Morgunblaðið - 30.10.2009, Síða 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Nú styttist í jólahlaðborðin hjá
okkur. Hvað er notalegra en að fara
í heita pottinn eftir dásamlegar
kræsingar? Slökun og stemning sem
þú átt skilið.
Fyrir hópa og fjölskyldur.
www.minniborgir.is.
Spennandi gisting aðeins 75 km
frá höfuðborgarsvæðinu.
Mjúkur draumur
Náttföt, náttkjólar, sloppar.
Stærðir S-XXXL
Meyjarnar, Austurveri
sími 553 3305
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Óska eftir
Óskast keypt!
Vinnuskúr eða gámahús óskast keypt.
Upplýsingar í síma 698-6738.
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Þjónusta
Kransar og útfararskreytingar
Kransar og útfararskreytingar ásamt
annarri blómaskreytingarþjónustu.
Opið alla daga vikunnar. Blómalind,
Suðurlandsbraut 52 (bláu húsin
Fákafeni). Sími 551 0300/692 8038.
Ýmislegt
www.vinkjallarinn.is
Nú er rétti tíminn til að búa til sitt
eigið vín/bjór fyrir veturinn. Erum
með hágæðaefni frá Kanada,
AD Vintage. Suðurhraun 2, Garðabæ,
sími 564 4299. Opið 12-17.30.
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið – skór.
Leður skór,St. 36 – 42, verð
13.990,-
Sími 588 8050.
Teg. 6859 - nýkominn aftur þessi
mjúki yndislegi toppur sem fæst í 38
til 44 kr. 5.950,-
Teg. 8825 - vænar og hátt skornar
mittisbuxur í S, M,L,XL á kr. 2950,-
Teg. 8826 - vænar og mið skornar
mittisbuxur í S,M,L,XL á kr. 2.950,-
teg. 8827 - alveg óskornar mittisbu-
xur í S,M,L,XL á kr. 2.950,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Haust í Skarthúsinu
Alpahúfur, sjöl, legghlífar og
vettlingar . Ný sending.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
Dömukuldaskór úr leðri með
flísfóðri og góðum sóla.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 17.500.
Verklegir dömukuldaskór úr
leðri, loðfóðraðir og með stömum
sóla. Litir: Rautt og svart.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 18.750.
Hlýlegir dömukuldaskór úr leðri
með flísfóðri og stömum sóla.
Litir: Svart og brúnt.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 18.750.
Misty skór, Laugavegi 178,
sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Blómaskór. Margir litir.
Eitt par 1.000 kr., tvö pör 1.690 kr.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar
augl@mbl.is
Farðu inn á mbl.is/smaaugl
hugsaði um okkur eins og börnin sín.
Hún hringdi alltaf mjög oft í okkur
þegar við vorum veik til að vita hvern-
ig við hefðum það. Hún elskaði hesta
og vildi alltaf gefa okkur hestanám-
skeið.
Það var alltaf svo gaman að koma
til hennar og afa Kidda í sveitina í
Köldukinn og veiða. Besti staður í
heimi er sumarbústaðurinn hennar
og öll trén hennar þar. Við ætlum allt-
af að muna eftir henni elsku bestu
ömmu Lollý.
Ásbjörn, Benedikta Ýr, Friðrik
Ingi og Margrét Birna.
Í dag kveð ég frábæra konu sem
glímdi lengi við illvígan sjúkdóm. Með
viljastyrk og jákvæðni barðist hún
hart á móti og var ég farin að halda að
hún myndi sigra hann, en það dugði
ekki.
Lollý, eins og hún var kölluð, var
sambýliskona pabba og mikil vinkona
mín. Þegar hún og pabbi hófu að vera
saman og Lollý byrjaði að koma í
Köldukinn var eins og sólin hæfi sig
hærra á loft. Fyrstu kynni pabba og
Lollýjar hófust þegar þau voru ung
og Lollý var í sveit á Kagaðarhóli.
Leiðir þeirra lágu svo saman aftur á
efri árum, þau áttu það sameiginlegt
að hafa bæði misst maka sína en vildu
byrja nýtt líf.
