Morgunblaðið - 30.10.2009, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Þau eru und-arleg for-gangsverk-
efni stjórn-
valdanna í þessu
landi. Fáeinar
kindur hafa þraukað sjálfala í
klettaskorum fyrir vestan, á
móti líkindalögmálunum og
ónáttúru eins og hún getur
orðið frekust á líf og hjálp-
ræði. Það var þeirra dauðasök
að hafa ekki gefist upp fyrir
ofureflinu.
Og nú var loks hægt að
standa í lappirnar sem hafa
lyppast niður þegar brýnna
var að bogna ekki. Þótt málið
hefði að vísu ekki verið sent
sérstökum saksóknara var
safnað fræknu liði og sótt að
sakborningum. Þeir sýndu enn
sem fyrr eindreginn brota-
vilja. Ærnar hlupu sumar fyrir
björg heldur en að láta full-
trúa yfirvalda fanga sig. Hin-
um var hrundið saman og
handsamaðar. Engin fyrirhöfn
var spöruð. Það lá mikið við
því þetta sauðþráa fé hafði
ekki sinnt um árabil fund-
arboðum frá sláturhúsum yf-
irvalda. En réttlætið hefur
loks sitt fram og þessu óleyf-
islíferni hrúta og áa verður
loks lokið með viðeigandi
hvelli.
Upplýst hefur
verið að þetta sér-
staka fjársafn í
klettaskorunum
hefði um árabil
brotið gegn lögum
um lausafjárgöngu búfjár og
jafnvel fleiri lögum og reglu-
gerðum. Og það sem verst er;
það hafði gengið sjálfala í
mörg herrans ár, kynslóð fram
af kynslóð. Það hafði með öðr-
um orðum framið þann versta
glæp allra glæpa á Íslandi nú-
tímans að vera sjálfbjarga,
þegar það átti ekki að vera
hægt. En nú getur þjóðin loks
andað rólega í öryggi og einn-
ig í vissu þess að yfirvöldin
geta margt þegar þau vilja. Og
annað sauðfé allrar gerðar
hefur fengið skýr skilaboð.
Það er ekkert líf til utan við
lög og reglugerðir. Það skiptir
ekki máli hversu hugrakkur
þú ert, þrautseigur og lífseig-
ur. Lögin óteljandi um að eng-
inn megi vera sjálfbjarga ná
þér að lokum.
Gæðakonan góða
grípur fegin við
dýri dauða-móða –
dregur háls úr lið;
plokkar, pils upp brýtur,
pott á hlóðir setur,
segir happ þeim hlýtur
og horaða rjúpu étur.
Yfirvöldin sýna ekki
linkind þegar mest
liggur við}
Ein er upp til fjalla …
Fjölmiðlar hafagengið í
gegnum þreng-
ingar að und-
anförnu og hefur
það ekki farið
fram hjá neinum. Útgáfu-
félag Morgunblaðsins komst
ekki hjá því að segja upp um
40 starfsmönnum sínum,
góðum og vönduðum. Það
var mikil blóðtaka. Það vakti
athygli að ríkisfjölmiðillinn
Ríkisútvarpið lagði málið út
á hinn versta veg og reyndi
að gera Morgunblaðinu það
eins erfitt og það kunni. Var
það ótrúleg framganga af
ríkisreknum samkeppn-
ismiðli, sem lifir í vernduðu
umhverfi nefskatta, sem
starfsmenn og áskrifendur
Morgunblaðsins verða að
greiða hvort sem þeim líkar
betur eða verr.
Í þessu ljósi er fróðlegt að
lesa grein Jóns Magnús-
sonar, fyrrverandi alþing-
ismanns. Hann segir: „Sam-
kvæmt frumvarpi til
fjáraukalaga er farið fram á
að fjárveiting til Rík-
isútvarpsins ohf. hækki um
630 milljónir króna vegna
erfiðrar fjárhags-
stöðu stofnunar-
innar. Áætlað er
að innheimtar
skatttekjur rík-
issjóðs af út-
varpsgjaldi, svonefndur nef-
skattur, verði 3.575 milljónir
króna.“
Þetta er gríðarlegt fé. Það
er óneitanlega auðveldari
leikur að bregðast við
rekstrarþrengingum með því
að senda þjóðinni reikning
fyrir umframeyðslunni en að
fara í sársaukafullar aðgerð-
ir eins og keppinautar kom-
ast ekki hjá. Ríkisútvarpið
hafði klukkustundum saman
uppi á textavarpi sínu síma-
númer sem áskrifendur
Morgunblaðsins gætu hringt
í til að segja áskrift upp þeg-
ar menn á þeim bæ töldu
blaðið í mótvindi. Var það
ótrúleg óskammfeilni. Hvert
mega landsmenn hringja ef
þeir telja þessa eign ríkisins
misnotaða aftur og aftur til
þess að losna við nefskattinn
sinn? Er það númer til, og ef
það er til er svarað í því
númeri og sé það gert, hvert
er svarið?
