Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 33
Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009 hljóti oft að hafa verið erfitt lét hann aldrei á því bera og alltaf stutt í glensið sem var svo ríkur þáttur í fari hans. Okkur Önnu eru líka minnisstæð- ar skemmtilegu stundirnar sem við áttum við spilamennsku við þau Jónda og Jónu þegar við bjuggum í sitthvorri íbúðinni á sömu hæð í Hraunbæ 80. Þá var oft glatt á hjalla og setið við fram á nótt. Að leiðarlokum biðjum við Guð að blessa minningu góðs drengs og bróður og erum þakklát fyrir allar skemmtilegu samverustundirnar, hjálpsemina og vináttuna. Við send- um Jónu okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Anna og Ólafur. Elskulegur mágur og svili, Jón Árnason, pípulagningamaður, er fallinn frá eftir langa baráttu við þann illvíga sjúkdóm sem krabba- mein er. Hann andaðist á 75 ára af- mælisdegi sínum 19. september sl. Jón var mikið ljúfmenni sem vildi allt fyrir alla gera. Ekki rekur okk- ur minni til þess að hafa heyrt nokkurn mann hallmæla Jóni Árna- syni. Okkur er það líka minnisstætt þegar við vorum að innrétta íbúðina okkar í Árbæjarhverfinu fyrir meira en 40 árum hve gott var að leita ráða og fá aðstoð við hvaðeina hjá Jóni enda virtist hann geta leyst allar þrautir betur en aðrir menn. Hann var enda með laghentari mönnum og allt virtist leika í hönd- unum á honum. Hann hafði mjög gaman af að ferðast og við hjónin ferðuðumst mikið með honum og konu hans Jón- ínu Sigurdórsdóttur bæði innan- lands og utan hér á árunum áður meðan við vorum öll ung. Það voru skemmtilegar ferðir og margar minningar lifa frá þeim tíma. Einna minnisstæðust hygg ég að sé hringferð um landið áður en hringvegurinn var opnaður. Þá var siglt með Heklunni frá Reykjavík til Hornafjarðar og ekið svo þaðan til Reykjavíkur á mörgum dögum og komið víða við á gamla Skódanum þeirra hjóna. Þessi ferð var okkur öllum minnisstæð og oft hafa atvik úr ferðinni verið rifjuð upp og mikið hlegið. Slíkar ferðir verða ekki fleiri. Við sendum Jónínu eiginkonu hans innilegar samúðarkveðjur og biðjum allar góðar vættir að vernda og geyma Jón Árnason. Sigrún og Sigurdór. Ég man fyrst eftir Jónda þegar ég var lítil stelpa og fjölskylda mín bjó uppi í risi í Háagerði. Hann var allt- af svo yndislegur, hlýr og góður við mig og bræður mína, hann gaukaði oft að okkur ýmsum hlutum. Ég gleymi aldrei risaflugvélinni sem hann kom með og var hengd upp í herberginu hjá okkur Inga, vá hví- lík gleði og hamingja þó svo vélin tæki hálft herbergið. Meiri dýravin en hann var ekki hægt að finna en þær eru ófáar kis- urnar sem hafa fengið að finna fyrir ást hans og umhyggju. Það var notalegt að vera í návist Jónda, hann hafði svo góða nær- veru. „Nei, ert þetta þú engillinn minn“ var hann vanur að segja þeg- ar hann sá mig. Ég á eftir að sakna þess eins og ég á eftir að sakna hans. Það er stundum sagt um ein- stakt fólk að það sé fallegt bæði að utan og innan, hann var einn af þeim. Hvíl í friði. Arnheiður Bergsteinsdóttir. Við systurnar viljum minnast bróður okkar Jóns eða Jónda eins og hann var ávallt kallaður af okkur í fjölskyldunni. Litla systir og stóra systir var hann vanur að kalla okkur og lét það vel í eyrum. Jóndi var einstakt ljúfmenni og skipti sjaldan skapi. Hann var barngóður með eindæm- um og nutu systkinabörnin góðs af því. Ég, litla systir, vil þakka honum fyrir ástina og umhyggjuna sem hann veitti mér sem barni eftir að faðir okkar lést og ætíð síðan. Var hann fjölskyldum okkar ávallt inn- an handar ef við leituðum eftir því og verður það seint þakkað sem skyldi. Fátækleg orð á blaði segja ekki margt en