Morgunblaðið - 30.10.2009, Page 1
DAGLEGT LÍF
BESTU TÍSKUBLOGGIN, LAMEBOOK OG
SVAKALEG KVIKMYND Í FRAMLEIÐSLU
F Ö S T U D A G U R 3 0. O K T Ó B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
294. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
INNAN fjármálaráðuneytisins eru
til skoðunar tillögur um þrepaskipt-
an tekjuskatt og hækkun á trygg-
ingagjaldi. Samtök atvinnulífsins
hafa lagt til að tryggingagjaldið
hækki, en á móti verði hætt við
áform um að leggja á orku- og auð-
lindagjald. ASÍ styður þessa tillögu
og hefur jafnframt lýst stuðningi við
tillögu um fjölþrepa tekjuskatt.
Aðilar vinnumarkaðarins töldu á
þriðjudag að þeir hefðu fengið sam-
þykki Steingríms J. Sigfússonar
fjármálaráðherra fyrir því að hætt
yrði við að leggja á orku- og auð-
lindagjöld. Í texta sem þeim var
kynntur um kvöldið hafði hins vegar
orðalagi verið breytt. Áfram er gert
ráð fyrir tekjum af þessum skatti, en
allar líkur eru á að upphæðin verði
lækkuð. Í fjármálaráðuneytinu
benda menn á að hækkun trygginga-
gjalds myndi hafa veruleg áhrif á út-
gjöld ríkis og sveitarfélaga vegna
þess að opinberir aðilar greiða þriðj-
ung af öllum launum og þyrftu því að
greiða hækkun tryggingagjalds að
nokkrum hluta sjálfir. Hugmyndin
um hækkun tryggingagjalds gengur
út á að fjármagna Atvinnuleysis-
tryggingasjóð, en hann er tómur.
ASÍ hefur lagt mikla áherslu á að
staðið verði við fyrirheit um hækkun
skattleysismarka. Þau eru 118 þús-
und í dag, en ættu að fara í 130 þús-
und ef tekið væri tillit til hækkunar
verðlags. ASÍ telur að verði tekin
upp fleiri þrep í tekjuskattskerfið sé
auðveldara fyrir launafólk að sætta
sig við áform stjórnvalda varðandi
skattleysismörk. Ríkisstjórnin skoð-
ar einnig hækkun á fjármagnstekju-
skatti og tekjuskatti fyrirtækja.
Skoða hærra trygginga-
gjald og þrep í tekjuskatti
» Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir hækkun
beinna skatta um 37,6 milljarða.
» Í frumvarpinu er gerð tillaga um orku- og auð-
lindagjöld sem skili 16 milljörðum í ríkissjóð.
ALMENN greiðslujöfnun á öllum
verðtryggðum húsnæðislánum er
nýjasta úrræðið sem ríkisstjórnin
hefur kynnt til sögunnar fyrir heimili,
einstaklinga og fyrirtæki. Greiðslu-
jöfnunin felur í sér að upphæð af-
borgunar tekur mið af því sem hún
var í janúar 2008 og verður hún tengd
greiðslujöfnunarvísitölu í stað neyslu-
vísitölu.
Til að byrja með lækka afborganir,
en þegar fram líða stundir þyngjast
þær aftur og hugsanlega verður
greiðslubyrðin á endanum þyngri en
hún hefði orðið án greiðslujöfnunar.
Stofnun um fjármálalæsi við Há-
skólann í Reykjavík telur helsta gall-
ann við aðgerðirnar að afborganir
skuli tengdar þróun launa og atvinnu-
stigs. Þannig muni launahækkanir
eins hóps hækka lán annarra og
launahækkanir framtíðarinnar verði í
reynd eyrnamerktar bönkunum.
Þegar greiðslugetan aukist með
hækkandi launum og auknu vinnu-
framboði þyngist greiðslubyrðin.
Hætta sé á að það leiði til þess að
reynt verði að halda launum niðri.
Vilji lántakendur ekki greiðslu-
jafna lánin sín þurfa þeir að tilkynna
það til lánveitanda síns í síðasta lagi
20. nóvember. Þeir sem ekki þurfa
nauðsynlega á greiðslujöfnun að
halda ættu því að hugsa sinn gang.
Allir fá greiðslujöfnun
nema þeir biðji um annað
Verða launahækkanir framtíðarinnar eyrnamerktar bönkum?
Dýrara til lengri tíma | 6
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik karla vann pressulið fjölmiðlamanna
auðveldlega, 38:25, í æfingaleik að viðstöddum um 600 áhorfendum í Laug-
ardalshöll í gærkvöldi. Leikurinn var liður í æfingabúðum landsliðsins sem
nú standa yfir hér á landi vegna undirbúnings fyrir Evrópumótið í janúar.
Alls voru 11 af 15 leikmönnum silfurliðsins í Peking með landsliðinu í gær
og var varnarmúrinn lítt árennilegur eins og sjá má. | Íþróttir
ÓÁRENNILEGUR SILFURVARNARMÚR
Morgunblaðið/Golli
Innköllun
aflaheimilda um
5% á ári, sem
stjórnvöld hafa í
hyggju, setur ís-
lenskan sjávar-
útveg að miklu
leyti í þrot á
fáum árum. Við
núverandi að-
stæður getur greinin hins vegar
staðið undir skuldum sínum sem
eru 550 milljarðar króna en bók-
fært verðmæti aflaheimilda 200
milljarðar kr. Þetta kom fram í
máli Þorvarðar Gunnarssonar,
lögg. endurskoðanda hjá Deloitte, á
aðalfundi LÍÚ í gær.
„Fyrning með 50% endurleigu
myndi þýða greiðsluþrot félaganna
á örfáum árum, þar sem handbært
fé yrði fljótlega neikvæð stærð,“
sagði Þorvarður sem telur gjald-
þrot í greininni þýða afskriftir hjá
bönkum. »14
Segir innköllun aflaheim-
ilda þýða fjöldagjaldþrot
Bæjarstjórn Álftaness hyggst
leita ásjár eftirlitsnefndar um fjár-
mál sveitarfélaga en sveitarfélagið
er komið í mikinn rekstrarvanda.
Aðkoma sjóðsins, ef samþykkt
verður, yrði styrkur eða lán úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Getur
ráðuneyti sveitarstjórnarmála þá
sett skilyrði um allt að 25% álag á
útsvar og fasteignaskatta.
Bæjarstjóri Álftnesinga, Pálmi
Þór Másson, segir að hagræða þurfi
í rekstri en á síður von á því að
starfsfólki verði sagt upp. »9
Gæti krafist 25% álags á
útsvar og fasteignaskatta
Sérblað um
Jólahlaðborð
fylgir Morgunblaðinu í dag
GRÆNN
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
RAUÐUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
R.
HVÍTUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
GULUR
TILBÚINN
TIL NOTK
UNAR
lsi 3 - 11
0 R.
Breytingar á afborgunum
10 milljóna króna verðtryggt
íbúðalán, tekið 1. júlí 2007 með
4,15% vöxtum:
Upphaflegar mánaðarlegar af-
borganir af slíku láni voru um
42.700 krónur. Sú upphæð hafði
hækkað í 54.800 kr. í byrjun
þessa mánaðar, eða um tæpar
tólf þúsund krónur.
Fyrsta afborgun eftir greiðslu-
jöfnun ætti hins vegar að lækka
afborganir töluvert sem yrðu þá
45.600 kr. til að byrja með.