Morgunblaðið - 30.10.2009, Page 39
Menning 39FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
„Þú ferð sko ekki
þarna inn nema þú
sért komin yfir fertugt og
fráskilin“ 44
»
Í GERÐUBERGI verður á morgun, laugar-
dag, boðað til Ritþings með Kristínu Marju
Baldursdóttur rithöfundi og stendur það frá kl.
13.30 til 16.00. Halldór Guðmundsson stýrir
þinginu en spyrlar verða Ármann Jakobsson
og Þórhildur Þorleifsdóttir. Silja Aðalsteins-
dóttir les úr verkum Kristínar Marju og verða
Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari með tón-
listaratriði.
„Þetta er kannski ekkert sérstakt tilhlökk-
unarefni fyrir konu sem hefur aldrei verið fús
til að ræða einakalífið,“ segir Kristín Marja.
„Ég hef samt staðið á öndinni yfir dugnaði
kvennanna sem vinna í Gerðubergi. Hvaðan fá
þær þessa orku?“ spyr Kristín Marja og getur
ekki annað en hrifist með. „Ég næstum hlakka
til Ritþingsins, því það er svo gaman og gef-
andi að vera nálægt þeim,“ segir hún.
En þegar á hólminn er komið verður kast-
ljósið á Kristínu Marju.
„Mér finnst eins og spænski rannsókn-
arrétturinn bíði. Þetta er eiginlega verra en að
fara í munnlegt próf, því þá getur maður und-
irbúið sig fyrir ákveðið efni.
Það hefur verið heilmikil vinna að undirbúa
sig, lesa gamla pappíra – og horfast í augu við
sjálfa sig,“ segir hún og hlær.
„Fyrst þegar ég var beðin að taka þátt í
Ritþingi ýtti ég því frá mér og fannst að þetta
gæti ég aldrei gert. En svo fór þetta svona.
Spyrlarnir eru með afbrigðum vel gefnir.
Maður á að passa sig á svona skörpu fólki, það
kemur alltaf aftan að manni og getur ekki
stillt sig um að koma með erfiðar spurningar.
En það er líka gott að ég segi sjálf frá sumu
varðandi verkin.“
Að Ritþingi loknu, klukkan 16.00, verður
opnuð í Gerðubergi sýningin Óreiðan – Sögu-
heimur Karitasar og er Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir sýningarstjóri. Hún setur á svið
senur úr lífi Karitastar, söguhetju tveggja
síðustu skáldsagna Kristínar Marju.
efi@mbl.is
Segi sjálf frá sumu
Ritþing Kristínar Marju Baldursdóttur á morgun
Morgunblaðið/Einar Falur
Höfundurinn „Spyrlarnir eru með afbrigðum
vel gefnir,“ segir Kristín Marja.
Teiknimyndahetj-
an Ástríkur og fé-
lagar hans Stein-
ríkur, Sjóðríkur,
Óðríkur og allir
hinir herja á Par-
ísarborg þessa
dagana. Hálfri öld
eftir að Gallarnir
hugprúðu birtust
fyrst á síðum Pil-
ote-tímaritsins, í
sögu þeirra Alberts Uderzos og Rén-
es Goscinnys, hylla Frakkar vinsæl-
ustu teiknimyndahetjur þjóðarinnar
með sýningum, sjónvarpsþáttum,
bókum og blaðagreinum.
Í vikunni var opnuð í Musée de
Cluny í París sýning á frumteikn-
ingum og handritum að sögunum og
hafa gestir staðið í röðum til að sjá
gersemarnar, í sömu húsakynnum og
fjöldi dýrgripa fyrri alda er varð-
veittur. Anne dóttir Goscinnys sagði
við blaðamann The Guardian að sýn-
ingin endurspeglaði hina fulkomnu
samvinnu þeirra Uderzos. „Þetta er í
fyrsta skipti sem fólk getur skoðað
þessi verk. Faðir minn og Albert voru
mjög ólíkir menn en fallegustu hlut-
irnir verða oft til við samruna ólík-
ustu efnanna.“
Í tilefni afmælis Ástríks verða risa-
vaxnir bautasteinar, eins og þeir sem
Steinríkur heldur iðulega á, settir
upp á átta stöðum í París.
