SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 11

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 11
4. apríl 2010 11 Þeir sem vilja taka tillit til um- hverfis og heilsu við kaup á fatnaði, sængurverum, hand- klæðum eða annarri textílvöru geta gert það á ýmsan hátt:  Kaupið lífræna vöru.  Athugið hvort hún sé vottuð með viðurkenndum umhverf- ismerkjum, s.s. Svaninum eða Evrópublóminu.  Forðist plastþrykk úr PVC.  Forðist tau sem lyktar af efn- um eða angar af ilmvatni. Stundum er ilminum bætt við til að fela efnalyktina. Við þvott á fötum:  Viðrið þvottinn stöku sinnum í stað þess að þvo hann. Það sparar þvott og slítur honum minna. Ekki þvo fatnaðinn fyrr en hann er skítugur.  Fyllið þvottavélina og sleppið forþvotti. Það sparar orku, vatn og þvottaefni.  Veljið umhverfismerkt þvotta- duft.  Notið mæliskeið til að mæla þvottaduftið. Of mikið þvotta- efni getur orsakað hvíta kekki í þvottinum.  Forðist að nota mýkingarefni. Hvað er hægt að gera? F æstir geta verið án fatnaðar – og allra síst hér uppi á ísa köldu landi þar sem fötin hlífa okkur, aðallega við kulda en stöku sinnum við sól- bruna. Þannig eru þau okkur bráðnauðsyn- leg eigum við að halda heilsu. En þegar við grípum til spjaranna í svefndrunganum á morgnana leiðum við sjaldnast hugann að því hvort flíkurnar geti verið skaðlegar fyrir heilsu og jörð. Staðreyndin er hins vegar sú að spjarirnar krefjast mismunandi fórna eins og ný sænsk rannsókn leiðir í ljós sem greint er frá á heimasíðu dönsku Upplýs- ingamiðstöðvarinnar um umhverfi og heilsu (Informationscenter for Miljø & Sundhed). Samkvæmt rannsókninni er sennilegt að þegar gamli slitni stuttermabolurinn hefur lokið þjónustuhlutverki sínu og honum er kastað í ruslatunnuna, hafi hann verið skolaður með allt að einu kílói af efna- blöndum í gegnum tíðina með tilheyrandi skaða fyrir náttúru og heilsu þeirra sem höndla með eða jafnvel nota flíkurnar. Sé um að ræða gallabuxur er magn efnanna þrefalt. Allur fatnaður gengur fyrst í gegnum framleiðsluferli áður en hann er notaður, þveginn og loks fargað. Á hverju þessara skeiða í lífssögu spjararinnar eru ýmiskonar efni notuð, t.d. til að lita hana, þvo eða breyta eiginleikum hennar á einhvern hátt. Í sænsku rannsókninni er aðallega horft til þess hversu mikið af efnum er notað við framleiðslu flíkurinnar en einnig er efna- notkun við flutninga og meðan á notkun hennar stendur skoðuð. Í rannsókninni voru fimm ólíkar flíkur skoðaðar: stuttermabolur úr bómull, galla- buxur, bómullarvinnubuxur, bolur úr vis- kos og flíspeysa. Í ljós kom að mikil munur var á magni efnakokteila sem plöggin fóru í gegnum. Þannig hafði hálft til eitt kíló af efnum komið við sögu þar sem stutt- ermabolurinn var annars vegar, en galla- buxurnar höfðu farið í gegnum 1,2 til 2,9 kíló af efnum. Það var jafnframt mesta efnamagnið sem stök flík hafði á samvisk- unni. Niðurstöðurnar sýndu hins vegar að sé miðað við þyngd fatnaðarins var efna- notkunin mest þar sem viskosbolurinn var annars vegar. Efna- kokteillinn í klæðunum Fötin skapa manninn og maðurinn skapar fötin. Hann þvær þau líka ósköpin öll og notar allskyns efna- sambönd til að breyta eig- inleikum þeirra. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is Flest þurfum við meira en ruðningsbolta til að skýla okkur – og þá er betra að hafa þvotta- vél við hendina til að skola mesta skítinn úr skjólflíkunum. Reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.