SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 44
44 11. apríl 2010
Talandi um Blur. „Erkióvinirnir“, Oasis, eru
með nýtt smáskífusafn klárt og kemur það
út 14. júní næstkomandi. Þegar grillin eru í
fullum gangi og bjórinn flýtur óhindrað um
sólbakaðar verandir þyrstir fólk gjarnan í
stuðvæna rokktónlist sem hægt er að
syngja með og þar koma bjórbullurnar og
strigakjaftarnir í Oasis sterkir inn. Safnið
kallast Time Flies … 1994-2009 og mun
innihalda allar 26 smáskífur sveitarinnar ut-
an „Sunday Morning Call“. Sérstök útgáfa
mun þá aukinheldur bera með sér 36 mynd-
bönd sveitarinnar.
Nýtt smáskífusafn
frá Oasis
Oasis er hún var á hátindi ferilsins.
Blur, 2009.
Eftir vikutíma eða svo kemur út spánnýtt lag
með bretapoppssveitinni endurreistu Blur.
Lagið kemur út á hinum svokallaða „plötu-
búðadegi“ hinn 17. apríl og verður fáanlegt
á sjötommu sem gefin verður út í takmörk-
uðu upplagi. Ekkert er vitað um titil lagsins
en það var tekið upp fyrir stuttu og kemur í
kjölfar tónleika sem sveitin hélt síðasta
sumar. Mun þetta vera fyrsta útgáfa sveit-
arinnar síðan smáskífa með laginu „Good
Song“ kom út fyrir sjö árum. Sjötomman
verður fyrsta útgáfan í röð sem EMI gefur út í
tengslum við nefndan dag, sem ætlað er að
minna á mikilvægi óháðra plötubúða. Einnig
koma út plötur með Bítlunum, Hot Chip og
Lily Allen.
Endurreist Blur
klárar nýtt lag
Margir eiga plötu sem breytti
lífi þeirra. Sumir stálplötu, sem
grædd var í þá eftir slys. Platan
sem breytti lífi mínu var ekki
stálplata. Hún var hljómplatan
Teenager of the Year með
Frank Black.
Frank Black, þá Black Franc-
is, sleit hljómsveitinni Pixies árið 1992,
við lítinn fögnuð aðdáenda hennar. Ári
seinna sendi hann frá sér plötuna Frank
Black, sem fáir gagnrýnendur skildu til
fulls. Þar sýndi hann þó tónlistarlega
snilldartakta sem voru langtum fremri
nokkru því sem hann hafði afrekað með
hljómsveitinni sinni.
Í júní 1994 kom svo það verk sem hér
er til umfjöllunar, Teenager of the Year.
Sá sem þetta ritar féll gjör-
samlega í stafi yfir þeim stór-
fenglegu hæfileikum sem lista-
maðurinn sýndi þar.
Tónlistin var eins og úr ann-
arri vídd – frumleikinn og
sprengikraftur sköpunarinnar
algjör. Maðurinn lék sér að
hinum ýmsu tónlistarstefnum, eins og
hann væri að gera grín að þeim og hæð-
ast að dauðlegum tónlistarmönnum sem
aldrei höfðu komist út úr aðþrengjandi
umgjörð hins hefðbundna.
Vínylplatan var tvöföld og lögin voru
22 talsins, hvert öðru snjallara. Líklega
hefur undirritaður ekki hlýtt oftar á
nokkra plötu, fyrr eða síðar. Engu að
síður hljómar hún nú, 16 árum síðar, al-
veg jafn stórkostlega og júnídaginn forð-
um.
Því er ekki að neita að Black, sem hef-
ur núna aftur tekið upp nafnið Black
Francis, hefur aldrei aftur náð þvílíkum
hæðum í tónlistarsköpun sinni, þótt hún
hafi verið ærin síðan. Á þessum langa
ferli hefur margoft glitt í sömu snilldina,
en aldrei hefur hann náð að gera jafn
heilsteypt listaverk.
Frank Black verður því að sætta sig
við að vera ætíð mældur á stiku sinna
fyrstu tveggja platna, sem tvímælalaust
teljast til höfuðverka hans og fremstu
listaverka popptónlistarsögunnar. Það er
auðvitað ósanngjarnt, en bláköld stað-
reynd engu að síður.
Ívar Páll Jónsson
Poppklassík Teenager of the Year – Frank Black
Stóra mælistikan sem Frank Black rogast með
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Þ
eir félagar í MGMT, Andrew Van-
wyngarden og Ben Goldwasser,
ákváðu eins og sannir listamenn að
vera ekki að eltast við það að end-
urtaka sig. Fyrsta plata dúettsins, Oracular
Spectacular, sló í gegn, og ekki þá bara hjá
grúskurum og pælururum heldur rötuðu lög
eins og „Kids“ og „Time to Pretend“ inn á út-
varpsstöðvar og nutu nokkurrar hylli al-
mennings. Og er eitthvað svalara en það að
fylgja eftir pottþéttri uppskrift með einni sem
er … ja … ekki svo pottþétt? Auðvitað ekki.
