Morgunblaðið - 30.10.2009, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
SPENNAN er tekin að magnast í
framboðinu um hver verður fyrstur
til að gegna embætti forseta ráð-
herraráðs Evrópusambandsins. Tvö
nöfn eru nú eink-
um nefnd í þessu
samhengi, nöfn
Tony Blair, fyrr-
verandi forsætis-
ráðherra Bret-
lands, og
Jean-Claude
Juncker, for-
sætisráðherra
Lúxemborgar, en
báðir eru þeir
taldir líklegastir til að verða fyrsti
„George Washington Evrópu“, eins
og AFP-fréttastofan orðar það, með
vísan til fyrsta forseta Bandaríkj-
anna.
Eins og sjá má á kortinu hér fyrir
ofan hafa sex önnur nöfn verið nefnd
í þessu samhengi en þau tíðindi hafa
orðið frá því kortið var teiknað að
Jan Peter Balkenende, forsætisráð-
herra Hollands, hefur greint frá því
að hann muni ekki bjóða sig fram.
Enn annað nafn sem nefnt hefur
verið í þessu samhengi er Vaira
Vike-Freiberga, fyrrverandi forseti
Lettlands, öðru nafni „járnfrúin“,
sem nýtur stuðnings í Litháen og
hugsanlega víðar um Eystrasaltið.
Forsetaembættið sem um ræðir
verður til með staðfestingu sáttmál-
ans en í honum er gert ráð fyrir að
forsetinn sitji í 2,5 ár og eigi svo kost
á öðru, jafn löngu kjörtímabili.
Sýn fremur en uppruni
Inntur eftir því um hvað kosninga-
baráttan snúist telur Eiríkur Berg-
mann Einarsson, Evrópufræðingur
við Háskólann á Bifröst, framtíðar-
sýn vega þyngra en þjóðerni.
„Umræðan um hver geti orðið
fyrsti forseti sambandsins snýst ekki
nema að hluta um uppruna viðkom-
andi einstaklings. Þetta snýst ekki
síður um pólitíska sýn og fyrir hvað
viðkomandi stendur. Tony Blair, til
dæmis, er frá Bretlandi og því úr
þeirri átt sem alla jafna myndi hafa
ákveðnar efasemdir um enn frekari
samruna, sjónarmið þar sem litið er
svo á að sambandið eigi að vera milli-
ríkjabandalag frekar en yfirþjóðlegt
sambandsríki.
Á sama tíma er Juncker mjög
þekktur sem leiðtogi federalista-
hreyfingarinnar í Evrópu, þeirra
sem vilja aukinn samruna. Þannig að
umræðan snýst ekki aðeins um hvort
frambjóðandinn er frá Bretlandi eða
Lúxemborg heldur í hvaða átt við-
komandi ætlar að fara með sam-
bandið. Blair er ekkert endilega í
betri stöðu en frambjóðandi frá
smáu ríki. Það getur jafnvel unnið
gegn honum.“
Litlu ríkin eiga möguleika
– En eiga smáríki raunhæfa
möguleika á að eignast forseta ESB?
„Já. Leiðtogi frá litlu landi eins og
Íslandi ætti möguleika. Einn af lík-
legustu kandítötunum er einmitt
Juncker, forsætisráðherra Lúxem-
borgar. Smáríkin eru mun fleiri en
stóru ríkin og hafa í raun jafn mikið
atkvæðavægi í leiðtogaráðinu og
stóru ríkin, þótt áhrifin séu ekki
endilega þau sömu. Þau myndu
kannski frekar vilja halla sér að
Juncker eða einhverjum slíkum frá
litlu ríki frekar en að hleypa fulltrú-
um stórveldanna að. Þannig að þetta
er ekki klippt og skorið að stórveldin
hafi endilega meiri áhrif í slíku vali.“
Leiðtogar Evrópusambandsins hittust í gær til óformlegra viðræðna um hver gæti orðið fyrsti forseti sambandsins. Embættið
verður til með staðfestingu Lissabon-sáttmálans en sex mánaða hringekjan, þar sem aðildarríkin skipta því með sér að gegna
forystu í sambandinu, verður þá aflögð. Hér eru nefndir til sögunnar líklegir kandítatar að mati sérfræðinga í Brussel.
FORSETI RÁÐHERRARÁÐS ESB
Tony Blair
Fyrrv. forsætisráðherra Bretlands
Þykir eiga góðamöguleika
enda nýtur hann stuðnings
þeirra sem vilja þungavigtar-
mann í alþjóðamálin.
Umdeildur, m.a. vegna
stuðnings við Íraksstríðið og
misjafns árangur sem sátta-
semjari í Mið-Austurlöndum.
Jean-Claude Juncker
Forsætisráðherra Lúxemborgar
Einn helsti arkitekt
Maastricht-samkomulagsins
sem ruddi evrunni braut.
Var talinn leiða framboðið
þar til upp risu deilur á milli
hans og AngeluMerkel
Þýskalandskanslara and Nicolas
Sarkozy Frakklandsforseta
vegna laga um bankaleynd.
