Morgunblaðið - 30.10.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Nú hefur enn ein mælingin fariðfram á gagnsemi stefnu ríkis-
stjórnarinnar. Ein röksemdin sem
færð var fram til stuðnings því að
samþykkja Icesave-klafann og þar
með að fá lán frá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum var að með því mundi krón-
an styrkjast.
Nú hefur ríkisstjórnin fyrir sitt leytisamþykkt allar kröfur Breta og
Hollendinga í Icesave-málinu og virð-
ist fá stuðning frá ólíklegustu
stjórnarþingmönnum.
Að auki hefurþað nú
gerst að Al-
þjóðagjaldeyr-
issjóðurinn hef-
ur samþykkt
aðra lánveitingu
til Íslands. Þar
með hefði krónan átt að styrkjast
samkvæmt kenningum talsmanna
Icesave-klafans og ríkisstjórnarinnar.
Staðreyndin er þó sú að þvert ávæntingar ríkisstjórnarinnar
veiktist krónan við samþykkt lánsins.
Hvernig skyldi nú standa á því?
Jú, eins og flestum sem standa utanríkisstjórnarinnar er sennilega
ljóst eru auknar vaxtagreiðslur til út-
landa ekki til þess fallnar að styrkja
gengi krónunnar. Það að taka á sig
himinháar skuldir sem ríkinu ber ekki
að greiða styrkir krónuna ekki held-
ur.
Lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, semrétt dugar fyrir hálfsárs vaxta-
greiðslum vegna Icesave-klafans, gat
því ekki orðið til að styrkja gengi
krónunnar.
Raunar er afar erfitt að sjá hvernigkrónan á að geta styrkst í náinni
framtíð ef skuldsetningarstefna rík-
isstjórnarinnar gengur alla leið.
Auknar skuldir veikja krónuna
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 9 alskýjað Lúxemborg 11 léttskýjað Algarve 23 skýjað
Bolungarvík 8 alskýjað Brussel 15 skýjað Madríd 24 heiðskírt
Akureyri 8 skýjað Dublin 15 súld Barcelona 21 heiðskírt
Egilsstaðir 12 skýjað Glasgow 14 skúrir Mallorca 20 skýjað
Kirkjubæjarkl. 10 alskýjað London 18 léttskýjað Róm 21 heiðskírt
Nuuk -3 heiðskírt París 15 heiðskírt Aþena 17 skýjað
Þórshöfn 11 skýjað Amsterdam 15 skýjað Winnipeg 5 alskýjað
Ósló 2 heiðskírt Hamborg 10 þoka Montreal 5 skýjað
Kaupmannahöfn 7 skýjað Berlín 8 skýjað New York 12 alskýjað
Stokkhólmur 4 heiðskírt Vín 11 skýjað Chicago 13 alskýjað
Helsinki 0 heiðskírt Moskva 3 skúrir Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
30. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.05 3,3 10.16 1,1 16.20 3,5 22.33 0,9 9:06 17:18
ÍSAFJÖRÐUR 0.00 0,5 6.11 1,7 12.20 0,6 18.18 1,8 9:23 17:11
SIGLUFJÖRÐUR 1.52 0,3 8.12 1,1 14.11 0,4 20.16 1,1 9:06 16:54
DJÚPIVOGUR 1.11 1,7 7.25 0,7 13.33 1,7 19.36 0,6 8:38 16:45
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á laugardag
Gengur í suðvestan 10-15 m/s
með skúrum, en léttir til NA-
lands. Lægir smám saman og
birtir til þegar kemur fram á
daginn. Kólnar, hiti 3 til 7 stig
síðdegis og líkur á næturfrosti
fyrir norðan.
Á sunnudag
Hæg norðaustlæg eða breytileg
átt og skúrir eða él á stöku
stað. Hiti 0 til 5 stig en næt-
urfrost víða um land.
Á mánudag
Austlæg átt og dálítil úrkoma
syðst, annars þurrt að kalla.
Vægt frost, en frostlaust við
sjóinn.
Á þriðjudag og miðvikudag
Útlit fyrir norðanátt með éljum
N- og A-lands og fremur kalt
veður.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Vaxandi austanátt , 8-15 m/s
eftir hádegi og víða rigning. Hiti
6 til 13 stig.
ÖRT vaxandi fjöldi Íslendinga, nú
um 17 þúsund manns, hefur undan-
farin ár kosið að tilheyra evangel-
ísk-lúterskum fríkirkjum og að
sama skapi hefur skráðum Íslend-
ingum í þjóðkirkjunni fækkað.
