Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009 Liður kemur inn á fjárlög og fer ekki þaðan aftur „ÞAÐ hlýtur að mega skera eitt- hvað niður,“ segir einn viðmælandi Morgunblaðsins og vísar þar í margvíslega liði í fjárlögum. „Það eru liðir eftir liði undir ráðuneyt- unum, allir þessir sjóðir … Hvað heldurðu að þetta kosti allt sam- an?“ segir hann. „Og það er svo hætt við að þegar einu sinni er kominn inn einhver liður að hann fari ekkert út aftur heldur er aukið við af því að það er alltaf unnið út frá fjárveitingum síðasta árs, alltaf verið að stoppa í,“ segir viðmælandinn og bætir við að ráðuneytin séu þess utan misklók að „ná sér í liði“. Þessi orð urðu til þess að blaða- maður rýndi í ýmsa sjóði. Eftirfar- andi er lausleg yfirferð um nokkra þeirra. Vart þarf að taka fram að hér er skautað á afar þykku yf- irborðinu, svo þykku að vart sést nokkurs staðar til botns. Eins er vert að taka fram að ekki er lagt mat á starf eða nauðsyn hvers og eins sjóðs. Í lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir frá 2003 segir að markmið laganna sé að efla vísinda- rannsóknir og vísindamenntun á Íslandi með því að styrkja grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir. Úthlut- unarsjóðir eru tilteknir Rannsóknasjóður og Tækja- sjóður. Tekjur Rannsóknasjóðs eru í fyrsta lagi fjárveiting í fjárlögum ár hvert, öðru lagi gjafir frá einstaklingum eða fyrirtækjum og loks önnur framlög. Tækjasjóður fær einkaleyfisgjald af rekstri peningahappdrætta eða aðrar sambærilegar tekjur og í öðru lagi önnur framlög. Stjórn Rannsóknasjóðs fer jafnframt með stjórn Tækjasjóðs. Þá segir: Kostnaður við mat á umsóknum og við störf stjórnar Rannsóknasjóðs og Tækjasjóðs skal greiddur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins. Til er sjóður sem heitir Framleiðnisjóður landbún- aðarins. Undir þeim sjóði er hinn merkilegi Garð- ávaxtasjóður sem í fjáraukalögum í okt. 2008 fékk rúm- lega átta milljónir. Óttalegt smotterí segja eflaust flestir en til þess ber að líta að safnast þegar saman kemur. Í lögum um sjóðinn segir: „Garðávaxtasjóður er sjálfstæður sjóður í vörzlu og umsjá Framleiðnisjóðs.“ Helstu verkefni sem framlög hafa verið veitt til úr Garðávaxtasjóði lúta að heilbrigði og stofnræktun íslenskra kartaflna og gulrófna. „Tekjur Framleiðnisjóðs landbúnaðarins eru starfsfé í samræmi við samning sem landbúnaðarráðherra og fjár- málaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, og Bændasamtök Ís- lands gera samkvæmt búnaðarlögum nr. 70/1998. Aðrar tekjur Framleiðnisjóðs eru vaxta- og umsýslutekjur,“ segir í ársskýrslu 2008 á heimasíðu sjóðsins. Á árinu 2008 voru tekjur Framleiðnisjóðs alls 204 milljónir og framlag ríkis nam samkvæmt fjárlögum 160 milljónum króna. Eflaust er Garðávaxtasjóður mjög þarfur og nauðsyn- legur. Hins vegar er sjóðurinn undir Framleiðnisjóði og til- vera hans er flókin og ógegnsæ. Í lögum um póstþjónustu frá 2002 er fjallað um Jöfn- unarsjóð alþjónustu. Alþjónusta er sú póstþjónusta sem landsmenn skulu eiga aðgang að á jafnræðis- grundvelli. Lögin eru flókin og margorð, enda ýmislegt um póstþjónustu að segja og rétt að hafa alla fyrirvara ná- kvæma. Póst- og fjárskiptastofnun hefur umsjón með málefninu sem lýtur að því að ef rekstrarleyfishafi telur að alþjónusta sem honum er skylt að veita sé rekin með tapi eða óarðbær getur viðkomandi farið þess á leit að honum verði tryggt með fjárframlögum „eðlilegt endurgjald fyrir þá þjónustu sem hér um ræðir“. Ef niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar verður að þjónustan verði ekki aflögð skal hún tryggja rekstrarleyfishafa fjárframlög úr Jöfn- unarsjóði alþjónustu. Innheimt er jöfnunargjald sem renn- ur í jöfnunarsjóð í vörslu Póst- og fjarskiptastofnunar. Gjaldið er innheimt af rekstrarleyfishöfum í „hlutfalli við bókfærða veltu þeirra á sviði alþjónustu“ og er ákveðið með lögum. Beinast liggur við að varpa þeim spurningum fram hvort sjóðurinn er: einfaldur? gagnsær? nauðsynlegur? Í lögum um Orkustofnun frá 2003 er fjallað um Orku- sjóð. Þar segir: „Hjá Orkustofnun skal starfa orkuráð. Ráðherra skipar fimm menn í orkuráð til fjögurra ára í senn. Verkefni orkuráðs skulu m.a. fólgin í ráðgjöf við framkvæmd verkefna skv. 2. tölul. 1. mgrs. 2. gr. og að gera tillögur um lánveitingar og greiðslur úr Orkusjóði.“ Orkusjóður er eign ríkisins en Orkustofnun annast dag- lega umsýslu sjóðsins. Í lögunum segir: „Hlutverk Orku- sjóðs er að stuðla að hagkvæmri nýtingu orkulinda lands- ins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða er miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.