SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 34

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Blaðsíða 34
34 11. apríl 2010 R eist hefur verið skjaldborg um heilsuna. Þrjár konur standa að Heilsuborg, þar sem brúað er bilið á milli líkamsræktar og heilbrigðisþjónustu. Þær hafa ólíkan bak- grunn, Anna Borg er framkvæmdastjóri þjálfunarsviðs, en hún er í grunninn sjúkraþjálfari og einkaþjálfari, Hildur Kristjánsdóttir er markaðsstjóri og Erla Gerður Sveinsdóttir er framkvæmdastjóri lækninga- og fræðslusviðs en hún hefur starfað sem heimilislæknir. „Þetta snýst um að bjóða upp á með- ferð, fræðslu og líkamsrækt á einum stað, þannig að horft sé í heild á málefni hvers einstaklings,“ segir Hildur. „Nálgunin er sú að við viljum hjálpa fólki að njóta lífsins betur,“ bætir Anna við, „að bæta heilsuna, auka hreyfinguna og hugsa um mataræðið. Allt kemur þetta inn á andlega líðan fólks. Við reynum jafnframt að meta þarfir hvers og eins og vísa þeim til sérfræðinga sem þeir þurfa helst á að halda, ekki síst upp á fræðslu og ráðgjöf.“ Hildur hristir höfuðið er hún rifjar upp nýlega frétt í fjölmiðlum. „Fólk er farið að taka klemma, hjartalyf fyrir hross, til að auka brennsluna, sem sýnir að það er langt leitt í skyndilausnum.“ Þverfaglegt samstarf Það er langt síðan hugmyndin kviknaði að Heilsuborg. „Erla er læknir og hefur talað mikið um að það skorti samvinnu á milli þeirra fagaðila sem sinna heilsu fólks,“ segir Anna. „Við erum með mikið af færu fagfólki, en það vinnur hver í sínu horni. Útkoman væri miklu betri ef þeir fagaðilar sem hugsa um sama einstaklinginn gætu borið saman bækur sínar. Erla vísar fólki kannski til næringarráðgjafa eða annarra sérfræðinga sem heimilislæknir en fær ekkert í hendur um afraksturinn af því nema sjúklingurinn hafi sjálfur frum- kvæði að því og getur því ekkert unnið úr því.“ Anna hefur unnið að forvörnum sem einkaþjálfari á líkamsræktarstöðvum en fundist vanta tengingu á milli líkams- ræktar og heilbrigðisþjónustu. „Ég get nefnt sem dæmi að sjúkraþjálfarar eru kannski með fólk í endurhæfingu en svo er ekki byggt áfram á þeirri reynslu og þekkingu sem skapast til að stuðla að heilbrigðari lífsstíl. Það má segja að hugmyndin að því að stofna Heilsuborg, þar sem sérfræðingar á öllum sviðum koma saman, hafi kviknað hjá okkur Erlu í fjölskylduboðum því við erum mágkonur. Það var kveikjan að því að við hrintum þessu átaki í framkvæmd. Annars vegar að tengja líkamsræktina við heilbrigðisþjónustuna og hins vegar að byggja upp þverfaglegt samstarf.“ Anna lítur á Hildi. „Útskýri ég þetta nógu vel?“ „Þér tókst að segja þverfaglega,“ svarar Hildur og hlær. Áhersla á forvarnir Viðbrögðin hafa verið góð, að sögn Hild- ar, en þó segir hún að of fáir viti af þeirri þjónustu sem í boði er á Heilsuborg. „Þeir sem hafa komið á námskeið hjá okkur eru ánægðir og við finnum að þörf er fyrir þessa þjónustu, enda er hún ekki í boði annars staðar. Við leggjum okkur líka fram um að vera öðruvísi, erum ekki með hávaðatónlist, eins og á sumum líkams- ræktarstöðvum, heldur reynum að skapa notalega stemningu.“ En það er óneitanlega erfitt að hefja rekstur í miðri kreppu, að sögn Önnu. „Við leggjum mesta áherslu á forvarnir og lífsstílstengda sjúkdóma, en reynum að halda kostnaði niðri eins og hægt er. Við erum í raun að selja okkar þjónustu ódýr- ara en við stöndum undir, þannig að við þurfum að vaxa hratt til að ná endum saman.“ Hildur skýtur inn í: „Það hjálpar ekki til að viðhorfið hjá stjórnvöldum virðist vera þannig að fólk á biðlistum kosti ekkert og forvarnir eru því einskis metnar.“ „Sparnaðaraðgerðirnar í heilbrigð- iskerfinu fela í sér að dregið er úr fjárveit- ingum til forvarna en þá verður bara til meiri kostnaður annars staðar,“ segir Anna. „Það er ekki sparnaður til lengri tíma litið. En reyndar hafa aldrei neinir fjármunir verið settir í forvarnir, að heitið getur.“ Og ástandið er miklu verra en fólk gerir sér grein fyrir, að sögn Hildar. „Mér finnst þróunin ógnvekjandi. Offita er ört vaxandi vandamál, ekki síst offita barna, en það er nokkuð sem við höfum áhuga á að vinna gegn. Hreyfingarleysið er miklu meira en fólk gerir sér grein fyrir. Við er- um að fá til okkar fólk sem hefur aldrei stigið fæti inn í líkamsræktarstöð. Hér líður því vel – því finnst í lagi að vera hér í jogginggallanum að hreyfa sig.“ Offitan er alvarlegt vandamál, að sögn Önnu. „Þá skapast hætta á því að fólk fái þessa lífsstílstengdu sjúkdóma og margir sem leita til okkar eru jafnvel með þá alla, en offitu fylgir til dæmis hætta á syk- ursýki, hærri blóðþrýstingi og hjarta- og æðasjúkdómum.“ En fjölmargt annað er í boði í Heilsu- borg fyrir fólk með ólík áhugasvið, til dæmis jóganámskeið og golfnámskeið. „Við viljum fyrst og fremst stuðla að heilbrigðari lífsstíl hjá fólki og koma þannig í veg fyrir sjúkdóma, ekki bara slökkva elda,“ segir Anna. „Þegar búið er að gera heilsufarsmælingar og meta ástandið bjóðum við upp á mismunandi leiðir og oft er aðalatriðið að koma hreyf- ingunni í lag.“ Hildur Kristjánsdóttir, Anna Borg og Erla Gerður Sveinsdóttir í Heilsuborg. Snýst ekki bara um að slökkva elda Það lýsir mikilli bjartsýni að stofna til rekstrar í miðri kreppunni. En markmiðið er göfugt hjá þremur konum sem vilja sameina forvarnir, líkamsrækt og heilbrigðisþjón- ustu undir einu þaki. Í Heilsuborg er opið hús í dag, laugardag, með hreyfingu, ráð- gjöf, fyrirlestrum og ýmsum glaðningi. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Morgunblaðið/Ernir Tekið á því í tækjasalnum, þó án hávaðatónlistar. Heilsa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.