Morgunblaðið - 30.10.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
STJÓRN Pokasjóðs hefur ákveðið
að auglýsa ekki eftir umsóknum um
styrki fyrir árið 2009. Að sögn
Bjarna Finnssonar, formanns Poka-
sjóðs, helgast það af því að ákveðið
hefur verið að fara sömu leið og í
fyrra og styrkja Mæðrastyrksnefnd
og Hjálparstarf kirkjunnar um í
kringum 50 milljónir króna til mat-
argjafa fyrir jólin.
„Þetta er vissulega breyting á
fyrri úthlutunarstefnu okkar. En
það er niðurstaða okkar að það hefur
hugsanlega aldrei verið meiri þörf
en núna á að styrkja með einmitt
þessum hætti,“ segir Bjarni og tekur
fram að samstarfið við Mæðra-
styrksnefnd og Hjálparstarf kirkj-
unnar fyrir síðustu jól hafi verið ein-
staklega gott og árangursríkt.
Að sögn Bjarna hefur á umliðnum
árum verið mikil ásókn í Pokasjóð-
inn. Þannig bárust sjóðnum árið
2007, síðasta árið þegar úthlutað var
með hefðbundum hætti úr honum,
alls 800 umsóknir og þá voru styrkt
nærri 130 verkefni á sviði umhverf-
ismála, mannúðar, menningar og
íþrótta. „Við von-
umst auðvitað til
þess að þjóð-
félagsástandið
verði betra að ári
þannig að sjóð-
urinn geti farið í
sitt hefðbundna
hlutverk sem
kom við þúsundir
út um allt land á
sviði íþrótta, menningar- og um-
hverfismála.“
Alls standa 13 verslanir og versl-
unarkeðjur að Pokasjóði. 7 kr. af
hverjum seldum poka renna til
sjóðsins. Tekur Bjarni fram að sjóð-
urinn hafi ekki afskipti af því hvern-
ig pokar séu verðlagðir.
Að sögn Bjarna safnast með þess-
um hætti á ári hverju um 100 millj-
ónir í sjóðinn. Stjórn Pokasjóðs sér
um að úthluta 60% af því fé en versl-
unarkeðjurnar sjá um að úthluta
40% þess til verðugra verkefna.
„Þess má geta að sjóðurinn hefur
ekki tapað krónu í efnahagshremm-
ingunum öllum, því fyrir mörgum
árum var tekin sú ákvörðun að
geyma fé sjóðsins einvörðungu á
bankareikningum,“ segir Bjarni.
Brýnasta
verkefnið núna
Pokasjóður hyggst styrkja Mæðra-
styrksnefnd og Hjálparstarf kirkjunnar
Bjarni Finnsson
ÞAÐ hafa verið hlýindi á Suðvesturlandi síðustu daga og því er ekki nema
sjálfsagt að nota hjólið þó að það sé komið haust. Á hjólinu er líka auðveld-
ara að njóta fegurðar umhverfisins en í bíl.
Morgunblaðið/Ómar
HAUSTSTEMNING
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
þrítugum síbrotamanni. Maðurinn
var dæmdur til fimmtán mánaða
fangelsisvistar auk þess sem hann
er sviptur ökuréttindum í fjóra
mánuði. Maðurinn á að baki fjórtán
ára fjölskrúðugan sakaferil.
Í umræddu máli var maðurinn
sakfelldur fyrir sérstaklega hættu-
lega líkamsárás, níu þjófnaðarbrot,
eignaspjöll og brot á umferðar-
lögum. Eftir stanslausa brotahrinu
var maðurinn handtekinn í apríl sl.
og hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan.
Kemur sá tími til frádráttar refs-
ingunni. Maðurinn játaði öll brot
sín skýlaust.
Alvarlegasta brotið er frá því í
janúar sl. en þá réðst maðurinn að
öðrum með hamri og sló hann í höf-
uðið. Fórnarlambið hlaut 2,5 cm
skurð aftan á hnakka. Einnig
braust hann inn í fyrirtæki og stal
þaðan raftækjum.
Síbrotamaður
dæmdur í fimmtán
mánaða fangelsi
HÆSTIRÉTTUR
hefur staðfest
fimm mánaða
fangelsisdóm yf-
ir karlmanni á
fertugsaldri sem
sakfelldur var í
fjórða skipti fyr-
ir ölvunarakstur
og í fimmta
skipti fyrir akstur sviptur öku-
rétti. Jafnframt er ævilöng öku-
leyfissvipting áréttuð. Maðurinn
missti stjórn á bifreið sinni á
Snæfellsnesvegi í desember 2007.
Vínandamagn í blóði mældist 2,21
prómill. Dómurinn sagði frásögn
hans með miklum ólíkindum og
fram væri komin sönnun þess að
hann hefði ekið undir áhrifum
áfengis.
Fangelsi fyrir ítrek-
aðan ölvunarakstur
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
RÍKISSTJÓRNIN getur gert það sem hún
telur æskilegast við lánsféð frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum, að minnsta kosti ef það stang-
ast ekki á við markmið samstarfsáætlunar Ís-
lands við sjóðinn, um lágmarksforða á
hverjum tíma.
Þetta sagði Mark Flanagan, formaður
sendinefndar AGS á Íslandi, á símafundi með
blaðamönnum í gær, aðspurður hvort það sé
leyfilegt eða æskilegt að nota nýtilkominn
gjaldeyrisforða í afborganir af öðrum erlend-
um lánum ríkisins.
Endurfjármagna skuldir með láninu
„Við veitum lánið til Seðlabankans og það
fer beint inn í gjaldeyrisforða hans. Þar er það
aðgengilegt. Að hafa meiri varaforða veitir
stjórnvöldum fjölmarga möguleika sem þau
hefðu annars ekki. Þau geta endurfjármagnað
með honum skuldir sem koma á gjalddaga.
Þau eiga líka möguleika á því að halda fénu í
varaforðanum, til að auka
tiltrúna á gjaldmiðilinn.
Stutta svarið er já, þau
geta gert það og í sumum
kringumstæðum er líklega
æskilegt að gera það,“
sagði Flanagan.
Hann tók fram að pen-
ingar frá AGS væru ekki
eyrnamerktir inni á reikn-
ingum hjá seðlabönkum
ríkja sem þiggja lán frá
sjóðnum. Hann gæti því ekki bent á einstök
ríki sem notuðu lánin beinlínis eins og endur-
fjármögnun. „Ég get bent á mörg lönd sem
hafa gripið inn í með peningum frá AGS til
þess að styðja gjaldmiðilinn í kringum miklar
afborganir af lánum.“
AGS gerir ráð fyrir notkun forðans
Flanagan bætir því við að Ísland sé ekki að
taka fullt af lánum, til þess eins að setja þau í
varaforða, eins og sumir haldi fram.
„Það er ekki rétt. Í okkar spám og í vænt-
anlegri skýrslu starfsmanna um framgang
áætlunarinnar með Íslandi, muntu sjá að
gjaldeyrisvaraforði Íslands breytist mun
minna en sem nemur því magni lána sem er
verið að taka. Það er vegna þess að við búumst
við því að ríkisstjórnin muni nota eitthvað af
þessum lánum til þess að milda tímabundið út-
flæði af fjármunum.“
Eyrnamerkja ekki fé í seðlabönkum
Stundum æskilegt að gjaldeyrislán frá AGS fari í afborganir annarra lána
Í áætlunum gera starfsmenn sjóðsins ráð fyrir notkun forðans í svona hluti
Í HNOTSKURN
»Annar hluti lánsins verður af-greiddur í dag eða á mánudag. Það
veltur eingöngu á tæknilegum atriðum.
»Flanagan segir að með styrkinguforðans og afléttingu hafta verði
rúm fyrir varfærna vaxtalækkun.
»Hann vonast til þess að matsfyr-irtæki taki endurskoðuninni vel og
lánshæfismat ríkisins verði ekki lækk-
að. Ákveðið gólf sé komið í kreppuna.
Mark
Flanagan
EIGNIR lífeyrissjóðsins Gildis hafa
hækkað um tólf milljarða króna það
sem af er ári og voru í lok september
sl. 221 milljarður króna. Nafnávöxt-
un sjóðsins fyrstu níu mánuði ársins
var 5,7% á ári sem þó er -2% raun-
ávöxtun.
Fjármagnstekjur sjóðsins eftir
niðurfærslu á skuldabréfum fyrir-
tækja og fjármálastofnana námu 8,7
milljörðum króna.
Á fyrstu níu mánuðum ársins voru
lífeyrisgreiðslur Gildis rúmir 5,5
milljarðar sem er rúmlega 14%
aukning milli ára. Á sama tímabili
voru iðgjöld rétt tæpir átta millj-
arðar sem er um 5% aukning frá í
fyrra.
Að því er fram kom í máli Árna
Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra Gildis, á kynningarfundi fyrir
sjóðfélaga sem haldinn var í vikunni
er enn veruleg óvissa um uppgjör
gjaldmiðlaskiptasamninga sjóðsins
við viðskiptabankana. Einnig er
óvissa um endanlega niðurfærslu
vegna skuldabréfa fyrirtækja og
fjármálastofnana. Þá stendur lífeyr-
issjóðurinn í málarekstri vegna inni-
stæðna sem hann átti hjá fjárfest-
ingarbankanum Straumi.
Mestur hluti eigna Gildis í dag er
innlend skuldabréf. sbs@mbl.is
Gildi gildnar um milljarða
Eignir hafa aukist
um tólf milljarða á
níu mánuðum
„AGS hefur aldrei sett formlegt skilyrði
fyrir því að Icesave-deilan verði leidd til
lykta. Aldrei,“ sagði Flanagan, spurður
hvers vegna verið væri að greiða út, þrátt
fyrir að Icesave sé ekki komið í gegnum
Alþingi. „Fyrst aðrir lánardrottnar settu
þetta sem skilyrði þurftum við að bíða þar
til skilyrðunum yrði fullnægt.“ Útborgunin
þýddi að nú væru aðrir lánveitendur sáttir
við stöðuna í Icesave-málinu.
Þetta stangast á við orð Jóns Sigurðs-
sonar, formanns samninganefndar Íslands
um lánin, þegar Alþingi samþykkti Icesave
í ágúst. „Aðalútborgunarskilyrði norrænu
lánanna er samþykkt endurskoðunar
framkvæmdastjórnar AGS á framvindu ís-
lensku efnahagsáætlunarinnar.“ Skilyrðið
væri bundið í samningana við Norðurlönd
og Pólland. „Ég tel að næsta skref sé að
endurskoðunin verði borin upp í fram-
kvæmdastjórn AGS og þegar hún hefur
verið samþykkt, þá er ekkert því til fyrir-
stöðu að draga á þessi lán,“ sagði Jón.
Hver tafði málið?