minninguna um góðan bróður eigum við í hjartanu. Hvíl í friði elsku bróðir. Hrönn og Jóhanna. irhafnar og göntuðumst við systk- inin oft með það að það tæki þig allavega hálftíma undirbúning bara að skreppa út í sjoppu. Jafnvel í veikindum þínum þegar þú lást á sjúkrahúsi leistu oft frekar út fyrir að vera gestur en sjúklingur. Í eitt skipti man ég eftir því þegar þú sast inn á stofu snemma morguns glæsileg og vel tilhöfð að vanda og þurftir að sannfæra hjúkrunarkon- una sem kom á stofugang með lyf um að þú værir í raun sjúklingurinn sem þau voru ætluð. Ég lít á það sem forréttindi í lífinu að hafa átt þig að. Ég held það hafi svo sem kannski ekki verið tilviljum að þú hafir orðið móðir mín. Svona miðað við hegðum mína og ærsla- gang í æsku held ég að það hafi þurft einhvern með einstakt geðslag og þolinmæði til að gera mig að þeim manni sem ég er í dag og þú átt án efa skilið aðdáun margra fyrir það verk. Þrátt fyrir að ég kveðji þig með sorg og trega í hjarta mun bros þitt og hlýhugur lifa að eilífu í hjarta mínu og huga. Ég veit líka að þú vakir og heldur verndarvæng þínum áfram yfir okkur. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. (Bubbi) Þinn strákur, Orri. Fyrir tæpum sex árum gekk ég inn í húsið á Kárastíg 12 í fyrsta sinn, ein að erindast fyrir son Hjör- dísar en okkur var þá orðið ansi hlýtt hvoru til annars. Hann hafði fullvissað mig um að enginn væri heima en þegar ég opnaði dyrnar stóð Hjördís brosandi í gættinni. Hjartað í mér hætti að slá og ég beið þess eins að jörðin myndi gleypa mig. Hún áttaði sig strax og spurði mig með bros á vör hvort við ættum að fá okkur kaffisopa. Sek- úndur urðu að mínútum, mínútur að klukkutímum og einn kaffisopi varð að ótalmörgum kaffibollum. Þá mánuði sem við bjuggum á heimili tengdaforeldra minna, Sigga og Hjördísar, flaug tíminn alltaf áfram þegar við Hjördís sátum að spjalli og umræðuefnin voru óþrjót- andi, líka síðar þegar við sátum í sól- stofunni á Kárastíg, kaffihúsi, lyfja- gjöf á Landspítalanum eða inni í stofu á 11-E. Tengdamamma varð vinkona mín sem sýndi mér nýjar hliðar á mann- inum sem ég elska og myndir af honum frá því hann var barn. Elsku besta Hjördís mín. Ég trúi því að vinátta okkar eigi sér engin endamörk og ég mun hvísla því sem mig langar að segja þér út í andvar- ann. Ég finn alveg jafn mikið fyrir brosinu þínu og öllu sem þér fylgir núna og morguninn sem þú fórst. Ég kvaddi þig aldrei. Á hverju einasta kvöldi uppi á spítala hugsaði ég um það hvort ég ætti að kveðja þig. Ég gat það ekki og vissi raunar að þú vildir það ekki. Þegar ég var að bugast uppi á spítala þá huggaðir þú mig og sagðir við mig að við myndum vinna þessa baráttu og líka að við myndum ganga Fimm- vörðuháls og Laugaveginn næsta sumar. Krafturinn, baráttuviljinn og trúin á morgundaginn voru alltaf með þér. Ég ætla að trúa þér. Ég finn jú enn fyrir þér alls staðar og ætla að hlusta á brakið í kvistunum og hljóðin í vindinum þegar ég arka fjöllin og finna þig með mér og einn daginn munum við vinkonurnar setjast aftur niður með kaffibollana okkar. Sekúndurnar verða að mín- útum, mínúturnar að klukkustund- um og klukkustundirnar að annarri eilífð. Saga Ýrr Jónsdóttir. Tíminn flýgur áfram og teymir mig á eftir sér. Ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer. Vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín og leiði mig á endanum aftur til þín. (Megas) Ég ætla með þessum línum hér að ofan og með nokkrum orðum að kveðja fyrrverandi eiginkonu mína. Hjördís þarf ekki á lofgjörð að halda, hana skrifaði hún sjálf með lífi sínu og gjörðum. Hetja! Hjördís sýndi í veikindum sínum ótrúlegt þrek og æðruleysi. Eins og allt lífið hugsaði hún fyrst um aðra og vildi ekki láta veikindi sín og svo komu dauðans bitna á sínun nánustu. Takk fyrir öll árin sem við áttum saman, takk fyrir börnin mín, takk fyrir börnin okkar. Sigurður. Nú þegar ég kveð Hjördísi í hinsta sinn, þá reikar hugurinn til hennar og þeirra minninga og stunda sem við áttum saman. Hjör- dís kom inn í líf mitt þegar ég var lítil stelpa. Áttum við einstaklega ánægjulegar stundir saman og aldr- ei var léttleikinn langt undan enda var hún mikill húmoristi. Skipti ald- ursmunur okkar engu máli, sama hvert viðfangsefnið var. Hún hefur ekki einungis verið mér sem önnur móðir gegnum líf mitt heldur einnig frábær og traustur vinur. Hjördís var einstaklega hjartahlý kona og alltaf boðin og búin til að- stoðar þegar þess þurfti með. Fyrstu minningar mínar um Hjör- dísi eru frá Káró þar sem hún bjó sér og fjölskyldu okkar einkar fal- legt heimili. Enda hafði hún ein- staklega gott auga fyrir fallegum hlutum og umhverfi sínu og var einkar listræn. Hún var ákaflega smekkleg í klæðaburði svo eftir var tekið. Hún var félagslynd og naut sín innan um fólk. Hennar helsti kostur var umhyggja fyrir öðrum. Með hlýju sinni og einlægni laðaði Hjördís það besta fram í fólki. Hjördís háði nokkurra mánaða baráttu við illvígan sjúkdóm sem hún tókst á við með miklu æðru- leysi og reisn. Vil ég minnast Hjör- dísar með þessum orðum og þakka fyrir þær samverustundir sem við áttum. Í konunnar kalli var kyrrlát þín tign, en ótrúleg orkan og umhyggjan skyggn. Ei máttugri móðir við mannsbarni leit, – hið óræða undur var óskin þín heit. Hið mjúka milda vor sín blóm á þig breiði og blessi þín spor. (Ingibjörg J. Dahlmann) Unnur Sigurðardóttir. Það eru ekki allir svo lánsamir að eignast þrjár mæður við fæð- ingu. Kannski má segja að ég hafi komið í stað ömmu-Sillu sem lést sama ár og ég fæddist. Alla vega var ég stundum kallaður sameig- inlegi sonurinn. Hjördís frænka, Dada eins og ég kallaði hana, var elst móðursystra minna og ein fyrsta minning mín er af brosinu hennar og fisknum sem í minningunni hékk alltaf um háls hennar. Litlir fingur fengu oft að leika með fiskinn, svo mjög að sporðurinn brotnaði af. En Hjördís krækti í annan fisk, hann Sigga, og flutti til hans á Kárastíginn. Þær voru ófáar stundirnar sem lítill krulluhærður drengur eyddi á Kárastíg þar sem systurnar ræddu saman klukkustundum saman um allt undir sólinni. Alla vega virtist tíminn stundum óendanlega langur. Ég lærði það hins vegar fljótt að það sem þeim fór á milli var ekki endilega ætlað öðrum eyrum. Það var leyndó! Kannski var það þess vegna sem mér var stundum komið fyrir í sófanum með risastóru og flottu heyrnartólin sem í hljómuðu nýjustu tónar af vínilplötum sem Siggi hafði keypt í siglingum er- lendis. Gott ef Hjördís laumaði ekki til mín nokkrum súkkulaðimolum. Hjördís átti nefnilega oftast það sem alla krakka dreymir um, birgð- ir af framandi sælgæti. En það sem var meira um vert. Molunum fylgdu alltaf bros og blik í auga. Hlýja. Og af henni var alltaf nóg. Þolinmæði og tími var líka aðals- merki Hjördísar. Tími til að hlusta þó ekki nema á brandara um tvo tómata sem þurfa endilega að kom- ast yfir götu. Þó að brandarinn eða sagan hefði verið sögð margoft þá fylgdi alltaf einlægur dillandi hlát- ur. Gott ef ekki var dregin fram ein súkkulaðikaka. Hjördís fékk sér þó aðeins eina flís og svo eina til! Að heimsækja Kárastíginn var raunar alltaf veisla, ekki síst jóla- boðið. Þar svignuðu borð undan kræsingum og hláturtaugarnar voru þandar til hins ýtrasta. Ekki minnkaði fjörið þegar Orri og Hild- ur bættust í hópinn. Í sumar þegar