Morgunblaðið - 30.10.2009, Page 21
„Let off some steam Bennett“
-Schwarzenegger eftir að hafa
drepið óvininn við stóran gufuketil
í Commando
„I ain’t got time to bleed …“
-Jesse Ventura í Predator
„You’re gonna regret this the
rest of your life … both seconds
of it.“
-Stallone í Demolition Man
„Yippee-ki-yay, motherfucker.“
- Bruce Willis í Die Hard
„I’m gonna take you to the
bank, Senator Trent. To the
blood bank!“
-Steven Seagal í Hard to Kill.
„Hasta la vista … baby“
-Schwarzenegger í Terminator
„You’re discharged … sarge“
-Van Damme í
Universal Sol-
dier eftir að
hafa hent
vonda kallinum
inn í þreskivél.
„RUN! GO! GET TO DA
CHOPPA!“
-Schwarzenegger í
Predator.
„I must break you!“
-Dolph Lundgren í
Rocky IV
„You’re not sending ME to
da COOLA!“
-Schwarzenegger í Batman-
&Robin
„You’re the disease, and
I’m the cure.“
-Stallone í Cobra.
Daglegt líf 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
NÍUNDI og tíundi áratugurinn var
tími harðhausanna; dúndurmassaðra
vöðvatrölla með vélbyssur sem
björguðu heiminum ber að ofan og
bölvandi.
Testósterónmagnið hefur sjaldan
verið meira á hvíta tjaldinu en í has-
armyndum þess tíma þegar harð-
hausarnir Schwarzenegger og Sly
Stallone, Bruce Willis, Steven Sea-
gal, Dolph Lundgren og Van Damme
börðu mann og annan og ruddu út úr
sér einlínungum.
Undir lok 10. áratugarins fór
þó aðeins að halla undan fæti
hjá harðhausunum, bæði
tóku þeir að reskjast og
hasarmyndakúltúrinn að
breytast. Plottið í has-
armyndum fór að verða
flóknara og „gáfulegra“
og allt í einu var ekki
fullnægjandi lengur að
hetjan væri einfalt
vöðvatröll sem lemur
fólk í annarri hverri
senu og sprengir upp
bíla með eldvörpu í
hinni.
Stöku has-
armyndir af
gamla skólanum hafa ratað í bíó síð-
ustu ár, þar hefur Jason Statham
farið fremstur í flokki undanfarið
með myndir eins og Transporter og
Crank, en að Statham ólöstuðum leit
út fyrir það um tíma að gömlu harð-
hausana hefði dagað uppi í tilvist-
arkreppunni.
Þeir sem saknað hafa þessarar
gullaldar karlmennskunnar geta þó
tekið gleði sína að nýju því jólin eru
komin aftur í harðhausageiranum.
Sly sjálfur Stallone hefur nefnilega
tekið sig til og safnað sam-
an hörðustu harðhausum
9. áratugarins sem vilja
allir fá að eiga síðasta
orðið.
Afrakst-
urinn, te-
stósterónsprengjan The Expenda-
bles, er væntanleg í kvikmyndahús á
næsta ári. Ýmsum sögum hefur farið
af leikaravalinu, m.a. lítur út fyrir að
Van Damme hafi hafnað hlutverki og
50 Cent hafi (blessunarlega) verið
neitað um hlutverk.
Hinsvegar er staðfest að
Schwarzenegger, Stallone, Bruce
Willis og Dolph Lundgren, auk Jas-
on Statham, bardagahetjunnar Jet
Li og leðurfésins
Mickey Rourke fara
allir með hlutverk í
myndinni.
Söguþráðurinn er eitthvað á þessa
leið: Bandaríkin og bandamenn
þeirra setja saman ofurteymi sinna
best þjálfuðu málaliða til að steypa af
stóli einræðisherra sem lagt hefur
Suður-Ameríku í rúst.
Þeir átta sig fljótt á því að þeir
standa einir þegar verkefnið fer úr
böndunum og verða því að reiða sig á
sjálfa sig til að berjast ekki aðeins
við heri einræðisherrans heldur líka
við eigin yfirvöld sem leiddu þá í
gildru.
Með þetta plott í farteskinu eiga
aðdáendur hasarmynda von á góðu
og ekki útilokað að í vændum sé
besta harðhausamynd allra tíma.
Eitt er allavega víst:
einhver verður
laminn í klessu.
Harðasta mynd allra tíma væntanleg Klassískir
einlínungar
Glæsilegur kvenfatnaður
á frábæru verði
Ný sending
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur · Sími 555 7355
(í sama húsi og bílaapótekið, fyrir ofan Smáralind)
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugardaga
www.selena.is