Morgunblaðið - 30.10.2009, Síða 37
Dagbók 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Sudoku
Frumstig
4 8
8 2 1
5 9
6 3
9 5 6
5 7
4 8 3
2 6
5 1 7 9
8 4
7 3 8 1
3 2 9
5 6
4 1 7 3
5 1 8
3
2 6 8 9 5
7
2
5 1 9
5 6 4 3 2
8 4 6 7
1
3 8
7 2 9 4
1 8
4 9 5 3 7 6 2 1 8
8 7 6 9 1 2 3 5 4
2 3 1 4 5 8 6 9 7
7 1 3 8 6 5 9 4 2
6 8 2 7 9 4 5 3 1
5 4 9 2 3 1 8 7 6
1 2 7 5 8 3 4 6 9
3 6 8 1 4 9 7 2 5
9 5 4 6 2 7 1 8 3
2 5 7 6 3 8 1 4 9
3 9 1 4 5 2 8 6 7
6 8 4 9 7 1 2 3 5
7 1 5 8 2 4 6 9 3
9 2 6 3 1 7 4 5 8
8 4 3 5 9 6 7 1 2
1 7 9 2 6 3 5 8 4
4 3 2 1 8 5 9 7 6
5 6 8 7 4 9 3 2 1
6 1 3 8 4 9 7 2 5
9 4 8 7 2 5 1 3 6
2 5 7 6 3 1 8 4 9
7 9 4 3 1 6 5 8 2
1 8 6 9 5 2 4 7 3
5 3 2 4 7 8 9 6 1
3 7 1 2 9 4 6 5 8
8 2 5 1 6 7 3 9 4
4 6 9 5 8 3 2 1 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 30. október,
303. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Fótboltaspekingarnir tala enn umlanga bolta og stutta bolta, en
þegar Víkverji var í boltanum gafst
stutta spilið oft vel og þegar þessum
kúlulaga hlut sem kallast bolti var
skyndilega spyrnt langt fram á við
rataði hann oftar en ekki á sprett-
harða miðherjann, sem iðulega fann
réttu leiðina í markið. Þá voru menn
ungir og sprækir, duglegir og léttir
á fæti og létu vaða á markið, en nú
eru þeir sagðir með ferska fætur.
x x x
Teitur Þórðarson var öflugur mið-herji og hefur síðan gert garð-
inn frægan sem þjálfari, nú síðast í
Vancouver í Kanada. Þar er vel tekið
á móti löndum, en í meira en áratug
eða síðan Víkverji hætti að drekka
kaffi hefur hann fengið að heyra það
í Vesturheimi. Hvers konar Íslend-
ingur ertu, hefur Víkverji oft verið
spurður. Þér finnst kaffið okkar
kannski ekki nógu sterkt, hefur
gjarnan verið bætt við, þegar Vík-
verji hefur afþakkað gott boð en
spurt hvort til væri te.
x x x
Fyrir skömmu fékk Víkverji fjöl-póst þar sem góður maður af
íslenskum ættum spurði hvar hægt
væri að fá kaffipoka og kaffikönnu
eins og Íslendingar notuðu um ára-
bil. Hann sagðist vera orðinn leiður
á kaffisullinu og vildi hella upp á
könnuna að íslenskum sið, fá sér al-
mennilegan kaffisopa, besta kaffi í
heimi.
Ekki stóð á svörunum. Einn út-
skýrði hvernig ætti að búa til kaffi-
pokann og festa hann á hringinn.
Manninum var líka bent á að pok-
arnir fengjust í Safni íslenskrar
menningararfleifðar á Gimli og hjá
Íslendingunum í nýlenduvöruversl-
uninni Tip Top í bænum. Allt ís-
lenskt til og allt þekkt fyrir vestan.
x x x
Aftur að boltanum. Eins og mennmuna þurfti að framlengja bik-
arúrslitaleik Breiðabliks og Fram í
haust. Þá féll þetta gullkorn í beinni
lýsingu í Sjónvarpinu: „Ef hvorugt
liðið skorar eða bæði verður víta-
spyrnukeppni.“ víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skær, 4 kinn-
ungur á skipi, 7 illvirki,
8 bunga, 9 miskunn, 11
lengdareining, 13 seðill,
14 fyrirgangur, 15 hala-
rófa, 17 afkimi, 20 gljúf-
ur, 22 mastur, 23 mis-
teygir, 24 ákveð, 25
gleðskapur.
