SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 45
11. apríl 2010 45
M
argir hafa reynt
sig við töfraten-
inginn (e. Rubik’s
Cube) frá því
hann kom fyrst á markað fyrir
réttum þrjátíu árum – með
misjöfnum árangri. Sumum
mun aldrei takast að leysa
þrautina enda þótt þeir verði
eitt hundrað
ára en aðrir
láta sér nægja
nokkrar sek-
úndur.
Heimsmetið á
hollenskt
ungmenni,
Erik Akk-
ersdijk að
nafni, en hann
þurfti ekki nema 7,08 sek-
úndur til að mynda litablokkir
á öllum hliðum teningsins
sumarið 2008.
Ekkert lát er á vinsældum
teningsins en hann hefur selst
í 350 milljónum eintaka um
allan heim. Í tilefni af þrítugs-
afmælinu veitti höfundur ten-
ingsins, Ungverjinn Ernõ Ru-
bik, viðtal, sem
Sunnudagsmogginn hefur
heimild til að vitna til. Þar
lýsir hann ánægju sinni með
útbreiðslu uppfinningar sinn-
ar, ekki vegna þess að hún hafi
fært sér frægð og frama heldur
vegna þess að hann er stoltur
af því að hafa skapað hlut sem
hafi glatt fólk út um allan
heim.
„Teningurinn er uppfullur af
mótsögnum,“ segir Rubik,
„hann er efnislegur, hand-
virkur og áþreifanlegur; þetta
er sakleysislegur og barnalegur
hlutur. Samt þarftu að beisla
óreiðuna til að leysa þrautina.
Teningurinn er í senn einfald-
ur og flókinn. Spurningin er
skýr en svarið snúið.“
Sumir segja að mögulegar
samsetningar séu óþrjótandi.
Það er ekki rétt. Þær eru ekki
nema 43.252.003.274.489.-
856.000! Það þýðir að menn
geta reynt að leysa þrautina
einu sinni á klukkustund á
hverjum einasta degi lífs síns
án þess að fara nokkru sinni
sömu leiðina. Styrkur tenings-
ins liggur ekki síst í því að
hann er hafinn yfir landamæri,
menntun og menningu. „Hann
endurspeglar lífið sjálft,“ út-
skýrir Rubik. „Frá blautu
barnsbeini höfum við tilhneig-
ingu til að einfalda marg-
breytileika heimsins til að
freista þess að skilja hann.
Töfrateningurinn er und-
irstöðuform, hrein flatarmáls-
fræði í þrívídd.“
Eðli málsins samkvæmt er
töfrateningurinn kjörinn til
keppni og á einum mánuði,
janúar síðastliðnum, fóru fram
mót í hvorki fleiri né færri en
sextán löndum, þeirra á meðal
Frakklandi, Kína og Ástralíu.
Á liðnu ári voru keppnirnar
alls 169 í 38 löndum. Mestrar
hylli njóta keppnirnar meðal
ungra manna, á tvítugs- og
þrítugsaldri.
Það þykir raunar undrum
sæta hversu vel teningurinn
hefur í einfaldleika sínum
staðist samkeppni frá háþró-
uðum tölvuleikjum. Rubik
hefur skýringuna á því á
reiðum höndum. „Teningurinn
kom til sögunnar á níunda
áratugnum, um svipað leyti og
veraldarvefurinn og einkatölv-
urnar. Fyrir vikið hafa kyn-
slóðirnar sem alist hafa upp
með honum aldrei upplifað
heiminn öðruvísi en tækni-
væddan. Samt heldur tening-
urinn áfram að töfra þá,“ segir
Rubik.
Tæknin kemur sér líka vel
fyrir skussana en finna má
hálfa fjórðu milljón lausna á
leitarforritinu Google, þ.e.
myndbönd, skrifaðar leiðbein-
ingar og bækur um það
hvernig leysa á þrautina.
