SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 52

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 52
52 11. apríl 2010 Einn dag, í kunningjahópi, barst talið að Litla prinsinum, hinni fallegu sögu An- toine de Saint Exupéry. Ein stúlka í hópnum sagðist aldrei hafa lesið þá bók. „Mjög margir gráta þegar þeir lesa þessa bók,“ sagði töffarinn í hópnum og ekki varð betur séð en að hann væri að gefa í skyn að jafnvel hann leyfði sér að klökkna við lesturinn. Áhugi stúlkunnar var samstundis vakinn. Hún sagðist svo gjarnan vilja lesa bók sem kæmi henni til að gráta. Svo fór hún heim að lesa og til- kynnti daginn eftir að hún hefði sann- arlega grátið, og bara grátið heilmikið. Það er eitthvað saklaust og fallegt við tárin sem falla við lestur skáldskapar. Þegar við erum hrifnæm börn með ríka innlifunarhæfileika þykir okkur eðlilegt að gráta yfir því sem okkur finnst sorg- legt. En lífið herðir fólk, rænir það sak- leysi og hrifnæmi og gerir það skynsamt. Þetta eru ekki með öllu góð örlög. Ein- staka sinnum losnum við þó undan áþján yf- irvegunar og lif- um okkur svo inn í bók að við brestum í grát við lesturinn. Á sínum tíma, á unglingsárum, grét ég með ekka yfir Heimsljósi Laxness. Þolinmæði og göfuglyndi Ólafs Kárasonar í öllum hans ótal raunum reyndi verulega á sálarlíf mitt. Mér fannst að hann hefði ekki átt að þurfa að þola svona mikið. Um daginn las ég bókina aftur og felldi ekki tár, sem mér fannst heldur leiðinlegt. Ég hefði svo gjarnan viljað lifa upp að nýju þær sterku kenndir sem þessi tilfinninga- sama skáldsaga vakti hjá mér á sínum tíma. Svo las ég Litla prinsinn og eftir lest- urinn hágrét ég. Þegar ég lét loks huggast – að lokum lætur maður alltaf huggast – áttaði ég mig á því að ég hef sennilega les- ið Litla prinsinn um það bil tíu sinnum á ævinni, og í hvert sinn hef ég grátið eins og ég hafi verið að frétta andlát einhvers sem mér þótti afskaplega vænt um. Ég þekki fólk sem finnst að það þurfi að vera mjög gáfað meðan það les bækur. Það lætur næstum því eins og það sé í greindarprófi á meðan það les. Þessu fólki finnst ekki við hæfi að gráta yfir því sem gerist í bókum. Því finnst að það megi ekki fréttast að fólk hafi misst stjórn á sér, grátið og beðið þannig ósigur fyrir höfundinum, sem á endanum reyndist gáfaðri en það sjálft. Sjálfri finnst mér alltaf langskemmtilegast þegar skáld- skapurinn sigrar mann. Lestur- inn og tárin Orðanna hljóðan Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is ’ Einstaka sinnum losnum við þó undan áþján yfirveg- unar og lifum okkur svo inn í bók að við brestum í grát við lesturinn. R afik Schami fæddist í Damas- kus 1946 í kristna fjölskyldu og var reyndar gefið nafnið Suheil Fadél. Hann ólst upp í Damas- kus og gekk þar í háskóla og nam efna- fræði. Hann byrjaði ungur að skrifa sögur á arabísku og tók þátt í að stofna bók- menntarit sem hann ritstýrði frá 1964 til 1970. 1971 hélt hann í framhaldsnám til Þýskalands og starfaði þar við ýmsa verkamannavinnu til að fjármagna nám- ið og lauk síðan doktorsnámi í efnafræði frá háskólanum í Heidelberg 1979 og vann sem efnafræðingur í Þýskalandi næstu árin. Hann hélt áfram að skrifa, hratt af stað félagsskap rithöfunda sem kallaðist Sunnanvindur, Südwind, 1980 og einnig fjölþjóðlegt bóka- og listafélag, PoLiKunst eða Polinationaler Literatur- und Kunstverein, og tveimur árum síðar sneri hann sér alfarið að skriftum. Schami hefur jafnan verið framarlega í flokki þeirra rithöfunda sem settust að í Þýskalandi á tímum þjóðflutninga sjö- unda og áttunda áratugarins, en þá streymdu til Þýskalands verka- og