Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 4. S E P T E M B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 259. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «BORGARLEIKHÚSIÐ HEIMA ER BEST ER KOLSVÖRT KÓMEDÍA «EDEN-HUGMYNDAFRÆÐIN Ræktun, smíðar og skepnuhald REKSTRARKOSTNAÐUR hjá Vegagerðinni hefur minnkað um 301,3 milljónir, eða um 26,1%, fyrstu sjö mánuði ársins ef miðað er við fyrstu sjö mánuði ársins 2008. G. Pétur Matthíasson, upplýs- ingafulltrúi Vegagerðarinnar, bend- ir þó á að inni í þessum tölum er ekki eingöngu sparnaður vegna þess að hætt hafi verið við einhverjar fram- kvæmdir: „Heldur hefur ýmsu verið frestað, tækjakaupum og viðhaldi hefur verið frestað í eitt ár eða leng- ur en á endanum kemur til þess að fara þarf í þann kostnað,“ segir hann. Í miðstöð Vegagerðarinnar (mestmegnis í Reykjavík) er kostn- aðarminnkunin 41,7 millj. kr eða 8,5% frá fyrra ári, á skrifstofum svæðanna 46,9 millj. kr. eða 36,3%, hjá rekstrardeild Vegagerðarinnar 208,7 millj. kr. eða 32,8%. Í skýrslu ríkisendurskoðanda um fjármálastjórnun ráðuneyta og skil rekstraráætlana frá því í júní er hvatt til þess að ráðuneyti og stofn- anir sameinist um að meta væntan- leg áhrif annars vegar 5% og hins vegar 10% nafnverðslækkunar fjár- veitingar milli 2009 og 2010. | 16-17 Spara milljónir Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur nú til rannsóknar hvort föllnu bankarnir; Landsbankinn, Glitnir og Kaupþing, hafi kerfisbundið reynt að halda verði eigin hlutabréfa uppi fyrir hrun bankakerfisins á síðasta ári og þannig sent misvísandi skilaboð til markað- arins, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins. Rannsóknin, sem hefur staðið yfir í nokkurn tíma og nær nokkur ár aftur í tímann, er lengst á veg komin í tilviki Kaupþings. Grunur leikur á að bank- inn hafi stýrt verði á eigin hlutabréf- um með því að útbúa stöðuga eftir- spurn eftir bréfunum. Rannsóknin beinist m.a. að því að kerfisbundið hafi verið reynt að hafa áhrif á verð hlutabréfanna og þar með dregin upp röng mynd af raunveru- legu verðmæti, en mörg dæmi eru um lánveitingar hjá Kaupþingi til eign- arhaldsfélaga þar sem lán voru nýtt til að kaupa hlutabréf í bankanum og einu veðtryggingarnar voru bréfin sjálf. Dæmi um slíkt eru t.d. lánveit- ingar til Holt Investments Ltd., eign- arhaldsfélags Skúla Þorvaldssonar, þar sem eini tilgangur láns virðist hafa verið hlutabréfakaup í Kaup- þingi, og jafnframt lán til Kevins Stanfords. Heildarlán til Stanfords, sem var fjórði stærsti hluthafi Kaup- þings, námu 374,8 milljónum evra (um 68,5 milljörðum króna). 