Gera má því skóna að Ernõ
Rubik sé frægasti núlifandi
Ungverjinn, hann skákar jafn-
vel ódauðlegum listamönnum
á borð við Béla Bartók og
Franz Liszt. Samt hefur hann
aldrei borist á og hefur helgað
líf sitt kennslu. Rubik var
lengi prófessor við lista- og
hönnunarháskóla en er nú að
mestu sestur í helgan stein, 65
ára að aldri. „Ég hef helgað líf
mitt menntun. Ég lærði til
arkitekts en ílentist í háskóla-
samfélaginu og las fyrir í tutt-
ugu ár.“
Spurður hvort hann hafi í
hyggju að halda sérstaklega
upp á þrítugsafmæli sköp-
unarverks síns svarar Rubik
neitandi. „Mér leiðast afmæli.
Hversdagurinn skiptir mestu
máli í lífinu.“
Töfrateningurinn á ugglaust
marga slíka fyrir höndum.
orri@mbl.is
Að beisla óreiðuna
Ernõ Rubik
Saga hlutanna Töfrateningurinn þrítugur
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Sun 11/4 kl. 16:00
Sun 18/4 kl. 16:00 Ö
Fös 23/4 kl. 20:00
Fös 30/4 kl. 20:00 U
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
Gunni Þórðar - lífið og lögin (Söguloftið)
Lau 17/4 kl. 17:00
Lau 24/4 kl. 17:00
Sun 2/5 kl. 16:00
Lau 8/5 kl. 17:00
Fös 14/5 kl. 20:00
Lau 22/5 kl. 17:00
Fös 28/5 kl. 20:00
Jón Gnarr. Lifandi í Landnámssetri (Söguloftið)
Lau 10/4 kl. 20:00 Ö
Fös 16/4 kl. 20:00
Lau 24/4 kl. 20:00
Lau 1/5 kl. 20:00
Lau 8/5 kl. 20:00
Lau 15/5 kl. 20:00
Lau 22/5 kl. 20:00
Lau 29/5 kl. 20:00
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Hellisbúinn
Fös 16/4 kl. 20:00 Fös 23/4 kl. 20:00
Síðustu sýningar!
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Danstvennan Taka #2 (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Þri 13/4 kl. 20:00 Fim 15/4 kl. 20:00
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Upplýsingar um sýningar á
Borgarleikhus.is
Gauragangur HHHH EB, Fbl
Faust HHHH IÞ, Mbl
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Mbl., GB
Nánar á leikhus
id.is
Sími miðasölu
551 1200
Síðasta sýning 25. aprí
l
Tryggðu þér miða á þes
sa frábæru fjölskyldusý
ningu!
Brosmilt fólk er venjulega ham-
ingjusamara, býr yfir meira jafn-
aðargeði, er í traustari sam-
böndum og hefur meiri vitsmuni
og samskiptahæfni en aðrir, að
því er rannsóknir sýna. Nú hafa
vísindamenn ljóstrað upp um enn
einn ávinning af brosandi andliti
því fólk með breið bros lifir lengur.
Rannsóknin var gerð við Wayne
State-háskólann í Bandaríkjunum
og birt í sálfræðitímaritinu
Psychological Science. Myndir
voru skoðaðar af 230 hafnabolta-
mönnum sem allir hófu feril sinn
fyrir 1950. Þær voru stækkaðar
og það metið hversu ákaft menn-
irnir brostu. Þeir voru síðan flokk-
aðir eftir því hvort þeir brostu mik-
ið, lítið eða ekki neitt. Þessar
upplýsingar voru svo bornar sam-
an við upplýsingar um dauðsföll
þeirra.
Niðurstöðurnar voru svo leið-
réttar með tilliti til annarra þátta
sem taldir eru tengjast langlífi,
s.s. líkamsþyngdarstuðuls, lengd-
ar ferils, framaþróunar og mennt-
unar.
Í ljós kom að meðalævilengd
leikmanna sem brostu ekkert á
myndunum var 72,9 ár, þeir sem
brostu svolítið lifðu í 75 ár að
meðaltali en brosmildasti hóp-
urinn lifði hins vegar að jafnaði í
79,9 ár.
Brosa bæði blítt og breitt en ætli það bæti árum við lífið?
Reuters
Breitt bros lengir lífið