Morgunblaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 40
40 Menning
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Það er gaman að djamma saman
inni í skúr en svo kemur að því að
kynna sig og sitt efni fyrir fjöldan-
um. Margar hljómsveitir klikka á
grunnatriðum í þeim fræðunum og
þá kemur ÚTÓN til bjargar, en
fyrsta fræðslukvöld ÚTÓN í vetur
verður haldið þriðjudaginn 3. nóv-
ember frá kl. 19.30-22 í Norræna
húsinu. Farið verður yfir hvernig
best er að nýta netið til kynningar á
tónlist og menningarverkefnum.
Farið verður yfir gagnsemi sam-
félagssíðna á borð við Facebook,
Myspace, Flickr og You Tube svo
fáeinar séu nefndar. Leitast verður
við að svara hvað virkar í kynningu
og markaðssetningu, hvernig það
virkar – og hvað virkar ekki. Ariel
Hyatt, fjölmiðlaplöggari frá Cyber
PR í New York, hefur umsjón með
fræðslukvöldinu. Hægt er að skrá
sig á námskeiðið í gegnum net-
fangið greta@utflutningsrad.is
ÚTÓN kynnir fyrsta
fræðslukvöld vetrarins
Fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
MYND Valdísar Óskarsdóttur, Sveitabrúðkaup,
fékk tvenn verðlaun á nýafstaðinni kvik-
myndahátíð í Ríga sem nefnist Riga Nordic Film
Days. Sveitabrúðkaup var valin besta mynd há-
tíðarinnar (verðlaun dómnefndar) en fékk einnig
áhorfendaverðlaunin. Mynd Sólveigar Anspach,
Skrapp út, keppti einnig á hátíðinni og þunga-
vigtarleikstjórar á borð við Lukas Moodyson og
Lars von Trier voru með myndir sínar þarna líka
(Mammoth og Antichrist).
„Þetta eru fyrstu verðlaunin sem við fáum,“
segir Davíð Óskar Ólafsson, framleiðandi mynd-
arinnar. „Við fögnum þessu að sjálfsögðu, það
virðist vera fremur óalgengt að kómedíur taki
svona verðlaun, yfirleitt eru það hádramatísku
langhundarnir sem það gera!“
Davíð segir að myndin hafi fengið slatta af til-
nefningum og henni hafi farnast vel á þeim há-
tíðarrúnti sem hún hefur verið á, en hún hefur
verið sýnd á um fimmtíu hátíðum, allt síðan að
hún var sýnd á Toronto-hátíðinni árið 2008.
„Og það hefur alltaf verið uppselt á hana.
Þessi árangur gefur myndinni ákveðinn stimpil
og þetta gæti mögulega haft einhver áhrif á
frekari sölu en við erum annars mjög sátt með
gengi myndarinnar.“
Davíð segir að nú séu Valdís og hennar fólk á
fullu í eftirvinnslu á Kóngavegi 7 og sú vinna
gangi afar vel en tökur kláruðust fyrir tveimur
vikum.
„Þetta lítur satt að segja mjög vel út og við
hlökkum til að frumsýna um næstu páska.“
Sveitabrúðkaup fékk tvenn verðlaun í Ríga
Darraðardans Ýmislegt fer úrskeiðis í myndinni.
Heiðurstónleikar til handa hinni
ágætu kántrísveit Eagles verða
haldnir á morgun í Háskólabíói.
Það er Eyjólfur Kristjánsson, Eyfi,
sem stendur að tónleikunum en
þeir voru haldnir í fyrsta sinn í
fyrra og var þá uppselt á tvenna
tónleika. Eagles er kannski ekki
fyrsta sveitin sem fólki dettur í hug
hvað svona starfsemi varðar en lög-
in lifa greinilega góðu lífi í huga
fólks, safnplata sveitarinnar frá
1976 er t.d. ein mest selda plata
allra tíma. Á meðal söngvara eru
þeir Björgvin Halldórsson, Stefán
Hilmarsson og Friðrik Ómar en
kynnir er enginn annar en frétta-
þulurinn knái Logi Bergmann.
