SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Page 25

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Page 25
11. apríl 2010 25 maður eftir því að fólk situr úti í sal og skilur ekki baun, ekkert frekar en þeir sem eru uppi á svið- inu.“ Þegar þú ákvaðst að leggja fyrir þig sönginn hugsaðirðu þá: ég vil vera sá besti, allavega einn af þeim allrabestu? „Nei, það hef ég aldrei gert. Ég hef ekki gaman af söngnum nema ég leggi mig fram og geri eins vel og ég get. Ég er alltaf í keppni við sjálfan mig. Kannski er það þess vegna sem ég fæ að syngja í úrvalsdeildinni.“ Þú ert menntaður líffræðingur frá Háskóla Ís- lands og fórst svo í söngnám. Var einhvern tíma efi í huga þér að þú værir að fara rétta leið með því að gerast atvinnusöngvari? „Á tímabili var ég skelfilega metnaðarlaus. Ég vildi bara hafa gaman af því að vera í músík og hafa þannig í mig og á sem söngvari, sem var al- gjörlega óraunhæft hér á Íslandi. Ég man ekki eftir tímapunkti þar sem ég hugsaði: Nú ætla ég að verða söngvari og hætta að vera líffræðingur. Þarna voru einhver fljótandi mörk sem ég geri mér ekki alveg grein fyrir. Nema hvað, ég stund- aði sönginn í frístundum og var líffræðikennari í Menntaskólanum við Sund. Einn veturinn áttaði ég mig á því að ég hafði engan tíma til að kenna, ég var svo upptekinn á skrifstofunni minni við að læra nótur. Við kennsluna notaði ég aðferð sem ég hafði lært í uppeldis- og kennslufræðinni, skipti bekkjunum upp í pör þar sem einstaklingur A kennir B fyrri helming tímans og svo öfugt. Það kom í ljós að ég hefði kannski átt að gera þetta öll árin sem ég kenndi því krakkarnir lærðu svo vel af þessu. En þegar ég sá að áhuginn á kennslu var að víkja fyrir söngnum ákvað ég að fara til útlanda í söngnám. Konan mín, Ásgerður, sem ég á meira að þakka en flestum í sambandi við sönginn, sagði að ég yrði að fara út, það tæki enginn mark á mér hér heima nema ég væri búinn að syngja í útlönd- um. Fyrst hún sagði það þá hlýddi ég því og fór í söngnám til Vínar.“ Glíma við tilfinningar Hver hefur kennt mér mest um söng? „Guðmundur Jónsson var minn fyrsti kennari og ég er honum ævinlega þakklátur fyrir að hafa lagt grunninn að mér sem söngvara. Hann kenndi mér stærstan hlutann af því sem ég byggi á. Ég lærði líka mikið af síðasta söngkennaranum mín- um, John Bullock. Hann var mjög upptekinn af því hvernig tilfinningin virkjar líkamann og hvernig allt sem söngvari syngur, hvert einasta orð, eigi að vera tilfinningahlaðið. Hann sagði við mig: Ef þú setur ekki tilfinningu í sönginn þá get- urðu alveg eins lesið textann. Ég lærði hjá honum í Washington í eitt ár, var stundum í tímum fjórum til fimm sinnum í viku. Bullock gjörbreytti mér sem söngvara. Hann var frábær og nálgaðist söng- inn frá hlið sem ég þekkti, var með módel af þver- skornum haus, með barkakýli og holrúmum í höfðinu, og sýndi hvernig þetta virkaði allt sam- an. Hann talaði mitt tungumál því ég kom beint úr líffræðinni. Og svo var tilfnninganálgunin, sem er stórkostlegur hlutur. Fyrir mér er starf óperusöngvarans glíma við texta og tilfinningar og tengsl á milli persóna. Söngurinn er verkfæri, eins og hljóðfærin í hljóm- sveitargryfjunni. Ef ég heyri fallegan söng án túlkunar þá er ég farinn að hrjóta eftir fimm mín- útur. Ég vil miklu heldur söng sem er kannski ekki tæknilega fullkominn en ber í sér sannar til- finningar. Sjálfur á ég erfitt með að syngja texta sem ekki felur í sér tilfinningar.“ Dóttir Johns Bullocks, Sandra Bullock, er stór- stjarna í Hollywood og óskarsverðlaunahafi. Kynntistu henni þegar þú varst í námi hjá föður hennar? „Ég hitti hana nokkrum sinnum og þá var hún ósköp venjuleg skólastelpa. Ég var í tíma hjá Bul- lock eitt sinn þegar síminn hringdi. Hann svaraði og sagði: Hvað segir kvikmyndastjarnan mín í dag? Eftir símtalið rak ég upp stór augu og sagði: Kvikmyndastjarna? Hann sagði mér að dóttir hans, Sandra, vildi verða leikkona en hann væri alltaf að segja henni að hún yrði að læra eitthvað því það væri bara einn af þúsund sem næði frama í Hollywood. Ég hugsaði ekkert meira um þetta en fimmtán árum seinna sá ég auglýsingu um að Sandra færi með aðalkvenhlutverkið í Speed.