Morgunblaðið - 30.10.2009, Side 26
26 UmræðanBRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
NÚ TEKUR steininn úr, nú skal
fara fram með ofbeldi og ganga
framhjá samþykt Alþingis. Borga
skal Icesave á skilmálum Breta og
Hollendinga, þjóðin á að borga
reikninga fjármálamanna sem leyfðu
sér að fjárfesta í „sjálfum sér“ án
veða í öðru en „sjálfum sér“ sem eng-
in innistæða var fyrir. Leggja skal
byrðar á næstu kynslóðir á kostnað
ESB-aðildar, sem þjóðin vill alls ekk-
ert með hafa samkvæmt skoð-
anakönnunum. Ríghalda skal í
valdastólana, kúga samflokksmenn
til að ná fram vilja Samfylkingar-
innar að ganga til liðs við ESB.
Spurningin er hversu samkvæmir
samvisku sinni þingmenn VG eru.
Láta þeir kúga sig eða eru þeir eins
og Ögmundur og Guðfríður Lilja,
trúir kjósendum sínum? Stein-
grímur er löngu rúinn öllu trausti
varðandi ESB, hann rígheldur í
valdastólinn.
Jóhanna og Steingrímur, for-
ystumenn velferðarstjórnarinnar,
hófust handa 1. júlí síðastliðinn.
Lækkaðar voru bætur til aldraðra og
öryrkja. Þau vissu greinilega hvaða
hópar máttu við að missa sneið úr
sinni köku.
Eða var það að auðveldast var að
ráðast gegn þessum tveimur hópum
sem minnst mega sín og geta ekki
borið hönd fyrir höfuð sér?
Nú skal enn þrengja að. Góðir Ís-
lendingar, þetta er Ísland í dag.
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
hjúkrunarfræðingur.
Hreina, tæra, gagnsæja
velferðarstjórnin
Frá Guðrúnu Jónsdóttur
V i n n i n g a s k r á
26. útdráttur 29. október 2009
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
1 2 4 5 4
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 9 3 4 2 4 6 4 0 5 9 3 2 6 6 9 0 8 7
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
5113 18746 30101 40420 57331 72243
17221 18963 39303 53917 64812 72274
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
1 2 3 7 1 1 2 1 6 7 9 9 3 7 8 7 1 4 5 9 7 8 5 4 9 0 3 6 4 1 7 2 7 4 7 4 9
1 4 3 7 3 5 5 1 7 7 9 9 3 8 1 1 4 4 8 2 7 5 5 5 7 2 5 6 4 5 4 9 7 5 6 5 0
1 6 3 7 4 5 1 1 9 5 4 1 3 9 6 6 2 4 8 5 0 0 5 6 3 8 8 6 5 1 6 5 7 5 6 5 7
1 7 3 2 7 7 6 8 2 2 0 3 2 4 0 8 7 6 4 8 6 3 3 5 6 3 9 5 6 6 2 7 9 7 6 1 4 9
2 0 4 8 9 9 0 7 2 3 4 4 4 4 1 2 0 3 4 8 9 9 1 5 7 2 5 3 6 7 0 2 1 7 6 1 5 7
2 1 0 5 1 0 4 0 1 2 4 9 1 1 4 1 9 4 6 4 9 4 4 7 6 0 2 2 0 6 8 2 5 7 7 7 2 3 5
2 1 2 4 1 0 7 6 0 2 6 2 6 5 4 1 9 7 9 5 0 7 2 9 6 0 2 2 8 6 8 6 9 5 7 7 2 6 8
2 9 4 2 1 1 1 3 8 2 7 3 1 2 4 1 9 8 3 5 1 1 4 1 6 1 7 4 2 6 9 5 9 8 7 7 6 2 6
4 3 2 8 1 1 7 0 5 3 1 9 0 7 4 3 0 1 2 5 1 7 8 9 6 1 8 6 1 6 9 7 1 8 7 9 9 9 6