Lóðrétt | : 1 formæla, 2
drykkjulæti, 3 tanginn, 4
veiðidýr, 5 jarði, 6
bræði, 10 leiti á, 12 veið-
arfæri, 13 til skiptis, 15
ferma skip, 16 vinn-
ingur, 18 tunna, 19
mannsnafn, 20 hleðslu,
21 ófögur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rembingur, 8 ruddi, 9 ræður, 10 kór, 11 seyra,
13 asnar, 15 glans, 18 slæða, 21 kút, 22 terta, 23 iðinn,
24 skætingur.
Lóðrétt: 2 Eldey, 3 blika, 4 narra, 5 urðin, 6 hrós, 7
grær, 12 Rán, 14 sál, 15 gati, 16 afrek, 17 skart, 18
stinn, 19 ætinu, 20 Anna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. e3 Bf5
5. cxd5 cxd5 6. Rc3 e6 7. Re5 Rfd7 8.
g4 Bg6 9. Rxg6 hxg6 10. Bg2 Rc6 11.
O-O f5 12. h3 Hc8 13. g5 Rb6 14. f4
Bb4 15. Re2 Rc4 16. Rg3 Rd6 17. Hf2
Re4 18. Rxe4 fxe4 19. Bf1 Kf7 20.
Hc2 Db6 21. Hh2 Re7 22. Db3 Hc6
23. a3 Hhc8 24. Dd1 Dc7 25. Bd2
Bxd2 26. Hxd2 Rf5 27. Kf2 Dd8 28.
Dg4 Hc1 29. Hxc1 Hxc1 30. Bg2 Db6
31. De2 Db3 32. Bf1
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í
Ohrid í Makedóníu. Rússneski stór-
meistarinn Alexander Motylev (2710)
hafði svart gegn alþjóðlega ísraelska
meistaranum Shi Porat (2459). 32…
Hxf1+! og hvítur gafst upp enda liðs-
tap óumflýjanlegt.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þar sem kerfið endar.
Norður
♠Á74
♥Á843
♦753
♣1065
Vestur Austur
♠K93 ♠–
♥K96 ♥7
♦KG1064 ♦ÁD982
♣Á2 ♣KDG8743
Suður
♠DG108652
♥DG1052
♦–
♣9
Suður spilar 6♠.
Sum spil má melda sofandi eftir
sagnkerfinu án þess að taka í raun
nokkra ákvörðun sem stendur undir
nafni – allar sagnir eru sjálfsagðar.
Þetta gildir einkum um flatar hendur.
En þegar skiptingin er mikil er ekki
hægt að skýla sér á bak við reglur kerf-
isins. Menn verða vesgú að taka sína
sénsa. Hér er suður gjafari og enginn á
hættu. Hver er sögnin?
Í leik við Ítali í Meistaradeildinni
vakti Daninn Zeeberg á 3♠. Vestur
sagði 3G og norður 4♠. Austur taldi sig
eiga yfir 6♣ og Zeeberg „fórnaði“ í 6♠.
Vestur doblaði og lagði niður ♣Á. Það
reyndist vera eini slagur varnarinnar.
Á hinu borðinu sýndi Versace óvenju-
lega linkind. Hann passaði í byrjun,
kom svo inn á 2♠ í næsta hring og lét
gott heita. AV misstu slemmuna, en
fengu þó töluna í 5♣.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það væri freistandi fyrir þig að
auka menntun þína með einhverju móti.
Yfirleitt eru tvær ástæður fyrir hverjum
verknaði.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Nú þarftu að komast að niðurstöðu
í máli, sem þú hefur lengi velt fyrir þér.
