Morgunblaðið - 30.10.2009, Síða 33
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
✝ Hjálmar JóhannNíelsson fæddist á
Seyðisfirði 15. nóv-
ember 1930. Hann
andaðist þriðjudaginn
20. október sl. For-
eldrar hans voru
Níels Sigurbjörn
Jónsson, f. 19.3. 1901,
d. 24.1. 1975, og Ingi-
ríður Ósk Hjálm-
arsdóttir, f. 8.7. 1898,
d. 30.3. 1961. Systkini
Hjálmars eru Bragi, f.
16.2. 1926, Sigrún, f.
19.12. 1927, og Rós, f.
11.3. 1929, d. 26.11. 1998.
Hinn 17. júní 1958 kvæntist
Hjálmar Önnu Þorvarðardóttur frá
Eskifirði, f. 28.10. 1935. Foreldrar
hennar voru Þorvarður Guðni Guð-
mundsson, f. 27.8. 1910, d. 2.6. 1975,
og Lilja Sverrisdóttir, f. 25.12.
1915, d. 5.5. 1997. Synir Hjálmars
og Önnu eru: 1) Níels Atli, f. 18.3.
1958, kvæntur Kristrúnu Gróu Ósk-
arsdóttur, f. 21.8. 1969. Sonur
þeirra er Hjálmar Aron, f. 26.10.
Seyðisfirði starfaði Hjálmar í 15 ár.
Lauk þar sveinsprófi í vélvirkjun
1961, og öðlaðist meistararéttindi í
faginu 1965. Vélgæslumaður hjá
RARIK 1973-1977. Forstöðumaður
skipaafgreiðslu Seyðisfjarðar-
hafnar 1977-1982. Yfirmatsmaður
hjá framleiðslueftirliti sjávarafurða
1982-1984. Tryggingafulltrúi við
embætti sýslumanns Norður-Múla-
sýslu og bæjarfógeta á Seyðisfirði
1985-2000. Sat í bæjarstjórn Seyð-
isfjarðar 1974-1978, en áður vara-
maður 1966-1974. Starfaði í fjöl-
mörgum nefndum á vegum
bæjarstjórnar Seyðisfjarðar.
Gegndi einnig trúnaðarstörfum á
vegum Lionshreyfingarinnar og í
félagi eldri borgara á Seyðisfirði,
og var einn af stofnendum Viljans,
félags fatlaðra á Seyðisfirði. Síðast
starfaði Hjálmar við farþega-
afgreiðslu Austfars hf., í tengslum
við farþega- og bílaferjuna Nor-
rönu.
Útför Hjálmars verður gerð frá
Seyðisfjarðarkirkju í dag, 30. októ-
ber, og hefst athöfnin kl. 14.
1998. Fyrir átti Gróa
soninn Óskar Halldór
Guðmundsson, f. 27.4.
1988. 2) Þorvarður
Ægir, f. 9.10. 1962,
fyrrv. eiginkona er
Sólveig Einarsdóttir,
f. 15.2. 1965. Börn
þeirra eru Einar Óli,
f. 9.2. 1985, Anna
Silvía, f. 2.8. 1988, og
Rúnar Leó, f. 30.6.
1995. 3) Agnar Ingi, f.
7.7. 1966, kvæntur
Ingu Hönnu And-
ersen, f. 23.7. 1965.
Börn þeirra eru Hjálmar Ragnar, f.
15.6. 1988, og Hanna Sigríður, f.
6.8. 1994. Áður átti Agnar Ingi dótt-
urina Auði Maríu, f. 20.1. 1985,
móðir Saga Valsdóttir, f. 7.4. 1966.
Hjálmar bjó alla sína ævi á Seyð-
isfirði, og lauk þar skyldunámi.
Gagnfræðingur frá Eiðaskóla 1948.
Stundaði í fyrstu almenn verka-
mannastörf, síðan verkstjórn, síld-
armatsstörf á Seyðisfirði, Siglufirði
og í Keflavík. Í vélsmiðjunni Stál á
Með þessum orðum langar mig að
kveðja minn elskulega tengdapabba.
