SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Qupperneq 10

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Qupperneq 10
10 11. apríl 2010 E kki mun Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, ríða feitum hesti frá þeirri deilu sem hún hefur átt í við Stein- grím Ara Arason, forstjóra Sjúkratrygginga Íslands, en hún af ótrúlegum flumbruskap, dómgreindarleysi og hroka, þar sem pólitísk eineltishugsun tók af henni öll völd, sendi Steingrími Ara bréf þann 31. mars sl. þar sem hún tilkynnti for- stjóranum að hún hygðist áminna hann fyrir meint brot hans á al- mennum starfsskyldum ríkisstarfsmanna skv. starfsmannalögum. Raunar mun ráðherrann ekki bara missa af feita reiðhestinum, heldur stendur hún eftir, sneypt, með allt á hælunum, eftir að Sveinn Arason ríkis- endurskoðandi ritaði Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, bréf sl. mið- vikudag, þar sem segir m.a.: „Það er að mínu mati með öllu ólíðandi ef stjórnendur ríkis- stofnana geta átt á hættu að vera sakaðir um að hafa „brot- ið gegn góðum starfsháttum og hollustu- og trúnaðar- skyldum“ sínum með því einu að leita ráða hjá Ríkisendur- skoðun um fjárreiðutengd málefni. Með vísan til þessa tel ég nauðsynlegt að gera alvar- legar athugasemdir við þær röksemdir sem heilbrigðis- ráðherra beitir í umræddu bréfi.“ Skyldi nokkur annar ráðherra hafa fengið aðra eins ádrepu frá Ríkisendurskoðun áður? Og hvernig brást forseti Alþingis við hinu adráttarlausa bréfi ríkisendurskoðanda? Jú, hún var honum sammála. Ráðherrann svaraði ríkisendurskoðanda, þar sem ekki fer á milli mála, að þar talar sú sem valdið hefur: „Það er langur vegur frá að heilbrigðisráðuneytið eða undirritaður ráðherra hafi nokkuð við það að athuga að stofnanir ráðuneytisins leiti eftir ráðgjöf frá rík- isendurskoðun eða að embættið afgreiði erindi sem því berast. Í bréfi mínu til forstjóra SÍ dags. 31. mars sl. kemur enda skýrt fram að athugasemdirnar lúta ekki að framangreindu atriði, held- ur eins og segir orðrétt í bréfinu: „Ég tel að þér hafi borið að leita fyrst til ráðuneytisins eða ráðherra ef þú taldir fyrrgreindri reglu- gerð ábótavant að einhverju leyti.“ Í bréfi þínu gætir því misskilnings hvað varðar tilefni bréfs míns til forstjórans,“ segir ráðherrann í bréfi sínu. Það hlýtur að vera erfitt fyrir fylgismenn þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr við völd að kyngja því að ráðherra komi fram af slík- um makalausum hroka og derringi, þegar forstjóri einnar ríkis- stofnunar og ríkisendurskoðandi eiga í hlut. Hún segir sem sé, svona ofur ljúfmannlega, að þeir Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, og Sveinn Arason, ríkisendurskoðandi, megi vinna vinnuna sína frá degi til dags, en þeir þurfi bara fyrst að spyrja hana hvernig þeir eiga að vinna hana! Er ekkert að gera hjá heilbrigðisráðherranum? Vantar ráð- herrann verkefni? Er ráðherrann kannski að reyna að skapa sér stöðu, áður en uppstokkun á sér stað í ríkisstjórninni? Sé svo, þá voru ótrúleg vindhögg slegin í þessum skylmingum ráðherrans. Að vísu eru þeir margir, sem þessi framkoma heilbrigðis- ráðherrans virðist alls ekki koma neitt á óvart. Fjölmargir starfs- menn heilbrigðisgeirans hafa undanfarna mánuði látið í veðri vaka, að það væri ekki spurning um hvort heldur hvenær Álfheið- ur Ingadóttir myndi misstíga sig með þeim hætti sem hún nú hefur gert. Ráðherrann er sagður hafa ítrekað komið fram af miklu yf- irlæti og hroka á fundum með starfsmönnum í heilbrigðisgeir- anum og voru slíkar fregnir farnar að berast einungis nokkrum vikum eftir að ráðherrann tók við af Ögmundi Jónassyni. Þetta mun vera mjög pínlegt fyrir VG og nú er úr vöndu að ráða hjá Steingrími J. Sigfússyni, formanni VG og fjármálaráðherra. Álf- heiður er gallharður liðsmaður í Steingríms-armi VG og því spurning hvort hann hefur burði í sér til þess að rýma heilbrigðis- ráðherrastólinn fyrir Ögmundi Jónassyni. Ráðherra með allt á hælunum Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Steingrímur Ari Arason Álfheiður Ingadóttir ’ Er ekkert að gera hjá heil- brigðisráð- herranum? Vantar ráðherrann verkefni? Er ráðherrann kannski að reyna að skapa sér stöðu? 