4 9 3 5 1 2 0 8 3 3 2 7 3 8 4 4 1 9 2 5 2 5 3 7 6 1 8 8 9 7 2 3 0 5
5 4 0 0 1 5 7 1 4 3 3 0 5 2 4 4 7 0 7 5 2 7 3 4 6 3 3 3 5 7 2 6 5 8
6 0 1 3 1 5 7 7 6 3 3 1 3 7 4 5 1 7 1 5 3 4 6 7 6 3 4 3 7 7 3 4 9 2
6 8 4 4 1 6 7 7 2 3 5 8 0 2 4 5 6 7 4 5 4 0 3 0 6 3 5 2 3 7 4 3 8 6
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
3 0 6 1 3 7 4 1 2 4 7 7 9 3 5 6 4 1 4 6 5 7 8 5 6 9 7 6 6 6 0 2 9 7 5 9 6 2
7 9 8 1 3 8 5 0 2 5 4 7 0 3 5 8 1 7 4 6 8 8 9 5 7 0 6 1 6 6 8 2 3 7 5 9 9 4
1 3 5 0 1 3 8 7 6 2 5 8 2 7 3 6 8 3 4 4 7 1 8 8 5 7 1 8 5 6 7 2 5 8 7 6 0 3 1
2 2 8 8 1 4 0 4 8 2 5 9 9 2 3 7 6 8 2 4 9 2 6 6 5 7 2 3 9 6 7 2 5 9 7 6 2 6 6
2 8 2 6 1 4 2 2 1 2 6 1 5 2 3 8 1 1 1 4 9 5 4 9 5 7 3 8 1 6 7 5 2 4 7 6 6 6 1
4 7 3 8 1 4 2 3 3 2 6 2 3 6 3 8 2 6 2 4 9 8 1 7 5 7 5 0 6 6 7 6 0 0 7 6 7 5 3
4 7 7 3 1 4 5 2 7 2 6 3 6 4 3 8 7 9 8 4 9 8 2 9 5 7 6 7 3 6 7 8 9 2 7 7 5 6 2
5 5 3 8 1 4 8 5 7 2 6 3 8 3 3 8 8 0 4 4 9 9 6 9 5 7 9 9 0 6 8 0 9 6 7 7 5 7 8
6 0 0 2 1 5 5 2 3 2 6 7 0 8 3 9 1 4 8 5 0 7 2 1 5 8 1 6 5 6 8 1 9 0 7 7 7 6 2
6 4 1 8 1 5 6 4 6 2 6 7 6 4 3 9 2 0 1 5 0 7 5 4 5 8 6 2 7 6 8 9 1 0 7 7 9 2 1
6 5 4 1 1 5 8 3 1 2 7 2 7 0 3 9 9 2 7 5 0 7 8 7 5 9 2 5 9 6 9 0 9 7 7 8 1 5 0
6 7 8 4 1 6 2 6 0 2 7 2 7 3 4 0 3 1 3 5 1 1 8 2 5 9 6 9 4 6 9 2 6 5 7 8 3 4 7
6 8 2 7 1 6 4 7 4 2 7 3 0 2 4 0 6 9 1 5 1 2 7 4 6 0 1 4 5 6 9 6 7 8 7 8 5 7 8
7 0 7 2 1 6 7 8 2 2 8 2 2 0 4 1 2 5 7 5 1 4 1 0 6 0 2 2 5 6 9 9 3 0 7 8 7 6 6
7 1 3 1 1 7 2 0 6 2 8 2 7 0 4 1 4 3 3 5 1 6 6 4 6 0 2 4 8 6 9 9 6 0 7 8 8 0 4
7 2 7 8 1 7 2 4 5 2 8 3 8 5 4 2 1 7 1 5 1 9 3 9 6 0 2 8 2 7 0 4 2 5 7 8 8 2 3
7 2 9 0 1 7 7 8 5 2 9 1 0 5 4 2 1 8 4 5 2 0 3 1 6 0 8 1 7 7 0 6 8 5 7 8 8 7 2
9 3 6 6 1 8 5 1 2 2 9 3 5 6 4 2 4 7 7 5 2 1 3 0 6 0 9 1 3 7 0 8 2 2 7 8 8 9 4
9 3 8 2 1 8 6 8 5 3 0 3 5 7 4 2 5 5 6 5 2 3 6 7 6 1 1 0 9 7 0 9 3 3 7 9 1 3 9
9 4 0 4 2 0 5 2 0 3 0 4 8 3 4 3 3 8 2 5 2 8 0 9 6 1 8 4 2 7 2 1 0 0 7 9 2 2 0
9 4 7 4 2 0 5 6 9 3 0 5 2 4 4 3 4 6 0 5 3 2 0 4 6 1 8 9 1 7 2 3 1 0 7 9 6 3 5
9 8 8 2 2 1 6 0 8 3 0 6 4 4 4 3 7 3 6 5 3 3 1 9 6 2 2 0 2 7 2 3 5 0 7 9 6 4 1
1 1 4 2 2 2 1 9 0 2 3 0 8 1 6 4 4 0 4 9 5 3 5 5 8 6 2 7 6 1 7 3 2 4 4 7 9 6 4 9
1 1 5 5 3 2 2 0 0 1 3 0 8 6 3 4 4 1 4 0 5 3 6 6 3 6 3 0 8 6 7 3 5 0 3 7 9 6 6 7
1 1 6 0 4 2 2 3 5 9 3 1 8 6 6 4 4 6 3 4 5 3 6 7 1 6 3 2 2 6 7 4 3 0 8 7 9 8 1 6
1 2 0 7 2 2 2 8 5 4 3 2 6 7 1 4 4 8 0 8 5 3 7 1 7 6 3 2 9 5 7 4 7 5 2 7 9 9 0 0
1 2 4 4 5 2 3 0 9 0 3 2 8 1 3 4 4 9 1 4 5 3 8 4 2 6 3 3 3 3 7 4 9 8 5
