Skólablaðið - 01.12.1958, Page 3
IN MEMORIAM
ÁRNI HANNESSON
FÆDDUR 4.0KT. 1940
DÁINN 1. NÓV. 1958
ÞEGAR ég frétti lát vinar míns og bekkjarbréður Árna Hannessonar, þyrmdi
yfir mig. Það var erfitt að sætta sig við þessa staðreynd, en vegir Guðs eru orann-
sakanlegir. Og minningarnar komu upp í huga mínum, minningar um samverustundir
okkar bæði í blíðu og stríðu. En þo er það sárabot að hafa orðið þess aðnjótandi að
kynnast öðrum eins dreng, því að Árni var drengur góður í beztu merkingu þess orðs.
Árni fæddist hér í Reykjavík 4. október 1940, sonur hjónanna Oddnýjar A.
Bjarnadóttur og Hannesar B. Árnasonar póstmanns og var hann elztur barna þeirra.
Hann varð brátt efnispiltur og náði frábærum árangri í námi þegar á barnaskólaár-
unum. Þegar skyldunámi lauk innritaðist hann í Gagnfræðaskólann við Vonarstræti og