Hjá okkur í fjölskyldunni fékk
Lollý sérstakan stað og minningarn-
ar eru margar. Allar heimsóknirnar í
Brekkukot eru okkur ógleymanlegar.
Það mátti standa illa á hjá minni fjöl-
skyldu ef ekki var hægt að mæta í bú-
staðinn í enda júlí og vera saman,
færa henni gjöf í tilefni afmælis en
jafnframt þiggja ótal gjafir.
Lollý var strákunum okkar góð
amma. Hún fylgdist vel með þeim og
hvatti þá til dáða. Þegar ég varð
amma í sumar tók hún stóran þátt í
því með mér. Við vorum báðar vissar
um að von væri á stelpu en þegar það
kom strákur sagði hún: „Gunna mín,
það kemur stelpa næst.“ Lollý gat
ekki verið viðstödd skírnina en hún
bað mig um að hringja í sig um leið og
búið væri að skíra. Er þetta lýsandi
dæmi um það hvað hún var alltaf
tilbúin að taka þátt í því sem fjöl-
skyldan var að gera.
Yndisleg voru öll símtölin sem við
áttum saman. Þá spjölluðum við um
ýmislegt og hún sagði mér stundum
„trúnó“ eins og við kölluðum það.
Vænst þótti mér um að heyra þegar
hún sagði að ég væri dóttir sín norð-
an heiða.
Haustið 2005 fórum við konurnar í
fjölskyldunni, ásamt Guðmundi, syni
Lollýjar, í konuferð til Kaupmanna-
hafnar. Mikið var þetta skemmtileg
ferð, alveg einstök.
Það var gaman að koma til Lollýjar
og pabba í sveitina. Þau voru alltaf
eitthvað að gera og nutu þess mikið
að vera saman, hvort sem það var í
garðinum eða stússast við kindurnar
og hrossin.
Við fórum í réttirnar í haust og þó
að við værum ekki að draga neitt fé
kom ekkert annað til greina hjá Lollý
en að mæta, og auðvitað vorum við
með nesti. Eftir réttirnar fór stórfjöl-
skyldan í sveitina og grillaði saman.
Það var ekki til nóg af berjum í eft-
irrétt þannig að við Lollý fórum sam-
an í berjamó. Þetta var alveg ynd-
isleg stund sem við áttum þarna
saman og auðvitað var mikið spjallað.
Heilsuleysið var farið að segja til sín
á þessum tíma og hún tók af mér lof-
orð um eitt, það var að hugsa vel um
pabba. Það eitt veit ég, og tala fyrir
okkur öll, að það gerum við. Það er
mikið sem á hann er lagt.
Elsku Lollý, við söknum þín sárt.
Þú varst svo yndisleg við okkur og við
þökkum kærlega fyrir allar stundirn-
ar sem við áttum saman, þær eru
ógleymanlegar. Eins og þú varst búin
að biðja um standa fjölskyldurnar
þínar sunnan og norðan heiða þétt við
bakið á pabba núna.
Guð geymi þig
Guðrún Kristófersdóttir
og fjölskylda.
Lollý amma mín er dáin og ég
sakna hennar mjög mikið.
Við heimsóttum hana mjög oft og
hún okkur. Nú verða jólin tómleg án
hennar því að við vorum alltaf saman.
Hún var ótrúlega góð amma. Hún
var alltaf að gefa okkur ömmubörn-
unum sínum eitthvað fallegt.
Ég hef mikinn áhuga á hestum al-
veg eins og Lollý amma hafði. Hún
átti hest sem heitir Vinur og hann er
uppáhaldið mitt. Ég ætla að hugsa
vel um Vin fyrir elsku ömmu mína.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Ég vona að ömmu líði vel núna.
Ylfa Guðrún.
Elsku amma okkar. Takk fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
með þér. Þú varst okkur alltaf svo
góð. Þú ert í okkar huga einstök hetja
og baráttukona sem aldrei gafst upp
þótt oft blési stíft á móti. Þú hafðir
bjartsýnina að vopni.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Þó að við kveðjum þig með söknuði
og trega, þá lifa allar góðu minning-
arnar um ókomna tíð.
Þínir
Einar Örn og Björn Orri.
