Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009 ✝ Eggert Brekkanfæddist á Ak- ureyri 26. september 1930. Hann lést í Uppsölum 16. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Friðrik Ásmundsson Brekkan, kennari og rithöfundur, f. 28. júlí 1888, d. 22. apríl 1958 og Estrid Fal- berg Brekkan, kenn- ari, f. 17. september 1892, d. 26. apríl 1978. Bræður Egg- erts eru Ásmundur Brekkan, læknir, f. 11. maí 1926 og Carl Pe- der Hugo, f. 1929, d. 1935. Hinn 25. desember 1950 giftist Eggert Brynhildi Björk Ein- arsdóttur, f. 20. apríl 1930, d. 8. júní 2003. Börn þeirra eru Einar, læknir í Svíþjóð, Estrid, sendi- ráðunautur í utanríkisþjónustunni og Eggert Friðrik, lífefnafræð- ingur í Svíþjóð. Eggert ólst upp í Reykjavík. Hann varð stúdent frá MR 1949 og lauk kandídatsprófi í læknisfræði frá Há- skóla Íslands 1957. Hann starfaði í Sví- þjóð að mestu leyti á árunum 1957 til 1971 og svo í Stokmarknes í Norður-Noregi 1971-1974. Árið 1974 fluttu hjónin aftur til Íslands og starfaði Eggert á Eskifirði og í Reykjavík frá 1974 til 1976, en þá settust þau að í Neskaupstað þar sem Eggert var yfirlæknir á Fjórð- ungssjúkrahúsinu til 1993. Síðustu starfsár Eggerts var hann yf- irlæknir á Sentralsykehuset í Förde í Noregi. Þegar hann fór á eftirlaun 1997 flutti hjónin til Uppsala, en þar búa einnig syn- irnir með sínar fjölskyldur. Minningarathöfn um Eggert verður í Uppsölum í dag, 24. sept- ember. Eggert Brekkan verður þeim minnisstæður sem áttu með honum samleið og ekki síst samverkafólki í stofnunum þar sem hann kom við sögu sem skurðlæknir. Lengsta við- dvöl á sínum starfsferli hafði hann í Neskaupstað þar sem hann var yf- irlæknir á Fjórðungssjúkrahúsinu í 17 ár frá 1976-1993, og raunar einu ári betur þegar með er talið árið 1961-1962. Eggert og eiginkona hans Björk Einarsdóttir urðu hluti af samfélaginu og góðir grannar okkar öll þessi ár. Fyrir utan daglegt sam- starf á sjúkrahúsinu var greiður og óformlegur samgangur á milli heim- ila okkar, kryddaður með formlegum boðum á stórhátíðum. Það var ætíð tilhlökkunarefni að njóta máltíðar frá hendi Bjarkar og sem meðlæti fylgdu skemmtilegar og oft andríkar samræður. Innvígðum duldist ekki að Björk í allri sinni hógværð var kjölfestan í fjölskyldunni og stuðn- ingur við bóndann í erilsömu og krefjandi starfi. Bæði voru þau gamansöm, Björk glettin og beinskeytt, Eggert hafsjór af sögum frá löngum og litríkum ferli og kom þeim til skila með leikrænni tjáningu um leið og hann horfði yfir gleraugun. Ósjaldan var efniviðurinn sóttur til Svíþjóðar þangað sem hann sótti sína sérfræðimenntun og hafði flengst á milli staða fleiri en tölu verði á komið. Noregur virtist þó standa honum nær en Svíaríki, sér- staklega áttu þau hjón góðar minn- ingar frá dvöl sinni í Stokmarknes í Nordland, þar sem Eggert var um skeið forstöðumaður og dóttirin Est- rid gekk í menntaskóla. Við Kristín áttum síðar leið um þann stað og horfðum þá til læknishússins sem verið hafði heimili þeirra. Frá Noregi lá leiðin til Austfjarða „í hérað“ á heimaslóðir Bjarkar á Eskifirði og litlu seinna til Norð- fjarðar. Hugarheimur Eggerts féll ekki beinlínis að þeirri opinberu rót- tækni sem einkenndi meirihlutann í sveitarstjórn á Norðfirði í hálfa öld, og hann var meira að segja eitt sinn kosinn þar í bæjarstjórn fyrir hægri- menn. Eftir einn fund á þeim vett- vangi áttaði hann sig á að þar væri ekki hans staður og hærra lá ekki leið hans upp metorðastiga stjórn- málanna. Líklega er þetta dæmi um hversu fljóthuga hann gat verið. Hann var vandur að virðingu sinni, kurteis og skyldurækinn, og reynd- ist Austfirðingum ágæta vel sem læknir. Úr föðurgarði tók Eggert með sér áhugann á bókmenntum, las ókjörin öll og hafði tilvitnanir í klassísk rit og sagnfræðileg á hraðbergi. Eftir- minnilegur er hann líka sem bréfrit- ari eins og við Kristín þekkjum af línum sem okkur bárust öðru hvoru, þær síðustu frá miðju sumri nokkr- um vikum fyrir andlát hans. Þar minnist hann sextíu ára „students- jubileum“ á liðnu vori sem varð hon- um fagnaðarfundur. Þrátt fyrir van- heilsu átti hann sæmilegt ævikvöld í Uppsölum og leitaði hugarhægðar í ferðum til dóttur sinnar í Parísar- borg. „Nú í þessu er sólin að hníga til viðar yfir turnum Uppsalaborgar“ segir hann í síðasta bréfi til okkar. „Við mér blasa hér af svölunum mín- um dómkirkjan hin mikla og höllin í kvöldroðanum. Já það er víða lakara en í Uppsölum.