Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 267. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM»  Vikan sem er að líða hefur verið annasöm fyrir unn- endur lista; eitt stykki tónlistar- hátíð, eitt stykki kvikmyndahátíð (og svo byrjar önn- ur á laugardaginn) og ráðstefna þar að auki. Hinn knái gítarleikari Franz Gunnarsson lætur sér fátt fyrir brjósti brenna í þessum efnum og snarar þannig upp þrennum tón- leikum á tónlistarhátíðinni Réttum með ólíkum sveitum en hann spilar með Ensími, In Memoriam og svo Dr. Spock. Geri aðrir betur. Franz Gunnarsson með þrennu í Réttunum TÓNLIST                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-+. +/+-01 **0-,2 +3-320 +*-*2+ *4-/0, *+/-3* *-,3.+ *.0-2, *4+-*/ 5 675 +,# 89 6 +//. *+,-04 +/,-/2 **0-1/ +3-0,1 +*-++3 *4-*/2 *+/-10 *-,0,* *.2-+* *4+-2* +,3-1*,* &  :8 *+,-41 +/,-00 **2-/3 +3-2/. +*-+42 *4-*0. *+*-/. *-,01/ *.2-1. *4,-*+ Heitast 10 °C | Kaldast 4 °C Vestlæg átt og skúr- ir, dregur úr vindi og styttir upp eftir há- degi. Gengur í sunnan 5-10 með rigningu um landið s- og vestanvert í kvöld. » 10 Nýtt myndband með Rammstein fer langt fyrir neðan belti hvað almennan sóma varðar en leynir um leið á sér. »42 TÓNLIST» Rammstein reyna á TÍSKA » Vor- og sumartískan í London. »45 Í Réttum í kvöld verða t.a.m. Morð- ingjarnir, Hjálmar, Megas, Dr. Gunni, Ólöf Arnalds og Mugison. »41 TÓNLIST» Morðingjar í Réttunum TÓNLIST» Ný plata Hjálma, IV, gagnrýnd. »45 KVIKMYNDIR» RIFF sýnir Rocky Horr- or. Brjáluð aðsókn. »40 Menning VEÐUR» 1. Einstæð móðir fékk lottóvinning 2. Guðlaugur Jónsson látinn 3. Hættir eftir 17 ára starfsemi 4. Lýst eftir stúlku  Íslenska krónan veiktist um 0,5 % »MEST LESIÐ Á mbl.is  Hofsósingurinn og rekstrarhag- fræðingurinn Þor- steinn Þor- steinsson hefur af fjármálaráð- herra verið skip- aður stjórn- arformaður Bankasýslu ríkisins, sem tekið hefur formlega til starfa. Með honum í stjórninni eru Sonja María Hreiðarsdóttir lögmaður, Sig- urður B. Stefánsson hagfræðingur og Guðrún Johnsen hagfræðingur. Eitt fyrsta verk þeirra er að aug- lýsa starf forstjóra en Bankasýslan mun starfa í fimm ár að hámarki. Þorsteinn í formannsstól Bankasýslu ríkisins BANKAR  Séra Magnús Erlingsson, sókn- arprestur á Ísa- firði, er vinsæll prestur og því urðu mörg sóknarbörn hans leið þegar fréttist að hann hefði sótt um starf sóknarprests í Kársnessókn í Kópavogi. Á frétta- vefnum bb.is kom hins vegar fram í gær að séra Magnús hefði ekki feng- ið starfið og að hann yrði því um kyrrt á Ísafirði þar sem hann hefur verið sóknarprestur í 18 ár. Fjórtán umsækjendur eru um starf prests í Kópavogi og verða upplýsingar um hver fékk starfið birtar fljótlega. Séra Magnús verður áfram sóknarprestur á Ísafirði KIRKJAN Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is KRISTÍN Sigurðardóttir var nýfarin að vinna í ál- verinu á Reyðarfirði þegar hún lenti í bílslysi sl. haust og líf hennar umturnaðist. Að lokinni spít- alavist tók við nokkurra vikna dvöl á legudeild Grensáss með strangri endurhæfingu sem m.a. beindist að því að þjálfa Kristínu í að umgangast fólk úr hjólastólnum sem hún var nú komin í. Henni fannst til að mynda athyglin sem stólnum fylgdi óþægileg í fyrstu. Hún er nú steinhætt að kippa sér upp við at- hyglina og lætur hjólastólinn ekki stöðva sig. „Ég geri flest það sem ég vil,“ segir Kristín sem ekur um á bíl og er í þann mund að hefja vinnu á nýjan leik. Hún