SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Blaðsíða 44
44 18. júlí 2010
Reggí og „dancehall“-frumkvöðullinn Sugar
Minott lést á spítala í borginni Kingston á Ja-
maíka um síðastliðna helgi, aðeins 54 ára
að aldri. Lincoln Barrington „Sugar“ Minott
sendi frá sér plötuna Live Loving, árið 1978
og vilja margir reggí-sérfræðingar meina að
platan hafi verið ein af fyrstu „dancehall“-
plötunum sem gefnar voru út og að áhrif
hennar meigi ekki bara finna í tónlist frá Ja-
maíku heldur líka í hip-hopp tónlist í Banda-
ríkjunum. Minott stofnaði Black Roots- út-
gáfuna og til stóð að gefa út nýjust plötu
hans, New Day ,eftir nokkrar vikur.
Lincoln „Sugar“
Minott fallinn frá
Minott var einn af frumkvöðlum reggí- og
„dancehall“-tónlistar.
Redferns
Fjöldi tónlistarmanna flytur lög eftir David
Bowie á plötunni We Were So Turned On.
Reuters
Unglingurinn David Bowie hefur ekki sent frá
sér nýtt efni í meira en sjö ár og svo virðist
sem að hann sé ekkert á leiðinni í hljóðverið
á næstunni. Það er þó á leiðinni ný plata
með lögum hans, en að þessu sinni eru þau
í flutningi annarra tónlistarmanna. Farið er
yfir feril tónlistar-kameljónsins á tveggja
diska geisladiski sem hefur hlotið nafnið We
Were So Turned On. Það eru tónlistarmenn
eins og Megapuss, Charlift, A Place to Bury
Strangers, Edward Sharpe & The Magnetic
Zeros, Carla Bruni, Duran Duran og Vivian
Girls sem taka blöndu af gömlu og nýrra efni
meistarans. Allur ágóði plötunnar rennur til
góðgerðarsamtakanna War Child.
Ný ábreiðuplata
með lögum Bowie
Luke Haines og hljómsveit
hans, The Auteurs, komu eins
og Ajax-stormsveipur inn í
breskt tónlistarlíf árið 1993,
með plötu þessari, New Age.
Titrandi brothætt og ómþýð
rödd þessa hjólbeinótta gáfu-
mennis, sem þá var á 26. ald-
ursári, kitlaði hlustir hlustenda á ýmsum
aldri. Útsetningar voru frábrugðnar því
sem gekk og gerðist á þessum tíma, að
því leyti að þéttur kassagítarleikur
myndaði grunn flestra laganna, sem voru
melódísk með afbrigðum og grípandi.
Hljómhreinar rafgítarlínur og riff voru
annað aðaleinkenni plötunnar.
Það lag, sem náði mestum vinsældum á
plötunni, var upphafslagið „Showgirl“.
Textinn var grafískur: I took a
showgirl for my bride / Tho-
ught my life would be right /
Took her bowling / got her high
/ Got myself a showgirl bride.
Þarna kvað við nýjan tón. Hai-
nes hafði, fyrstur tónlistar-
manna, náð sér í dansmey,
kvænst henni og farið með hana í keilu.
The Auteurs var gjarnan talin til svo-
kallaðra Brit-pop sveita, en í þeim hópi
voru sem kunnugt er góðkunningjar tón-
listarlögreglunnar á borð við Blur, Oasis
og Supergrass. Luke Haines var aldrei vel
við þá skilgreiningu, en ekki verður und-
an því vikist að sveitin náði vel að grípa
það andrúmsloft og menningu sem
ríkjandi var í Bretlandi á öndverðum tí-
unda áratug síðustu aldar.
Haines sótti enda stíft í smiðju enskra
popprisa fyrri tíma, eins og hinar sveit-
irnar. Þar má helstan nefna David gamla
Bowie, en tilvísanir í glysrokktíma átt-
unda áratugarins eru nægar á New Age.
Einnig má heyra viss áhrif frá George
gamla Harrison í nokkrum lögum og að
sjálfsögðu Ray gamla Davies og hinum
gömlu köllunum í Kinks.
Haines reyndist líka mikill áhrifavald-
ur sjálfur, því New Age naut töluverðra
vinsælda meðal ungra og upprennandi
tónlistarmanna. Eins er víst að stórlaxar á
borð við Damon gamla Albarn úr Blur og
Noel gamla Gallagher úr Oasis lögðu af
athygli við hlustir.
Ívar Páll Jónsson
Poppklassík New Age - The Auteurs
Þegar Luke gamli Haines fór með dansmeynni í keilu
R
okksveitin Liars er ekki mikið fyrir
að dvelja of lengi á sama staðnum,
hvort sem það er landfræðilega eða
tónlistarlega séð og bera plötur
hljómsveitarinnar þess greinileg merki. Sumir
segja að það megi heyra á lögum Liars hvort
meðlimir sveitarinnar voru búsettir í New
York eða Berlín, þegar þau voru samin.