“ Sandra komst til Hollywood og þú fórst að syngja í frægustu óperuhúsum heims, þar á meðal Metropolitan. Allir sem leggja fyrir sig óp- erusöng hljóta að láta sig dreyma um að syngja í Metropolitan. „Mig dreymdi aldrei um það, einfaldlega vegna þess að það var í huga mér fjarlæg og fáránleg hugmynd. Það var svo stórkostlegt fólk sem söng þar. En ég fór að fá sífellt meira að gera og svo kom að því að ég var farinn að syngja í frægum óperuhúsum. Þetta var ákveðinn tröppugangur. Þegar ég söng svo í óperuhúsinu í París söng ég með mörgum söngvurum sem sungu líka í Met- ropolitan-óperunni. Maður ber sig saman við aðra og einhvern tímann hugsaði ég: Ef þessi söngvari getur sungið í Metropolitan þá get ég það líka. Þá gerði ég mér grein fyrir því að sennilega væri þetta bara tímaspursmál. Eitt kvöldið heyrði am- erískur umboðsmaður í mér á sýningu í París og áður en ég vissi af var ég kominn með tilboð frá Metropolitan.“ Nota ekki stór orð Hvernig var fyrsta kvöldið í Metropolitan? „Fyrsta kvöldið á Metropolitan var ég syngja í Valkyrjunum eftir Wagner með Placido Domingo og Deborah Voigt og James Levine stjórnaði. Ég var að hlaupa í skarðið fyrir annan söngvara og var að syngja hlutverkið í fyrsta sinn og þar að auki hafði ég ekki hitt hljómsveitarstjórann. Ég var í hlutverki ruddans Hunding. Hunding getur aldrei orðið sannfærandi sem ruddi og ógnvaldur ef hann er sífellt glápandi á hjómsveitarstjóra. – Jafnvel ekki stórmeistara eins og James Levine. Ég ákvað að syngja beint út í salinn og hljómsveit- arstjórinn yrði bara að gjöra svo vel að fylgja mér. Ég var mjög stressaður og skalf á beinunum áður en ég fór á svið. Allt sem ég söng öskraði ég í and- litið á Domingo. Að sýningu lokinni hringdi Le- vine í búningsherbergið mitt og þakkaði mér fyrir hvað það hefði verið auðvelt að fylgja mér.“ Óperusöngvarar hafa þá ímynd að vera fyrir- ferðarmiklir, kröfuharðir, uppstökkir, sem sagt sannar prímadonnur. Er það þannig? „Ég hef örsjaldan orðið var við þetta en lang- flestir óperusöngvarar eru bara venjulegt fólk. Eins og til dæmis Placido Domingo. Í lokaæfingu á Valkyrjunum börðumst við með sverðum og sverð Domingo átti að brotna á ákveðnu augnabliki, en það var takki á sverðinu sem hann átti að ýta á svo það brotnaði. Á æfingunni hrökk sverðið í sundur á röngu augnabliki. Ef þetta hefði gerst á frum- sýningu hefði það orðið stórmál. Domingo horfði á brotið sverðið og sagði: Ég gerði ekki neitt. Hann var eins og lítill strákur að segja: Það var ekki ég sem skemmdi þetta! Hann henti brotnu sverðinu ekki í gólfið eða var með læti eins og einhver prímadonnan hefði gert. Hæfileikaríkt fólk sem er öruggt í starfi sínu er yfirleitt alþýðlegt og þægilegt. Ef einhver er með stæla þá kemur það í bakið á honum. Ef viðkom- andi er stjarna fær hann vissulega vinnu en fé- lagslega er hann einangraður því það nennir eng- inn að tala við hann. Við sjáum dæmi eins og Kathleen Battle sem var með svo ótrúlega rudda- lega framkomu gagnvart samstarfsfólki sínu að hún var að lokum rekin frá Metropolitan og hefur ekki stigið fæti sínum þar inn síðan. Það hefur heldur lítið heyrst af henni eftir það.“ Þú hefur einmitt orð á þér fyrir að vera ein- staklega þægilegur maður og fullkomlega laus við stjörnustæla. „Ég hugsa fram á við og nota ekki stór orð. Þeir sem nota stór orð verða að geta staðið við þau. Það er aldrei gáfulegt að gefa yfirlýsingar um að mað- ur sé hálfguð. Kannski finnst manni maður vera það á einhverjum augnablikum en svo kemur að því að maður er það ekki lengur, og hvað þá?“ Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.