Ríkisútvarpið sendir
skattgreiðendum
risareikning}
Ábyrgðarlaust Ríkisútvarp
L
íklega þekkja fáir sómalska kokk-
inn Ali Maow Maalin, en nafn hans
er hins vegar ritað í sögubæk-
urnar, þótt letrið mætti hugs-
anlega vera stærra. Fyrir rétt
rúmum 32 árum, hinn 26. október, greindist
Maalin nefnilega með bólusótt og var síðasti ein-
staklingurinn í heiminum sem smitaðist af sótt-
inni. Tveimur árum síðar hafði veikinni verið út-
rýmt með öllu.
Bólusótt var hræðilegur sjúkdómur, sem talið
er að hafi dregið 300-500 milljónir manna til
dauða á tuttugustu öldinni einni.
Ekki reyndist auðvelt að útrýma veikinni, en
fyrsta bólusetningin var framkvæmd árið 1796.
Var það ekki fyrr en um 1915 sem veikin var
nær horfin úr iðnvæddum ríkjum, en hún lagðist
áfram með miklum þunga á íbúa fátækari ríkja.
Útrýming bólusóttar var mikið afrek og tók áratugi.
Læknar og aðrir vísindamenn leituðu uppi útbrot veikinnar
víðs vegar um heiminn og komu í veg fyrir frekara smit með
bólusetningum og sóttkví.
Mikilvægt er hins vegar að hafa í huga að það verk var
ekki unnið með hómópatíu, þarmaskolun, nálastungum,
jurtatesdrykkju eða öðrum óhefðbundnum lækninga-
aðferðum. Bóluefni, unnið og framleitt með vísindalegum
aðferðum, var eina leiðin til að útrýma bólusótt og þar með
bjarga hundruðum milljóna manna.
Til eru þeir sem tilbúnir eru að hafna vísindalegum vest-
rænum lækningaaðferðum að því er virðist vegna þess eins
að þær hafa ekki svör við öllu – þær virka ekki í
öllum tilvikum. Vissulega er það rétt, en árang-
ur vísindalegra lækningaaðferða er svo miklu
betri en óhefðbundinna aðferða að það er nán-
ast brandarakennt að nefna þær í sömu setn-
ingu.
Bóluefni vernda börnin okkar fyrir bólusótt,
mænusótt, mislingum og öðrum sóttum sem áð-
ur drógu milljónir til dauða. Önnur afsprengi
vísindalegra læknavísinda, sýklalyf, hafa bjarg-
að ótöldum milljónum, sem annars hefðu látist
vegna bakteríusýkinga.
Sjálfur væri ég líklega ekki í hópi lifenda þar
sem ég fékk botnlangabólgu fimmtán ára gam-
all. Án nútímalæknavísinda hefði sprunginn
botnlangi dregið mig til dauða.
Í Bretlandi og Bandaríkjunum ber hávær
minnihluti út þann boðskap að bólusetningar
séu hættulegar og foreldrar eigi að forða börnum sínum frá
slíkum óskapnaði. Byggist málflutningurinn á gallaðri rann-
sókn sem virtist sýna fram á tengsl milli bólusetningar og
einhverfu. Þessar niðurstöður hafa ítrekað verið afsannaðar
en það virðist engu skipta fyrir hina tilfinningasömu and-
stæðinga bólusetningarinnar.
Séu börn ekki bólusett fyrir algengustu smitsjúkdómum
er lífi þeirra ekki aðeins stefnt í voða heldur einnig lífi ann-
arra barna. Bólusetning virkar ekki í 100 prósentum tilfella.
Því fleiri foreldrar sem sleppa bólusetningu því meiri líkur
eru á því að faraldur breiðist út að nýju með skelfilegum af-
leiðingum. bjarni@mbl.is
Bjarni
Ólafsson
Pistill
Afrek læknavísindanna
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
„Maður finnur sér
leiðir til að funkera“
FRÉTTASKÝRING
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
A
lltaf þegar svona gerist
hugsar maður málin
upp á nýtt. Er ég að
taka eins skynsamlegar
ákvarðanir og ég get og
geri ég allar ráðstafanir til að lág-
marka áhættu? En það er ferli sem
maður fer í gegnum á hverjum degi
þegar verið er að skipuleggja fundi
eða ferðir á milli staða,“ segir Er-
lingur Erlingsson sem starfar á veg-
um Sameinuðu þjóðanna í austur-
hluta Afganistans, skammt frá
landamærum Pakistans. „Þó ég sé í
landshluta sem er í flokki með Kan-
dahar og Helmand sem hættulegasti
staður landsins finnur maður sér
leiðir til að funkera,“ segir Erlingur.
