Morgunblaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 28
28 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
✝ Rögnvaldur Þor-steinsson fæddist
12. mars 1936. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Akraness 18. október
2009. Hann er sonur
hjónanna Þorsteins
Sigurðssonar, f. 14.5.
1895, d. 25.10. 1962,
og Ingibjargar Kon-
ráðsdóttur, f. 14.5.
1905, d. 1.3. 1999.
Rögnvaldur ólst upp á
Sauðárkróki ásamt
sjö systkinum sínum.
Systurnar Gréta og
Erla lifa bróður sinn.
Rögnvaldur kvæntist 31. desem-
ber 1958 Halldóru, f. 18. júlí 1940,
dóttur Engilberts Guðjónssonar, f.
17.2. 1918, d. 26.6. 2002, og Evu
Laufeyjar Eyþórsdóttur, f. 27.2.
1918, d. 9.9. 1957. Börn Rögnvaldar
og Halldóru eru: 1) Eva Laufey, f.
9.10. 1958, d. 26.5.
1989, gift Baldvini
Valdemarssyni. Þau
bjuggu á Akureyri og
eignuðust tvo drengi.
2) Hallgrímur Þor-
steinn, f. 23.10. 1961,
kvæntur Sigurrós
Sigurjónsdóttur, þau
eru búsett á Innra-
Hólmi og eiga fjögur
börn og þrjú barna-
börn. 3) Ómar, f. 5.10.
1969, kvæntur Elínu
Rögnu Þorsteins-
dóttir, þau eru búsett
í Garðabæ og eiga tvo syni.
Sonur Rögnvaldar og Hrefnu
Haraldsdóttur er Haraldur, f. 12.5.
1955. Kona hans er Katrín Guð-
mundsdóttir. Þau búa á Dalvík. Út-
för Rögnvaldar fer fram frá Akra-
neskirkju í dag, 30. október, og
hefst athöfnin kl. 14.
Ástkær faðir minn Rögnvaldur
Þorsteinsson andaðist sunnudaginn
18. október síðastliðinn.
Mér er minnisstætt hvað hann var
natinn við mig sem ungan dreng.
Hvort það var að lesa fyrir mig, laga
hjólið eða að kenna mér að veiða. Allt
var þetta gert óumbeðið og með bros
á vör. Einnig mun ég aldrei gleyma
því hvað hann gerði fyrir mig þegar
ég var erlendis að vinna og Máni
Steinn sonur minn lenti á spítala eða
var veikur heima. Þá var það afi sem
tók sér frí frá vinnu til að aðstoða El-
ínu með Mánalinginn sinn. Ernir
Valdi yngri sonur minn var svo hepp-
inn að hafa afa sem dagpabba áður en
hann komst á leikskóla. Það var oft
glatt á hjalla hjá þeim vinum þegar
afi mætti með ömmukleinur og annað
góðgæti og þeir kúrðu sig saman yfir
teiknimyndum. Við vorum öll lánsöm
að eiga afa Valda.
Það eiga margir eftir að sakna
orðanna „einu sinni var pabbi (afi) á
báta“. Eða þegar afi var að lauma
pening í lófa. Alltaf var umhyggju-
semin í fyrirrúmi gagnvart afabörn-
unum. Hann hafði ótrúlegt lag á því
að fá barnabörnin til þess að syngja
með sér í símann, og að heyra börnin
syngja hástöfum „Búddi fór í bæinn
og Búddi fór í búð“ var mikil
skemmtun.
Pabbi elskaði að stunda stangveið-
ar, minnisstæðar eru ferðirnar þar
sem farið var norður á Skaga að
renna fyrir silung.
Árið 2003 urðu straumhvörf í lífi
pabba þegar hann hætti að vinna
sökum aldurs. Fór hann þá að kenna
sér meins, og var greindur með
krabbamein. Við tók sex ára barátta
við meinið sem endaði sunnudaginn
18. október.
Þér mun ég aldrei gleyma elsku
pabbi minn.
Ómar Rögnvaldsson.
