Morgunblaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.11.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2009 Meiri þægindi og aukið geymsluþol Nú er MS rjóminn í ½ l umbúðum með tappa. 12 daga geymslu - þol H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 – 0 4 8 7 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Alfons Finnsson ,,ELSKAN mín, ertu að spyrja um aflabrögð?“ sagði Pétur Bogason hafnarvörður í Ólafsvík í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Ég get sagt þér að þau eru vægast sagt lé- leg,“ hélt Pétur áfram. „Það eru tveir dragnótarbátar bún- ir að landa núna, annar var með 700 kíló og hinn með 900 kíló. Einn bátur lagði netin í dag [í gær] svo þar er kannski ljósið í myrkrinu ef hann fær góðan afla,“ sagði Pétur. Skást hjá línubátunum Línubátarnir hafa verið að fá ágæt- is afla þegar þeir komast á sjó vegna veðurs. Pétur segir að ýsuaflinn sé miklu minni en áður en talsvert meira af þorski. Pétur bætir því við að tveir bátar séu á skötuselsveiðum um þess- ar mundir en aflinn dræmur. Hand- færabátar hafa farið á sjó en aflinn þar er einnig mjög lélegur. ,,Aflabrögðin hljóta að lagast á næstunni,“ segir Pétur og bendir á að það sé stærsti straumur sem geti haft áhrif á aflabrögðin. Lélegur afli á flestum veiðum á Snæfellsnesi Aflabrögðin hljóta að lagast á stærsta straumi Morgunblaðið/Alfons Finnsson Löndun Dragnótarbáturinn Ólafur Bjarnason var með 900 kíló eftir daginn. Lárus Einarsson vann við löndun úr bátnum í Ólafsvík í gærkvöldi. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is HAFTIÐ milli bormanna í Óshlíðargöngum gaf sig við sprengingu í fyrradag. Því hefur opnast á milli fyrr en áætlað var. Göngin verða þó ekki opnuð umferð fyrr en næsta sumar. Sprengingar hafa gengið illa í Óshlíðargöngum und- anfarna mánuði vegna erfiðra setlaga og tilheyrandi hruns, að sögn Rúnars Ágústs Jónssonar, staðarstjóra hjá Ósafli. Fyrirhugað var að opna á milli Hnífsdals- og Bolungarvíkurleggjanna 28. nóvember næstkomandi og var reiknað með að Kristján Möller samgönguráðherra og fleiri gestir gætu verið viðstaddir. Átti að skilja eftir þriggja til fjögurra metra haft fyrir athöfn. Það fór hins vegar svo að við litla sprengingu í fyrradag hrundi efri hluti haftsins og göngin opnuðust. Rúnar Ágúst segir að vegna öryggis starfsmanna hafi strax verið gengið í það að ljúka við að sprengja haftið og styrkja loft og veggi svo ekki stafaði hætta af frekara hruni. Á næstunni verður unnið að sprengingum fyrir síð- asta útskoti ganganna ásamt bergstyrkingum. Göngin verða hreinsuð og grafnir skurðir. Síðar verða lagðar lagnir og rakablettir klæddir og rafmagn lagt um göng- in. Rúnar Ágúst taldi líklegt að einhverjir starfsmenn hefðu þegar ekið í gegn en hann sagði að göngin yrðu ekki opnuð fyrir umferð á meðan þar væri unnið. Síðustu sprengingunni verður fagnað með viðhöfn 28. nóvember, eins og áformað var, en í stað þess að sprengja síðasta haftið mun samgönguráðherra vænt- anlega sprengja fyrir síðasta útskotinu. Óshlíðargöngin liggja á milli Ísafjarðar og Bolungar- víkur og eru liðlega fimm kílómetra löng. Bormenn opnuðu Óshlíðargöng óvænt Slógu í gegn tólf dögum fyrir áformuð hátíðahöld Reiknað með að samgönguráðherra sprengi síðasta útskotið HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur dæmt tvo 22 ára karl- menn í fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku. Mennirnir, sem áttu báðir í kynferðislegu sam- bandi við stúlkuna, voru dæmdir í tuttugu og átján mánaða fangelsi. Meirihluti refsinganna er bundinn skilorði. Annar maðurinn var fundinn sek- ur um að hafa haft samræði við stúlkuna í tugi skipta á tímabilinu frá desember 2007 til febrúar 2008. Hann var einnig fundinn sekur um að hafa hótað henni á MSN-síðu hennar á netinu og sagt m.a. að ef stúlkan hætti ekki að bulla um að hann og félagi hans hefðu nauðgað henni færi hún og fjölskylda hennar að lenda í óvæntum slysum. Dómar voru skilorðsbundnir Sá var dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi en refsingu átján mánaða frestað haldi maðurinn almennt skil- orð til þriggja ára. Hann var jafn- framt dæmdur til að greiða stúlk- unni 450 þúsund krónur í miskabætur. Hinn maðurinn var fundinn sekur um að hafa átt í kynferðislegu sam- bandi við stúlkuna á fyrri hluta árs- ins 2008, en einnig fyrir umferðar- lagabrot og fíkniefnalagabrot. Maðurinn var dæmdur í átján mánaða fangelsi en fimmtán mánuð- ir voru bundnir skilorði. Auk þess var hann dæmdur til að greiða stúlk- unni 400 þúsund krónur í bætur auk málskostnaðar, sem nam rúmum 900 þúsund krónum, og 400 þúsund króna sektar í ríkissjóð. Dæmdir fyrir kynferðisbrot Brotin voru framin gegn 14 ára stúlku Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sekir Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt tvo í fangelsi fyr- ir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. SALA á jólabjórnum hefst í vínbúð- um Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á morgun, fimmtudag. „Viðskiptavinir bíða margir spenntir eftir jólabjórnum, en mik- ið hefur verið spurt um það hvenær hann berst í Vínbúðir,“ segir á heimasíðu ÁTVR. Þar er jafnframt upplýst að sex- tán tegundir af jólabjór verði til sölu fyrir þessi jól. Einhverjar nýjar tegundir bætast í hóp jólabjóranna í ár, en að öðru leyti ættu viðskiptavinir að þekkja flestar tegundir frá fyrri árum, segir á heimasíðunni. Að þessu sinni verða bæði ís- lenskar og erlendar tegundir á boð- stólum. Flest íslensku brugghúsin munu bjóða viðskiptavinum upp á jólabjór. Hefur færst í vöxt á und- anförnum árum að þau bruggi jóla- bjór. sisi@mbl.is Sextán tegundir af jólabjór verða á boðstólum í vínbúðunum fyrir þessi jól Morgunblaðið/Ómar BIÐTÍMI eftir bólusetningu gegn svínaflensu er nú ríflega tvær vikur, fólk sem pantar tíma í slíka bólu- setningu nú fær yfirleitt tíma í byrjun desember. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að bólu- setning hafi gengið nokkuð treglega framan af nóv- ember en eftir næstu helgi fari bóluefni að berast í stórum vikulegum skömmtum. Eftir þann tíma ætti því að minnsta kosti ekki að standa á bólu- setningum vegna skorts á efni. Hann segir enga ástæðu fyrir fólk að hætta við bólusetninguna, þó að biðin sé þetta löng, en flensan er nú í mikilli rén- un. „Allur tími er góður tími til að láta bólusetja sig. Við erum að búa okk- ur undir næstu bylgju,“ segir hann. Þótt fólk sleppi við flensuna í þessari bylgju komi flensan aftur og þá komi bólusetningin til góða. Biðtími eftir bólusetningu gegn svínaflensu er nú ríflega tvær vikur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.