Morgunblaðið - 30.10.2009, Page 15
Fréttir 15VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Í HNOTSKURN
»Helstu fjármögnunarfyrir-tæki sem veitt hafa bílalán
eru SP fjármögnun, Lýsing,
Avant, Íslandsbanki (áður
Glitnir fjármögnun) og Frjálsi
fjárfestingarbankinn.
»Vegna gengishruns hafaafborganir erlendra bíla-
lána snarhækkað og eru orðn-
ar mörgum bíleigandum um
megn.
»Talið er að útistandandibílalán nemi um 120 millj-
örðum króna í ríflega 50 þús-
und samningum, þar af 112
milljarðar í myntkörfulánum.
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
EKKI liggur enn fyrir hvort fjár-
mögnunarfyrirtæki fari sömu leið og
Íslandsbanki og bjóði viðskiptavin-
um upp á möguleika á að breyta höf-
uðstól bílalána. Líklegt er þó að þau
muni sum hver fara þá leið, séu for-
sendurnar til staðar.
Forsendan fyrir tilboði Íslands-
banka er að verðmat eigna milli
bankans og Glitnis liggur nú fyrir
ásamt brýnu mikilvægi þess fyrir
rekstur bankans að losna við eignir í
erlendri mynt þar sem skuldir hans
eru í krónum. Önnur fjármögnunar-
fyrirtæki búa flest hver ekki við
þennan möguleika í dag, að geta af-
skrifað lán, þó að viðskiptavinir
þeirra séu margir hverjir farnir að
sækjast eftir sömu kjörum og Ís-
landsbanki hefur boðað, samkvæmt
upplýsingum blaðsins.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um þá felur þetta tilboð Íslands-
banka í sér að gengistryggð og verð-
tryggð bílalán verði tengd við gengið
í lok september í fyrra. Þannig að
ekki er um afskrift að ræða heldur
tilboð um breytingu á milli láns-
forma.
Sem fyrr segir er forsendan fyrir
því sú, að Íslandsbanki getur boðið
upp á þennan valmöguleika nú, að
endanlegt uppgjör á milli eigna
gamla Glitnis og Íslandsbanka ligg-
ur nú fyrir. Þetta þýðir að verðmat á
þeim lánum sem fluttust inn í nýja
bankann liggur ljóst fyrir, og þar
með svigrúm bankans til þess að
koma til móts við þá viðskiptavini
sem eru í vanda staddir.
Ekki fengust upplýsingar hjá Ís-
landsbanka á hvaða verði bílalán
bankans voru færð til bókar en leiða
má líkum að því að þær upplýsingar
verði að finna í ársreikningi bankans
sem verður væntanlega opinberaður
innan fárra vikna.
Segja má að það sé afar mikilvægt
fyrir Íslandsbanka að sem flestir við-
skiptavinir nýti sér þetta tilboð.
Skuldir Íslandsbanka, rétt eins og
hinna nýju viðskiptabanka, eru í
krónum á sama tíma og hann fjár-
magnar erlend útlán sem bera lága
vexti í samanburði við útlán þeirra í
krónum. Eins og fram kemur í
skýrslu Seðlabankans um fjármála-
stöðugleika skapar þetta gjaldeyris-
misvægi töluverðan vanda fyrir
bankakerfið þar sem það er afar við-
kvæmt fyrir breytingum á gengi
krónunnar.
Sækjast eftir sömu
kjörum með bílalán
Óljóst hvort fjármögnunarfyrirtæki fylgi Íslandsbanka eftir
Morgunblaðið/Ómar
Bílalán Tugþúsundir bíleigenda tóku erlend lán fyrir kaupum sínum.
ÍSLANDS-
BANKI hyggst
ekki innheimta
skuld þeirra
stofnfjáreigenda
Byrs sem fengu
lán hjá gamla
Glitni út á ófjár-
ráða börn sín við
stofnfjáraukn-
ingu í Byr síðla árs 2007. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins er um tíu börn að ræða.
Viðskiptablaðið vakti athygli á
þessu í gær, þar sem kom m.a.
fram að margir stofnfjáreigendur
Byrs íhuguðu málsókn á hendur
Íslandsbanka vegna lána Glitnis.
Bankinn sendi í gær frá sér yf-
irlýsingu þar sem segir m.a. að
hann harmi þetta mál í alla staði.
Við stofnfjáraukningu Byrs ósk-
uðu nokkrir stofnfjáreigendur eft-
ir því að Glitnir fjármagnaði stofn-
fjárkaup fyrir börn sín, voru
börnin þá þegar stofnfjáreigendur
og nutu forgangsréttar í útboðinu.
Segir Íslandsbanki að í öllum til-
vikum hafi foreldrar eða for-
ráðamenn umræddra barna haft
frumkvæði að lántökunni og kom-
ið fram fyrir þeirra hönd gagn-
vart Glitni.
Frá stofnun Íslandsbanka hafa
þessar lánveitingar verið til skoð-
unar. Við þá athugun kom í ljós
að ekki lá fyrir samþykki yfirlög-
ráðanda, þ.e. sýslumanns, til lán-
töku barnanna. Því telur bankinn
að umræddir lánasamningar séu
ógildir og skuldirnar því ekki ver-
ið settar í innheimtu. Samkvæmt
upplýsingum blaðsins sóttu for-
eldrar barnanna það mjög hart
hjá sýslumanni að fá samþykkið
en án árangurs sem fyrr segir.
bjb@mbl.is
Fagna ekki
barnaláni
Tíu börn fengu lán
til stofnfjárkaupa
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
TIL stendur að efla eftirlit með því
að lög um gjaldeyrishöft séu virt og
er þess vænst að aukið eftirlit verði
til þess að hægt verði að létta á
vaxtastefnu Seðlabanka Íslands.
