sjónarmið hans. Aalborg Portland Íslandi er einkahlutafélag í eigu danska sem- entsframleiðandans Aalborg Port- land A/S í Danmörku. Sementsverk- smiðjan er hlutafélag í eigu Íslensks sements ehf. Telja ummæli ekki standast lög Morgunblaðið/RAX Sement. Aalborg Portland telur að samkeppnislög hafi verið brotin. STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjármálaráðherra kastar kveðju á ljósmyndara Morgunblaðsins á leið sinni frá Ráðherrabústaðnum í gærkvöldi, þar sem fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hittu forsvarsmenn aðila vinnumarkaðarins. Rætt var um stöðugleikasáttmálann og tengd mál eins og skuldastöðu heimilanna, tillögur miðstjórnar ASÍ í þeim efnum og orkumál. Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætisráðherra gaf fjölmiðlum kost á viðtölum að fundi loknum, þar sem hún sagði þessa aðila hafa farið yfir stöðu mála, en engin sérstök niðurstaða fékkst að þessu sinni. Morgunblaðið/Árni Sæberg FUNDAÐ UM STÖÐUGLEIKASÁTTMÁLANN GYLFI Arn- björnsson, for- seti ASÍ, sagði eftir fund for- svarsmanna sam- taka á vinnu- markaði með ráðherrum í gærkvöldi að umræðan hefði verið opinská og hreinskiptin. Farið var yfir mörg mál, en ljóst sé að vaxtaákvörðun Seðlabankans í dag marki straumhvörf, því ekki sé vaxtaákvörðunardagur næst fyrr en 5. nóvember. Í stöðugleikasátt- málanum er miðað við að stýrivext- ir verði komnir í eins stafs tölu fyr- ir 1. nóvember en þeir eru nú 12%. Gylfi segir, að þessi vaxtaákvörðun í dag muni hafa mikil áhrif á fram- vinduna. Aðilar vinnumarkaðar hafi vissulega tíma út október en gangi það ekki upp verði ríkis- stjórnin að svara því hvað annað sé hægt að gera til að stöðugleikasátt- málinn haldi. Mikið var einnig rætt um áformaðar framkvæmdir. Fyrr um daginn lýstu fulltrúar í mið- stjórn ASÍ miklum áhyggjum sínum vegna óvissunnar í orkumálum. omfr@mbl.is Ákvörðun um vexti markar straumhvörf Gylfi Arnbjörnsson Jón Steindór sagði t.d. á Stöð 2: „Við erum að tala um að við þurfum að spara gjaldeyri og velja íslenskt og þá er ekki heppilegt að kaupa danskt sem- ent.“ Á vef Pressunnar sagði Jón Bjarnason: „Hvort misvitur samkeppnislög eigi að standa þjóðfélaginu fyrir þrifum. Það skýtur skökku við að opinberir aðilar skuli kaupa innflutt sem- ent til sinna framkvæmda …“ Dæmi um ummæli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.