1 2 4 7 8 2 3 3 9 2 3 4 0 2 2 4 5 2 0 2 5 3 9 1 8 6 3 3 9 7 7 5 5 3 1
1 2 5 7 7 2 3 4 8 9 3 4 2 1 3 4 5 6 0 7 5 5 4 4 1 6 3 5 3 4 7 5 5 3 4
1 3 4 9 3 2 3 5 5 6 3 5 0 2 2 4 5 8 9 5 5 6 2 1 6 6 4 1 0 4 7 5 6 4 3
1 3 5 6 9 2 3 8 9 8 3 5 1 9 0 4 5 9 2 0 5 6 5 7 6 6 4 5 6 5 7 5 6 4 8
1 3 5 8 2 2 3 9 7 9 3 5 5 7 8 4 5 9 7 6 5 6 9 2 5 6 5 5 2 8 7 5 6 9 2
Næstu útdrættir fara fram 5. nóv, 12. nóv, 19. nóv & 26.nóv 2009
Heimasíða á Interneti: www.das.
Í GREIN um Kárahnjúkavirkjun,
sem Björn Jóhannsson skrifar í
Morgunblaðið, er enn einu sinni
hamrað á staðreyndavillum, sem
eiga að fegra hana. Lítum á
nokkrar villur hans og fleiri.
1. Hálslón er eins og lónið, sem
þarna var í lok ísaldar. Rangt:
Lónið í lok ísaldar var í dalbotn-
inum og bara brot af því heljarlóni
sem nú sökkvir öllum dalnum.
2. Enginn munur verður á fram-
kvæmdasvæðinu „þegar veðrun
hefur slétt úr síðustu skófluför-
um“. Rangt. Hrikalegar mal-
argryfjur með stórum hamra-
veggjum blasa við þeim sem þarna
koma fyrri part sumars.
3. „Hálslón er látlaust heiða-
vatn, sem fellur ótrúlega vel inn í
landslagið eins og það hafi alltaf
verið þarna með sandey, áður
sandfell, vatnaprýði hin mesta.“
Röng alhæfing. Hálslón kemur
undan vetri 45 metrum lægra en
það er í september. Meirihluti lón-
stæðisins er þá á þurru, þakinn
fíngerðum sandi og leir sem
myndar sand- og leirstorma, sem
gerir ólíft á svæðinu þegar þeir
geisa. „Vatnaprýðin“ er þá sand-
fell, sem lónið sagar í sundur að
neðanverðu.
4. Hálslón hefur opnað leið fyrir
ferðamenn og hreindýr og annars
hefði ekki verið hægt að brúa ána.
Rangt: Ódýr og nett brú var sett
á Jöklu meðan á framkvæmdum
stóð og hefði ekki þurft virkjun til.
Jöklajeppar og hreindýr, sem áður
áttu greiða leið yfir Jöklu á ísi á
útmánuðum, komast nú ekki yfir
vegna íshranna og sprungna uppi
við bakka lónsins sem myndast
þegar ísþekjan fellur niður tugi
metra þegar lækkað er í því. Utan
í Kárahnjúk sest ófær hallandi
snjóskafl. Hálslón er nýr 25 kíló-
metra langur og hættulegur far-
artálmi frá nóvember fram í júní.
5. Virkjunin hefur opnað leið
niður í stórkostlegt gljúfrið með
því að fjarlægja kolmórautt jökul-
fljótið. Rangt: Það þurfti ekki að
virkja til að skapa aðgengi að
gljúfrinu. Ég gekk niður svonefnt
Niðurgöngugil 1998. Nú vantar þá
risavöxnu þjöl, sem 10 milljónir
tonna af aurburði hreinsuðu
Hafrahvammagljúfur með á
hverju sumri og gljúfrin eru byrj-
uð að fyllast af grjóti sem fellur
úr gljúfurveggjunum og áin
hreinsar ekki lengur í burtu.