“ Einmitt! Tekjur Orkusjóðs eru vextir af fé sjóðsins og framlag í fjárlögum. Allur kostnaður við rekstur Orkusjóðs greiðist af tekjum sjóðsins. Í lögum um Nýsköpunarmiðstöð er fjallað um Tækniþróunarsjóð. Hann er sérstakur sjóður og heyrir undir iðnaðarráðherra. Fagleg umsýsla Tækniþróun- arsjóðs er í höndum óháðra aðila. Hlutverk hans er að „styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi“. Hljómar það kunnuglega? Tekjur sjóðsins eru fjárveitingar í fjárlögum, tekjur af sölu hlutdeildar í sprotafyrirtækjum sem sjóðurinn hefur eignast aðild að, framlög frá innlendum og erlendum sam- starfsaðilum og önnur framlög. Í stjórninni sitja sjö menn sem iðnaðarráðherra skipar. Kostnaður við mat á um- sóknum og rekstur sjóðsins skal greiddur af árlegu ráðstöfunarfé hans. „Listskreytingasjóður ríkisins hefur það markmið að fegra opinberar byggingar og umhverfi þeirra,“ segir í lögum um sjóðinn frá 1990. Sjóðurinn hefur sjálfstæðan fjárhag og eigin stjórn. Hann heyrir undir mennta- málaráðuneytið. Tekjur sjóðsins eru árlegt framlag rík- isins, vaxtatekjur og „aðrar tekjur“. Menntamálaráðherra skipar fimm manna stjórn og ákveður jafnframt þóknun stjórnarmanna sem greiðist úr sjóðnum ásamt öðrum kostnaði við starfsemi hans. Kvikmyndasjóður starfar á vegum Kvikmynda- miðstöðvar Íslands og er hlutverk hans að efla íslenska kvikmyndagerð með fjárhagslegum stuðningi að því er segir í reglugerð um Kvikmyndasjóð nr. 229/2003 ásamt breytingum 2004, 2007 og 2009. Styrkir úr sjóðnum geta runnið til handritsgerðar, þróunar, framleiðslu, eftirvinnslu og kynningar. Verk sem nýtur styrks úr Kvikmyndasjóði skal kynnt sem íslenskt á kvikmyndahátíðum og mörk- uðum erlendis. Um Kvikmyndasjóð er fátt eitt að segja. Nema þá ef vera skyldi að með nýjum kvikmyndalögum sem tóku gildi 1. janúar 2003 var Kvikmyndasjóður Íslands lagður niður sem ríkisstofnun í þeirri mynd sem hann var þá. „… en til verða tvær nýjar stofnanir; Kvikmyndamiðstöð Íslands og Kvikmyndasafn Íslands“, eins og segir í fréttatilkynningu á vef menntamálaráðuneytisins frá 29. nóvember 2002. Markmið með breytingu kvikmyndalaga hefur eflaust ver- ið einföldun. Hins vegar hlýtur að vekja athygli að tvær stofnanir verða til og verkferli öll eru flókin og óaðgengi- leg. „Fiskræktarsjóður er sjálfstæður sjóður í eigu ríkisins og á forræði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem hefur það hlutverk að veita lán eða styrki til verkefna sem þjóna þeim markmiðum að efla fiskrækt, bæta veiði- aðstöðu, styðja við rannsóknir í ám og vötnum og auka verðmæti úr þeim,“ segir í lögum um fiskræktarsjóð frá 2008. Einfalt og augljóst, ekki satt? „Verkefni sjóðsins eru lögbundin,“ segir Ingimar Jó- hannsson, sérfræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu. „Þau eru fiskvegagerð, þ.e. að hleypa fiski inn á ný svæði sem hann kemst ekki sjálfur, það stækkar bæði veiðisvæði og hrygningarsvæði í ám,“ segir hann. Ráðstöfunartekjur Fiskræktarsjóðs eru innheimt gjald af veiðitekjum, arður af eigin fé, fjárveiting úr ríkissjóði og annað. Í stjórn sjóðsins sitja fulltrúar Landssambands veiðifélaga, Landssambands stangaveiðifélaga og einn sem ráðherra tilnefnir. Eigið fé sjóðsins skal að lágmarki vera 270 milljónir. Allur kostnaður af starfsemi Fisk- ræktarsjóðs greiðist af honum. Sagt að ráðuneytin séu misklók að krækja sér í liði – eftir liði Morgunblaðið/RAX Í strætó Nú styttist í að fjárlagafrumvarpið verði lagt fram. Framlög í ýmsa sjóði verður eflaust þar að finna. – meira fyrir áskrifendur Mannauður Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Verðmætasta auðlind allra fyrirtækja er mannauðurinn. Sá sem hefur besta fólkið stendur best að vígi. Í sérblaðinu Mannauðurinn skoðar Viðskiptablað Morgunblaðsins leiðir til að bæta starfsandann og styrkja starfsfólkið. • Hvernig má efla hópinn á erfiðum tímum? • Hvað þurfa stjórnendur að temja sér til að ná því besta úr starfsfólkinu? • Hvaða námskeið og hópeflislausnir eru í boði? • Hvernig getur símenntun og sjálfsstyrking bætt mannauð fyrirtækisins? • Hvað í vinnuumhverfi og kjörum skiptir mestu máli? • Hvernig má laða að - og halda í - hæfasta fólkið? Mannauðsmálin verða krufin til mergjar í veglegu sérblaði 8. október. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn Karlsdóttir 569 1134 - 692 1010 - sigridurh@mbl.is Auglýsendur! Auglýsingapantanir eru í síma 569 1134 eða sigridurh@mbl.is til 5. október.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.