Eyfi leyfir Örnunum
að svífa á nýjan leik
Rúnturinn er þáttur sem hóf ný-
verið göngu sína á X-inu á laug-
ardögum milli kl. 14 og 17. Er hann
í umsjón Ómars Eyþórssonar, þess
eðla rokkhunds sem virðist vita ná-
kvæmlega hvenær skjóta skal einu
Pantera-lagi eða svo út í loftið.
„Þægileg tónlist sérsniðin að
þeim sem eru í bílunum sínum.
Ikea-pabbarnir sem neyðast til að
rúnta á milli verslunarmiðstöðva
með fjölskylduna geta bæði slakað
á og fengið útrás með því að hlusta
á Rúntinn,“ segir í kersknislegri
fréttatilkynningunni. Þættirnir
verða þematengdir, í seinasta þætti
var farið yfir sögu hljómsveit-
arinnar Muse t.a.m. og næsta laug-
ardag verður hið öfluga plötuár
1991 skoðað í krók og kring.
Ómar Eyþórsson sinnir
rokkfeðgum á X-inu
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞAÐ er allt í þessu verki; hlátur,
grátur og allt þar á milli. Þetta er
ekta stofudrama sem er bæði mjög
lúmskt fyndið og mjög fyndið á köfl-
um,“ segir Hilmir Snær Guðnason
um leikritið Fjöl-
skyldan – ágúst í
Osage-sýslu, eftir
Tracy Letts, sem
verður frumsýnt
á Stóra sviði
Borgarleikhúss-
ins í kvöld.
Hilmir Snær
leikstýrir verkinu
og er það hans
fyrsta verkefni í
Borgarleikhúsinu
síðan hann réð sig þangað til starfa í
sumar. Spurður hvað hann leggi
áherslu á í sinni leikstjórn segir
Hilmir Snær að það sé aðallega að
vera trúr höfundinum.
„Þetta er raunsæisleikrit og mjög
vel skrifað verk, það er hægt að líkja
því við verk gömlu rithöfundanna
Tennessee Williams og Arthurs Mill-
ers. Þannig að ég reyni að vera sem
mest trúr höfundinum þó að maður
taki sér aðeins skáldaleyfi inni á
milli. Og auðvitað reyni ég að búa til
úr þessu eins góða leiklist og hægt
er. Þetta er svona leikaraleikrit eins
og það er oft kallað svo meg-
ináherslan er á leikarana á sviðinu,“
segir Hilmir Snær og bætir við að
hann sé virkilega ánægður með leik-
arahópinn í sýningunni, þetta sé
þrettán manna draumahópurinn.
Það eru ekki bara þrettán leikarar
í sýningunni heldur líka lifandi tón-
list. Tónlistarmaðurinn KK, Kristján
Kristjánsson, sér um tónlistina í
verkinu og tekur þátt í sýningunni
með tónlistarflutningi sínum.
„Þetta er mikið havarí og mikið
púsluspil að ná þessu saman í eina
fallega heild,“ segir Hilmir Snær um
fjörið á sviðinu.
KK samdi tónlist sérstaklega fyrir
verkið auk þess sem hann flytur
heita slagara frá Bandaríkjunum.
Lagið „Þá kom haustið“ sem hljómar
nú á öldum ljósvakans er úr sýning-
unni og vísar óbeint í efni leikverks-
ins. Spurning hvort næsti „Vegbúi“
sé þar á ferð en þann slagara samdi
KK fyrir sýninguna Þrúgur reið-
innar fyrir um átján árum.
Skiptist í þrjá þætti
Fjölskyldan – ágúst í Osage-sýslu
er samtímaverk og segir frá Weston-
fjölskyldunni sem kemur saman þeg-
ar ættfaðirinn, Bewerly Weston,
hverfur. Verkið er um gleði og sorgir
fjölskyldunnar og hvernig óvænt
áföll geta ýtt löngu gleymdum at-
burður aftur upp á yfirborðið.