Njóttu þess að vera með góðu fólki.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þegar taka þarf mikilvægar
ákvarðanir þarftu að vera ákveðinn og
sterkur. Finnist þér sköpunarhæfileikar
þínir vera bældir skaltu reyna að finna
þeim farveg.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ættir að íhuga hvort þú haldir
í einhvern af ótta eða óöryggi. Hugsaðu
þig vel um áður en þú tekur til máls –
hvaða tilgangi ummæli þín þjóna.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ef þú átt eftir að búa þig fyrir dag-
inn skaltu klæðast einhverju sem jafn-
gildir búningi og skikkju. Brettu upp
ermarnar.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þetta getur orðið mjög skemmti-
legur dagur þó að þú verðir sennilega
ekki afkastamikil/l. Sýndu sanngirni.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þetta er hentugur tími til að ganga
frá lausum endum og ljúka hálfkláruðum
verkum. Röð og regla eru í góðu lagi en
verra er að festast í sama farinu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þarft að athuga vel hvern-
ig þú setur hlutina fram því það skiptir
sköpum að allir skilji hvert þú ert að
fara. Stundum leggur þú meira til en það
sem þú færð til baka.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Samskipti þín við vinnufélag-
ana ganga vel og það virðast allir reiðu-
búnir til að hjálpa þér. Ekki láta það
koma þér á óvart ef einhver af sam-
starfsmönnum þínum er fjarverandi í
dag.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Dagurinn verður erfiður ef þú
berst gegn straumnum. Sýndu umburð-
arlyndi því frekja og hroki er orðið dag-
legt brauð allt í kringum okkur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Til þess að lífið verði einfald-
ara verður þú að koma þér upp hópi
stuðningsmanna. Hugsun þín er skýr og
því ættirðu að komast til botns í því sem
þú ert að velta fyrir þér.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Láttu það vera að flýta þér um of
því það býður hættunni heim og þú skilar
verri vinnu fyrir vikið. Vertu íhugull.
Stjörnuspá
30. október 1796
Dómkirkjan í Reykjavík var
vígð. Hún hafði verið átta ár í
smíðum.
30. október 2008
Landslið Íslands í kvenna-
knattspyrnu komst í úrslit
Evrópukeppninnar með því að
sigra Íra á Laugardalsvelli,
3:0.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Hjónin Svanhildur Þorgilsdóttir,
bóndi og húsfreyja, og Jón F. Sig-
urðsson, bóndi og bifreiðastjóri,
Hjarðarholti, Fnjóskadal, Þingeyj-
arsveit, eiga fimmtíu ára brúð-
kaupsafmæli í dag, 30. október. Þau
hafa búið í Hjarðarholti sína bú-
skapartíð og tekið virkan þátt í fé-
lags- og menningarmálum sveit-
arinnar.
Gullbrúðkaup
Baldur Ólafs-
son, fyrrverandi
bóndi Fit undir
Eyjafjöllum, er
áttræður í dag,
30. október.
Hann er að heim-
an á afmælisdag-
inn.
80 ára
Jónína Stella
Kristinsdóttir er
sjötíu og fimm
ára í dag, 30.
október. Stella
tekur á móti
gestum á morg-
un, laugardaginn
31. október, í
Sjálfsbjargar-
húsinu, Hátúni 12, milli kl. 15 og 18.
75 ára
„ÉG ætla að bjóða fjölskyldunni heim í hrein-
dýrakjöt,“ segir Gunnar Thoroddsen lögmaður
sem er fertugur í dag. Hann rekur LGT Legal
Services, lögfræðistofu Gunnars Thoroddsen ehf.
á Grandagarði og verður þar fyrri hluta dags en
snýr sér síðan að eldamennskunni. „Ég rétt brúna
kjötið á pönnu og sting því síðan inn í 160 til 180
gráða heitan ofn, þar sem ég elda það í 10 mín-
útur. Ber það svo fram með heimabökuðu brauði.
Þetta er svakalega gott.“
Gunnar er mikill útivistar- og veiðiáhugamaður
og skaut sjálfur hreindýrið sem verður á borðum í
kvöld, en um helgina stendur síðan til að veiða rjúpur í jólamatinn.
Þetta var frumraun hans á hreindýraveiðum og ferðin kveikti elda
sem ekki verða slökktir í bráð. „Ég sótti um veiðileyfi í fyrsta sinn og
var svo heppinn að fá úthlutun. Svanbjörn bróðir var ekki eins hepp-
inn en hann kom með sem aðstoðarmaður og ekki veitti af.“
Veiðiferðin gekk vel og Gunnar skaut bæði kú og kálf. „Það var góð
tilfinning að fella dýrin í fyrsta skoti. Þau drápust samstundis og
kvöldust ekki. Ef vel gengur að veiða í framtíðinni er ágætissiður að
bjóða upp á hreindýr á svona stórhátíðum.“ steinthor@mbl.is
Gunnar Thoroddsen lögfræðingur 40 ára
Býður upp á hreindýr
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Reykjavík Þórður Alex-
ander fæddist 24. apríl kl.
15.46. Hann vó 3.440 g og
var 50 cm langur. Foreldr-
ar hans eru Þórdís Hrund
Þórðardóttir og Kristján
Einar Kristjánsson.
Reykjavík Kristín Ásta
fæddist 27. mars kl. 23.53.
Hún vó 3.790 g og var 50
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Ingigerður Ein-
arsdóttir og Sigtryggur
Símonarson.