Sú stund þegar kveðja þarf ástvin er
alltaf erfið. Ég varð þeirrar gæfu að-
njótandi að fá að kynnast þér þegar
ég byrjaði að vera í sambandi með
frumburði þínum, honum Níelsi Atla,
fyrir tæpum fimmtán árum. Þú og
Anna tengdamamma tókuð mér og
Óskari, syni mínum, opnum örmun og
voruð svo góð við okkur og tókuð hon-
um sem einu af barnabörnum ykkar.
Svo eignuðumst við Níels son sem við
skírðum í höfuðið á þér og þú varst
svo stoltur af honum eins og öllum í
fjölskyldunni.
Þú og Anna tengdamamma voruð
svo samrýnd og góð hvort við annað
og hennar missir er mikill. Þar með
kveð ég þig, elsku Hjálmar minn,
með söknuði og megi Guð varðveita
og styrkja Önnu, minn elskulega eig-
inmann Níels Atla, bræður hans,
barnabörn og aðra aðstandendur og
vini í þessari miklu sorg.
Þín tengdadóttir
Kristrún Gróa Óskarsdóttir.
Hjálmar, kæri frændi, nábúi og
vinur. Nú er komið að kveðjustund.
Það er sárt eftir meira en 70 ára nota-
leg samskipti. Ég held að enginn okk-
ar vina þinna hafi gert ráð fyrir þess-
um umskiptum á þessum tíma.
Sennilega síst þú sjálfur, enda varstu
á fullu í ótal verkum fram á síðustu
sekúndu. Þar sem ég nú skrifa þessar
línur, er ég í nokkrum vanda. Mig
langar til að lýsa svo mörgu í fari
þínu, störfum þínum gegnum tíðina,
vinnunni fyrir daglegu brauði, fé-
lagsstörfum, s.s ótal stundum í þágu
Lions og Félags eldri borgara á Seyð-
isfirði. Áfram mætti telja sýsl þitt við
ólíklegustu hluti, en þess er ekki
kostur í stuttri grein. Fáa veit ég þér
jafn fjölhæfa. Ég hygg að þú hafir
notað vel þann tíma sem þér var
skammtaður hér á jörð.
Þú varst upptekinn maður, enda
með óteljandi áhugamál. Þó neitað-
irðu aldrei að taka að þér allskonar
verk, svo sem fræðagrúsk, lagfæring-
ar og viðgerðir á ólíklegustu hlutum,
enda varstu völundur í höndunum.
Þann kost áttirðu reyndar ekki langt
að sækja, trúlega bæði úr föður- og
móðurætt.
Mikill samgangur var ávallt milli
heimila okkar, enda voru foreldrar
okkar systkin. Að koma á æskuheim-
ili þitt að Bjólfsgötu 1 var eins og að
koma á einskonar tæknisafn. Þar
hafði Níels faðir þinn nefnilega farið
höndum um hluti, gert þá hagkvæm-
ari, og smíðað aðra sem sýndu mikla
hugkvæmni. Því kom æskuheimili
þitt iðulega í hug mér þegar litið var
inn til ykkar Önnu. Enda standa hús
okkar hlið við hlið. Þar er nefnilega
ekki ólíkt um að litast og á Bjólfsgötu
1 á sínum tíma. Frændi sæll, þú varst
sannarlega lukkunnar pamfíll í lífinu.
Þú sýslaðir við svo ótal mörg áhuga-
svið, eins og áður er getið. Einn af
kostum þínum var mikil kímnigáfa og
góðir leikhæfileikar sem þú notaðir
oft. Allir vissu á hvaða kanti þú spil-
aðir á velli stjórnmálanna.
Mesta gæfa þín í lífinu var að þú
fékkst að ganga stóran hluta lífs-
göngunnar við hlið Önnu þinnar. Þið
eignuðust þrjá góða syni, þá Níels
Atla, Þorvarð Ægi og Agnar Inga.
Hvernig átti annað að vera? Sá völ-
undur sem þú varst. Þar á hún Anna
þín sinn helming. Auður ykkar var í
afkomendum sem þið sinntuð af alúð.
