Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2009 Mörg matar- holan hjá hinu opinbera FRÉTTASKÝRING Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is Í SKÝRSLUM Ríkisendurskoðunar um fjármál hins opinbera er sí og æ endurtekið að svo virð- ist sem stjórnvöld líti á fjárlög sem drög en ekki raunverulegt plagg sem fara eigi eftir. Eins er tekið fram víða að áminna eigi þá forstöðumenn stofnana sem fara fram yfir fjárveitingar og þurfa því aukafjárveitingu – í stað þess að þeir séu áminntir eru þeir verðlaunaðir með auka- fjárveitingum. Þó að skýrslur ríkisendurskoðunar séu um margt forvitnilegar eru fjáraukalög ekki síður forvitnileg. Eins er merkilegt að skoða fjárlög þar sem liðir undir liðum undir liðum gera leik- mann svo ringlaðan að erfitt er að ná böndum á hugsanir – hvað þá koma þeim á blað. Sjóðir af ýmsu tagi leynast víða og titlar margra þeirra vekja undrun og vangaveltur um til hvers þessi og hinn sjóðurinn sé ætlaður. Hver er til dæmis tilgangur Fiskræktarsjóðs? Og Garðávaxtasjóðs? Með aðstoð hinnar öflugu leitarvélar google má vissulega finna lög um alla þessa sjóði og tilgangur virðist vera með hverj- um og einum. Hins vegar vaknar óhjákvæmi- lega spurningin hvað kostar að reka alla þessa sjóði? Stjórnarmenn eru launaðir – oft er tekið fram í lögunum að launakostnaður sé borinn uppi af sjóðnum sjálfum, sem og rekstrarkostn- aður. Gjöld sem innheimt eru af atvinnuveg- unum fara þess vegna að miklu leyti í að reka sjóðina. Og er tilgangurinn þá kannski að skapa atvinnu? Varla, því oft og tíðum situr sama fólk í stjórnum margra sjóða. Viðmælendur Morgunblaðsins voru við vinnslu þessarar fréttaskýringar ákaflega margir og sinna margvíslegum störfum hjá hinu opinbera jafnt sem í einkageira. Jafnframt við- mælendur sem sestir eru í helgan stein en hafa víðtæka reynslu af störfum fyrir hið opinbera. Eitt eru allir sammála um. Það ber að sameina fleiri ráðuneyti en fyrirhugað er. Það ber að sameina stofnanir í stórum stíl. Hver er til dæmis tilgangurinn með því að taka sjúkra- tryggingar út úr Tryggingastofnun ríkisins og setja á fót sjálfstæða stofnun? Sú stofnun þarf nýjan framkvæmdastjóra – um leið eru þeir orðnir tveir sem sinna að mörgu leyti sama málaflokknum. Rugl, segja flestir. Hið sama má segja um sérstakan saksóknara sem að mörgu leyti sinnir sama hlutverki og embætti saksókn- ara efnahagsbrota. Skörun ráðuneyta kostar sitt Skörun ráðuneyta í ákveðnum málaflokkum kostar sitt. Þannig má til dæmis nefna málefni fatlaðra sem að hluta til eru undir heilbrigð- isráðuneyti, að hluta undir félags- og trygginga- málaráðuneyti og loks heyrir hluti undir menntamálaráðuneyti. „Já, þessu er stjórnað hverju af sínum aðilanum,“ segir Sveinn Arason ríkisendurskoðandi. „Yfirstjórn er ekki sam- ræmd en ég kann ekki að segja með nýju til- færslurnar; hvort eitthvað hefur lagast þar,“ segir hann og vísar þar í sameiningu á ráðu- neytum sem væntanlega verður tilkynnt von bráðar. „Við höfum verið að skoða málefni fatl- aðra á þessu ári,“ segir Sveinn. „Við verðum að ætla að það sé betra að einn aðili sjái um öll þessi mál en skipta þeim á milli ráðuneyta. Þau togast á og svo má spyrja hvaða ráðuneyti á að taka á jaðartilfellum? Málaflokkurinn getur orð- ið dýrari en ella þegar málum er svona háttað.“  Flestir telja að sameina beri fleiri ráðuneyti en fyrirhugað er og sameina stofnanir í stórum stíl  Hvaða ráðuneyti á að taka á jaðartilfellum þegar málaflokkar skarast á milli tveggja eða fleiri? Morgunblaðið/RAX Varúð Ríkisvaldið þarf að stíga varlega til jarðar um leið og skíturinn er mokaður í stórum stíl. Ráðstöfun ríkisfjár „Flest ráðuneytin hafa fundað með for- stöðumönnum stofnana og búið þá undir frekari niðurskurð á árinu 2010. Engin bein fyrirmæli hafa þó enn komið um slíkan nið- urskurð frá stjórnvöldum. Rekstrarstjórar ráðuneytanna telja brýnt að vinnu við und- irbúning fjárlaga 2010 verði hraðað,“ segir í skýrslu ríkisendurskoðanda um fjár- málastjórn ráðuneyta og skil rekstraráætl- ana sem kom út í júní sl. Þar segir jafn- framt um styrki sem ráðuneytin veita til margvíslegra verkefna: „… eru enn brögð að því að ráðuneyti veiti styrki án þess að gerðir séu samningar þar sem fram kemur hvaða kröfur eru gerðar til samningsaðila, t.d. um skil á gögnum um nýtingu fjárins. Þetta gildir m.a. um styrki sem fjár- laganefnd Alþingis veitir.