SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Síða 51

SunnudagsMogginn - 18.07.2010, Síða 51
18. júlí 2010 51 ann eða þjóðmál í myndlist en þetta er að breytast. Mér finnst myndlistin vera orðin samfélagstengdari en áður enda var kominn tími á að myndlistin og myndlist- armenn færu að taka á samfélagslegum málefnum.“ Hlynur segist finna fyrir því að þegar myndlistin geri samfélagið að umfjöllunarefni sínu þá nái hún oftar en ekki að vera alveg með púlsinn á hlutunum. „Myndlistarmenn eru oft skrefinu á undan, kannski vegna þess að þeir þurfa ekki að fara eftir sömu gildum og viðteknum venjum og aðrir heldur geta leyft sér að hugsa út fyrir kassann og sjá hið stærra samhengi hlut- anna,“ segir Hlynur. Hann er ekki hættur afskiptum af pólitík en hann hefur lengi vel verið viðriðinn VG og sit- ur enn í stjórn flokksins þó að hann segist vera eilítið að draga sig í hlé. „Ég hef ákveðið að einbeita mér meira að myndlistinni enda er pólitíkin tímafrekt áhugamál og ekki alltaf jafn gefandi. Ég hef mjög mikinn áhuga á stjórnmálum og samfélagsmálum og finnst voða gott að vinna í báðum fögum þó að ólík séu. Þó eiga þessir heimar líka margt sameiginlegt enda vinnum við bæði með einhverskonar útópíur og erum sífellt að leita nýrra lausna.“ Handverksbyltingin innan SÍM Áslaug Thorlacius sagði af sér formennsku eftir sjö ára starf á haustdögum 2009 og tók Hlynur við formennsku af henni. „Ég var í raun bara sjálfkjörinn því hin tvö framboðin voru dregin til baka. Það kom mér því á óvart að fá síðan mótframboð fyrir aðalfundinn núna í vor.“ Eins og kunnugt er orðið hafði Hrafnhildur Sigurð- ardóttir textíllistakona betur er hlutkesti var varpað til að skera út um úrslit jafnra kosninga á aðalfundi SÍM hinn 6. mars sl. „Mér fannst mjög absúrd að þessi staða skyldi hafa komið upp og ég var næstum því feginn að þurfa ekki að vera áfram formaður undir þessum kring- umstæðum. Aðalfundurinn var haldinn á skrítnum tíma eða í kjölfar afgreiðslu listamannalauna en eftir úthlutun þeirra gætir alltaf smáóánægju meðal listamanna enda er bara lítið brot af listamönnum sem fær listamannalaun. Kosningin endurspeglaði þessa ónægju en einnig hef ég orðið var við það að sumum finnst ég tilheyra einhverri listaelítu sem fær allt upp í hendurnar.“ Hlynur segist hissa á því hvernig skiptingin milli listmiðla virðist halda sér þó að margir vinni með ýmsa miðla. „Þetta er greinilega mjög fastmótað ennþá enda voru þetta að- allega félagsmenn Textílfélagsins sem stóðu fyrir hinni svokölluðu hallarbyltingu.“ Hlynur vonast til þess að SÍM haldi áfram að berjast fyrir sjálfsögðum réttindum félagsmanna sinna. „Mér þætti mjög sorglegt að sjá SÍM drabbast niður því það kom mér verulega á óvart hvað það eru margir starfandi myndlistarmenn sem ekki eru í SÍM en það er eitthvað sem er þörf á að rannsaka.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson ’ Myndlist- armenn eru oft skrefinu á und- an, kannski vegna þess að þeir þurfa ekki að fara eftir sömu gildum og við- teknum venjum og aðrir heldur geta leyft sér að hugsa út fyrir kassann og sjá hið stærra samhengi hlutanna Hlynur í eldhúsinu sem jafn- framt er gallerí, eins og aðrar visterverur heimilisins. Eigin- kona Hlyns, Kristín Þóra Kjartansdóttir, gluggar í tölv- una við eldhúsborðið.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.