SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Síða 8
8 11. apríl 2010
Mörg lýsingarorð í hæsta stigi hafa verið
notuð um Lionel Messi á undanförnum ár-
um en sem aldrei fyrr í vikunni, eftir
ógleymanlega frammistöðu gegn Arsenal.
Arsène Wenger, knattspyrnustjóri enska
liðsins, vildi að vísu ekki fullyrða að Messi
væri þegar kominn á lista yfir þá allra bestu
en „ef ekkert kemur fyrir Messi eru honum
allir vegir færir“.
Af öðrum heimi
„Hann er af öðrum heimi,“ var haft eftir
Wenger í enska blaðinu Sun daginn fyrir
leikinn. „Fólk fer á völlinn til þess að horfa
á leikmenn eins og Messi. Það sem hann
býður upp á er list.“
Wenger sagði ennfremur: „Það sem
Messi gerir hefur aldrei verið gert áður af
leikmanni á þessum aldri.“
Rétt er þó í því sambandi að benda á að
Brasilíumaðurinn Pelé fór hamförum á HM í
Svíþjóð 1958 – aðeins 17 ára – og gerði
m.a. tvö mörk í úrslitaleiknum þar sem
Messi og segir alla hafa gert sér grein fyrir
hæfileikum framherjans smávaxna strax
þegar hann kom til Spánar.
„Ég man eftir fyrstu æfingunni hans með
okkur. Hann var svo lítill að við vorum ótta-
slegnir að koma við hann; héldum að við
myndum slasa hann.“
Ómögulegt að ná honum
Piqué segir suma þjálfarana hafa beðið
aðra leikmenn vinsamlega að tækla Messi
ekki of harkalega. „En þó að við vildum það
gátum við það ekki. Hann var svo fljótur að
það var ómögulegt að ná honum!“
Áhugamenn um samanburð á knatt-
spyrnmönnum ættu að setjast við sjón-
varpið í kvöld, laugardag, og horfa á risa-
slaginn á Spáni, El Clasico, þegar Real
Madrid tekur á móti Barcelona í deild-
arkeppninni. Þar gengur hver snillingurinn
af öðrum inn á grasið og spennandi verður
að sjá hvor listamaðurinn hefur betur,
Messi eða Ronaldo. Góða skemmtun!
Brasilía sigraði Svíþjóð 5:2. Pelé varð þrisv-
ar heimsmeistari. Því má ekki gleyma.
Wenger segist hafa talið fyrir tveimur ár-
um að Messi hafi verið orðinn það góður að
hann gæti ekki bætt sig – „en veit nú að ég
hafði ekki rétt fyrir mér …“
Diego Maradona, landsliðsþjálfari Arg-
entínu, lýsti því yfir fyrir nokkrum árum að
Messi væri „arftaki“ hans í argentínskri
knattspyrnu. Maradona var stórkostlegur
leikmaður en hefur átt í miklum erfiðleikum
utan vallar. Ánetjaðist snemma fíkniefnum
og hefur áminnt landa sinn að ganga hægt
um gleðinnar dyr. Ekki virðist hætta á því
að Messi misstígi sig; hann þykir drengur
góður og afskaplega jarðbundinn. Heil-
brigðið holdi klætt.
Deilurnar um það hvort Maradona eða
Brasilíumaðurinn Pelé sé besti leikmaður
sögunnar gætu brátt heyrt sögunni til, að
sögn Maradona. „Og hið besta við það er
að Messi er argentínskur.“
Gerard Piqué, varnarmaðurinn öflugi hjá
Barcelona, var í unglingaliði félagsins með
Það sem Messi býður upp á hefur enginn gert á þessum aldri
Meistari Messi virðist þakka æðri máttar-
völdum eftir hvert mark sem hann gerir.
Reuters
A
rgentínumaðurinn Lionel Andrés Messi
hjá spænska félaginu Barcelona er að-
eins 22 ára og lágvaxinn en er þegar
orðinn einn af risum knattspyrnusög-
unnar.
Sígilt þrætuepli áhugamanna um íþróttina fögru
er það hver sé bestur. Nú er mest rætt um Messi og
Portúgalann Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid.