Jan Peter Balkenende
Forsætisráðherra Hollands
Kom fram sem líklegur
málamiðlunarkostur, að
sögn diplómata.
Hefur varið síðustu
árum í að styrkja hlutverk
Hollands, stofnaðila ESB, á
alþjóðasviðinu.
Bertie Ahern
Fyrrv. forsætisráðherra Írlands
Þótti líklegur kandítat þar til
hann sagði af sér embætti árið
2008 vegna ásakana um
spillingu.
Mun fara í kosningaferð
víða um Evrópu sem gæti
komið honum í slaginn á ný.
Paavo Tapio Lipponen
Fyrrv. forsætisráðherra Finnlands
Talinn líklegmálamiðlun á
milli stærri og smærri ríkja.
Þótti eitt sinn líklegur til að
fara með utanríkismál í ESB en
Pólverjar komu í veg fyrir kjör
hans vegna tengsla hans við
Nord Stream-gasverkefni Rússa.
Lipponen þurfti að segja af sér
á finnska þingingu vegna
málsins.
Fredrik Reinfeldt
Forsætisráðherra Svíþjóðar
Einnig talinn líkleg
málamiðlun eftir það lof sem
Svíar hafa fengið fyrir forystu
sína í sambandinu frá júlí.
Talsmaður endurskoðunar
á útgjöldum sambandsins. Vill
beina þeim frá landbúnaði til
nýsköpunar í aðildarríkjum.
Guy Verhofstadt
Fyrrv. forsætisráðherra Belgíu
Þótti líklegur í embætti
forseta framkvæmda-
stjórnarinnar þar til Jose
Manuel Barroso kom seint inn
í kosningabaráttuna 2004.
Þingmaður á Evrópu-
þinginu og leiðtogi
frjálslyndra þingmanna.
Felipe Gonzalez
Fyrrv. forsætisráðherra Spánar
Spánverjar hafamælt fyrir
framboði Gonzalez en líkur hans á
kjöri hafa þótt faraminnkandi.
Árið 1997 var Gonzalez, semer
sósíalisti, talinn líklegastur til að
verða næsti forseti framkvæmda-
stjórnarinnar en tapaði fyrir
RomanoProdi, fyrrverandi
forsætisráðherra Ítalíu.
Hver verður „George
Washington Evrópu“?
Margir vilja verða fyrsti forseti ráðherraráðs ESB
Vike-Freiberga
Það er ekki fullkomlega
óhugsandi að Ísland gæti í
fyllingu tímans átt sinn
fulltrúa í embætti forseta
ráðherraráðs Evrópusam-
bandsins. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands,
gæti orðið fyrsti íslenski
forsetinn sem á kost á
þessu embætti.
Til að Ólafur Ragnar
ætti kost á embættinu þyrfti eft-
irfarandi atburðarás að fara af
stað. Fyrsti forseti ráðherraráðs-
ins verður aðeins eitt kjörtímabil
eða í 2,5 ár og lætur því af emb-
ættinu um mitt ár 2012, að því
gefnu að hann verði settur í emb-
ætti um áramótin að lok-
inni staðfestingu á Lissa-
bon-sáttmálanum.
Að því einnig gefnu að
Ólafur Ragnar sækist eft-
ir embættinu – orðrómur
hefur verið um að hugur
hans standi til að stýra
alþjóðastofnun – gæti
hann farið í framboð þeg-
ar fjórða kjörtímabili
hans lýkur vorið 2012.
En fyrst þarf Ísland að fá inn-
göngu í sambandið og þótt margt
geti breyst sýnist ekki óhugsandi
að búið verði að afgreiða aðildar-
samninginn áður en fjórða kjör-
tímabili forsetans lýkur.
Ólafur Ragnar annar forseti ESB?
Ólafur Ragnar
Grímsson
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
JÓLABLAÐIÐ
Morgunblaðið gefur út stór-
glæsilegt jólablað föstudaginn
27. nóvember 2009
Í jólablaðinu í ár komum við víða við, heimsækjum
fjölda fólks og verðum með fullt af spennandi efni fyrir
alla aldurshópa.
Jólablaðið er flottasta sérblaðið sem Mogginn gefur
út og er eitt af vinsælustu blöðum lesenda.
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 12
mánudaginn 23. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Meðal efnis verður :
Uppáhalds jólauppskriftirnar.
Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að borða á aðventu og
jólum.
Villibráð.
Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur.
Smákökur.
Eftirréttir.
Jólakonfekt.
Grænmetisréttir og einnig réttir fyrir þá sem hafa
hollustuna í huga þegar jólin ganga í garð.
Jólasiðir og jólamatur í útlöndum
Jólabjór og vínin.
Gjafapakkningar.
Tónlistarviðburðir, söfn, kirkjur á aðventu og í kringum
jólahátíðina.
Kertaskreytingar, þar á meðal jólakerti.
Heimagerð jólakort.
Jólaföndur.
Jólabækur og jólatónlist.
Jólaundirbúningur með börnunum.
Margar skemmtilegar greinar sem tengjast þessari
hátíð ljóss og friðar.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.