Kæinn kyssti kinnunginn á Bogg-
unni, hún opnaði ginið, bílarnir
streymdu út, landgangurinn sveiflað-
ist og small á sinn stað. Þetta gerðist
á svipstundu og allt í einu var maður
á bryggjunni með kærustunni sem
var nýbúin að segja uppörvandi
„þetta verður allt í lagi“. Eins og
dæmdur stóð táningurinn fyrir fram-
an tilvonandi tengdaforeldra. Hún
virtist svolítið hlédræg, hann hressi-
legur og fyrstu orðin á hreinni ís-
lensku og ekki hafandi eftir í minn-
ingargein. Öll feimni hvarf á
svipstundu. Þarna varð til upphaf
meira en þrjátíu ára vináttu. Við átt-
um eftir að eiga margar stundir sam-
an, fjörugar sögustundir, rífast mik-
ið, að sjálfsögðu aðeins um pólitík,
hlæja saman og líka syrgja saman.
Við Valdi tengdapabbi náðum
fljótt vel saman. Hann virtist á stund-
um hafa hrjúft yfirborð en undir því
var listamannssál. Hann var tónelsk-
ur, opinn, hrifnæmur og mikill húm-
oristi. Hann var líka einstaklega
barngóður.
Það er svo margt sem ég vil þakka
Valda fyrir. Hann tók mér vel frá
fyrstu stundu og lét sér alla tíð annt
um mína hagi. En líka, í bland við
mátulega stríðni, þá var hann bara
nokkuð þolinnmóður og iðinn við til-
raunir sínar að þynna þetta, að hon-
um fannst, fullsterka íhaldsblóð í
stráknum. Það er í lagi að upplýsa
það núna að hann hafði miklu meiri
áhrif á lífsviðhorf mín en ég þorði
nokkurn tíma að viðurkenna fyrir
honum.
Árið 1979, á fallegum júnídegi í
Akraneskirkju, gaf hann mér hönd
Eyju. Dagurinn, veislan á Esjubraut-
inni og allir vinirnir eru bjartar
minningar. Fyrsti afastrákurinn
fæddist svo á Skaganum síðar sama
ár. En alltof fljótt hlóðust upp óveð-
ursský. Við áttum og misstum. Hann
einkadóttur, ég eiginkonu. Á hann
var lagt að upplifa þá mestu raun
sem nokkur faðir þarf að þola. Í sorg-
inni urðu vinabönd okkar feðganna
og Valda enn sterkari.
Í afahlutverkinu naut hann sín í
botn. Synir mínir og afi þeirra voru
miklir vinir. Stundum hringdi síminn
og annar hvor þeirra svaraði. Eftir
smástund var sungið hástöfum „þá
kom löggumann og hirti hann og
stakk onum í rassvassann“ … nokk-
ur orð og svo „bless afi“. Þessar
minningaperlur, ekki síður þær þeg-
ar strákarnir hittu afa sinn, og að fá
að vera áhorfandi að uppátækjum
þeirra þriggja, er ómetanlegur fjár-
sjóður.
Afahjarta Valda var stórt. Þar var
líka rúm fyrir börn sem ekki voru
hans eigin barnabörn. Yngstu dætur
mínar tvær fengu að njóta þess. Þær
fengu líka að eiga afa og ömmu á
Akranesi. Fyrir þeirra hönd vil ég
þakka honum afahlutverkið sem
hann tók að sér og gaf þeim.
Síðustu árin voru Valda erfið.
Þrátt fyrir að alltaf væri stutt í húm-
orinn og lítið vildi hann ræða um
veikindi sín þá skynjaði maður að þau
voru alvarleg og legðust þungt á
hann. Þá kom líka í ljós úr hvaða efni
kletturinn Dóra Engilberts er búin
til.
Kæra Dóra og tengdafjölskylda,
ég votta ykkur öllum mína dýpstu
samúð.
Blessuð sé minning Rögnvaldar
Þorsteinssonar.
Baldvin Valdemarsson.
Hugurinn reikar, minningar um
Valda tengdapabba birtast ein af
annarri. Þær kalla fram gleði og
sorg. Gleði yfir öllu því fallega og
skemmtilega sem einkenndi þennan
sterka mann sem nú er fallinn frá,
alltof snemma. Sorg yfir ranglæti
lífsins, þau hjónin hefðu átt að fá að
njóta ævikvöldsins.
Leiðir okkar Ómars, sonar Valda,
lágu saman árið 1988. Ári seinna lést
Eva Laufey, dóttir Valda og Dóru,
missir þeirra var mikill, það á enginn
að lifa börnin sín, sagði Valdi, sorg
hans var óendanleg. Þar sá ég í fyrsta
og eina sinn Valda bugaðan af van-
mætti gagnvart æðri máttarvöldum
og ranglæti lífsins.