Atlaga var gerð að starfsmönnum
SÞ í Kabúl á miðvikudag þar sem
fimm starfsmenn létust og níu slös-
uðust. Kai Eide, yfirmaður SÞ í Afg-
anistan, hefur óskað eftir því við afg-
önsk stjórnvöld að öryggisgæsla við
starfsstöðvar og dvalarstaði starfs-
manna SÞ verði aukin í kjölfar árás-
arinnar. Þá verði allar öryggis-
ráðstafanir endurskoðaðar eins og
er gert með reglulegu millibili.
Yfirlýsing barst frá talibönum í
síðustu viku þar sem fólk var hvatt
til að sniðganga aðra umferð for-
setakosninganna 7. nóvember og var
sú yfirlýsing ítrekuð í gær. „Við
munum auka árásir okkar á kom-
andi dögum. Við munum trufla kosn-
ingarnar,“ sagði Yousuf Ahmadi,
talsmaður talibana, í símtali við
AFP-fréttastofuna. Þá hafa upp-
reisnarmenn varað við því að hver sá
sem kemur að framkvæmd kosning-
anna teljist lögmætt skotmark.
Erlingur segir að talibanar hafi
áður sent frá sér svipaðar yfirlýs-
ingar en skotmarkið hafi yfirleitt
verið afgönsk stjórnvöld, örygg-
issveitir og fjölþjóðasveitirnar.
„Þetta er því í fyrsta skipti að því er
ég veit sem bein atlaga er gerð að
Sameinuðu þjóðunum hér,“ segir
Erlingur en árásin er talin sú alvar-
legasta á SÞ í Afganistan eftir 50 ára
viðveru þeirra í landinu.
Tilbúningur Vesturlanda
Framkvæmdastjóri SÞ, Ban Ki-
moon, segir að árásin hafi verið
fólskuleg en hún muni ekki koma í
veg fyrir áframhaldandi starf í land-
inu. Frá Hvíta húsinu hafa borist
þau skilaboð að árásin muni ekki
riðla áætlunum um aðra umferð
kosninganna þann 7. nóvember.
Árásir talibana í fyrri umferð
kosninganna höfðu mikil áhrif á
kosningaþátttöku víða í Afganistan
þar sem þátttakan fór víða niður í
aðeins fimm prósent.
„Almenningur lítur á þessa seinni
umferð kosninganna sem tilbúning
Vesturlanda. Sem er ekki sann-
gjarnt því svikin í fyrri umferðinni
voru mjög umfangsmikil. Hefðu
Vesturlönd lagt blessun sína yfir
þær kosningar hefðu þau setið uppi
með ólögmæta stjórn til að vinna
með,“ segir Erlingur sem starfar
sem stjórnmálafulltrúi á vegum SÞ,
m.a. við að efla tengsl út í sam-
félagið. Sé talað við fólkið í sveit-
unum líti það flest svo á að Karzai
hafi unnið þrátt fyrir svik. „Það er
ekki endilega það að fólk sé svo hrif-
ið af Karzai. Aðalvandamálið er
spillingin en fólk sér ekkert „plan B“
og það sé ekki betra ef andspyrnan
nái yfirhöndinni,“ segir Erlingur.
Reuters
Ógn Öryggisgæsla fyrir starfsmenn SÞ í Afganistan verður líklega efld.
Íslenskur stjórnmálafulltrúi SÞ í
Afganistan segir hættuna hluta
af starfinu og að við árásir eins
og í Kabúl á miðvikudag verði að
endurskoða ákvarðanir og hugsa
málin upp á nýtt.
UM 2.000 manns eru á vegum SÞ í
Kabúl. Eftir árás á gistiheimili
borgarinnar á þriðjudag, þar sem
fimm létu lífið, er óljóst hvers
konar gistiaðstaða verður talin
nægilega örugg fyrir starfsfólkið.
Önnur gistiheimili en Bekthar,
sem ráðist var á, hafa svipaða ör-
yggisgæslu og ekki er nægilegt
pláss í skrifstofuhúsnæði SÞ.
Ráðist hefur verið á öll stór hót-
el borgarinnar, sem ekki eru
mörg, í það minnsta einu sinni og
hefur það orðið til aukinnar ör-
yggisgæslu en hótelin eru enn tal-
in til skotmarka.
Talibanar í Pakistan hafa einnig
beint skotum sínum að starfsfólki
SÞ á liðnum vikum. Mestri starf-
semi hefur verið hætt í norðvest-
urhluta landsins vegna raðar
árása. Sjálfsmorðsárás var m.a.
gerð á bækistöðvar Matvælahjálp-
ar SÞ í Islamabad í þessum mán-
uði.
HVERT FER
FÓLKIÐ? ››