Morgunblaðið - 30.10.2009, Qupperneq 20
Í kjölfar tilkynningar
rekstraraðila McDo-
nald’s á Íslandi um að
rekstri staðarins yrði
hætt hafa spunnist
miklar umræður um
hver eigi að fá síðasta
borgarann. Ráða-
menn og áhrifamenn í
samfélaginu taka oft að sér
að vígja ýmis mannvirki þegar þau eru tilbúin, eða
nýta sér þjónustu fyrirtækis í fyrsta sinn. Óalgeng-
ara er þó að þeir taki að sér að loka stöðum. Í sjálfu
sér er áhugavert að velta fyrir sér hvernig slík at-
höfn færi fram. Einn góður vinur minn stakk upp á
því að Kristján Möller, samgönguráðherra, myndi
klippa síðasta borgarann eða bora göng í hann,
enda er ráðherrann alvanur slíkum gjörningum.
Kannski væri hægt að ganga enn lengra með þá
pælingu og tengja sprengiefni við síðasta borg-
arann og láta samgönguráðherra sprengja hann í
loft upp. Nokkuð drjúgur hópur fólks telur að
brotthvarf McDonald’s sé mikið fagnaðarefni. Það
hlýtur að vera krafa sama hóps að síðasti hamborg-
arinn sé kvaddur með stæl – með hvelli. Brotthvarf
McDonald’s-vörumerkisins af Íslandi mun í það
minnsta ekki hafa djúpstæð áhrif á daglegt líf þess
er þetta ritar. Valfrelsi þegar kemur að neyslu mat-
væla mun þó væntanlega eitthvað skerðast. Hitt er
þó merkilegra að brotthvarf hamborgarakeðjunnar
markar ef til vill upphaf afturhvarfs til einangrunar
og þjóðlegri gilda. Viðskiptaráðherra lýsti því yfir
fyrr á árinu að Ísland gæti orðið að Kúbu norðurs-
en samkvæmt skilgreiningum ýmissa aðila gæti sá
fjöldi verið nægilega mikill til að flokkast sem „ís-
lenska þjóðin“. Því mætti kalla lóðina að Suður-
landsbraut 56 hálfgerða þjóðlendu, og því við hæfi
að fulltrúi óbyggðanefndar sporðrenni síðasta
bitanum sem framleiddur er undir merkjum
McDonald’s. Helstu andstæðingar
óbyggðanefndar hafa jafnan verið
bændur. Í ljósi þess að nýr staður,
Metro, verður opnaður í stað McDo-
nalds og notast eingöngu við íslenskt
hráefni, er jafnvel viðeigandi að
fulltrúi bændastéttarinnar snæði síð-
asta borgarann. Uppgrip bænda munu
líklega aukast þegar rekstraraðilar
Metro hefja kaup á íslensku hráefni til að
framleiða sína vöru. Að öllu sam-
anteknu er ljóst að undirritaður
er líklega sá eini sem velt
hefur fyrir sér með fag-
legum hætti, hvernig
ráðstafa eigi síðasta
borgaranum sem er
framleiddur undir
merkjum McDo-
nald’s á Íslandi – í
bili. Kannski sé
best að sá er
þetta ritar
hreppi hnossið?
Þórður
Gunnarsson
| thg@mbl.is
ins ef Icesave-samningar yrðu ekki undirritaðir. Í
því samhengi er skemmtilegt að segja frá því að á
Kúbu er rekinn McDonald’s-staður. Kúba er því í
dag betur sett en Ísland hvað varðar aðgengi að
hamborgurunum sívinsælu. Kannski við-
skiptaráðherra gæti gert eignarnám í síðasta
hamborgaranum, og síðan reynt að koma
honum í verð erlendis til slá á erlendar
skuldir þjóðarbúsins. Það er í sjálfu sér
engin ástæða til að slá slíkar hug-
myndir strax út af borðinu, þar sem
McDonald’s-hamborgari er ef til vill
verðmætari en ýmsar þær eignir sem
finna má á lánabókum íslensku bank-
anna. Kannski væri heppilegra að ræða
við óbyggðanefnd ef til eignarnáms á síð-
asta borgaranum kæmi. Nefndin sú er
alvön slíkum athöfnum. Mikill
fjöldi fólks hefur gert sér
ferð að Suðurlandsbraut
56 í vikunni, þar sem
stærsti McDonald’s-
staðurinn á Íslandi
hefur verið stað-
settur. Ekki
liggur fyrir
talning á
þeim sem
hafa sótt
sér góm-
sætan
borgara í
vikunni,
Heimur Þórðar
20 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Hvað viltu lesa? Sendu okkur
tölvupóst á daglegtlif@mbl.is
Þegar kaldir og þurrir vetrarvindar
fara að blása á Íslandi er nauðsyn-
legt að verja húðina fyrir áreitinu og
á það jafnt við
um karla sem
konur. Hend-
urnar eru sá
líkamshluti
sem verður fyr-
ir hvað mestu
áreiti yfir daginn
og þegar þær taka
að veðrast í of-
análag á húðin það
gjarnan til að þorna
og roðna.
