SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 18

SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 18
M enningarhúsið Hof á Ak- ureyri er umdeild bygging. Sumum finnst Hamraborg- in há og fögur, aðrir eru ekki jafn hrifnir en hvað sem umræðu um húsið líður verður það tekið í notkun í sumar. Kristján Þór Júlíusson þáverandi bæj- arstjóri tók fyrstu skóflustunguna 15. júlí 2006, framkvæmdir hófust í ágúst og húsið verður formlega vígt laugardaginn 28. ágúst í sumar með hátíðartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Þar verður frumflutt tónverk Hafliða Hall- grímssonar, Hymnos, sem hann samdi sérsaklega af þessu tilefni. Þar með hefst 18. starfsár hljómveit- arinnar sem fær langþráð æfinga- og tónleikahúsnæði í Hofi. Daginn áður verða í húsinu tónleikar söngkonunnar Lay Low, Lovísu Elísabet- ar Sigrúnardóttur, ásamt ungum tónlist- armönnum af Eyjafjarðarsvæðinu, og á sunnudeginum, afmælisdegi Akureyr- arbæjar, verða hátíðartónleikar Sinfón- íuhljómsveitar Norðurlands undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, þar sem einleikari verður Víkingur Heiðar Ólafs- son píanóleikari. Í Hofi verður marg- vísleg starfsemi. Gert er ráð fyrir að Leik- félag Akureyrar setji þar á svið eina stóra sýningu ár hvert og sú fyrsta verður söngleikurinn rómaði Rocky Horror Picture Show, sem frumsýndur verður í haust. Tónlistarskóli bæjarins verður starf- ræktur á efstu hæð Hofs en hefur verið í leiguhúsnæði úti í bæ. Ákvörðun um þetta var tekin eftir að bygging menn- ingarhússins hófst og þriðju hæðinni þá bætt við. Að sögn Ingibjargar Aspar Stef- ánsdóttur, framkvæmdastjóra menning- arhússins, hafa þegar verið bókaðar nokkrar ráðstefnur í Hofi næsta haust, einnig fjöldi listviðburða og vel lítur út með framhaldið. Samkvæmt nýjustu tölum er gert ráð fyrir að heildarkostnaður við byggingu Hofs verði 3,4 milljarðar króna. Þar af greiðir ríkið tæpan milljarð. Rekstrarkostnaður fyrsta árið er áætl- aður um 330 milljónir. Þar af eru 43 milljónir í reksturinn sjálfan en tæpar 290 í fjármagnskostnað vegna lána til byggingarinnar. Séð af leiksviðinu út í stóra salinn, Hamraborgina. Þar verða sæti fyrir 500 manns en til samanburðar má geta þess að fleiri komast fyrir á svölum Hofs en í gamla Samkomuhúsinu. Hátt er til lofts í Hamragili, ganginum sem liggur þvert í gegnum húsið, frá norðri til suðurs. Hamraborg, há og fögur Bak við tjöldin Norðan við gömlu Torfunefsbryggjuna í miðbæ höfuðstaðar Norðurlands, á mótum Strandgötu og Glerárgötu, rís nú umtalað menningarhús. Texti og myndi: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.