Engum sem til ykkar þekkti, eða
bara sá ykkur saman, duldist hve
samrýnd þið voruð. Þegar þið unnuð í
garðræktinni kringum húsið ykkar
var aldrei langt á milli ykkar, enginn
veggur skildi ykkur að. Þið þurftuð
helst alltaf að vera bæði í tal- og
augnsambandi. Anna þín hefur því
mikið misst. Hjálmar minn, við lofum
að styðja hana eins og við getum.
Myndir eru samsettar úr punktum.
Þú varst punktur í mynd Seyðisfjarð-
ar. Nú þegar þinn punktur hverfur,
þá dofnar myndin. Þar með er ekki
sagt að þú hverfir, því efalaust mun
andi þinn svífa áfram hér á milli
Bjólfs og Strandartinds. Vinir þínir
og ættingjar þakka þér samveruna á
Hótel Jörð, votta Önnu, sonum ykkar
og öðrum aðstandendum djúpa sam-
úð, um leið og við óskum þér farsæld-
ar á vegi eilífðarinnar. Við vitum að
þar bíða vinir í varpa sem von er á
gesti.
Farðu vel frændi.
Jóhann B. Sveinbjörnsson.
Við Hjálmar vorum vinnufélagar
frá árinu 1989 til ársins 2000.
Þegar ég kynntist Hjálmari fyrst
hinn 1. mars 1989 fannst mér eins og
ég hefði ávallt þekkt hann og leit á
hann sem vin minn frá þeirri stundu.
Hjálmar hafði þann mann að geyma
að ekki var hægt annað en láta sér
þykja vænt um hann. Hjálmar var
mikill vinnuþjarkur og gekk að
hverju verki af einurð og var aldrei
ánægður fyrr en verkum var lokið á
hinn vandaðasta máta. Þannig var
allt hans líf vandað og gegnheilt. Við
áttum mikið og gott samstarf í Lions-
klúbbi Seyðisfjarðar og þar var hann,
sem og annars staðar, hrókur alls
fagnaðar. Hjálmar gegndi öllum
helstu embættum í Lionsklúbbi
Seyðisfjarðar á löngum og farsælum
ferli sínum innan klúbbsins. Hann
var stallari klúbbsins og er skarð
hans vandfyllt. Hjálmar var einnig í
forystusveit Hjartaverndar. Þá vann
Hjálmar mikið og óeigingjarnt starf
fyrir Framtíðina, félag eldri borgara
á Seyðisfirði. Hann hafði sterkar
stjórnmálaskoðanir og lá ekki á þeim.
Oft var mikið fjör á sýsluskrifstof-
unni í aðdraganda kosninga og var
mikið gaman að ræða við Hjálmar um
pólitík, þótt skoðanir féllu ekki alltaf
saman.
Hjálmar var búinn miklum sagn-
aranda og hann var líka góð eftir-
herma og skáld. Oft var því glatt á
hjalla í gömlu Norrænu þegar þeir
kváðust á Hjálmar, Jón Halldór og
Hákon heitinn Aðalsteinsson.
Ánægjulegustu minningarnar um
Hjálmar í mínum huga eru sögurnar
sem hann sagði fullar af fróðleik og
skemmtiefni. Hjálmar lét af störfum
hjá hinu opinbera þegar hann varð
sjötugur hinn 15. nóvember 2000.
Hann var þó langt í frá hættur að
vinna og púlaði inni í kirkjugarði og
við afgreiðslu ferjunnar fram á síð-
asta dag. Hann vann að skráningu
skjala og sendingu til Þjóðskjala-
safns. Hann hélt alla tíð góðu sam-
bandi við sinn gamla vinnustað þó að í
nógu væri að snúast annars staðar,
sem er til marks um hversu félags-
lyndur hann var. Þegar hann fann
auða stund notaði hann hana til að
mála myndir og má segja að honum
hafi aldrei fallið verk úr hendi.
Aðdáunarvert var að fylgjast með
þeim hjónum og samheldni þeirra.
Þau gerðu alla hluti saman hvort sem
var í leik eða starfi. Nú í aðdraganda
kveðjustundar hefi ég vitnað það á
drengjunum hans þremur hversu
góður faðir hann hefur verið. Hjálm-
ar var fyrirmyndarfjölskyldufaðir.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Við Hrafnhildur sendum fjölskyldu
Hjálmars, Önnu, Níelsi Atla, Þor-
varði Ægi, Agnari Inga, tengdabörn-
um, barnabörnum og barnabarna-
börnum, okkar innilegustu
samúðarkveðjur um leið og við þökk-
um dýrmætar stundir á liðnum ára-
tugum.