Þrátt fyrir það er í sérstökum
samningi milli ríkis og þjóðkirkju,
sem gerður var fyrir um áratug,
látið sem evangelísk-lúterskar frí-
kirkjur séu ekki til. Þetta segir í yf-
irlýsingu til stjórnvalda sem prest-
arnir Hjörtur Magni Jóhannsson,
Einar Eyjólfsson, Sigríður Kristín
Helgadóttir, Pétur Þorsteinsson og
Friðrik Schram hafa sent frá sér
fyrir hönd evangelísk-lúterskra frí-
kirkna á Íslandi.
Nú stendur hins vegar til að end-
urskoða lögin og vonast prestarnir
til að þá verði tekið tillit til fjölg-
unar meðlima í lúterskum fríkirkj-
um. „Í þeim lögum, sem og í sér-
stökum samningi milli ríkis og
þjóðkirkju sem einnig var gerður
fyrir um áratug um kirkjusögu-
legan arf Íslendinga, er látið sem
evangelísk-lúterskar fríkirkjur séu
ekki til. Það veldur verulegum
ójöfnuði hvað varðar fjárhag og
starfsaðstöðu lútersku fríkirkn-
anna samanborið við þjóðkirkjuna.
Þó hefur lúterska fríkirkjuhreyf-
ingin verið við lýði hér á landi
nokkuð vel á annað hundrað ár, svo
til allan þann tíma sem trúfrelsi
hefur ríkt í landinu,“ segir í yfirlýs-
ingunni. Bent er á að í stjórnar-
skránni segi að hin evangelísk-lút-
erska kirkja skuli vera þjóðkirkja á
Íslandi og skuli ríkisvaldið að því
leyti styðja hana og vernda. „Í ljósi
þess mikla meðbyrs sem lúterskar
fríkirkjur hafa haft síðustu árin er
mikilvægt að ríkisstjórn Íslands og
Alþingi taki fullt tillit til þeirra við
endurnýjun laga og samninga er
varða samband ríkis og kirkju.“
Fögur Fríkirkjan í Reykjavík.
Morgunblaðið/Júlíus
Segja látið sem frí-
kirkjur séu ekki til
Taka á tillit til
fjölgunar meðlima
lúterskra fríkirkna
ÍSLENSKA ríkið var í Hæstarétti í gær sýknað af
kröfu Reykjavíkur, Kópavogs, Seltjarnarness,
Orkuveitu Reykjavíkur og tveggja einstaklinga
um að felldur yrði úr gildi hluti úrskurðar
óbyggðanefndar um þjóðlendur í nágrenni höfuð-
borgarsvæðisins, þar á meðal Bláfjallasvæðið.
Málsaðilar kröfðust þess meðal annars að viður-
kennt yrði að á afrétti Seltjarnarneshrepps hins
forna væri engin þjóðlenda. Því hafnaði Hæsti-
réttur. Þá var einnig hafnað kröfum í málinu um
að landamerki tiltekinna jarða væru önnur en
óbyggðanefnd ákvað með úrskurðinum. Sýknað
var einnig af kröfum um viðurkenningu á eignar-
réttindum á svæðinu og hafnað kröfum um viður-
kenningu á fullum og óheftum afnotarétti á sama
svæði.
Reykjavíkurborg, Kópavogsbær og Seltjarnar-
nesbær byggðu kröfur sínar m.a. á því að fyrir
þeirra tilstuðlan hefði stórt svæði í Bláfjöllum ver-
ið tekið til afnota fyrir almenning til útivistar.
Í dómi Hæstaréttar segir hins vegar að sveitar-
félögin gætu því ekki ein og sér krafist viðurkenn-
ingar á því að þau hefðu unnið eignarrétt að öllu
deilusvæðinu fyrir hefð vegna þessarar starfsemi,
enda níu önnur sveitarfélög í samstarfi um rekstur
umræddra skíðasvæða, auk þess sem íþróttafélög
hefðu hafið útivistarstarfsemi á svæðinu mun fyrr.
gummi@mbl.is
Bláfjallasvæðið orðið að þjóðlendu
Í HNOTSKURN
»Úrskurður óbyggðanefndar í máli þvísem tók til höfuðborgarsvæðisins var
kveðinn upp 31. maí 2006.
» Í úrskurðinum var meðal annars komistað þeirri niðurstöðu að afréttur Sel-
tjarnarneshrepps hins forna, nú Seltjarn-
arneskaupstaðar, Kópavogsbæjar og
Reykjavíkurborgar, sem deilt er um í máli
þessu, væri þjóðlenda.