iðn- aðarmenn frá Grikklandi, Tyrklandi, Marokkó. Með verkamönnunum bárust nýir straumar í listum og menningu og á áttunda og níunda áratugnum voru að- fluttir rithöfundar, líkt og Rafik Schami, áberandi í þýsku menningarlífi. Þeir glíma við það að vera ævinlega gestir í nýja landinu; verða aldrei Þjóðverjar þó þeir fái þýskan ríkisborgararétt, eignist þýska maka og þýsk börn og þegar þeir snúa heim til gamla landsins í heimsókn eru þeir gestir þar líka. Helsta bók Schamis er Skuggahlið ást- arinnar, Die dunkle Seite der Liebe, sem kom út á ensku á síðasta ári undir heitinu The Dark Side of Love, bók sem segir í senn morðsögu og ástarsögu. Við kapellu í Damaskus hangir karfa og í henni er lík liðþjálfa. Hin illræmda leyniþjónusta tekur málið að sér, en lögregluforinginn Darudi er ekki sáttur við það og tekur til við að rannsaka morðið á eigin spýtur. Fljótlega blandast í rannsóknina ætt- bálkar í borginni Mala í fjöllunum utan við Damaskus, en þar búa kristnir menn sem tala aramísku. Í þorpinu takast á kaþólskir, Mustaj-ættin, og rétttrún- aðarmenn, Shahin-ættin, og hafa gert lengur en elstu menn muna, og saga elskendanna Farids Mushtaks og Rana Shahins virðist lykillinn að öllu saman. Sögurnar sem við rekumst á eru þó fleiri, sumar stuttar aðrar langar, sumar harmþrungnar, aðrar eiginlega kímni- sögur og á köflum er eins við séum að lesa nútímalega gerð 1001 nætur sem er ákall um umburðarlyndi og tilraun til að sýna fram á að arabískt samfélag sé ekki eins einsleitt og við teljum, þar þrífast fjölmargir trúflokkar og allskyns fólk. Schami er þó líka að segja sögu Sýrlands á síðustu öld; hermenn skiptust á að ræna völdum, landið var hernumið af Frökk- um um tíma, gekk í ríkjasamband við Egyptaland og smám saman fjaraði und- an umburðarlyndinu eftir því sem línur skerptust í pólitíkinni; hver nýr ráða- maður reyndi að tryggja völd sín með því að ráðast á einhvern minnihlutahópinn eða etja saman trúarhópum. Þegar það dugði ekki gripu menn síðan til klass- ískra verkfæra einræðisherra: pyntinga, fangelsunar án dóms og laga, launmorða og spillingar. Önnur söguhetjan, Farid, er einmitt dæmi um Sýrlending síðustu áratuga (saga Farids og Rana gerist á sjö- unda og áttunda áratugnum) – hann gengur í alla þá andspyrnuflokka sem hægt er að ganga í og hlýtur bágt fyrir. Að þessu sögðu þá er bókin ekki bara um Sýrland og Farid og Rana; hún er líka saga Damaskus, jasmínborgarinnar, elstu borgar heims. Ást Schamis á borginni er hvarvetna sýnileg og hann lýsir borg æsku sinnar á hrífandi og eftirminnilegan hátt. Víst er það hluti af því að vera út- lagi, þó sjálfskipaður sé; að horfa heim til gamla landsins og sjá allt í hillingum; að halda í minningu um heimaland þegar maður situr fastur á milli heimalanda. Í lokakafla bókarinnar, 304. kaflanum, segir hann frá tilurð bókarinnar og því hvernig hann raðaði henni saman eins og mósaíkmynd sem er svo saman sett að menn sjá ekki litina fyrr en þeir eru búnir að raða saman hlutum hennar, köflunum 303. Þar er einnig að finna þessa setningu um hlutskipti útlagans: „Áður en ég fluttist til Þýskalands hafði ég ekki gert mér grein fyrir því að í útlegðinni hugsar maður um borgina sína á hverjum morgni. Í meira en þrjátíu og fjögur ár hef ég hugsað um Damaskus, fegurstu borg heims, í hvert sinn er ég vakna.“ Rafik Schami Ást í elstu borg heims Rithöfundurinn Rafik Schami hefur hugsað um Damaskus síðan hann fluttist þaðan fyrir fjörutíu árum. Skuggahlið ástarinnar er hylling borgarinnar sem hann saknar Árni Matthíasson arnim@mbl.is Lesbók
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.