45 pró- sent lánanna voru nýtt til hlutabréfa- kaupa í Kaupþingi og stór hluti veð- trygginga var bréfin sjálf. FME rannsakar allsherjar markaðsmisnotkun banka Beinist að því að kerfisbundið hafi verið reynt að hafa áhrif á verð hlutabréfa  Ein allsherjar | Viðskipti VARNARGARÐARNIR í Landeyjahöfn teygja sig í átt til Vestmannaeyja, en þeir eru nánast komnir í endanlega lengd. Eftir um tíu mánuði leggst Herj- ólfur þar að bryggju í fyrsta skipti ef allt gengur eftir áætlun. Reikna má með að framkvæmdir við hafnargerðina kosti um 2,2 milljarða, en þær eru mánuði á undan áætlun. Í sumar hefur einnig verið unnið við uppgræðslu og græn slikja setur svip á umhverfið þar sem áður var svartur sandur. | 15 Á UNDAN ÁÆTLUN Í LANDEYJAHÖFN Ljósmynd/Emil Thor  HITINN í Reykjavík fór ekki yfir 10 gráður í fyrradag en það gerðist síðast 2. júní sl. Hitinn náði því 10 gráðum í 110 daga samfellt. Þykir það óvenjulegt en þó ekki einstakt. Hefur það gerst fjórum sinnum áð- ur frá árinu 1949 að lengri tími hef- ur liðið. Sumarið í fyrra á vinning- inn en þá leið 121 dagur þar til hiti náði ekki upp fyrir stigin tíu. Sum- arið í ár er það sjöunda hlýjasta í Reykjavík frá upphafi mælinga árið 1870. Sólskinsstundirnar urðu 149 umfram meðallag en það sam- svarar hálfum mánuði af sólar- dögum. »15 110 dagar frá því að hiti náði ekki 10 gráðum  „ÞAÐ hefur auðvitað góð sál- ræn áhrif á manneskjuna til lengri tíma að vera nýtin, því mikil sóun og eyðsla gengur nærri okkur sál- rænt,“ segir Þór- katla Aðalsteinsdóttir sálfræð- ingur, en hún segir fólk leita í auknum mæli til sálfræðinga í kreppunni. Fólk sé kvíðið og það upplifi tilveruna svolítið strembna. Langflestir læri þó að sníða sér stakk eftir vexti. „Ef við lifum við langvarandi kvíða er það hreinlega mjög óhollt,“ segir Þórkatla. »12 Sálfræðingar finna fyrir aukinni aðsókn í kreppunni  MÖGULEIKAR hafa verið skoð- aðir á sjávarfallavirkjun á Vest- fjörðum í samstarfi við japanska iðnaðarrisann Mitsubishi. Þorgeir Pálsson, framkvæmdastjóri At- vinnuþróunarfélags Vestfjarða, hefur átt viðræður við fulltrúa Mit- subishi, fyrir milligöngu íslenska sendiráðsins í Tókýó. Hefur þetta verið kynnt fyrir iðnaðarráðuneyt- inu, Nýsköpunarmiðstöð, Háskóla- setri Vestfjarða og Fjórðungs- sambandi Vestfjarða. »14 Japanar skoða sjávarfalla- virkjun á Vestfjörðum NOKKRIR smærri kröfuhafar Baugs Group, sem eiga kröfur í þrotabú félagsins, eru ósáttir við ráðstöfun kaupverðs vegna söl- unnar á Högum til 1998 ehf. VIÐSKIPTI Smærri kröfuhaf- ar eru óánægðir Forsvarsmenn bankanna hafa tekið misjafnlega í þá hugmynd, sem nú er til skoðunar, að færa íbúðalánin yfir til Íbúðalánasjóðs. Sumir taka verr í þessa hugmynd en aðrir. Ekki allir jafn- hrifnir af flutningi Guðrún G. Bergmann segir að vax- andi aðsókn hafi verið undanfarin ár að hótelinu sem hún rekur á Hellnum á Snæfellsnesi og öll met hafi verið slegin í ár. Öll met slegin í ár á Hellnum Rannsóknin er ein sú umfangs- mesta sem komið hefur til kasta FME og fer mjög leynt innan stofnunarinnar. Myndar hún eins konar hjúp yfir önnur mál, t.d. lánveitingar til Q Ice- land Finance, félags í eigu sjeiks Al-Thanis. Hlutabréfa- kaup hans voru með milligöngu stórs hluthafa og virðast hafa verið til þess eins að auka tiltrú á Kaupþingi rétt fyrir hrun. Hjúpur smærri mála

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.