Morgunblaðið - 30.10.2009, Qupperneq 19
HÚN ER fagurlega skreytt brúðarmeyjan í Nýju Delhí sem bíður þess að
fara með tryggðarheitið. Fjöldi Indverja gekk í það heilaga við athöfnina
en eins og sjá má er litadýrðin í hávegum höfð.
Indverskir gullsalar voru við öllu búnir enda eftirspurnin mikil. Verðið
er nú um 1.030 dalir á únsuna og er því í sögulegum upphæðum.
Reuters
Á brúðkaupsdaginn
Fréttir 19ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
fararbroddi, fékk franska ríkið
reikning upp á um 32 milljarða
króna. Um sex mánaða tímabil er að
ræða og hljóðar reikningurinn því
upp á 175 milljónir króna á dag.
Fjáraustur forsetans er gagn-
rýndur í skýrslu franskra ríkis-
endurskoðenda sem og skortur á
gagnsæi.
Dýrt fyrirhyggjuleysi
Fyrirhyggjuleysi er einnig gagn-
rýnt en skipulagning viðburða á síð-
ustu stundu er talin ein ástæða þess
að kostnaður vegna forystunnar í
sambandinu fór upp úr öllu valdi.
Háttalag forsetans rifjar upp sög-
ur af leiðtogum landsins fyrir
frönsku byltinguna en forsetinn neit-
aði í eitt skiptið að fara á viðburð í
Evian, þar sem hundruð blaðamanna
og fulltrúar ESB og erlendra ríkja
biðu, vegna þess að hann vildi fremur
sofa í eigin rúmi.
NICOLAS Sarkozy Frakklandsfor-
seti er maður munaðar líkt og fyr-
irrennari hans, Jacques Chirac, sem
eyddi tugum þúsunda í eðalvín og há-
tíðamat á degi
hverjum.
Sarkozy skákar
þó líklega Chirac í
baðvenjum því
skrifstofa hans
gerði sér lítið fyr-
ir og pantaði með
hans fulltingi for-
láta sturtu sem
kostar litlar 50
milljónir króna.
Ekki fylgir sögunni hvernig
steypibaðið góða er úr garði gert en
leiða má að því líkur að eðalmálmar
komi þar við sögu.
Frakklandsforseti er maður dýr á
fóðrum sem sést ef til vill best á því
að eftir að Frakkar fóru með forystu
í Evrópusambandinu, með Sarkozy í
Nicolas Sarkozy
Steypibað Dæmi um lúxussturtu.
Peningunum sturtað niður í ónotaða lúxussturtu
Sarkozy pantaði 50 milljóna kr. sturtu en notaði hana ekki
Frakkar eyddu 32 milljörðum á forystutíð sinni í ESB
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
LENGSTA samfellda samdráttar-
skeiði í bandarísku efnahagslífi frá
lokum síðari heimsstyrjaldarinnar
virðist lokið ef marka má nýjustu
hagvaxtartölur, en þær benda til að
hagkerfið hafi vaxið um 3,5% á síð-
asta ársfjórðungi, frá júlíbyrjun og
til loka september.
Sá böggull fylgir skammrifi að
kostnaðarsamar aðgerðir stjórn-
valda til að örva atvinnulífið, svo sem
með því að stuðla að bílakaupum,
renna brátt sitt skeið á enda og því
viðbúið að slaki verði í efnahagslífinu
á ný. Það þykir einnig veikleika-
merki að atvinnurekendur eru enn
tregir til að bæta við sig starfsfólki
en atvinnuleysið, sem mælist nú um
9,8%, er einmitt einn mesti höfuð-
verkur stjórnar Baracks Obama for-
seta í innanlandsmálunum.
Óbreytt staða á vinnumarkaði
Fjallað er um hagvaxtartölurnar á
vef New York Times en þar er haft
eftir Jan Hatzius, yfirhagfræðingi í
Bandaríkjadeild risabankans Gold-
man Sachs, að atvinnuleitendur
muni ekki sjá marktækan mun á at-
vinnuframboði á næstu mánuðum.
Dan Greenhaus, yfirhagfræðingur
hjá markaðsrannsóknarfyrirtækinu
Miller Tabak, tekur undir að taka
beri hagvextinum með fyrirvara.
Hér kunni að vera á ferð „sýndar-
vöxtur“ sem muni fjara út á næstu
ársfjórðungum. Atvinnulífið verði að
komast í gang áður en það gerist.
Botninum var náð í bandarísku
efnahagslífi á fyrstu þremur mánuð-
um ársins þegar samdrátturinn nam
6,4% af þjóðarframleiðslu. Næstu
þrjá mánuðina þar á eftir hafði sam-
drátturinn minnkað niður í 0,7%.
Til samanburðar var samdráttur-
inn 5,4% síðustu þrjá mánuði síðasta
árs og 2,7% mánuðina þrjá á undan.
Á öðrum ársfjórðungi 2008 var hag-
vöxturinn hins vegar 1,5%, miðað við
0,7% samdrátt á fyrstu þremur mán-
uðum síðasta árs.
Teikn um viðsnúning
Hagvöxtur í bandaríska hagkerfinu mælist 3,5% á síðasta
ársfjórðungi Lengsta samdráttarskeiði í hálfa öld lokið
Reuters
Wall Street Bandarískir fjármálasérfræðingar vara við of mikilli bjarstýni.
Í HNOTSKURN
»Obama fagnar fréttunum envarar við of mikilli bjartsýni.
»Kreppan sé enda sú dýpstafrá því í kreppunni miklu
undir lok þriðja áratugarins.
»Líkt og í Þýskalandi hefurstjórn hans greitt með hverj-
um gömlum bíl sem sendur er í
brotajárn ef nýr bíll er keyptur,
en þetta hefur örvað söluna um-
talsvert.
Til að bæta
gráu ofan á
svart fyrir Sar-
kozy hafa vin-
sældir for-
setafrúarinnar,
Cörlu Bruni,
dalað mjög.
Tímaritið Point
de Vue skefur
ekki utan af því
í átta blaðsíðna skæðadrífu yfir
frúna sem lýst er sem kjánalegri,
ríkri konu sem sé ekki í neinu sam-
bandi við þjóð sína.
Tímaritið sérhæfir sig í umfjöll-
un um ríkt og konungborið fólk og
segir á vef breska dagblaðsins The
Daily Telegraph að opnurnar fjórar
séu Sarkozy mikið áfall, enda reyni
hann að hrista af sér þá ímynd að
þar fari forseti með einveldistakta.
Greinin er myndskreytt með
myndum af
Bruni og Marie
Antoinette,
hinni alræmdu
drottningu sem
spurði eins og
frægt er orðið
hvers vegna
lýðurinn borð-
aði ekki kökur
þegar henni var
tjáð að hann ætti ekki fyrir brauði.
„Sama stellingin, sama útlitið,
sama brosið,“ segir í upphafi
greinarinnar en þar er rifjað upp
hversu helteknar konurnar eru af
eigin útliti. Antoinette hafi þannig
notast við málarann Elisabeth Vi-
gee-Le Brun til að mála sig fagra
en Bruni við hinn heimsþekkta
ljósmyndara Annie Leibovitz.
Bruni safnar nú kröftum á sólar-
strönd eftir erfitt frí fyrir skömmu.
Marie Antoinette fimmta lýðveldisins
Carla Bruni Marie Antoinette
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 12.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
6 mán. vaxtalausar greiðslur
Fyrst og fremst í heilsudýnum