SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 12
12 11. apríl 2010
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
N
afn íraska ljósmyndarans
Namir Noor-Eldeen, sem lést í
árás Bandaríkjahers á hóp
fólks í Bagdad, höfuðborg
Íraks, árið 2007, hefur birst víða í frétt-
um í vikunni, eftir að leynileg mynd-
bandsupptaka úr þyrlu bandaríska hers-
ins var birt á vefsíðunni Wikileaks.
Aðstoðarmaður Noor-Eldeen, bílstjórinn
Saeed Chmagh, lést einnig í árásinni.
Það leiðir hugann að því hve starf fjöl-
miðlamanna í stríði getur verið hættu-
legt en alls voru 137 blaðamenn og
aðrir starfsmenn fjölmiðla drepnir við
störf sín á síðasta ári skv. upplýs-
ingum IFJ, Alþjóðasambands blaða-
manna.
Hér er syrpa mynda frá Írak eftir No-
or-Eldeen, sem var aðeins 22 ára þeg-
ar hann lést. Hann fór ungur að taka
myndir og fetaði þar með í fótspor
föður síns. Þótti strax mikið efni og
var einn hinna fyrstu svokölluðu
„heimamanna“ sem Reuters þjálfaði
upp til þess að sinna ákveðnum
hættulegum svæðum sem þeir þekktu
Maí 2005 - Óbreyttir borgarar flytja burt lík manns, sem týndi lífi þegar öflug bílsprengja sprakk á fjölförnu stræti í Bagdad. Að minnsta kosti 17 létust og tugir særðust.
24. júlí 2005 - Árásarmaður borinn burt eftir sjálfsmorðssprengingu í miðborg Bagdad. Mars 2007 - Heimamenn eftir bílasprengju sem beint var gegn her og lögreglu í Bagdad.
Lífið og dauðinn
í gegnum linsu
Desember 2004 - Grjóti kastað að bandarískum herbíl sem varð fyrir sprengingu í Mosul