Lárus Bjarnason.
Kveðja frá samstarfsmönnum
Það grunaði engan okkar á mánu-
dagskvöldið í síðustu viku þegar við
komum til að taka á móti skipinu, að
þetta yrði í síðasta sinn sem við hitt-
umst. Morguninn eftir barst okkur sú
harmafregn að félagi okkar, Hjálmar
Níelsson, hefði látist skyndilega þá
um nóttina.
Hjálmar hóf störf hjá Austfari við
innritun og móttöku á farþegaferj-
unni Norrönu vorið 2003 þegar nýtt
skip hóf komur hingað til Seyðisfjarð-
ar. Það var kannski lýsandi fyrir
Hjálmar og athafnasemi hans, að
hann skyldi hefja störf hjá okkur um
svipað leyti og margir aðrir setjast í
helgan stein. Hjálmar var einstak-
lega áhugasamur um vinnuna og þótt
starfið ætti aðeins að vera hlutastarf
sinnti hann því af einskærum áhuga
og samviskusemi. Það var yfirleitt
þannig að daginn áður en skipið átti
að koma var Hjálmar mættur til að
kanna hvort ekki væri allt á áætlun
og fylgdist alltaf grannt með að skipið
væri á réttum tíma. Ef einhver breyt-
ing varð á komu- eða brottfarartíma
var Hjálmar oftast fyrstur á staðinn
og tilbúinn í slaginn, en þá var hann
gjarnan búinn að aka út með firði og
fylgjast með því þegar skipið birtist.
En þannig var Hjálmar. Hann gat
aldrei setið auðum höndum og náði
aldrei leikni í þeirri list að gera ekki
neitt. Erlendir starfsmenn Smyril-
Line hafa reyndar oft haft á orði
hversu vel innritun hefur gengið hér
og hvað starfsfólkið leggur mikla alúð
við vinnu sína og þar átti Hjálmar
ekki sístan þátt.
Eftir að hefðbundnum starfsferli
lauk lagði Hjálmar hönd á plóg á
mörgum sviðum. Hann var virkur í
félagi eldri borgara á Seyðisfirði,
starfaði í Lionshreyfingunni og einn-
ig var hann síðustu árin annar af um-
sjónarmönnum kirkjugarðsins ásamt
félaga sínum Jóhanni Grétari Einars-
syni. Þá eru þau ekki fá handtökin
sem liggja eftir hann í garðinum
heima hjá honum og konu hans, Önnu
Þorvarðardóttur, á Garðarsvegi 8.
Nú þegar líður að kveðjustund
verður okkur óneitanlega hugsað til
kaffitímanna okkar hér í Austfari áð-
ur en við fórum að taka á móti skip-
inu. Hjálmar hafði yfirleitt eitthvað
skemmtilegt til málanna að leggja,
hvort sem verið var að ræða lands-
málin eða segja sögur af fólki eða við-
burðum frá fyrri tíð, en þar var
Hjálmar hafsjór af fróðleik. Þessara
stunda eigum við eftir að sakna.
Um leið og við þökkum Hjálmari
samfylgdina sendum við eiginkonu
hans, Önnu Þorvarðardóttur, og son-
um þeirra og öðrum aðstandendum
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd starfsmanna Austfars,
Sófus Þ. Jóhannsson.
Ég átti því láni að fagna að kynnast
honum vel, Hjálmari Níelssyni. Hann
starfaði sem tryggingafulltrúi á skrif-
stofu sýslumannsins á Seyðisfirði,
þar sem við störfuðum saman um
árabil. En Hjálmar var annað og
meira en tryggingafulltrúi, sem var
þó ansi umsvifamikið starf. Hann var
einnig kallaður til ef gera þurfti við
áhöld eða búnað og oftar en ekki
kunni hann ráð, enda menntaður vél-
smiður og með haldgóða framhalds-
menntun í skóla lífsins.