Fyrir þá sem kann-
ast við þetta vandamál
er óhætt að mæla með
handáburðinum frá L’Oc-
citane en Provence. Líkt og í öðrum
L’Occitane-vörum er uppistaðan í
handáburðinum shea-krem sem gef-
ur húðinni raka og mýkir hana.
Handáburðurinn smyrst vel svo
það þarf ekki nema lítið magn í einu
til að gera hendurnar mjúkar og
hann endist því lengi. Það besta er
samt að hann smitar lítið út frá sér
og fingurnir verða því ekki fitugir og
sleipir eins og stundum vill verða.
Handáburðurinn fæst í L’Occitane-
versluninni í Kringlunni, 5 mismun-
andi gerðir, 30 ml túpa kostar 995
kr.
Önnur góð lausn er svo auðvitað
klassíski, þýski Atrix-handáburð-
urinn. Atrix er sennilega með ódýrari
handáburði og svínvirkar enda hefur
hann verið vinsæll í áratugi.
Atrix fæst í öllum apótekum og
víðar. 200 ml túpa kostar um 400 kr.
Í snyrtiveskið
Andlitið er mjög
berskjaldað fyrir
ytra áreiti og tek-
ur það sinn toll á
húðinni með tím-
anum. Til að koma
í veg fyrir það er
nauðsynlegt að
hugsa vel um húð-
ina áður en það er
orðið of seint. Es-
tée Lauder hefur þróað krem sem er
til þess ætlað að hjálpa húðinni að
endurnýja sig jafnóðum. Kremið, sem
er í dropaformi, er borið á fyrir svefn-
inn og hjálpar húðinni að vinna gegn
umhverfisáreiti, s.s. UV-geislum,
mengun, kulda og jafnvel streitu áður
en þeir skilja eftir sig varanleg merki.
Advanced Night Repair-droparnir
fást víða, s.s. í Hagkaupum og apó-
tekum, og kostar 30 ml glas kr.
7.800.
Í snyrtitöskuna
Næturdropar
hjálpa húðinni
Ungar stúlkur
víða um heim
heilluðust af
vampírusögunni
Ljósaskiptum eft-
ir Stephenie
Meyer. Höfund-
urinn heldur
áfram sögu sinni í
Nýju tungli og lýs-
ir ástum Ísabellu
og vampírunnar Edwards og þeim
hættum sem fylgja þessu óvenjulega
sambandi. Þetta er löng bók, rúmar
500 blaðsíður. En lesendur setja
lengdina ekki fyrir sig heldur fagna
mjög og sökkva sér ofan í æv-
intýraríka frásögn. Meðan bækur eins
og þessi trekkja að fjölda ungra les-
enda er ekki ástæða til að hafa
áhyggjur af bóklestri. kolbrun@mbl.is
Bókin
Vandinn að
elska vampíru
Nýtt tungl
Elizabeth Spiridakis er svo heltekin aftísku að það jaðrar við þráhyggju.Hana dreymir um flottar flíkur frá
dýrum og þekktum merkjum en það sem
þykir gefa blogginu sérstakan sjarma er að
hún hefur efni á fæstum þeirra. Spiridakis
er um þessar mundir á ferðalagi um Banda-
ríkin og Evrópu og er hún dugleg að mynda-
blogga um föt sem hún hefur fundið í versl-
unum sem selja notuð föt. Svo vinsæl er
Spiridakis orðin að fjöldi fólks ber kennsli á
hana og stoppar hana úti á götu til að ræða
um tísku.