Síðan Ástríkur birtist fyrst á prenti
í október árið 1959 hafa selst 325
milljón eintök af sögunum og hafa
þær verið þýddar á 107 tungumál.
Ástríkur
hylltur
Ástríkur á nýju
frönsku frímerki.
Haldið upp á
fimmtugsafmæli
FYRSTA skáld-
saga Huldars
Breiðfjörð, ferða-
sagan Góðir Ís-
lendingar, kom út
árið 1998, og var
tilnefnd til Ís-
lensku bók-
mennta-
verðlaunanna. Nú
ellefu árum síðar
er hún að koma út í Danmörku undir
titlinum „Kære landsmænd! – en Is-
landsk road-story.“ Forlagið Torgard
gefur út og mun Huldar vera á leið til
Danmerkur að vera viðstaddur út-
gáfuhátíð bókarinnar.
Góðir Íslendingar hefur einnig ver-
ið seld til Þýskalands en þar mun
Aufbau Verlag gefa hana út í vor. Von
er á nýrri bók frá Huldari á næstu
dögum, Færeyskur dansur, og mun
það vera óvenjuleg ferðasaga.
Bók Huld-
ars í útrás
Huldar Breiðfjörð
PERLUR sunnlenskrar tón-
listar nefnast tónleikar þriggja
Sunnlenskra karlakóra er
haldnir verða í íþróttahúsi Sól-
vallaskóla á Selfossi á morgun,
laugardag, klukkan 16.
Fram koma Karlakór Rang-
æinga, Karlakór Selfoss og
Karlakór Hreppamanna en
þeir hafa allir starfað um langt
árabil.
Samstarf kóranna byggist á
langri reynslu og hafa þeir áður haldið samein-
aðar söngskemmtanir en nú er í fyrsta sinn lagt
upp með að flytja eingöngu verk sem tengjast
Suðurlandi. Kórarnir syngja hver með sínu lagi og
einnig nokkur lög sameiginlega.
Tónlist
Karlakóramót
á Selfossi
Karlakór Selfoss
er einn kóranna
ÚR GULLKISTU sellósins er
yfirskrift tónleika í röðinni
Klassík í hádeginu í menning-
armiðstöðinni Gerðubergi í dag
klukkan 12.15.
Margrét Árnadóttir selló-
leikari og Nína Margrét Gríms-
dóttir píanóleikari og listrænn
stjórnandi tónleikaraðarinnar
munu flytja verk eftir Mendels-
sohn og Beethoven; ljóð án
orða, sónötu, rómönsu og til-
brigði við stef.
Tónleikarnir eru 35 mínútur án hlés og er fylgt
úr hlaði með kynningum tónlistarfólksins. Ókeyp-
is aðgangur er á tónleikana og verða þeir end-
urteknir á sunnudaginn kl. 13.15.
Tónlist
Litið í gullkistu
sellósins
Margrét Árna-
dóttir sellóleikari
VALGERÐUR Guðlaugs-
dóttir myndlistarkona opnar á
morgun, laugardag, klukkan
16 sýningu í Suðsuðvestur,
sem er við Hafnargötu 22 í
Keflavík.
Sýninguna kallar hún
Vulvu.
Verkin eru unnin á þessu
ári en í þeim veltir Valgerður
kvenímyndinni fyrir sér á
ýmsa vegu. Myndir af
Playboy-fyrirsætum, tilfinningaskæruliðar og
kona með einhyrningshorn koma fyrir, ásamt því
að fylgst er með ævintýrum prjónadúkkukonu.
Sýningin er opin frá klukkan 14-17 um helgar
eða eftir samkomulagi í síma 662 8785.
Myndlist
Valgerður sýnir
í Suðsuðvestur
Hluti af einu verka
Valgerðar
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
SINDRI silfurfiskur syndir af stað í Kúlunni, barnaleik-
húsi Þjóðleikhússins klukkan 13.30 á morgun, laugardag,
þegar samnefnt leikrit eftir Áslaugu Jónsdóttur verður
frumsýnt.