Hjálmar starfaði á sýsluskrifstof-
unni þar til hann fór á eftirlaun. Hann
tók mikinn þátt í félagsstörfum,
seinni árin í Félagi hjartasjúklinga,
Félagi eldri borgara og Lionsklúbbi
Seyðisfjarðar. Leiðir okkar á félags-
málasviðinu lágu fyrir nokkrum árum
saman í starfinu í Lionshreyfingunni,
þar sem Hjálmar var ötull og
skemmtilegur félagi.
Hjálmar var hafsjór af fróðleik um
sögu lands síns og sögu Seyðisfjarð-
ar. Hann aflaði til dæmis heimilda um
sögu sýslumanns Norður-Múlasýslu
og ýmsa þætti um fleiri efni skráði
hann.
Hann var frábær sögumaður og
mér fannst yndislegt að heyra hann
rifja upp skemmtilegar sögur frá
stríðsárunum eða síldarárunum, en
allar þessar sögur voru fullar af fínni
kímni og gáska sem einkenndi
Hjálmar framar öðru.
Minningin um góðan vin og mikinn
mannvin lifir.
Ég og fjölskylda mín viljum votta
Önnu og fjölskyldu hennar samúð
okkar.
Jón Halldór Guðmundsson.
Það er einn grunnþáttur í gæfu
minni að hafa kynnst fjölmörgu
mætu fólki, til þess fékk ég gjöfult
tækifæri. Á þingmannsferli mínum
sannaðist mér að styrkur okkar
mestur var í traustum félögum góðr-
ar gerðar sem héldu merki flokksins
uppi á sínum stað af einurð og rök-
festu, hugsjónafólk sem vildi jöfnuð
og réttlæti í samfélaginu umfram
annað. Einn hinna mætustu félaga
minna eystra hefur nú kvatt okkur
svo skyndilega og óvænt og minning-
ar um kynnin kær hrannast að huga.
Það var vösk sveit sem Alþýðubanda-
lagið átti á Seyðisfirði og þar var
Hjálmar Níelsson jafnan framarlega
í sveit, enda honum sýndur mikill
trúnaður félaganna, tillögugóður og
ráðhollur, en einnig gagnrýninn á það
sem honum þótti miður fara, en þar
réð sanngirnin líka ferð. Slíka félaga
var gott að eiga. Hjálmar var afar vel
gjörður greindarmaður sem átti
verðugt traust fjölda fólks og réttsýni
hans og samvizkusemi ásamt með-
fæddri hjálpsemi voru hinir dýrmætu
förunautar hans í störfum, en starf
hans tengdist svo ríkulega mannleg-
um samskiptum. Þar vildi hann leysa
hvers manns vanda og honum borin
afar vel sagan að vonum. Það var
þeim sem til hans leituðu dýrmætt,
því ásamt hinum góðu eðliskostum
hans fann fólk að hjarta hans sló með
þeim sem erfiðari áttu lífsgönguna.
Hann átti geislandi glettni og var
næmur á hið broslega í tilverunni, en
alvaran átti þar sinn ríka sess. Hann
var gæfumaður í einkalífi sínu og
kunni mætavel að meta góðar gjafir
lífsins. Þegar síðast bar saman fund-
um var hann glaðbeittur sem alltaf
fyrr og við áttum stutt en gott spjall
saman.
Og nú er þessi glaðbeitti félagi fall-
inn frá og harmur kveðinn að hans
ágætu eiginkonu sem og öllu þeirra
fólki og Hjálmars er sannarlega víða
saknað. Þeim öllum eru innilegar
samúðarkveðjur sendar.
Ég þakka trygga samfylgd fjölda
ára og kveð minn góða félaga með eft-
irsjá. Minning hans er heiðrík og
hugumkær.
Helgi Seljan.
Hjálmar Jóhann Níelsson
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista
Lokað
Fyrirtækið verður lokað föstudaginn 30. október vegna útfarar
okkar elskulegu ÓLAFÍU ÁSBJARNARDÓTTUR (LOLLÝJAR).
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ÁLFHEIÐAR ÁSTVALDARDÓTTUR,
Björk v/Freyjugötu,
Sauðárkróki.
Ástvaldur Guðmundsson,
Ólafur Helgi Jóhannsson, Alda Valgarðsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.