hefur verið ráðin til starfa á skrifstofu Ungmennafélags Íslands og hlakkar greinilega til. Skíðaíþróttin skemmtileg „Þetta er náttúrlega nýtt líf, en ég er líka búin að gera helling sem ég hafði ekki gert áður,“ segir Kristín. Þannig er hún dugleg að hitta vini sína og hefur hún farið á hestbak og fjórhjól. Einnig fór hún á skíði í fyrsta skipti eftir að hún lenti í slys- inu. „Það var mjög gaman,“ segir Kristín sem stefnir á skíðaferð til Colorado í Bandaríkjunum nú í nóvembermánuði. „Skíðaíþróttin er ótrúlega skemmtileg, en dýr þannig að nú er ég á fullu að safna styrkjum.“ Og hún kann starfsfólkinu á Grensási góðar þakkir. „Það lætur mann alveg vita að maður sé ekkert öðruvísi og hjálpar manni mikið við að komast aftur út í lífið,“ segir hún. | 6 „Geri flest sem ég vil“  Kristín lætur hjólastólinn ekki stöðva sig í að gera það sem hana langar til  Segir starfsfólk Grensásdeildar hafa hjálpað sér mikið að komast út í lífið Í HNOTSKURN »Söfnunarátakið Á rás fyrir Grensásmiðast að því að safna fé fyrir viðbygg- ingu fyrir æfingaaðstöðu Grensásdeildar. »Húsakynni deildarinnar hafa ekki auk-ist frá því Grensásdeild var sett á fót ár- ið 1973. »Opnaðir hafa verið sérstakir söfnun-arsímar, auk þess sem gefa má fé í gegnum vefsíðuna www.grensas.is.Morgunblaðið/Golli Tilhlökkun Kristín Sigurðardóttir er á leið í skíðaferð til Colorado í Bandaríkjunum. SÍÐDEGISÞÁTTUR Rásar 1, Víðsjá, verður lengdur um klukku- tíma frá mánudegi og hefst þá að loknum fréttum kl. 16. Að sögn Sig- rúnar Stefánsdóttur dagskrár- stjóra verður ritstjórn þáttarins vel skipuð auk þess sem öflugt lið gagnrýnenda komi til liðs við þátt- inn í bókmenntum, tónlist, leiklist og myndlist. „Þegar tilefni gefast í öðrum listgreinum getum við von- andi brugðist við,“ segir Sigrún. „Öflug menningarveisla“ er kjör- orðið sem Sigrún hefur um hina nýju Víðsjá. | 39 Víðsjá RÚV í vexti „KRAKKARNIR þurfa að temja sér mikinn aga og vita að árangur næst ekki öðruvísi. Ég heyri það frá for- eldrum að námskeiðið hefur opnað þeim nýja sýn,“ seg- ir Arna Kristín Einarsdóttir, tónleikastjóri Sinfóníu- hljómsveitar Íslands, en í fyrsta skipti í sögu hljómsveitarinnar stendur hún fyrir námskeiði í hljóm- sveitarleik fyrir tónlistarnema. „Þetta eru tímamót í sögu íslensks tónlistarlífs og í sögu hljómsveitarinnar,“ segir Arna. Mikil áhersla er lögð á að nemendurnir takist á við það að leika í hljómsveit á fagmannlegum grunni og starfsreglurnar eru þær sömu og hjá Sinfóníuhljóm- sveitinni. Námskeiðinu lýkur með tónleikum í Há- skólabíói á laugardag undir stjórn aðalstjórnanda Sin- fóníuhljómsveitarinnar, Rumons Gamba. „Það er ekki nóg fyrir krakka í hljóðfæranámi að hlusta á plötur og fara á tónleika. Þeir þurfa að fá að upplifa tónlistina á eigin skinni í hljómsveitinni.“ | 39 Morgunblaðið/Ómar EINBEITT Á ÆFINGU KRISTINN Jak- obsson knatt- spyrnudómari tekur þátt í til- raun á vegum Knattspyrnu- sambands Evr- ópu, UEFA, þeg- ar hann verður með fjóra aðstoð- ardómara með sér í stað tveggja. Kristinn dæmir leik And- erlecht frá Belgíu og hollenska liðs- ins Ajax í Evrópudeild UEFA. „Þetta er nýjung sem verið er að reyna á vegum UEFA í öllum leikj- um Evrópudeildarinnar. Með þessu móti er verið að fjölga augum í víta- teignum,“ sagði Kristinn í samtali við Morgunblaðið í gær. iben@mbl.is | Íþróttir Viðbótaraugu á leikvellinum Kristinn Jakobsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.