“ Þessi orð koma heim og saman við orð eins viðmælanda Morgunblaðsins sem fullyrðir að eftirlit með styrkveitingum sé mjög lítið. Styrkir séu veittir í verkefni en eftirfylgni er með köflum. Í þessari sömu skýrslu er farið yfir við- brögð stofnana við skertum fjárveitingum. Fram kemur að dæmi eru um að ráðuneyti hafni tillögum forstöðumanna stofnana um sparnað og krefjist nýrra hugmynda. Þetta hlýtur að vekja spurningar um hvort við- komandi forstöðumenn teljast starfi sínu vaxnir. Eða eru þeir sem stýra stofnunum ekki þeir sem gerst þekkja reksturinn og geta sagt til um hvar þrengja má að? „Þá kemur fram að tilmæli koma frá fagráðu- neyti um að forðast beri að skerða þjón- ustu, segja upp starfsfólki o.s.frv. Er þá bent á aðrar leiðir, t.d. að draga úr yf- irvinnu.“ (bls. 13) Einmitt! Ekki í samræmi við það sem stofnununum er ætlað að starfa eftir Í máli viðmælenda Morgunblaðsins kom ítrekað fram að heildarsýn yfir fjárlaga- vinnu virtist í mörgum tilfellum skorta. Út- gangspunktur fjárlaga er jafnframt í lang- flestum tilvikum fjárveitingar síðasta árs. „Til að undirbúa væntanlega lækkun fjár- veitinga á árinu 2010 telur Ríkisendur- skoðun að ráðuneyti og stofnanir eigi nú að sameinast um að meta væntanleg áhrif ann- ars vegar 5% og hins vegar 10% nafnverðs- lækkunar fjárveitingar milli áranna 2009 og 2010 á þjónustu stofnana. Þá ættu stofnanir að gera grein fyrir hvernig slíkri lækkun yrði mætt. Með þessu móti ætti fjárveiting- arvaldinu að veitast auðveldara að taka ákvarðanir um niðurskurð.“ (bls. 13) Þá segir (bls. 16) að rekstrarstjóri utan- ríkisráðuneytis hafi tekið skýrt fram á fundi með ríkisendurskoðun að ekki kæmi til greina að heimild stofnana til að ráð- stafa vannýttum heimildum yrði takmörk- uð. Aftur á móti hefur dóms- og kirkju- málaráðuneytið, ólíkt mörgum öðrum ráðuneytum, „takmarkað nýtingu ónýttra fjárheimilda og þannig lagt áherslu á að stofnanir gangi ekki að fullu á þær á árinu 2009, heldur reyni að dreifa nýtingu þeirra á fleiri ár“. (bls. 18) Dóms- og kirkju- málaráðuneytið fær prik fyrir þetta. Enda kemur fram í fjáraukalögum síðan í októ- ber í fyrra að það ráðuneyti fær lang- minnsta aukafjárveitingu, eingöngu um 85 milljónir. Önnur ráðuneyti fá allt að 12.702 milljónir í fjáraukalögum. Félags- og trygg- ingamálaráðuneyti virðist þó vera á öðrum hesti því í fjáraukalögum er lagt til að fjár- heimild þess verði lækkuð um 721,4 millj- ónir. Í viðauka í lok skýrslunnar eru tilteknar stofnanir með uppsafnaðan halla umfram 4% í árslok 2008. Þar eru m.a. Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri. „Við höfum vísbendingar,“ segir Sveinn Arason ríkisendurskoðandi, „og við getum sagt sem svo að þær stofnanir sem hafa farið fram úr fjárlögum, það er vís- bending um að rekstur þeirra sé ekki í samræmi við það sem þeim er ætlað að starfa eftir. Spyrja má hvort þessar stofn- anir séu að þessu leyti að sólunda fjár- munum,“ segir hann en bendir jafnframt á að forstöðumenn viðkomandi stofnana meti það svo að fjármununum sé varið í góðum tilgangi. „Ég nefni í því samhengi skóla og framhaldsskóla sem farið hafa fram úr. Þessar stofnanir eru í kennslu og er það ekki dýrmætast af öllu – að mennta börnin og unglingana?“ Landspítali Íslands sker sig úr þar sem uppsafnaður halli hans er 1.635,8 milljónir króna. Einn heimildarmaður orðaði það svo að „spítalarnir hafi alltaf verið í erf- iðleikum. Áætlunargerð er erfið og Land- spítalinn er, má segja, endastöð í kerfinu og þarf að taka við öllu sem ekki er hægt að setja annað“. Heildarsýn yfir fjárlagavinnu skortir  Dæmi eru um að ráðuneyti hafni tillögum forstöðumanna stofnana um sparnað og krefjist nýrra hugmynda  Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneyti og stofnanir til að sameinast um að meta áhrif 5% og 10% skerðingar Hvað fengu ráðuneytin í fjáraukalögunum og tvær stofnanir í sama málaflokki. Á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.