Valdi var stoltur af strákunum sín-
um, þeim Haraldi, Hallgrími og Óm-
ari, alltaf sérstakt blik í augum hans
þegar hann ræddi þá, hann elskaði þá
alla heitt.
Sjúkdómar spyrja ekki um stað og
stund, né fara í manngreinarálit.
Valdi var hraustmenni, gjarnan kall-
aður Valdi sterki. Það tók 6 ár fyrir
meinið að sigra. Það var erfitt að
upplifa og horfa á lífið fjara út og
þrekið þverra með tímanum, að
missa getu til verka sem okkur finn-
ast svo sjálfsögð. Æðruleysi ein-
kenndi Valda í gegnum veikindin,
hann lét hverjum degi nægja sína
þjáningu og oft bar hugurinn hann
hálfa leið. T.d. fór hann með okkur í
berjamó nú í september þrátt fyrir
að líkaminn væri orðinn þreyttur og
sjúkur.
Valdi var náttúrubarn; að veiða og
vera úti í náttúrunni. Skagafjörður-
inn var hans uppáhaldsstaður, þar
voru ræturnar.
Valdi kunni þá list að segja sögur,
sú list er mikill þjóðararfur og eitt
einkenni okkur Íslendinga. Í sögum
hans var húmor aldrei langt undan,
hlátur hans, innilegur og smitandi.
Sögunum deildi hann með samferða-
mönnum sínum.
Valdi hafði þann einstaka hæfi-
leika að skilja börn. Hann las í þarfir
þeirra, væntingar og persónuleika og
bar umfram allt ótakmarkaða virð-
ingu fyrir þeim. Að sjá hann líta á
ungviðin í fyrsta sinn, augu hans
ljómuðu, þau voru kraftaverk í hans
augum, hann elskaði þau skilyrðis-
laust. Viðkvæmni hans kom þá í ljós,
tárin runnu úr augunum og hann
muldraði falleg orð þeim til heiðurs.
Valdi vissi þegar þau voru lasin,
svöng eða bara þegar þeim leiddist.
Það tók mikið á Valda ef eitthvað var
að varðandi börn eða þá sem áttu
bágt. Aðdáun mína átti hann vegna
þessa.
Á erfiðum tímum í lífi mínu átti ég
Valda að, alltaf boðinn og búinn að
rétta hjálparhönd. Hann sinnti dag-
pabbahlutverki sínu vel með Erni
Valda, ég brosti oft í laumi að bleium
stráksa þegar afi hafði skipt á hon-
um, bleian öfug, festingar skakkar,
samfellan utan yfir sokkabuxur;
skipti engu, báðir voru sælir og glað-
ir.
Þau hjónin fóru margar ferðir til
Benidorm. Fyrir þremur árum fór ég
með þeim hjónum ásamt sonum okk-
ar Ómars, mér hafði liðið illa um tals-
verðan tíma, fór þreytt og guggin en
kom heim í andstæðri mynd. Ég á
margar ljúfar minningar þaðan, sé
fyrir mér þau hjónin spila kasínu og
dansa saman. Það sást langar leiðir
hve ástin, virðingin og vináttan var
þeim mikils virði.
Ég kveð ástkæran tengdaföður
með trega en jafnframt létti yfir að
þjáningum hans sé lokið.
Elín Ragna Þorsteinsdóttir.
Eitt sinn þegar ég var unglingur
og afi var hjá okkur fyrir norðan
bauð ég hóp af vinum mínum í heim-
sókn. Það var ekki vegna þess að mér
leiddist þegar afi minn var í heim-
sókn að ég bauð þeim heim. Ástæðan
fyrir þessari hópheimsókn tánings-
vina minna var sú að ég vildi sýna
þeim hversu heppinn ég var að eiga
Rögnvald Þorsteinsson fyrir afa. Í
stuttu máli var ég að monta mig af
afa mínum.
Afi minn hefði ekki getað leyst
hlutverk sitt betur. Hann var ekki
bara afi minn heldur var hann vinur
minn líka. Við vorum jafningjar frá
því ég man eftir mér og hann hafði
endalausan áhuga á því að bralla eitt-
hvað með okkur barnabörnunum.