Það eru í rauninni forréttindi að
hafa kynnst konu eins og Lollý. Þau
kynni hófust eftir að dóttir okkar
hjónanna, Guðrún Svava, og sonur
Lollýar, Guðmundur Karl, fóru að
draga sig saman og hófu síðan sam-
búð. Það var fyrir um níu árum.
Rúna átti son fyrir sem var aðeins
nokkurra mánaða gamall þegar sam-
búð þeirra Gumma hófst. Þessum
litla strák, Þresti, var strax tekið sem
einum af barnabörnum Lollýar og
þannig var um alla fjölskyldu henn-
ar. Samheldnin og væntumþykjan
hjá þessari fjölskyldu er allsráðandi.
Þetta er svona knúsfjölskylda sem er
svo notalegt að fá að vera þátttak-
andi í.
Árin sem liðin eru síðan við kynnt-
umst Lollý hefur hún barist við mikil
veikindi af æðruleysi og bjartsýni.
Hún lét þau ekki stjórna lífi sínu en
hélt sínu striki af ótrúlegum krafti.
Við hjónin erum full þakklætis fyrir
þennan stutta tíma sem við áttum
samleið og fyrir litla sólargeislann
sem Rúna og Gummi eignuðust fyrir
rúmum tveimur árum, Þóru litlu,
sem við eigum með Lollý sem ömmu-
og afastelpu. Þessi litla stelpa, sem
er svo fínleg, blíð og góð og alltaf
tilbúin að deila með sér, en samt svo
ákveðin. Þannig er ömmu Lollý líka
best lýst.
Við sendum fjölskyldu Lollýar
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og biðjum Guð að varðveita hana og
allar góðu minningarnar.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Ellý og Þröstur.
Elsku elsku amma Lo … það er
svo skrítið að hugsa til þess að þú
sért farin frá okkur. En ég trúi því að
nú líði þér loksins vel, laus við allt
„vesenið“ eins og þú sagðir alltaf. Ég
er svo heppin að hafa fengið tækifæri
til þess að vera mikið með þér í gegn-
um tíðina og þær minningar sem ég á
eru ómetanlegar. Þegar ég var lítil
vildi ég helst hvergi annars staðar
vera en hjá ykkur Bjössa afa og þar
leið mér einstaklega vel.
Toppurinn var þó að fá að fara með
ykkur upp í sumarbústað þar sem við
fórum í pottinn, borðuðum bláber og
jarðarber með sykri og rjóma í bað-
sloppunum, og síðast en ekki síst
lögðum við kapal. Verkaskiptingin
hjá okkur var þannig að þú lagðir
kapalinn þangað til þú varst orðin
strand og þá tók ég við og kláraði
með örlitlu svindli. Oft vorum við að
gróðursetja fyrir austan, þá fannst
mér ég vera voða dugleg, en ég sé það
núna að ég var sennilega mun meira
að flækjast fyrir heldur en að hjálpa
til.
Við vorum mjög góðar vinkonur,
amma mín, og aldursmunurinn skipti
okkur engu máli. Þú varst mikill
húmoristi, það sem við gátum bullað
og hlegið saman í gegnum árin. Fyrir
nokkrum árum, þegar ég lenti í bíl-
slysinu, geystist þú upp á spítala til
mín. Þó svo að ég muni ekki mikið
eftir þeim tíma man ég svo sannar-
lega eftir áhyggjusvipnum á þér. Ég
sá stundum þennan áhyggjusvip aft-
ur þegar ég kvaddi þig eftir að hafa
verið í heimsókn hjá þér, þá sagðir
þú: „Bless, elskan, og keyrðu nú var-
lega.“ Elsku amma mín, ég skal gera
mitt besta í að keyra varlega hér eftir
og muna að nota stefnuljós!
Ég er svo ótrúlega stolt af þér,
amma mín, þú varst glæsileg kona
með sterkan persónuleika, alltaf flott
til fara og á flottustu bílunum. Þú ert
hetjan mín og sú besta fyrirmynd
sem hægt er hugsa sér. Ég sakna þín!
Ég elska þig! Þín
Unnur Gréta.
Fleiri minningargreinar um Ólaf-
íu Ásbjarnardóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.