Athygli verkur að tvö hlé eru á
hverri sýningu sem skiptist þar af
leiðandi í þrjá þætti, er verkið svona
langt?
„Það eru mörg verk álíka löng en
við völdum að vera með tvö hlé í
þessari sýningu. Verkið er vissulega
langt en það er það vel skrifað að það
heldur vel. Þeir áhorfendur sem hafa
séð það vildu flestir meira, það hefur
enginn orðið þreyttur,“ segir Hilmir
Snær og hlær.
Leikstjórn góð með
Höfundur verksins, Tracy Letts,
þykir eitt fremsta leikskáld Banda-
ríkjanna nú um stundir. Hilmir Snær
hefur áður komist í kynni við verk
hans því leikhús hans og Stefáns
Baldurssonar, Skámáni, setti fyrsta
leikrit Letts, Killer Joe, upp í sam-
starfi við Borgarleikhúsið fyrir
tveimur árum. „Það var líka ansi gott
leikrit og það eina sem ég hef séð á
sviði eftir þennan höfund sem virðist
bara framleiða góð verk,“ segir
Hilmir Snær og ekki kæmi á óvart ef
hann tæki fleiri verk Letts upp á sína
arma, svo hrifinn er hann.
Hilmir Snær er ekki ókunnur leik-
stjórastólnum en hann leikstýrði
meðal annars Degi vonar í Borg-
arleikhúsinu leikárið 2006/2007 og
hlaut sú sýning Grímuverðlaunin
sem leiksýning ársins það ár. Þó að
Hilmi Snæ hafi farist vel að leikstýra
segist hann nú ekki ætla að snúa sér
alfarið að því.
„Nei, ég hef ekki hugsað mér að
snúa mér alfarið að leikstjórn en
þetta er gott með. Ég hef mjög gam-
an af þessu og kannski ef fólk verður
leitt á mér sem leikara get ég snúið
mér alfarið að því.“
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Fjölskyldumeðlimir Leikararnir Rúnar Freyr Gíslason og Guðrún Bjarnadóttir í hlutverkum sínum í leikritinu sem verður frumsýnt í kvöld.
„Þetta er svona leikaraleikrit“
Hilmir Snær Guðnason leikstýrir verkinu Fjölskyldan – ágúst í Osage-sýslu
sem verður frumsýnt í kvöld Raunsætt stofudrama sem gerist í samtímanum
Tracy Letts (1965) er
bandarískt leikritaskáld
og leikari, sonur rithöf-
undarins Billie Letts og
leikarans Dennis Letts.
Letts starfar við
Steppenwolf-leikhúsið í
Chicago sem leikskáld,
leikstjóri og leikari.
Hann þykir vera eitt
fremsta leikskáld
Bandaríkjanna nú um stundir.
Fjölskyldan – ágúst í Osage-
sýslu hlaut þrenn eftirsóttustu
leiklistarviðurkenningar Banda-
ríkjamanna: Drama Desk, Pulit-
zer og loks Tony-verð-
launin sem besta leikrit
ársins 2008. Gagnrýn-
endur hafa kallað það
fyrstu klassík 21. ald-
arinnar, sýningu sem
minnir í senn á drama-
tísk leikverk Tennessee
Williams og kaldhæðni
Woody Allen.
Sjálfur segir Letts að
leikrit sín fjalli mikið um siðferði
fólks og hann fái innblástur úr
leikverkum Tennessee Williams
og úr skáldsögum William Faulk-
ner og Jim Thompson.
Eitt fremsta leikskáld Bandaríkjanna
Tracy Letts
Hilmir Snær
Guðnason
Sigrún Edda Björnsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, Pétur Einarsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Nína Dögg Fil-
ippusdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Theodór Júlíusson, Hallgrímur
Ólafsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Ellert A. Ingi-
mundarson og Rúnar Freyr Gíslason
Leikarar