Hann var drepfyndinn, uppátækja-
samur og stóð alltaf með manni. Við
gátum talað saman um allt og hann
átti margar óborganlegar sögur.
Ég á ótalmargar minningar þar
sem við afi erum að gera eitthvað. Oft
eitthvað sem amma mátti ekki vita,
eins og að prófa að stýra bílnum
þeirra eða kaupa nammi. Hann fór
með mig og bróður minn í ótal veiði-
ferðir, marga ísbíltúra og oft í sveit-
ina. Ef við vorum ekki á bryggjunni
að skoða bátana eða að spranga vor-
um við í útilegu eða að tína ánamaðka
fyrir næstu veiðiferð. Hann gerði
leikfangabáta handa okkur bræðrun-
um til að prófa úti á tjörn og hringdi
margoft í okkur bara til að syngja
nokkur lög með okkur í símann. Oft
þegar hann var spurður hvað við
hefðum verið að gera svaraði hann:
„Við vinirnir vorum að …“ sem er
einmitt það sem við vorum. Við vor-
um vinir.
Ég á eftir að sakna vinar míns mik-
ið. Takk fyrir að vera sá afi sem þú
varst mér. Hvíldu í friði, elsku afi,
minn, ég sé þig seinna.
Valdimar Baldvinsson.
Farðu í friði afi minn kær.
Faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær.
Aldrei ég skal þér gleyma.
Mig langar til að minnast afa míns
og þakka honum fyrir allt sem hann
gerði fyrir mig og fjölskylduna.
Fyrst og fremst vil ég þakka þér fyr-
ir allt sem þú kenndir mér. Ég mun
sakna þín rosalega mikið en aftur á
móti veit ég að þú ert á betri stað
núna. Ég mun sakna þess hvað þú
varst fyndinn og líka bara hvað þú
varst góður við mig alltaf. Aldrei mun
ég gleyma þessari setningu einni og
sér „einu sinni var afi á báta“, ha, ha,
þetta var yndislegt. Og allt sem við
gerðum saman. Ég man til dæmis
eftir því þegar þú kenndir mér að
hnýta flugu og veiðihnút. Ég man
líka þegar við tveir vorum uppi í sófa
langt fram á nætur að horfa á box eða
hvað sem er. Ég gat sagt þér allt og
alltaf hafðir þú svör við öllu. Ég get
sagt það að þú ert ein af bestu mann-
eskjum sem ég hef á ævi minni
kynnst. Þú gerðir mig klárlega að
betri manni og kenndir mér margt
sem ég mun aldrei gleyma. Ég mun
sakna þín, elsku afi minn, og guð
geymi þig.
Máni Steinn Ómarsson.
Elsku afi minn.
Ég verð að byrja á því að segja
hversu mikill höfðingi þú varst.
Minning mín um þig er sú að þú varst
svo góður við alla, svo frábær afi, það
var alltaf svo gaman að koma til þín
og hlusta á þig, þú varst alltaf svo
hress og „syngjandi glaður“ í bók-
staflegri merkingu.
Ég man eftir því hvað mér fannst
gaman þegar þú kenndir mér lagið
„þegar amma var ung, þá dró hún
augað í pung“, „og þegar afi kom
heim þá var rosalegt geim“, já, oftar
en ekki var sko geim og gleði í kring-
um þig.
Svo var ekki hægt að syngja af-
mælissönginn án þín því að þú varst
sá sem gerðir hann að afmælissöng
en ekki einhverju muldri, svo má
ekki gleyma „Hamraborginni“ en þú
tókst byrjunina ansi oft. Þú hafðir
alltaf svo gaman af tónlist og sérstak-
lega söng og man ég eftir því að þú
komst svo oft með tillöguna: „Eigum
við að syngja?“ Einnig hafðir þú mik-
inn áhuga á því þegar ég var að æfa á
píanó, þá komstu alltaf og baðst mig
að spila fyrir þig.
Áður en þú varðst svona veikur
ferðuðust þið amma svo mikið og þið
leyfðuð okkur systrunum oft að koma
með ykkur. Það eru svo ótalmargar
góðar minningar sem maður býr að
eftir það, eins og þegar þið amma átt-
uð bústað í Ölveri, þá smíðaðir þú
alltaf svona litla báta úr trékubbum
og skarst brúsa til að nota sem segl
og svo lékum við okkur með þá í vatn-
inu. Svo gleymi ég aldrei þeirri upp-
lifun þegar þið amma buðuð okkur
Halldóru með í ferðalag og sögðuð að
við værum að fara í sumarbústað.
