SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 34
34 18. júlí 2010
H
ann var ungur gef-
inn náttúrunni. Rafn
Hafnfjörð missti
móður sína átta ára
gamall og leitaði skjóls í faðmi
náttúru þessa lands, leynt og
ljóst. „Ég hef alla tíð verið mikið
náttúrubarn,“ segir hann. „Ólst
upp undir Hamrinum í Hafn-
arfirði og gleymdi mér heilu dag-
ana í hrauninu og náttúrunni. Í
hrauninu voru kartöflugarðar í
hverri lautu og hreiður í hverjum
hól. En svo kom stóra jarðýtan
sem ég kallaði jarðætu og át
megnið af hrauninu, þannig að
nú eru þar bara hús og götur.
Þeir sem þetta frömdu töldu það
víst einhverja sárabót að skíra
göturnar fuglanöfnum eins og
Þrastarhraun, Svöluhraun,
Mávahraun, Arnarhraun o.s.frv.
Og þá flutti ég úr Hafnarfirði.
Rafn smitaðist líka ungur af
veiðidellu sem ekki verður lækn-
uð. „Það tekur því ekki úr
þessu,“ segir hann hlæjandi. „Ég
byrjaði í læknum í Hafnarfirði
átta ára og gekk í Stangaveiði-
félag Reykjavíkur árið 1951. Ég
hef veitt í öllum helstu ám lands-
ins gegnum tíðina, með veiði-
stöngina á annarri öxlinni en
myndavélina á hinni. Í gamla
daga var ég eini maðurinn sem
tók myndir í veiðitúrum, veiði-
leyfin voru svo dýr að menn
tímdu ekki að eyða tíma í að taka
ljósmyndir.“
Rafn hefur lagt til ljósmyndir í
ófáa bæklinga ætlaða veiði-
mönnum gegnum árin. „Ég hef
alltaf jafngaman af því að veiða
veiðimenn,“ segir hann sposkur.
Rafn kveðst líka lengi vel hafa
verið eini ljósmyndarinn sem
myndaði íslenska náttúru að ein-
hverju marki ásamt Hjálmari
Bárðarsyni siglingamálastjóra.
„Að vísu höfðu þeir Þorsteinn
Jósepsson og Páll Jónsson mynd-
að töluvert en báðir í frístundum
frá annarri vinnu, en það var allt
í svart hvítu. Þá kom hingað einn
og einn erlendur ljósmyndari.
Þeir stöldruðu yfirleitt stutt við.
Það var ekki fyrr en strákar eins
og Raxi, Palli Stefáns og Golli
komu til sögunnar að nátt-
úruljósmyndurum fjölgaði. En
þú athugar að enginn þeirra var
fæddur þegar ég var að byrja.“
Þræddi málverkasýningar
Ljósmyndaáhugann segir Rafn
hafa magnast á málverkasýn-
ingum þegar hann var ungur.
„Ég byrjaði að sækja mál-
verkasýningar sextán ára gamall
og fór á hverja einustu sýningu
árum saman, oft á sumar. Þetta
hafði mikil áhrif á mig í sam-
bandi við myndbyggingu. Ljós-
myndir og málverk eiga líka
margt sameiginlegt, eða eins og
Kínverjar segja: Ljósmynd er að
teikna með ljósi.“
Ljósmyndir Rafns eru af
tvennum toga, annars vegar
dæmigerðar ferðamyndir og hins
vegar listrænar myndir. Hann
hefur haldið fjölda sýninga á síð-
arnefndu gerðinni af myndum,
meðal annars á Kjarvalsstöðum
árið 1979. „Hún stóð bara í viku
en það var sneisafullt allan tím-
ann. Ég var skammaður fyrir að
hafa hana ekki lengur,“ rifjar
hann upp.
Ekki átti Rafn alltaf heim-
angengt þegar mikið lá við enda
rak hann prentsmiðjuna Litbrá í
54 ár og hafði skuldbindingar
gagnvart henni. „Mér leið illa
hvað ég komst sjaldan þegar
Hekla var að gjósa 1970 og ég
varð að vera í Reykjavík vegna
vinnu. En svona er lífið, maður
þarf að standa við sínar skuld-
bindingar.“
Landkynning í 55 ár
Rafn hóf að vinna að kynningu á
Íslandi erlendis árið 1955, með
því að leggja til ljósmyndir í
fyrstu landkynningarbæklingana
sem Loftleiðir létu gera, í sam-
vinnu við Sigurð Magnússon,
kynningarfulltrúa flugfélagsins.
„Þegar Loftleiðir hófu að selja
ódýr fargjöld milli Ameríku og
Evrópu og síðar með „Stop over“
á Íslandi voru það ljósmyndirnar
af fossunum, fjöllunum, jökl-
unum, hverasvæðunum og
reyklausu höfuðborginni sem
virkuðu. Þetta vakti mikla at-
hygli,“ segir hann og bætir við að
Sigurður hafi lagt mikinn metn-
að í allt efni sem birtist í nafni
Loftleiða.
Allar götur síðan hefur Rafn
lagt til ljósmyndir í nokkra tugi
landkynningarbæklinga sem
prentaðir hafa verið í hundr-
uðum þúsunda eintaka. Fjöl-
mörg erlend tímarit hafa birt
myndir eftir hann, eins og GEO
Magazine, Canon Cronicle, Ford
Continental Magazine, Swa-
rovski, EX magazine for nordic
airport passengers, Guest Visitor
Information Iceland o.fl.
Gosmynd Rafns sem birtist nýverið í tímariti Sameinuðu þjóðanna, UN Special.
Að teikna
með ljósi
Rafn Hafnfjörð ljósmyndari tók fyrst
þátt í kynningu á Íslandi erlendis árið
1955 og er enn að, 55 árum síðar. Fyrir
skemmstu birtist eftir hann stór mynd
af gosinu í Eyjafjallajökli í tímariti
Sameinuðu þjóðanna, UN Special.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Náttúrubarnið og ljósmyndarinn
Rafn Hafnfjörð. Veiðistöngin er
aldrei langt undan.
Morgunblaðið/Einar Falur
Smáritin sem Rafn vinnur að um þessar mundir.