Einnig eru nefndir Wayne Rooney hinn enski hjá
Manchester United, Spánverjarnir Xavi hjá Barce-
lona og Fernando Torres hjá Liverpool. Listinn er
að sjálfsögðu langur en þegar öllu er á botninn
hvolft skiptir auðvitað ekki máli hver er bestur;
knattspyrna er liðsíþrótt og frammistaða heildar-
innar aðalatriðið.
En samt; alltaf standa einhverjir upp úr. Bera af.
Áhorfendur vilja láta skemmta sér og enginn gerir
það af meira listfengi þessa dagana en Messi; hann
virðist einstakur. Gríðarlega fljótur, kraftmikill,
útsjónarsamur og leikinn – vald hans á boltanum
er slíkt að klisjan um að hið hnöttótta verkfæri sé
límt við fót knattspyrnumanns á vel við. Þegar
Messi tekur einn af sínum frægu sprettum með
boltann er nánast ómögulegt að stöðva hann.
„Að mínu mati er hann besti leikmaður heims í
dag – sá langbesti,“ sagði Arsene Wenger, þjálfari
Arsenal, eftir að Barcelona burstaði lið hans, 4:1, í
átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Spáni í
vikunni. Messi gerði öll mörkin fjögur, hvert öðru
glæsilegra.
Pilturinn fæddist 24. júní 1987 í borginni Ros-
ario í Argentínu. Faðir hans, Jorge Horacio Messi
vann í verksmiðju og móðirin, Celia María Cuc-
cittini við skúringar í hlutastarfi. Föðurfjölskyldan
á rætur að rekja til ítölsku borgarinnar Ancona en
þaðan fluttist forfaðir Lionels, Angelo, árið 1883.
Okkar maður hóf að æfa knattspyrnu fimm ára
hjá Grandoli, liði sem faðir hans þjálfaði, en árið
1995 gekk hann til liðs við Newell’s Old Boys í
heimaborginni.
Messi var alltaf sá fljótasti en líka minnstur,
raunar svo lítill að mönnum var hætt að lítast á
blikuna. Í ársbyrjun 1997, þegar Messi var aðeins
níu ára, leitaði fjölskylda hans og Newell’s Old Bo-
ys til innkirtlafræðings sem skar úr um að lík-
aminn framleiddi óeðlilega lítið vaxtarhormón og
ef ekkert yrði að gert yrði strákurinn líklega ekki
stærri en tæpir 145 cm á hæð fullvaxinn. Gripið var
til þess ráðs að sprauta hann með vaxtarhorm-
ónum á hverju kvöldi.
Stórlið River Plate sýndi leikmanninum áhuga
snemma en hætti við þegar fjölskyldan fór þess á
leit að félagið greiddi fyrir hormónagjöfina, and-
virði um 1.000 Bandaríkjadala á mánuði. Um 130
þúsund krónur miðað við gengi krónunnar í dag.
Sagan segir að þegar Carles Rexach, útsendari
Barcelona og gamall leikmaður félagsins, sá Messi í
leik á þessum tíma hafi hann hrifist svo mjög að
hann rissaði drög að samningi við fjölskylduna á
servíettu og úr varð að fjölskyldan flutti til Spánar
árið 2000, þegar Messi var 13 ára. Barcelona var
ekki í vandræðum með að greiða fyrir lyfjagjöfina.
Messi lék til að byrja með í unglingaliðum
Barcelona en tók þátt í fyrsta leiknum með aðalliði
í deildarleik gegn nágrannaliðinu Espanyol 16.
október 2004, aðeins 17 ára og 114 daga.
Ég á boltann! Hetjan Messi eftir stórbrotna frammistöðu gegn Arsenal í
Meistaradeildinni á þriðjudaginn var. Í leik virðist hann oft eiga boltann!
Reuters
Er hægt að vera
betri en þetta?
Messi þegar í hópi mestu
knattspyrnumanna sögunnar
Vikuspegill
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Messi fagnar einu af mörkunum gegn Arsenal.
Reuters
Brasilíumaðurinn Pelé, sem
margir telja bestan allra frá
því knattspyrnan var fundin
upp, er 1,73 m á hæð, Messi
1,69 og argentínska goðsögn-
in Diego Maradona aðeins
1,65. Á myndinni eru Messi
og Pablo Zabaleta fyrirliði eftir
að Argentína varð heims-
meistari ungmenna 2005. . Reuters
Margur er knár
þótt smár sé