6:50 „Klukkan hringir og það er ekkert annað í stöðunni en að smeygja sér fram úr rúminu úr faðmlagi tveggja ára dóttur minnar, sem laumaði sér upp í einhvern tímann í nótt. Við bóndinn drögum börnin þrjú á fætur. Elsti sonurinn er að byrja í skólanum í dag eftir páskafrí. Hann er hressari en ég, hið frækna kórferðalag okkar mæðginanna í Vindáshlíð í gær hefur tekið minna á hann en mig. Er ekki alveg að tengja við þenn- an snjó sem ég sé út um gluggann. Er ekki apríl annars? Var búin að ákveða með sjálfri mér að vorið væri komið og fer bara samt í pæjustígvélin. 8:30 Skottumst með tvö yngri börnin inn á hinn yndislega leik- skóla Klambra. Börnin hlaupa glöð í brauð og leiki, pabbi og mamma fá blesskoss. Við hjónin erum enn með öndina í hálsinum því bíll sveigði skyndilega fyrir okkur á leiðinni hingað. Kloss- brems í hálkunni, tvær ofur- langar sekúndur, en náðum að stöðva bílinn um það bil fimm sentimetra frá hinum. Takk ABS- bremsur! 8:50 Komin í vinnuna. Staðan tekin yfir kaffibolla í eldhúsinu á Gimli, höfuðstöðvum Listahátíð- ar í Reykjavík, með mínum kæru samstarfmönnum. Skrifa verk- efnalista fyrir vikuna. Plássið á blaðinu klárast fljótlega. Fæ mér annan kaffibolla. Sé út um gluggann að kranastjórinn í risa- stóra krananum í Lækjargötunni er hálfur út um gluggann hjá sér í 30 metra hæð að pússa rúðurnar í boxinu hjá sér í aprílsólinni. Jú, vorið er komið. 10:00 Fundur með Hrefnu og Jóhönnu Vigdísi, stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar. Fyrir páska kynntum við dagskrá Listahátíðar í vor, opnuðum við- burðavefinn okkar og hófum miðasölu. Höfum fengið gríð- arlega góð viðbrögð á dagskrána og sala miða rauk af stað. 11:00 Legg lokahönd á texta og ljósmyndir í dagskrárbækling hátíðarinnar. Á dagskrá hátíð- arinnar eru yfir 60 viðburðir á dagskrá í öllum listgreinum. Það er nýtt andrúmsloft í Gimli nú þegar við erum búin að kynna dagskrána, mikið hringt og meiri umferð í miðasöluna. 14:00 Stekk upp í Ingólfs- stræti á auglýsingastofuna Fabr- ikuna, og skila efni í bæklinginn til hönnuðanna okkar Ingu og Völu. Fæ frábærar móttökur hjá þeim eins og alltaf og næ að strika yfir þó nokkur atriði af verkefnalistanum. Tek með mér próförk af enska bæklingnum. 17:30 Allir komnir heim. Amma sótti á leikskólann og við ákveðum að bjóða upp á hinn merka rétt „Smør selv“ sem varð til á námsárunum í Kaupmanna- höfn. Allt tekið út úr ísskápnum og sett á brauð. Börnin fagna. 19:15 Bóndinn tekur eftir því að fréttatímarnir tveir fara ekki vel í mig og rekur mig í sund. Næ í skottið á hamingjunni aftur á fimmtu ferð í Laugardalslaug. 20:30 Næ að syngja bíum bí- um bambaló og kyssa stráka góða nótt. Ákveð að þvottahrúg- an á borðstofuborðinu fái að vera stofuprýði enn um sinn. Tek frekar einn snúning á fé- lagsstörfunum, og skrifa nokkra tölvupósta á vegum Íbúasamtaka 3. hverfis. 23:00 Á leiðinni inn í rúm gríp ég af handahófi bók frá Bjarti, Votlendi, sem staðið hefur í plastinu í þó nokkurn tíma. Innihaldið kemur á óvart og í stað þess að sofna á fimmtu blað- síðu, eins og planið var, dett ég í lestur aðeins of lengi.“ Dagur í lífi Steinunnar Þórhallsdóttur markaðs- og kynningarstjóra Listahátíðar í Reykjavík Steinunn Þórhallsdóttir á skrifstofu sinni í Gimli, höfuðstöðvum Listahátíðar í Reykjavík. Morgunblaðið/Ernir Klossbrems í hálkunni                                       ! "     # $ "   %& " & "   '' & '   (  &" ) *    +,   +,    -+, ./  " " $ "     

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.