Congratulations er níu laga, innheldur enga
augljósa smelli og eitt lagið er tólf mínútur!
Það er Columbia sem gefur út, en stórfyrirtæki
hafa lært það í gegnum tíðina að stundum er
gott að treysta á flippaða listamenn og leyfa
þeim að gera það sem þeir vilja (Beck, Sigur
Rós t.d.).
Vanwyngarden hefur látið hafa það eftir sér að
Columbia-menn hafi verið mjög hrifnir en
hafi síðan spurt þá hvort þeir væru alveg
100% vissir um að þetta væri það sem þeir
vildu (í von um það líklega að einum eða
tveimur smellum væri hent hinn). MGMT
stóðu fast á sínu og Columbia lúffaði.
En ekki það að Columbia þurfi að hafa miklar
áhyggjur. MGMT hefur túrað með Of Mont-
real, Yeasayer, Beck og Paul McCartney, hefur
verið settur í endurhljóðblöndunarhrærivél af
Justice og Weezer hafa breitt yfir lag hans. Lög
MGMT hafa þá fengið að hljóma í sjónvarps-
þáttum á borð við Gossip Girl, 90210 og CSI:
New York. Oracular Spectacular hefur nú
selst í rúmum milljón eintökum en dúettinn er
eitursvalur hvað nýju plötuna áhrærir og segja
að þeir sem dýrkuðu „Kids“, „Time to Pret-
end“ og „Electric Feel“ munu mögulega eiga í
einhverjum erfiðleikum með að melta nýja
efnið. Meðupptökustjórnandi að plötunni var
sjálfur Pete „Sonic Boom“ Kember sem var
annar hluti öxulveldisins sem bar uppi hina
áhrifaríku sveit Spacemen 3 á níunda ára-
tugnum (hinn helmingurinn er Jason Pierce
úr Spiritualized). Segir Vanwyngarden að
áhrifavaldar á tónlistina séu áttunda áratugar
Beach Boys og lítt kunnar síðpönkssveitir eins
og Monochrome Set og Teardrop Explodes
Mark Kates, umboðsmaður sveitarinnar, hef-
ur þetta að segja um sína menn.
„Þeir hefðu hæglega getað snarað út plötu sem
hefði verið afrit af fyrstu plötunni en þannig
er þetta band einfaldlega ekki. Planið hjá þeim
var aldrei að semja smelli eða popplög.“
Hinn svokallaði Brooklyn-hljómur virðist ætla að
verða að eilífu á ystu nöf framsækni og frumlegheita.
Nýjasta plata dúettsins MGMT, sem er einn af innstu
koppunum í Brooklyn-búrinu, virðist a.m.k. ætla að
halda merki hans hátt á lofti um stund.
MGMT-bræður, þeir Andrew Vanwyngarden og Ben Goldwasser, í góðu flippi að vanda.
Ofursvalt, ofurgott
Umslag fyrstu plötu MGMT ber
mynd þeirra félaga, þar sem þeir
standa á ströndinni með mán-
ann í baksýn, íklæddir furðu-
legum og ægiflippuðum fötum.
Á plötunni nýju gefur að líta
kattarkvikindi á brimbretti í
ýktum teiknimyndastíl. Aldan
gín yfir því og hefur ásjónu
kattar einnig. Umslagið er eftir
Anthony nokkurn Ausgang sem
er fæddur í Trínidad og Tóbagó.
Sagði hann um samstarfið að
oftast vissi fólk aðeins hvað það
vildi ekki en því hefði verið öf-
ugt farið í tilfelli MGMT.
„Þeir vissu nákvæmlega hvað
þeir vildu og leyfðu mér því að
gera þetta á minn hátt.“
Svona lítur umslag Congratula-
tions út.
Umslagið
litríka
Tónlist
Kanadíska síðrokkssveitin Godspeed You!
Black Emperor var mál málanna fyrir tíu ár-
um, og allir hökustrjúkandi poppspekingar
með vott af sjálfsvirðingu tilbáðu sveitina.
Hún er nú að gíra sig upp í athafnasemi á
árinu, en hún hefur legið í kör í allmörg ár.
Mun sveitin stýra og verða aðalnúmerið á
tónlistarhátíðinni ATP’s Nightmare Before
Christmas sem haldin verður í desember í
Englandi. Tónleikar verða þá í Evrópu og Am-
eríku einnig. Og að sjálfsögðu verða engin
viðtöl veitt …
Godspeed You! Black Emperor.
Svörtu keisararnir
snúa aftur