SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Page 50
50 18. júlí 2010
H
lynur er borinn og barnfæddur á Akureyri
en hann er sonur hjónanna Aðalheiðar
Gunnarsdóttur og Halls Sigurbjörnssonar.
Hann er kvæntur Kristínu Þóru Kjart-
ansdóttur, doktorsnema í sagnfræði, og eiga þau fimm
börn. Hlynur útskrifaðist frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri 1988 og segist hafa í raun vitað þá að hann ætlaði
sér að verða myndlistarmaður þótt áhugamálin hafi ver-
ið fleiri.
„Ég tók eins mörg námskeið og hægt var í myndlist-
arskólanum því ég gat fengið það metið til stúdents-
prófs. Það var margt sem mig langaði að gera og um
stund íhugaði ég að fara í arkitektúr en sem betur fer
varð myndlistin ofan á. Ég fór því suður í listnám og svo
í framhaldsnám til Þýskalands. Við fluttum til Hannover
því við Kristín fengum bæði Erasmus-styrk og var
Hannover eini staðurinn sem við gátum bæði stundað
okkar nám.“ Þau dvöldust í ein átta ár í Þýsklandi og
segir Hlynur að taugarnar þangað séu enn ansi sterkar.
„Það kom sá tímapunktur að við þurftum að ákveða
hvort við ætluðum að setjast endanlega að í Þýskalandi
eða koma heim og sú ákvörðun var ekki létt því það er
mun auðveldara að vera myndlistarmaður í Þýskalandi
en hérna heima. Við erum alltaf með annan fótinn úti og
höfum íbúð í Berlín sem við notum mjög mikið því
Kristín er í doktorsnámi þar. Einnig fannst okkur af-
skaplega mikilvægt að halda tengslum við listalífið og
vini okkar í Þýskalandi.“
Heimilislegt gallerí
Þegar Hlynur og Kristín bjuggu í Þýskalandi settu þau á
þau á laggirnar nokkuð sérstak gallerí sem þau nefndu
Kunstraum/Wohnraum eða Listrými/íbúðarrými.
„Galleríið er staðsett heima hjá okkur og þegar það
eru sýningar verða þær bara hluti af heimilislífinu. Við
byrjuðum á þessu úti en fluttum það síðan með okkur
hingað heim því við vildum halda þessu skemmtilega og
óvenjulega starfi áfram. Þegar mest lét vorum við með
allt að tólf sýningar á ári en erum komin niður í svona
þrjár til fjórar enda með stóra fjölskyldu.“ Hlynur segir
að samlífið við listina gangi afskaplega vel. „Við værum
ekki að þessu ef við værum feimin eða fyndist óþægilegt
að fá fólk heim til okkar. Hins vegar finnst sumum skrít-
iðað upplifa listsýningu inni í stofu hjá ókunnugu fólki.“
Hlynur og Kristín opnuðu einmitt sýningu á ljós-
myndaverkum þýskra listamanna síðastliðinn sunnudag
á heimili sínu á Akureyri.
Hlynur hefur löngum verið þekktur fyrir pólitískar
tilvísanir í verkum sínum og segist ekki hafa farið var-
hluta af ritskoðun í gegnum tíðina. Árið 2002 fékk hann
vinnustofustyrk inn á safni Donalds Judd í smábænum
Marsha í Texas en áður höfðu m.a. Ingólfur Arnarson og
Margrét Blöndal fengið styrki til að vinna þar. „Ég var
þarna í tvo mánuði og innifalið í því var að setja upp
sýningu. Ég spreyjaði ýmis slagorð á veggina í safninu
sem ekki allir voru ánægðir með en það sem fór mest
fyrir brjóstið á þeim var að ég skyldi skrifa George W.
Bush is an idiot, það var algjört tabú.“ Hlynur vinnur
mjög mikið með samfélagslegar aðstæður og segir að
honum hafi fundist tilvalið að nýta umhverfið í Texas.
„Setningarnar sem ég notaði voru ekki mínar eigin
heldur eitthvað sem ég sá í umræðunni um Bandaríkin.
Þessu var náttúrlega tekið sem persónulegri árás af
minni hálfu og enn verra að ég skyldi vera útlendingur
og í kjölfarið var ég látinn breyta sýningunni. Fólk var
síðan almennt mjög ánægt með sýninguna sem ég hélt
að væri algjörlega misheppnuð en auðvitað var þetta
mjög inngripsmikil ritskoðun.“
Listin með púlsinn á hlutunum
Hlynur hefur sett upp fjölda sýninga sem tengjast sam-
félagslegum málefnum og pólitík. „Maður er ýmist að
færa myndlistina inn í stjórnmálin eða stjórnmálin inn í
myndlistina. Sú yfirfærsla er mjög mikið að aukast aftur
og eru myndlistarmenn að verða pólitískari. Ef til vill er
það hluti af þeim aðstæðum sem þjóðin er í enda kemur
pólitísk íhlutun myndlistar í bylgjum en á undanförnum
árum hefur hreinlega ekki þótt töff að fjalla um samtím-
Myndlist
Ásgerður Júlíusdóttir
asgerdur@mbl.is
Pólitískari
myndlist
Hlynur Hallsson er myndlistamaður með
meiru. Hann hefur í gegnum tíðina látið
mikið að sér kveða í stjórnmálum auk þess
að gegna ýmsum embættum tengdum
myndlist. Nýlega var honum steypt úr stóli
formanns SÍM og hefur hann í kjölfarið
snúið sér meira að myndlistarferli sínum.
Lesbók