Kemur þetta fram í viljayfirlýsingu,
sem íslensk stjórnvöld sendu Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir
skömmu.
Segir þar að ásættanlegt vaxtastig
verði áfram mikilvægt fyrir stöðug-
leika krónunnar. Gjaldeyrishöftin
hafi dregið úr þrýstingi á stýrivexti,
en engu að síður sé erfitt að hindra
að farið sé í kringum þau.
Samþykkt hefur verið áætlun um
að draga smám saman úr gjaldeyris-
höftum. Áður en það er hægt verður
m.a. að innleiða að fullu áætlun um
efnahagslegan stöðugleika og safna
nægilegum gjaldeyrisforða til að
tryggja gengisstöðugleika.
Fyrsta skref í að afnema gjaldeyr-
ishöftin verður að leyfa innstreymi
erlends fjármagns í landið. Áður en
opnað verður fyrir óheftan útflutn-
ing á gjaldeyri verða reikningar,
eignaflokkar og viðskipti flokkuð í
tvennt. Í öðrum flokknum verði „þol-
inmótt“ fjármagn og í hinum „óþol-
inmótt“.
Höftum á flutningi gjaldeyris af
þolinmóðum reikningum verður af-
létt fyrst, en síðar verður höftum af-
létt af óþolinmóða fjármagninu, en
það verður gert smám saman.
Öryggisúttekt á Seðlabanka
Fram kemur einnig í viljayfirlýs-
ingunni að Alþjóðagjaldeyrissjóður-
inn hafi gert öryggisúttekt á Seðla-
banka Íslands. Þar hafi komið fram
að bókhaldi og skýrslugerð sé í engu
ábótavant, en lagt var til að breyt-
ingar yrðu gerðar á fyrirkomulagi
ytri endurskoðunar.
Samkvæmt því mun Ríkisendur-
skoðun eigi síðar en í lok júlí ráða al-
þjóðlegt endurskoðunarfyrirtæki til
að annast, í sínu umboði, árlega ytri
endurskoðun Seðlabankans í sam-
ræmi við alþjóðlega reikningsskila-
staðla.
Efla eftirlit með
gjaldeyrishöftum
Auka á endurskoðun með Seðlabanka
Seðlabanki Stjórnvöld boða úttekt.
● VEGNA umfjöllunar í blaðinu í gær
um skyndibitakeðjur vill Hjörtur Að-
alsteinsson, sem var með einkaleyfi fyr-
ir Quiznos Sub-keðjuna í nokkur ár,
árétta að staðnum á Nýbýlavegi 32 hafi
ekki verið lokað heldur gefið nýtt nafn.
Þar var áður Quiznos Sub en Hjörtur
opnaði þar Super Sub í staðinn, sem
býður upp á samlokur og salöt. Þar hef-
ur einnig verið opnuð ísbúð. Eins og
fram kom í blaðinu í gær tók Olís við
einkaleyfinu fyrir Quiznos og er með
þær veitingar inni á sínum stöðvum.
bjb@mbl.is
Super Sub í staðinn
fyrir Quiznos í Kópavogi
● BJÖRN Kr. Leifs-
son, eigandi World
Class-líkamsrækt-
arstöðvanna, hefur
falið lögmanni sín-
um að skoða
möguleika á máls-
höfðun á hendur
þrotabúi Straums-
Burðaráss fjárfest-
ingarbanka. Eins
og fram kom í Morgunblaðinu í gær hef-
ur þrotabúið stefnt rekstrarfélagi
Björns. Hann er hins vegar ósáttur við
ráðgjöf sem Straumur veitti við kaup á
líkamsræktarstöðinni Equinox í Dan-
mörku. Segir í yfirlýsingu að forsendur
sem starfsmenn Straums kynntu við
kaupin hafi í grundvallaratriðum reynst
rangar.
Hyggst stefna Straumi
Björn Kr. Leifsson
● ÁVÖXTUNARKRAFA á langflesta
flokka íbúðabréfa og ríkisskuldabréfa
lækkaði í gær og var lækkunin mest á
lengstu ríkisbréfaflokkana, eða 0,12
prósentustig.
Velta á skuldabréfamarkaði var öllu
minni en verið hefur í vikunni, eða 10,9
milljarðar króna og nam velta með
hlutabréf 33,7 milljónum.
Hækkaði gengi bréfa Össurar um
1,19 prósent í gær og gengi bréfa Mar-
els um 1,04 prósent. bjarni@mbl.is
Krafan lækkaði
ÞETTA HELST…
Auglýsing um álagningu opinberra gjalda
á lögaðila árið 2009
Hér með er auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 2009 er lokið á alla lögaðila sem
skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með síðari breytingum,
sem og aðra sem lagt er á í samræmi við VIII. – XIV. kafla tilvitnaðra laga. Jafnframt er lokið
álagningu á lögaðila, sem skattskyldir eru af fjármagnstekjum samkvæmt ákvæði 4. mgr.
71. gr. laganna.
Álagningarskrár með gjöldum lögaðila verða lagðar fram í öllum skattumdæmum í dag,
föstudaginn 30. október 2009. Skrárnar liggja frammi til sýnis á skattstofu hvers skattum-
dæmis og hjá umboðsmönnum skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum í hverju
sveitarfélagi dagana 30. október til 13. nóvember nk. að báðum dögum meðtöldum.
Álagningarseðlar, er sýna álögð opinber gjöld lögaðila, hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda 2009 samkvæmt ofangreindu skulu hafa bor-
ist skattstjóra eigi síðar en mánudaginn 30. nóvember 2009.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt,
með síðari breytingum.
30. október 2009.
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Rósa Helga Ingólfsdóttir
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Hanna Björnsdóttir
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Steinþór Haraldsson
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson