SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Side 32

SunnudagsMogginn - 11.04.2010, Side 32
32 11. apríl 2010 U mferðarstofa gaf nýlega út kennsluefni ætlað til umferð- arfræðslu í framhaldsskólum landsins. Þóra Magnea Magn- úsdóttir, fræðslufulltrúi Umferðarstofu, vann að gerð efnisins með aðstoð Einars Magnúsar Magnússonar, upplýsingafull- trúa Umferðarstofu. Efnið er ætlað lífs- leikni, sem er skyldufag í öllum fram- haldsskólum landsins, en umferðarfræðsla hefur ekki verið til stað- ar fyrir framhaldsskólanema með þessum hætti áður. Í námsefninu eru m.a. sýnd viðtöl við annaðhvort aðstandendur þeirra sem látist hafa í bílslysi eða við ein- staklinga sem lifðu af alvarleg bílslys. „Þegar ég byrjaði að vinna hjá Umferð- arstofu langaði mig að vinna með fram- haldsskólum,“ segir Þóra Magnea. „Ég setti mig í samband við Félag lífsleikn- ikennara og kynnti mér aðalnámskrá framhaldsskólanna. Næst vann ég þarfa- greiningu meðal einstaklinga á aldrinum 16-21 árs. Þá kom í ljós að reynslusögur myndu líklega hafa mest áhrif á ein- staklinga á þessum aldri, það var þá sem ég og Einar Magnús, sem jafnframt er kvikmyndagerðarmaður, hófum sam- starf.“ Þau fengu Kastljós til liðs við sig og fóru til Vestmannaeyja þar sem þau töluðu við foreldra Önnu Ragnheiðar sem lést í bíl- slysi 17 ára gömul fyrir um sjö árum. Með henni í bíl voru tvær vinkonur hennar sem lifðu slysið af en slösuðust báðar al- varlega. Önnur þeirra, Helga Björk, sem var ökumaður, hlaut varanlegan heila- skaða og mikil beinbrot. Slysið varð með þeim hætti að Helga Björk missti stjórn á bílnum þar sem hún var í spyrnu við ann- an bíl. Þá töluðu þau einnig við foreldra Sesars Þórs sem lést í bílslysi sem rekja má til ölvunaraksturs á Akureyri fyrir fjórum árum. Sesar Þór var 19 ára þegar hann lést. Frændi hans, sem ók bílnum, lifði slysið af. Ökumenn beggja slysa hlutu dóma fyrir manndráp af gáleysi. „Svona hræðsluáróður, eins og mynd- böndin eru að vissu leyti, virkar ekki einn og sér, það verður að vera einhver teng- ing við hugarheim áhorfandans. Það ger- ist í gegnum verkefnin sem fylgja náms- efninu,“ segir Einar Magnús. „Ég bjó til verkefnin svo nemendur myndu setja sig í ákveðnar stellingar áður en þeir sæju myndböndin,“ bætir Þóra Magnea við. „Til dæmis áður en viðtölin frá Vestmanneyjaslysinu eru sýnd, vinna krakkarnir hópverkefni þar sem þeir þurfa að taka afstöðu til þess hvað þeir myndu gera ef verið væri að mana þá í spyrnu. Nemendur ræða saman og segja frá því hvaða ákvörðun þeir myndu taka. Í framhaldi af því er myndbandið sýnt með viðtali við foreldra Önnu Ragnheið- ar, sem lést í bílslysinu og viðtal við vin- konur hennar sem lifðu það af. Þegar myndbandinu lýkur skipta margir nem- enda, sem sögðust myndu taka þátt í spyrnunni, um skoðun. Ég geri mér vonir um að þetta haldi áfram að hafa áhrif á nemendur og þetta komi upp í kollinn á þeim þegar þeir standa frammi fyrir hættulegum freistingum í umferðinni.