sjúkdómurinn var að ná undirtökunum gáfust okkur nokkrar góðar stundir. Hjördís, eins og henni var einni lagið, gaf sér tíma til að sýna stelpunum okk- ar Sædísar sömu athygli og þol- inmæði og mér forðum. Umfram allt gaf hún þeim sömu hlýjuna, sama brosið og blik í auga þegar hún sýndi Unu réttu handbrögðin við prjónaskapinn og hlustaði af at- hygli á Eik segja henni brandara. Gott ef ekki um tvo tómata. Það var auðvitað sárt að fylgjast með frænku takast á við erfiðan sjúkdóm en hún gerði það af aðdá- unarverðu æðruleysi og reisn eins og henni var einni líkt. Haraldur Þór Egilsson. Ég kynntist Hjördísi í gagn- fræðaskóla þegar við vorum 13 ára gamlar. Við urðum mjög nánar vin- konur og dvöldum mikið á heim- ilum hvor annarrar t.d. við lærdóm. Mér er það mjög minnisstætt hve nám lá auðveldlega fyrir Hjördísi, ekki síst tungumál. Við Hjördís fórum í margar góð- ar ferðir saman, innanlands sem ut- an. Þá er að minnast margra góðra stunda á Kaffi Mokka. Hjördís gerði mikið af því að mála og teikna en það kom fljótt í ljós að í henni bjó mikill listamaður. Þegar við Hjördís eignuðumst börn höfðum við minna samband en áður en við vissum alltaf hvor af annarri. Í júní síðastliðnum hitt- umst við Hjördís ásamt Sóleyju æskuvinkonu okkar í matarboði hjá þeirri síðarnefndu. Ég er svo þakk- lát fyrir að hafa getað átt þetta kvöld með þeim þar sem við rædd- um gamla tíma og rifjuðum upp ýmsa atburði úr æsku okkar. Þrátt fyrir mikil veikindi bar Hjördís sig vel og lét engan bilbug á sér finna. Ég kveð æskuvinkonu mína Hjör- dísi með miklum söknuði og sendi fjölskyldu hennar innilegar samúð- arkveðjur. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Bjarghildur Atladóttir. Eitt blik af auga heimsins hélt mér föngnum það bærðist vart – það skein í andartak en hvarf svo burtu og samt varð bjart. (Alvar Haust) Samúðarkveðjur til allra sem elskuðu Hjördísi. Jón og Randy. Við samstarfsfélagar Hjördísar á 101 hóteli kveðjum hana nú með sárum söknuði og minnumst fjöl- margra ánægjulegra stunda í návist hennar. Öll erum við sammála um að í Hjördísi bjó afar hjartahlýr, umhyggjusamur og yndislegur per- sónuleiki. Hún var afskaplega góður hlustandi, sýndi samferðafólki sínu áhuga og henni var ekkert mann- legt óviðkomandi, enda gædd mikilli samkennd með náunganum. Margar heimspekilegar pælingar urðu á kaffistofunni og mikið hlegið, enda var Hjördís bæði glaðlynd og hlát- urmild og hafði mikla kímnigáfu. Hún hafði gaman af því að skiptast á skoðunum og fylgdist vel með gangi mála, bæði innanbúðar og -ut- an. Það fór aldrei fram hjá neinum þegar Hjördís var mætt í húsið, því hún hafði sterka nærveru og ekki spillti útlitið. Hún var virkilega fal- leg kona, sem gætti þess alla tíð að vera vel til höfð. Eftir hádegismat- inn var varaliturinn settur á að nýju, hárið lagað, kíkt í spegilinn og hún var tilbúin. Við dáðumst að smekkvísi hennar, bæði í klæða- burði og eins að huggulegu heimili hennar. Með fimm mínútna fyrir- vara gat hún litið út eins og heims- dama. Hún hafði líka með afbrigð- um fallega rithönd, sem mætti teljast fyrirbæri í útrýmingarhættu. Ekki lá hún nokkurn tímann á liði sínu, því hún var forkur til vinnu og tók skyldur sínar alvarlega. Á litlum vinnustað þurfa allir að leggja hönd á plóg og ganga stund- um hver í annars störf – ekki var nokkurn tímann að spyrja að Hjör- dísi – hún var boðin og búin að hjálpa öllum og allt vann hún af stakri vandvirkni. Við söknum Hjördísar sárt og vottum fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð. F.h. starfsfólks á 101 hóteli, Ester Auður Elíasdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.