Hljómsveitin var stofnuð árið 2000 í New
York-borg eftir að vinirnir og fyrrum listahá-
skólanemarnir úr CalArts í Kaliforníu, Aaron
Hemphill og Angus Andrew, svöruðu auglýs-
ingu í tónlistarbúð frá Nebraska-strákunum
Pat Noecker og Ron Albertson sem voru að
leita að fólki til að stofna með hljómsveit.
Andrew tók að sér sönginn, Hephill gít-
arleikinn, Nocker fór á bassann og Albertson
tók að sér að lemja trommurnar. Mánuði síðar
spiluðu Liars á sínum fyrstu tónleikum og í
október árið 2001 kom svo út fyrsta plata
sveitarinnar hjá jaðarútgáfunni Gern Blands-
ten Records og hlaut hún það skemmtilega
langa nafn They Threw Us All in a Trench and
Stuck a Monument on Top Only. Platan var
tekin upp á aðeins tveim dögum af upp-
tökustjóranum Steve Revitte sem er einna
þekktastur fyrir vinnu sína með Beastie Boys
og Lee „Scratch“ Perry. Stuttu eftir að platan
kom út sögðu Noecker og Albertson skilið við
hljómsveitina og tók Julian nokkur Gross við
af þeim.
Tríóið gaf út sína aðra plötu, They Were
Wrong, So We Drowned, árið 2004 og sóttu
þeir félagar víst innblástur í þýskar þjóðsögur
um galdra. Gagnrýnendur tóku plötunni ekki
vel og fékk hún t.d. lægstu mögulegu einkunn
hjá tónlistartímaritunum Rolling Stone og
Spin. Næst kom platan Drum’s Not Dead sem
að þeirra sögn gekk öll út á sköpunargleðina
og tilraunamennsku. Liars fengu svo til liðs
við sig hóp kvikmyndagerðarmanna sem
gerðu stuttmyndirnar sem fylgdu plötunni og
hlaut platan mikið lof gagnrýnenda ólíkt They
Were Wrong, So We Drowned. Hlutirnir voru
ekki jafn flóknir á næstu plötu sem heitir ein-
faldlega Liars. Flóknar pælingar voru skildar
eftir heima og hljómsveitin leitaði aftur til
einfaldara post-pönks. Nýjasta breiðskífa
þeirra Andrews, Hemphills og Gross, Sister-
world, kom út fyrr á þessu ári og hefur fengið
mikið lof frá aðdáendum sveitarinnar sem og
gagnrýnendum um allan heim, fékk hún t.d.
8,1 í einkunn hjá gagnrýnanda Pitchfork.com.
Tónlistarmenn óskast
Hljómsveitin Liars var
stofnuð fyrir rúmum ára-
tug og hefur gefið út fimm
breiðskífur á þeim tíma.
Matthías Árni Ingimarsson matthiasarni@mbl.is
Meðlimir hljómsveitarinnar Liars virðist geta enduruppgvötað sig á hverri nýrri breiðskífu sem þeir senda frá sér.
Reuters
Nýverið fékk tónlistarmaðurinn
Beck hljómsveitinar Liars, St
Vincent og Os Mutantes með sér
í hljóðver þar sem tekin var upp
ábreiðuplata af INXS-plötunni
Kick frá 1987. Platna er hluti af
verkefni sem Beck setti í gang
þar sem hann tekur upp heila
ábreiðuplötu á aðeins einum
degi og var Kick hljóðrituð á að-
eins tólf tímum. Hægt er að
hlusta á plötuna og sjá upptökur
úr hljóðverinu á beck.com.
Beck ásamt Liars að taka upp
INXS plötuna Kick.
Tóku INXS
með Beck
Tónlist
Bonnaroo-tónlistarhátíðinni, sem haldin er í
bænum Manchester í Tennesee- ríki lauk um
síðastliðna helgi. Hátíðin hefur náð að festa
sig í sessi sem ein af bestu tónlist-
arhátíðum vestanhafs á undanförnum árum.
Mörg af helstu nöfnunum í tónlistarheim-
inum komu fram á hátíðinni og nú hefur
NPR-útvarpstöð birt á vefsíðu sinni upptökur
frá tónleikum yfir 40 hljómsveita. Allt frá
LCD Soundsystem til Tinariwen. Allar upp-
tökurnar má finna á vefsíðunni www.npr.org.
Heyra má upptökur af tónleikum sveita eins
og Tinariwen frá Bonnaroo á NPR.
Bonnaroo á NPR