6. Í heimildarmynd Landsvirkj-
unar er sagt að Lagarfljót hafi
fríkkað við það að verða ræpu-
brúnt í stað þess að vera blá-
grænt, – nú sé það á litinn eins og
sólbrún yngismey. Jæja? Helsta
og mest auglýsta náttúruperla
Banff-þjóðgarðsins í Klettafjöllum
er Lovísuvatn vegna hins sér-
stæða blágræna litar síns. Þegar
ég kom þangað í fyrsta sinn hróp-
aði ég upp: Nei, þetta er bara eins
og Lagarfljótið á björtu sum-
arkvöldi! En auðvitað hafa auglýs-
endur Banff-þjóðgarðsins rangt
fyrir sér. Best væri að gera
Lovísuvatnið ræpubrúnt eins og
til stendur að gera hinn heiðbláa
Langasjó.
7. Elliðavatn er manngert.
Rangt: Elliðavatn var þarna fyrir
virkjun þótt það væri minna en
það varð eftir að vatnsborðið var
hækkað. Myndi Almannagjá verða
flottari ef Þingvallavatn yrði
hækkað og hægt að sigla inn á
gjána?
Lokaorð: Hálslón er votur graf-
reitur hins magnaða Hjalladals.
Kirkjugarðar eru fallegir en meira
virði var þó fólkið sem hvílir þar.
Og engan veit ég þann grafreit
sem leirstormar standa úr.
ÓMAR RAGNARSSON,
hefur árum saman unnið
að gerð heimildarmyndar
um Hálslón.
Staðreyndir um Hálslón
Frá Ómari Ragnarssyni
SAMKVÆMT dýraverndunar-
lögum er lausaganga sauðfjár ekki
leyfileg yfir veturinn af mannúðar-
ástæðum. Hinn 27. október hófst
smölun á villtu fé sem hefst við í
kringum fjallshrygginn Tálkna. Það
fé sem ekki tekst að smala stendur
til að skjóta á færi af mannúðar-
ástæðum. Hér er um villt sauðfé að
ræða sem hefur hafst þarna við allt
frá árinu 1950. Nokkrar tilraunir
hafa verið gerðar til að útrýma
þessum villta stofni. Síðast þegar
það var gert var féð skotið og hræ-
in voru skilin eftir á víðavangi. Alls
23 kindur skotnar árið 2004. Drápin
á þessu frjálsa fé eru samkvæmt
fyrirmælum sýslumanns og héraðs-
dýralæknis. Það að skjóta féð á
klettum og í skorningum og láta því
blæða þar út er gert af mannúðar-
ástæðum. Af mannúðarástæðum
geta héraðsdýralæknirinn og jafn-
vel sýslumaðurinn ekki til þess
hugsað að féð svelti í hel eða hrapi
af klettum í vondum veðrum. Það
sé því betra að skjóta það.
Hér virðist vera á ferðinni sama
mannúðarhugmyndafræðin og hjá
mannréttindaráðuneytinu að best
sé fyrir ungan mann frá Írak að
setja hann í járn og senda hann til
Grikklands, þaðan sem hann verður
samkvæmt tölfræðinni sendur til
Íraks ef ekki verður þegar búið að
bana honum eins og föður hans fyr-
ir nokkrum árum. Nour flúði Írak
15 ára gamall eftir að íslenskt
stjórnvald lagði blessun sína yfir
árásir á föðurland hans þar sem
tugir þúsunda kvenna og barna
voru drepnir að tilefnislausu.
Vestfirskur sýslumaður hefur áð-
ur gert garðinn frægan þegar hann
hundelti Jón lærða Guðmundsson,
sem vann sér það helst til óhelgi að
andmæla morðum á skipbrots-
mönnum árið 1615. Ari sýslumaður
hafði gefið fyrirmælin um drápin.
Vilja menn ekki vinsamlegast hætta
þessu háttalagi að skjóta fé á fjalla-
syllum og handjárna ungmenni sem
flúið hafa heimalönd sín sem við
höfum hjálpað til að sprengja í
tætlur. Vilja mannúðar- og mann-
réttindavaldhafar ekki vinsamlegast
hætta að skjóta frjáls dýr og járna
ungmenni sem eiga um sárt að
binda.
Jón var í framhaldi af því að and-
mæla sýslumanni kærður fyrir
galdra og flosnaði upp frá fjöl-
skyldu og börnum um hávetur og
síðar dæmdur útlægur á Alþingi.
Það er eindregin ósk að valdsmenn
hætti að skjóta sér á bak við reglu-
gerðir til að stunda ofbeldi gagn-
vart fólki og dýrum. Getur verið að
dýrin sem á að skjóta séu sauðfé
sem hefur læknast af riðu og gæti í
framtíðinni verið grunnur að sterk-
um íslenskum sauðfjárstofni sem
ræður við erfiða sjúkdóma framtíð-
arinnar? Er unga fólkið sem berst
fyrir mannréttindum og villtur ís-
lenskur sauðfjárstofn vandamál
hins íslenska samfélags?