“ Þannig var hans ævikvöld. Við sem eftir sitjum sökn- um vinar í stað. Kristín og Hjörleifur Guttormsson. Góður vinur og velgjörðarmaður okkar Norðfirðinga Eggert Brekkan læknir er látinn. Í 17 ár var hann yfirlæknir Fjórð- ungssjúkrahússins í Neskaupstað. Hann og kona hans Björk Einars- dóttir voru frá fyrsta degi ein af okk- ur. Á þessum 17 árum bar aldrei neinn skugga á samstarfið við Egg- ert. Áhugi hans og allt hans starf miðaðist við að gera gott sjúkrahús betra, enda varð á þessum árum gjörbylting á húsakosti og búnaði sjúkrahússins. Eftir að þau Eggert og Björk fluttu til Svíþjóðar tókum við Eggert upp þann gamla góða sið að skrifast á og voru mín bréf nokkurs konar fréttabréf um gang mála hér, því ég skynjaði á hans bréfum að hugurinn leitaði oft til Neskaupstaðar. Í því sambandi minnist ég þess að í einu bréfi hans segir: „Það er furðu- legt að maður skuli taka upp á því að flytja þaðan sem manni hefur liðið best.“ Mér þótti og þykir mjög vænt um þessi orð hans því vera þeirra hér í 17 ár er geymd í þakklátum huga okkar Norðfirðinga og þá sérstak- lega okkar sem með honum störfuð- um. Heimili Eggerts og Bjarkar bar með sér blæ menningar og mennta. Þar var og öllum sem að dyrum komu tekið af einstakri velvild og hlýju, sem enginn mun gleyma sem notið hefur, en þeir voru margir. Við Guðrún sendum börnum hans og fjölskyldum þeirra hugheilar samúðarkveðjur. Stefán Þorleifsson, fv. forstöðumaður FSN. Eggert Brekkan Morgunblaðið birtir minningargrein- ar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upp- lýsingum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdar- mörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 lín- ur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsing- ar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður. Minningargreinar ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HJÁLMTÝR RAGNAR JÚLÍUSSON bifvélavirki, Baugstjörn 3, Selfossi, sem lést á Ljósheimum, Selfossi, laugardaginn 19. september, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju föstudaginn 25. september kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta slysavarnar- og líknarfélög njóta þess. Elínborg Ásmundsdóttir, Brynja Hjálmtýsdóttir, Ingimundur Sigurmundsson, Smári Rúnar Hjálmtýsson, Ólöf Másdóttir, Elvar Ingimundarson, Auður Ingimundardóttir, Elínborg Ingimundardóttir, Rúnar Þór Jóhannsson, Ragnar Týr Smárason, Guðlaug Li Smáradóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 17. september, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 29. september kl. 13.00. Guðmundur I. Kristófersson, Ósk Davíðsdóttir, Guðríður Kristófersdóttir, Hallgrímur Jónasson, Sigurður Kristófersson, Hjördís Árnadóttir, Ingveldur Þ. Kristófersdóttir, Helgi Már Guðjónsson, Hannes Kristófersson, Guðríður Ólafsdóttir, Helgi Kristófersson, Guðrún Eysteinsdóttir, Valgerður Eygló Kristófersdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, GYÐA GRÍMSDÓTTIR, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands að morgni laugardagsins 19. september. Útförin verður auglýst síðar. Óttar Egilsson, Anat Egilsson, Davíð Sigmarsson, Sólrún Sigurðardóttir, Guðrún Rut Sigmarsdóttir, Lárus Guðmundsson, Kristín María Grímsdóttir, Sigríður Grímsdóttir og barnabörn. ✝ Sonur okkar og bróðir, VALDIMAR EINARSSON, verður jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju laugar- daginn 26. september kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins. Fyrir hönd fjölskyldu og vina, Einar Guðmundsson, Sævör Þorvarðardóttir, Sævarður Einarsson, Jóhannes Fannar Einarsson, Sigurlín Sumarliðadóttir, Jón Þór Einarsson, Snædís Ólafía Einarsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRIR BJARNASON vélstjóri, Sóltúni 2, áður til heimilis Lambastekk 9, andaðist á heimili sínu föstudaginn 18. september. Útförin fer fram frá Áskirkju í Reykjavík föstudaginn 25. september kl. 13.00. Þráinn Viðar Þórisson, Þorbjörg Oddgeirsdóttir, Þóra Þórisdóttir, Ólafur Már Björnsson, Páll Þórisson og barnabörn. ✝ Ástkær dóttir okkar, fósturdóttir, systir, barnabarn og frænka, LÍSA ARNARDÓTTIR, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 15. september. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 25. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Vímulausa æsku. Jóhanna Jónsdóttir, Óskar Geir Pétursson, Örn Hilmarsson, Mila Prodanovic, Stefán Hafberg Sigurðsson, Heiða Arnardóttir, Jóna Kristín Hallgrímsdóttir, Guðrún Kalla Bárðardóttir, Hilmar Þór Sigurþórsson, Alma Rán Stefánsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu samúð og vinarhug við andlát og útför ÖNNU MÖRTU GUÐMUNDSDÓTTUR, Hesteyri, Mjóafirði. Bestu þakkir til heimilisfólks á Brekku, sérstaklega til Sigfúsar Vilhjálmssonar og Jóhönnu Lárusdóttur. Einnig þakkir til starfsfólks á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað fyrir nærgætni og velvild. Jón Ísfeld Karlsson, Steinunn Ísfeld Karlsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.