Morgunblaðið - 30.10.2009, Qupperneq 43
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd með ísl. tali kl. 4 og 6
SÝND Í SMÁRABÍÓI
HHH
„Teikningarnar og tölvu-
grafíkin ber vott um
hugmyndaauðgi og er afar
vönduð, sannkallað konfekt
fyrir augað.”
-S.V., MBL
„9 er allt að því framandi
verk í fábreytilegri
kvikmyndaflórunni, mynd
sem skilur við mann dálítið
sleginn út af laginu og
jákvæðan”
-S.V., MBL
Sýnd kl. 8 og 10:15
SUMIR DAGAR...
HHHHH
A.K., Útvarpi Sögu
HHHHH
A.G., Bylgjan
HHH
– S.V., MBL
4 PÖR FARA SAMAN Í
FERÐALAG TIL HITABELTISEYJU
650kr.
HHH
„Tímamótamynd!”
– Erpur Eyvindarson, DV
HHH
– Sæbjörn Valdimarsson, Mbl
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Bíómynd fyrir
alla krakka
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
AÐRA VIKUNA Í RÖÐ!
21.000 MANNS FYRSTU 13 DAGANA!
SÝND Í SMÁRABÍÓI
HVAÐ GÆTI
MÖGULEGA FARIÐ
ÚRSKEIÐIS?
Sýnd kl. 3:30, 5:40, 8 og 10:15 (Powersýning)
EINGÖNGU
SÝND Í 2 VIKUR
ÁÐUR ÓSÉÐ MYNDEFNI
SEM HEIMURINN
HEFUR BEÐIÐ EFTIR
UPPLIFÐU LISTAMANNINN
EINS OG ÞÚ HEFUR
ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR.
SÍÐUSTU SÝNINGAR
POWER
SÝNIN
G
Á STÆ
RSTA D
IGITAL
TJALD
I LAND
SINS
KL. 10
:15
„Mynd sem þú verður að
sjá í bíó til að fá tónlistina
og upplifunina beint í æð.”
H.A., FM 957
650kr.
„Í alla staði stórskemmtileg
og áhugaverð, enda söguleg.
Mynd sem ALLIR ættu að hafa
gaman af.”
H. K., Bylgjan
„Loksins sá maður
tónlistarmanninn á bak
við grímuna. Gaman að
skoða á bak við tjöldin og
hljómurinn er einstaklega
góður.”
R. R., Bylgjan
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SUMIR DAGAR...
NÝ ÍSLENSK GAMANMYND
HHH
„Jóhannes er myndin
hans Ladda, hún er
röð af bráðfyndnum
uppákomum sem
hann og pottþétt
aukaleikaralið koma
frábærlega til skila
svo úr verður ósvikin
skemmtun. ...Sann-
kölluð „feelgood”-
mynd, ekki veitir af.”
– S.V., MBL
HHHHH
„Þetta er alvöru
tær snilld.”
A.K., Útvarpi Sögu
HHHHH
„Æðisleg. Þetta er
það besta síðan
Sódóma Reykjavík“
A.G., Bylgjan
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI AÐRA VIKUNA Í RÖÐ!
21.000 MANNS FYRSTU 13 DAGANA!
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
Þú færð 5%
endurgreitt
í Smárabíó
með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
This is It kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Jóhannes kl. 4 - 6 - 8 - 10 LEYFÐ
This is It kl. 5:30 - 8 - 10:30 Lúxus 9 kl. 4 B.i.10 ára
Zombieland kl. 6 - 8 - 10 B.i.16 ára Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára
Friðþjófur forvitni (ísl. tal) kl. 3:40 (650 kr.) LEYFÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2009
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„BÍDDU aðeins, ég þarf að
lækka aðeins í græjunum,“ seg-
ir Sigurður er blaðamaður slær
á þráðinn. „Við erum að blasta
Napalm Death …“
Sigurður er einn þeirra lista-
manna sem eru með verk á Se-
quences-hátíðinni sem hefst í
kvöld en atburður hans hefst kl.
21.30 á planinu framan við Salt-
félagið sem staðsett er við
Granda.
Um er að ræða annan hluta í þríleik sem hófst
í Nýlistasafninu í janúar á þessu ári. Honum
lýkur svo í Hlöðunni á Vogum á Vatnsleysu-
strönd í mars 2010. Sigurður segir að verkefnið
samanstandi af kraftmiklum atburðum sem
fjalla um dauðleika, drauma og heilagleika og
hefur hann nýtt sér efni úr dauðarokkssenum
landsins til að móta verkið.
Andrúmsloft
„Þetta snýst um að búa til ákveðið andrúms-
loft,“ segir Sigurður. „Í Nýló fór þetta þannig
fram að einn viðburður tók við af öðrum en nú
verður allt í gangi í einu. Ég
mun stefna saman dauðarokks-
sveitum, einni nústarfandi og
einni sem var hvað virkust fyrir
fimmtán árum. Þannig verður
hljómsveitin Severed Crotch
inni í vinnuskúr að spila og svo
verður flutt hljóðverk sem er
unnið úr lögum dauðarokks-
sveitarinnar Cranium sem ég
var meðlimur í. Myndbands-
verki verður þá varpað upp í
risastórri upplausn á húsvegg
og rammar það inn sýning-
arstaðinn og svo verður ýmislegt annað í gangi
þarna.“
Sigurður segir eðlilega erfitt að lýsa svona at-
burði í orðum; en hann sé m.a. að skoða þessa
dauðarokkssenu í nýju samhengi, þ.e. myndlist-
aramhengi.
Fegurð
Þeir sem sóttu fyrsta hluta verkefnisins upplifðu
öfluga, kraftmikla stemningu sem byggðist á
háværum hljóðum, myrkri og skuggalegheitum.
„En svo er ég líka að leita uppi fegurðina sem
felst í þessari list, þessu umhverfi sem dauða-
rokkarar starfa í.“
Sigurður segir að í lokaþættinum, sem fram
fer í Hlöðunni á Vogum, verði nokkurs konar
lokahnútur bundinn og hlutir og annað úr fyrri
þáttum verði til sýnis.
„Allir þessir atburðir hafa orðið til í samstarfi
við aðra listamenn,“ segir Sigurður að lokum.
„Hljómsveitir og aðrir tengdir senunni hafa lagt
gjörva hönd á plóg og þeir Magnús Árnason,
Bjarni Gríms og Ófeigur Sigurðsson, sem
fylgdu mér allir í upprunalegu senunni, hafa
verið virkir með mér í þessu.“
Dauðarokksþríleikurinn
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Efniviður Severed Crotch er hluti af verki Sigurðar.
Sigurður Guðjónsson setur upp atburð á
Sequences sem er partur af þríleik Undirtónn-
inn er hræringar í íslensku dauðarokkssenunni
www.sequences.is
Sigurður Guðjónsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg