SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 27

SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 27
18. júlí 2010 27 H afdís Huld fæddist á Fæðingarheimilinu í Reykjavík 22. maí 1979. Foreldrar hennar eru Júlíana Rannveig Einarsdóttir blómaskreytir og Þröstur Sigurðsson verktaki. Hafdís Huld er elst þriggja systkina en hún á yngri bróður og systur. Fjölskylda Hafdísar Huldar fluttist í Hlégerði í Kópavogi þegar hún var þriggja ára og þar sleit hún barnsskónum. Hún gekk í Kársnesskóla og Þinghólsskóla áður en hún fór í Menntaskólann í Kópavogi. Hafdís Huld gekk ung til liðs við hljómsveitina Gus Gus og var aðeins 16 ára þegar hljómsveitin gerði alþjóðlegan plötusamning, en hún ákvað snemma að leggja tónlistina fyrir sig. „Ég var fimm ára þegar ég ákvað að gerast söngkona og leikkona og var búin að stofna sirkus þeg- ar ég var tíu ára. Þegar við gerðum þennan samning fannst mér löngu kominn tími til og hugsaði bara: „loksins“.“ Rétt fyrir tvítugt hætti Hafdís í Gus Gus og var þá búin að fara í all- mörg tónleikaferðalög um Bandaríkin og Evrópu. Árið á eftir lék hún í kvikmyndunum Íslenska draumnum og Villiljósi auk sjónvarpsþátta, en fluttist svo til London og fór að vinna með DJ dúóinu F C Kahuna, samdi með þeim tónlist, fór í tónleikaferðalög og gaf út eina plötu. Í framhaldinu innritaðist hún í tónlistarskólann London Centre of Contemporary Music og útskrifaðist þaðan árið 2006. Sama ár gaf hún út fyrstu sólóplötu sína, Dirty Paper Cup, sem hlaut góðar viðtökur bæði ytra og hér heima þar sem hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem besta poppplatan. Síðan hefur Hafdís Huld haft ærið að gera í tónlistinni, bæði við að semja tónlist og flytja hana um allan heim. Í fyrra kom svo út önnur sólóplata hennar, Synchronised Swimmers, sem sömuleiðis hefur hlotið frábærar viðtökur, ekki síst lagið Kónguló, sem átti sæti á vin- sældalista hér á landi í fyrrasumar. Nýverið flutti Hafdís Huld heim ásamt kærasta sínum Alisdair Wright og eru þau nú búsett í Mosfellsdal. Með foreldrunum á skírnardaginn heima hjá móðurömmu og afa í Kópavoginum. „Amma nafna mín heklaði kjólinn.“ „Með Álfrúnu vinkonu þegar við vorum nýfluttar til London árið 2001.“ Myndin er tekin á lestarstöð. „Eftir fyrstu ferðina á slysó þegar ég var fimm ára en næstu tvo mánuði á eftir fór ég fjórum sinnum þangað.“ Með bróðurdóttur sinni Aþenu Sól á aðfangadagskvöld árið 2003 þar sem sú stutta skemmti gestum með jólasöng. Hafdís hélt upp á þrítugsafmælið sitt í fyrra með hlöðuballi. „Pabbi tæmdi verkstæðið sitt og útvegaði m.a.s. heybagga til að fá réttu stemninguna.“ Meðal gesta var gamli vinahópurinn úr Kópavoginum. Mark Radcliffe og Stewart Maconie á BBC völdu Action man sem smáskífu vikunnar í vor og fengu mig í þáttinn til sín. Logi Bergmann fékk mig í sama þátt og Sultan Kosen, hæsta mann heims. Ég er 1,56 á hæð svo þetta var dálítið kómískt. Nýja platan var tekin upp í gamalli hlöðu í Scarborough á Englandi. „Við byrjuðum í janúar svo það var ferlega kalt.“ Með kærastanum Alisdair Wright í fyrstu ferð hans til Íslands árið 2006. 17 eða 18 ára á tónleikaferðalagi með Gus Gus í Bandaríkj- unum og Kanada. Ákvað fimm ára að verða söngkona Myndaalbúmið Stund milli stríða við upptökur á Kóngulóar- myndbandinu. Mikil sorg eftir heimsókn til hár- skerans þegar þriggja ára hnátan hélt að það ætti að klippa hana sítt. Tónlistarkonan Hafdís Huld er nýverið flutt heim til Íslands eftir áralanga dvöl í Lundúnum, en hefur sem fyrr yfrið nóg að gera í tónlistinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.