Sagan um Sindra silfurfisk er hugljúft ævintýri fyrir
börn frá þriggja ára aldri og upp úr. Sindri á sér þann
draum að verða gullfiskur og á leið sinni um hafdjúpin
hittir hann skrýtin og skrautleg sjávardýr, sum hver
býsna hættuleg.
Sjávardýrin í sýningunni eru að uppistöðu úr sýning-
unni Krukkuborg, sem Þórhallur Sigurðsson leikstýrði í
Þjóðleikhúsinu árið 1978. Una Collins teiknaði sjáv-
ardýrin og skapaði þau ásamt formlistamönnum leikhúss-
ins á þeim tíma.
Fyrir skömmu komu sjávardýrabrúðurnar í ljós í
geymslum Þjóðleikhússins. Þórhallur vildi gefa þeim nýtt
líf, sýndi Áslaugu brúðurnar og hún réðst í að skrifa þetta
nýja verk.
„Já, hann sýndi mér þessar brúður sem eru enn svo
sprækar; hann kynnti mig fyrir töfrum þeirra og lét
nokkra fiska synda yfir sviðið í réttum ljósum,“ segir Ás-
laug sem hreifst af því sem hún sá.
„Ég ljósmyndaði fiskana og horfði á þá, reyndi að sjá út
hver „persónuleiki“ þeirra væri.“
„Teikna mig inn í annan heim“
Stefán Jörgen Ágústsson brúðugerðarmeistari bjó svo
til nýjar persónur, eins og Sindra, kolkrabba, hval og há-
karl. „Þessir stóru gömlu fiskar eru mjög fallegir en
Sindri hinsvegar einfaldur að lit og lögun, og hann fær að
heyra það,“ segir Áslaug. „Sindri er að upplagi glaður og
kátur og hans mesta yndi að synda hring eftir hring, en
hann fær að heyra að hann sé ekki nógu fínn eða spenn-
andi. Þeir segja að hann hljóti að vera misheppnaður gull-
fiskur, þannig að hann þarf að komast að því hvort hann
geti orðið svo glæsilegur. „Sindri kemst að raun um hver
hann er – hann þarf að standa á sínu og uppgötvar að það
er ekki sem verst að vera eins og hann er.“
Elva Ósk Ólafsdóttir leikur í sýningunni, þrír brúðu-
stjórnendur stjórna sjávardýrunum og ljá tólf leikarar
þeim raddir sínar.
Áslaug er ekki nýliði í leikhúsinu því hún vann áður
leikgerð upp úr sögu sinni Gott kvöld. Hún segir að vissu-
lega séu þetta ólík form, að semja leikverk eða skrifa og
teikna barnabók.
„Um leið eru ákveðnir þættir nokkuð líkir, því í mynda-
bókunum er ég að raða karakterum á einskonar svið.
Teikna mig inn í annan heim.
En í leikhúsinu er svo mikil samvinna, þar geri ég ekk-
ert ein heldur kem með hugmyndir sem aðrir útfæra. Það
er svo frábært fólk í sýningunni – fólkið bak við tjöldin.“
Silfurfiskur í leit að gulli
Barnaleikritið Sindri silfurfiskur verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í dag
„Sindri þarf að standa á sínu,“ segir höfundurinn, Áslaug Jónsdóttir
Stefnumót Sindri silfurfiskur hittir litfagra en fjarskylda ættingja í hafdjúpunum.
Áslaug Jónsdóttir er höf-
undur barnaleikritsins Sindri
silfurfiskur. Hún starfar sem
myndskreytir, barnabókahöf-
undur, myndlistarmaður og
grafískur hönnuður.
Áslaug hefur átt myndir og
texta í fjölda barnabóka frá
árinu 1990. Meðal bóka henn-
ar eru Stjörnusiglingin, Eggið
og Sex ævintýri. Hún fékk
Dimmalimm-verðlaunin tvö ár
í röð, fyrir Nei! sagði litla
skrímslið og Gott kvöld. Fyrir
síðastnefndu bókina hlaut
hún jafnframt Barna-
bókaverðlaun menntaráðs
Reykjavíkur.
Fjölhæfur barnabókahöfundur og myndskreytir