Svo áttum við að hitta ykkur heima
hjá Ómari og Elínu, og þegar við vor-
um komnar þangað fengum við að
vita að við værum að fara að fljúga til
Spánar eftir örfáa klukkutíma. Já,
það var svo margt sem var draumi
líkast í kringum þig, of gott til að vera
satt er lýsing sem á svo vel við þig.
Mér þykir svo vænt um mynd þar
sem við Halldóra höldum á rósum
sem þú færðir okkur á konudaginn
þegar við vorum þriggja og sex ára,
þú varst svo mikill höfðingi afi minn,
hugsaðir alltaf svo vel um okkur.
Elsku afi minn, það er alveg hrein
undrun að horfa til baka og sjá
hversu sterkur maður þú varst, ég
held að það geri sér enginn grein fyr-
ir því. Þú barðist hetjulega gegn
þessum sjúkdómi og greinilegt að um
skagfirskt sjóarablóð var að ræða og
þessi sterka persóna sem þú varst.
Þegar ég hugsa til þín finn ég fyrir
stolti, þú varst svo góður, sterkur,
skemmtilegur og svo frábær afi, svo
ótal margar minningar.
Elsku afi minn ég sakna þín svo
óendanlega mikið, þú átt svo stóran
hluta af hjarta mínu, megir þú hvíla í
friði og guð gæti þín að eilífu.
Það er svo sárt að kveðja þig elsku
afi minn,
með krullurnar og bumbuna þína
syngjandi hress minnist ég þín.
mig langar til að falla í faðminn þinn,
og segja þér hversu mikið ég
sakna þín.
Ég veit að þú munt alltaf vaka yfir mér,
Trúi því og treysti að þér líði
loksins vel.
Þú varst og verður alltaf flottastur
fyrir mér,
Guð gæti þín að eilífu elsku afi
minn kær.
Kveðja,
Margrét (Magga).
„Veistu að afi var einu sinni að
báta?“ Ef ég ætti að skrifa allar góðu
minningarnar okkar afa kæmi Mogg-
inn út í mörgum bindum í dag, allar
skemmtilegu útilegurnar og sum-
arbústaðaferðirnar, frímúrarajóla-
böllin að ógleymdri Benidorm-ferð-
inni sem við fórum í. Held að við
systurnar höfum nú ekki alveg verið
auðveldustu ferðafélagarnir, en þessi
ferð stendur upp úr af öllum ferða-
lögunum sem við höfum farið í. Ykk-
ur ömmu tókst sko aldeilis að koma
okkur á óvart, við héldum að við vær-
um bara að fara í útilegu og fannst
ekki fyndið að pabbi væri að láta okk-
ur hafa matadorpeninga í vasapen-
ing. Trúðum því sennilega ekki að við
værum að fara til útlanda fyrr en í
flugvélinni.
Þú komst yfirleitt syngjandi í öll
afmæli og í flestum heimsóknum
gafstu okkur tóndæmi og kunnir alls-
konar vígalegar vísur, eins og þegar
amma var ung og Búddi fór í bæinn.
Ég á eftir að sakna þín, afi minn, og
hlakka til að kenna börnunum mínum
vísurnar þínar og segja þeim allt sem
við baukuðum saman.
Spurning hvort ég vinn nokkurn
tímann aftur möndlugjöfina í grautn-
um hjá ömmu á aðfangadag, ef þú ert
ekki þar til að lauma henni í lófann
minn!
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós.
Þráir lífsins vængja víddir
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristallstærir daggardropar
drjúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson)
Sparikerlingin þín,
Halldóra Hallgrímsdóttir.
Rögnvaldur
Þorsteinsson
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni til
Morgunblaðsins – þá birtist valkost-
urinn Minningargreinar ásamt frek-
ari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út. Grein-
ar, sem berast eftir að útför hefur far-
ið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða
ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey,
eru birtar á vefnum, www.mbl.is/
minningar. Æviágrip með þeim grein-
um verður birt í blaðinu og vísað í
greinar á vefnum.
Minningargreinar