“ Heppnin getur brugðist Þóra Magnea segir marga haldna þeim misskilningi að þeir séu bara að stofna sjálfum sér í hættu með því að taka áhættu í umferðinni. „Sumir skilja ekki að ákvarðanir þeirra geta haft áhrif á aðra í umferðinni. Það var til dæmis einn nemandi sem sagði mér að hann nennti ekki alltaf að nota örygg- isbelti og það kæmi þá bara eitthvað fyrir hann, það myndi ekki skaða neinn annan. Hann gerði sér ekki grein fyrir því að ef einstaklingur sem ekki er í belti lendir í slysi með fleira fólki í bílnum, stefnir hann því í hættu. Hann getur kastast með miklum þunga á hina farþegana. Högg- þyngd hans verður margföld líkams- þyngd og hann getur auðveldlega drepið sjálfan sig og aðra sem í bílnum eru. Það er svona atriði sem koma í ljós við um- ræðurnar, eitthvað sem nemendurnir hafa ekki gert sér grein fyrir. Fólk treystir líka mikið á heppni, ég heyri oft frá nem- endum að þeir séu svo heppnir að þess vegna fari þeir ekki alltaf eftir eftir lög- Þóra Magnea Magnúsdóttir og Magnús Magnússon hjá Umferðarstofu. Morgunblaðið/Ómar „... svo kom það fyrir mig“ Reynslusögur af árekstrum eru notaðar til þess að hafa jákvæð áhrif á ungt fólk í nýju kennslu- efni Umferðarstofu. Kristrún Ósk Karlsdóttir kristrun@mbl.is Reynslusögur af árekstrum eru notaðar til að auka áhrifagildi kennslunnar. M atthías Aron Ólafsson og Sylvía Vias eru bæði nemendur í Tækniskólanum í Reykjavík. Þau sátu í lífsleiknitíma þar sem Þóra Magnea og Einar Magnús kenndu nemendum með nýja kennsluefninu. Matthías Aron verður 17 ára í desember og stefnir á að fá bíl- prófið þá. Sylvía er 30 ára og hún fékk bílpróf 17 ára. Matthías Aron: Hafði fyrirlesturinn áhrif á þig ? „Já, reyndar, ég ætla ekkert að þykjast vera kúl og segja að það hafi ekki gert það. Maður finnur alveg til með þessu fólk. Þetta er mjög leiðinlegt. Ég sjálfur nota alltaf belti og reyni alltaf að hafa áhrif á aðra og segja þeim sem er ekki í belti að fara í belti.“ Er þetta eitthvað sem þú hefur velt fyrir þér áður ? „Já, foreldrar mínir eru mjög duglegir við að minna mig til dæmis á að vera í öryggisbelti, og eiginlega öll fjölskyldan, það hefur góð áhrif.“ Þú ert meðvitaður um að slys geta komið fyrir alla? „Já já, alveg. Hugsunin hjá mörgum að þetta kemur aldrei fyrir mig, en slys geta alltaf orðið og jafnvel þó að þú sért í bílbelti, þá bjarga þau ekki alltaf. Þótt þú sért sjálfur að vanda þig geta alltaf aðrir keyrt á þig líka.“ Hefur þú verið í bíl þar sem er bílstjórinn er undir áhrifum áfengis? „Nei, aldrei. En ég hef lent í árekstri þrisvar sinnum en það var mjög smávægilegt.“ En hefur þú setið í bíl þar sem hraðakstur fer fram? „Nei, eiginlega ekki, allavega ekki alvarlegt. Ég hef alveg setið í þar sem fólk hefur gefið í og farið aðeins yfir löglegan hraða. Ég er frekar hræddur við þetta, það er reyndar orðið mjög langt síðan.“ Heldur þú að þessi verkefni og myndbönd eigi eftir að sitja í þér þegar þú færð bílprófið? „Já, það held ég, þetta minnir mann á að vera alltaf varkár.“ Hvernig áhrif þú að þessi kennslustund hafi á aðra nemendur? „Það fer eftir því hvernig maður lítur á það, ef fólk hlustar á þetta með athygli og fylgist með þessu þá sí- ast þetta inn þó að fólk segi að það geri það ekki.“ Þekkir þú einhvern sem hefur lent í alvarlegu slysi? „Nei, ég þekki engan.“ Sylvía: Hafði fyrirlesturinn áhrif á þig? Fyrirlesturinn hefur áhrif Matthías Aron Ólafsson, nemi í Tækniskólanum. Morgunblaðið/Ernir

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.