ÓLAFUR JÓNSSON,
Álafossvegi 23, Mosfellsbæ.
Vér
morðingjar
Frá Ólafi Jónssyni
ÞEGAR ég var að tala um það
við vin minn, að nú yrði ég að
fara að skrifa í blöðin, um nokkr-
ar tillögur mín-
ar, sem ég hafði
gaukað að þing-
mönnum og
ráðherrum
Vinstri grænna
og … „leggja
það undir dóm
þjóðarinnar,“
greip hann
fram í fyrir mér
og sagði:
„Siggi, þetta er gjörsamlega til-
gangslaust hjá þér, og þar sem
ég veit að þú ert dálítið trúaður,
þó þú látir ekki á því bera og far-
ir vel með það, skaltu bara líta
svo á, að þessi ríkisstjórn sé guðs
gjöf, send landsmönnum til að
kenna okkur að lifa við skort, at-
vinnuleysi og almenna fátækt.
Það þarf að kenna þessari þjóð
nægjusemi og sparsemi og hvern-
ig hægt er að lifa af litlu, eins og
við höfum oft þurft að gera sjálf-
ir.“
Mig setti hljóðan við þessa
ræðu, en sagði svo: „En atvinnu-
leysið verður agalegt nú í vetur,
að minnsta kosti 14-15%, og ekki
bara hér á suðvesturhorninu,
heldur um allt land, nema gripið
sé til róttækra aðgerða.“
„Þú með þín 14%,“ sagði hann,
„spáðirðu þessu líka síðasta vet-
ur?“
„Hvernig átti ég að halda ann-
að, vorum við ekki búnir að kom-
ast að því, að óseldar fullgerðar
íbúðir á Stór-Reykjavíkursvæðinu
væru 3700, hálfkláraðar og til-
búnar undir tréverk væru annað
eins, og íbúðir á
byrjunarreit væru vænn slatti,
svo í allt færi þetta í 10 þúsund,“
svaraði ég. „Þú veist hvernig
byggingariðnaðurinn tengist vítt
og breitt um þjóðfélagið,“ hélt ég
áfram, „ekki bara í jarðvegs-
framkvæmdir, heldur…“ hér
kom löng runa hjá mér, sem ég
ætla að hlífa lesandanum við, en
bætti svo við: „Og atvinnuleysið
var svona lítið síðasta vetur,
vegna þess að atvinnurekendur
höguðu sér ekki eins og Gunnar
Þorláksson hjá Bygg (sem þó
hagaði sér aðeins sem harður
bisnessmaður, ef þú selur ekki
þína vöru, þá verður þú að segja
upp fólki), heldur héldu mann-
skap, þó þeir seldu lítið sem ekki
neitt, því þeir voru með margar
fyrirvinnur fjölskyldna í vinnu.“
Hér ætla ég að stoppa þetta
spjall, þó við segðum margt
fleira og koma með tillögur, í
þeirri von, að þær geri eitthvert
gagn.
1) Strandveiðar skulu leyfðar í
vetur; fyrsta tímabil 15. nóv. til
15. desember. Aflamark 800 kg/
dag, takist á línu eða rúllu. Veð-
urstofan getur stöðvað þessar
veiðar tímabundið, fyrir landið
eða landsvæði, svo menn drepi
sig ekki á græðginni.
2) Úthlutað skal 4-5kg/mán. af
frystum fiskflökum til; a) náms-
manna, b) atvinnulausra, c) ör-
yrkja í lægri tekjuflokki (sem
hafa ekki greiðslur frá lífeyr-
issjóðum), d) fjölskyldna, sem
eru í neyð (þá tvöfalt).
Er ekki eðlilegt, að framan-
greindir aðilar greiði eitthvað á
móti? Þá hef ég hugsað mér, að
hver greiði með 8 tíma vinnu
einn starfsdag) til þess bæj-
arfélags, sem hann er í, á mán-
uði. Þetta hefur líka þá verkun,
að erlendir aðilar, sem hafa of
oft boðið 40% af meðalverði, und-
anfarið, fái samkeppni um fisk-
verðið. Heldur étum við okkar
eigin fisk, en að selja hann undir
kostnaðarverði (að kaupa hann
og vinna hann).
SIGURÐUR VALSSON,
öryrki.
Tillögur til bóta
Frá Sigurði Valssyni
Sigurður Valsson