feelslikewhitelightning.com
Ljósmyndarinn Tommy Ton er hel-tekinn af skóm. Flottum skóm.Þessi 25 ára Kanadabúi ferðast
víða um heim með myndavélina að vopni
og tekur myndir af flott klæddu fólki en
beinir athyglinni helst að skótauinu. Síðan
gefur góðar vísbendingar um hvernig skó
ódýrari búðir, sem apa oft eftir dýrari
merkjunum, muni selja á næstunni. Síðan
hefur slegið í gegn og fær yfir 30 þúsund
heimsóknir á dag. Ein stórverslun í To-
ronto, heimabæ Ton, hefur m.a.s. búið til
gínu sem líkist Ton.
jakandjil.com
Óþekktur breskur tísku-ritstjóri, sem býr íNew York, bloggar um
allt frá fordómum tískuheims-
ins í garð brjóstastórra kvenna
til misheppnaðra stefnumóta
sem hún hefur farið á, allt með
leiftrandi breskum húmor.
Hún er með puttann á púls-
inum og var t.a.m. á undan
öllum dagblöðum og tímarit-
um að birta þá frétt að til
stæði að opna Topshop í
Bandaríkjunum.
libertylondongirl.blogspot.com
Vinkonurnar JessicaMorgan og HeatherCocks hika ekki við að
rakka stjörnurnar niður
klæðist þær einhverju sem
þeim líkar illa við. Á síðunni
birta þær nýjustu myndirnar
af skringilega klæddum
stjörnum á rauða dreglinum
og draga þær enga dul á hvað
þeim finnst. Athugasemdir
þeirra eru miskunnarlausar
en oftast nær bráðfyndnar.
gofugyourself.com
Mjúkar hendur 20bestu tískubloggararnir
Heimasíða breska blaðsins Telegraph hefur sett saman lista yfir 20 bestu tískubloggarana. Blogg-
ararnir koma úr öllum áttum og einbeita sér ýmist að fötum stjarnanna, tískusýningum, því sem þeir
sjálfir klæðast, skóm, fylgihlutum eða heimilum. Þeir eiga þó allir sameiginlegt að vera orðnir heims-
þekktir fyrir hugleiðingar sínar um tísku og tískustrauma. Sagt var frá fjórum bloggurum síðasta
föstudag og mun umfjöllunin halda áfram hér í daglega lífinu næstu vikurnar.
?
’ráðherramyndi klippa
síðasta borg-
arann eða bora
göng í hann
ÞAÐ eru ekki allir sem kunna sig á
meðal fólks og enn færri að því er
virðist sem kunna sig meðal fólks á
netinu, líkt og þeir viti ekki að þar
séu fleiri en þeir einir.
Upp er sprottin vefsíðan Lame-
book þar sem safnað er saman lýs-
andi dæmum um félagslega van-
hæfni og athyglissýki sumra
Facebook-notenda.
Dæmi: Jennifer nokkur skrifar
eftirfarandi stöðu á síðuna sína:
„Jennifer slakar á í sófanum
heima, með vínglas og stelpumynd
og fróar sér :-) Alsæla.“
Annað dæmi. Britney birtir mynd
af jákvæðu þungunarprófi á síðunni
sinni. Myndatextinn segir: „OMG
hvernig á ég að segja Ryan þetta?“
Ekki á Facebook allavega fíflið þitt
er svarið sem allt venjulegt fólk
hugsar með sér.
Sumum er þó ekki alls varnað,
það er ekki alltaf heimsku um að
kenna heldur kannski misskilningi
eða kunnáttuleysi. Frægasta dæmið
er auðvitað stelpan sem þakkaði
fyrir næturgreiðann kvöldið áður í
skilaboðum sem hún hélt að væru
leynileg en reyndust fyrir allra,
gjörsamlega allra, augum.
Á Lamebook er óteljandi mörg
svona dæmi að finna, sum þeirra
eru hræðilega vandræðaleg, önnur
meinfyndin og sum gera mann bara
reiðan og fylla mann vonleysi um
mannkynið.
En fyrir okkur hin sem kunnum
okkur (að eigin mati) er auðvitað
stórkostleg skemmtun að hlæja að
óförum annarra á netinu, á meðan
við verðum ekki aðhlátursefni sjálf.
www.LAMEBOOK.com
Lamebook fyrir félagslega vanhæfa