SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Qupperneq 13
8. ágúst 2010 13
Á
leið yfir Dynjandisheiði rekst
blaðamaður skyndilega á hóp
kvikmyndagerðarmanna, sem
er við tökur á bíómynd. Lítill
tími gefst til skrafs, þar sem mínúturnar
eru dýrmætar á meðan tökur standa yfir.
En þegar þeim lýkur er tímabært að slá á
þráðinn til leikstjórans, Hafsteins Gunn-
ars Sigurðssonar.
– Þú kemur af fjöllum!
„Heldur betur,“ svarar hann.
– Hverskonar mynd er þetta?
„Þetta er kvikmynd í fullri lengd – lítil,
ódýr og óháð kvikmynd. Ég var búinn að
leggja drög að Hvíldardögum eftir bók
Braga Ólafssonar, en var orðinn þreyttur
á að ekkert gekk að fjármagna myndina
út af niðurskurði hjá Kvikmyndamiðstöð
Íslands. Ég skrifaði því handrit í vetur
með það í huga að auðvelt og fljótlegt
yrði að fjármagna hana, þannig að við
gætum ráðist strax í tökur. Hún nefnist Á
annan veg og fjallar um tvo starfsmenn
Vegagerðarinnar á níunda áratugnum.
Þeir handmála línur, reka niður stikur,
fylla upp í holur og annað slíkt. Þetta er
kómedía með litlu drama og fjallar um
samband þessrara tveggja manna.“
– Hverjir leika í myndinni?
„Aðallaleikarar eru Sveinn Ólafur
Gunnarsson, Hilmar Guðjónsson og Þor-
steinn Bachmann, sem leikur litríkan
karakter sem á leið hjá.“
– Myndin er tekin á Vestfjörðum?
„Hún gerist á óræðum stað, en er tekin
á Vestfjörðum á heiðunum milli Patreks-
fjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals, sem
heita Miklidalur og Hálfdán, sem er við-
eigandi því Háldfan Petersen er leik-
myndahönnuður, og svo á Dynjand-
isheiði, sem er dramatísk og falleg, eins
og þú veist.“
– Hvað var að gerast í myndinni þegar
ég átti leið hjá?
„Það var byrjunin á smádrama á milli
karakteranna, sem ég vil eiginlega ekki
segja frá,“ svarar Hafsteinn Gunnar
leyndardómsfullur. „Ég vil lítið gefa upp
um söguþráðinn annað en að þetta er
lágstemmd mynd, andrúmsloftsmynd,
og svo er smádrama sem ég ætla að þegja
um – en þeir voru þarna við stikuvinnu.“
– Hvenær kemur myndin fyrir sjónir
áhorfenda?
„Það verður örugglega fljótlega á næsta
ári. Við byrjum að klippa um miðjan
mánuðinn og verðum í eftirvinnu í haust.
Eins og staðan er núna er planið að hún
komi fljótlega eftir áramót í kvikmynda-
hús.“
– Hvernig líður Hvíldardögum?
„Þeim líður vel,“ svarar hann og hlær.
„Hún er komin í gegnum allt ferlið hjá
Kvikmyndamiðstöðinni og fær jákvæðar
undirtekir, en hinsvegar eru ekki til pen-
ingar í sjóðnum. Hún var ekki ein þriggja
mynda sem fékk styrk í ár, þannig að
vonumst eftir styrk á næsta ári – við er-
um í einhverri biðröð. Vonandi tekst það
og kannski vegamyndin liðki eitthvað
fyrir frekari fjármögnun.“
– Þetta er fyrsta kvikmynd þín í fullri
lengd. En það hefur ekki reynst ókleifur
múr?
„Nei, alls ekki. Reyndar var þetta
brjálað plan vegna lítilla peninga. Við
þurftum að gera margt á stuttum tíma,
vorum með lágmarkstökulið með okkur,
en þetta hafðist og sem betur lék veðrið
við okkur. Við lentum ekki í neinum telj-
andi vandræðum og máttum heldur ekki
við neinum. Eftir á að hyggja var þetta al-
veg klikkað, en það var frábært fólk með
okkur og við nutum mikillar velvildar á
Patreksfirði, þar sem við vorum með
okkar bækistöðvar. Það lögðust allir á eitt
og þetta gekk upp. Það má segja að þetta
sé lítið kraftaverk. Það eru spennandi
tímar framundan að fara að klippa og
setja myndina saman.“
Lýkur við 40 ára gamla stuttmynd
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson útskrifaðist úr kvikmyndanámi í Columbia í New
York árið 2008 og hefur verið með ýmis verkefni á prjónunum eftir það, auk
þess að kenna við Kvikmyndaskóla Íslands.
Skröltormar voru síðasta stuttmynd sem hann gerði, en nú vinnur hann með
Sigurði Skúlasyni leikara að heimildarmynd sem ber vinnuheitið Paradox.
„Hún fjallar um svarthvíta 16 mm stuttmynd frá 1967, sem Sigurður Skúla-
son lék í, þá nýútskrifaður leikari,“ segir Hafsteinn Gunnar.
„Myndin var tekin upp en aldrei kláruð. Sigurður komst yfir filmurnar og við
fengum Daníel Bjarnason til að semja tónlist og Kristján Loðmfjörð til að klippa
myndina, en hann er einnig að klippa Á annan veg. Síðan erum við Sigurður að
fylgjast með því ferli og setja það í samhengi við það sem var að gerast á þeim
tíma. Myndin verður klippt í haust og væntanlega frumsýnd á Skjaldborg á
næsta ári sem er hátíð sem ég stend að ásamt fleirum.“
Leikstjórinn Hafsteinn Gunnar með
kaffibollann á tökustað á Dynjandisheiði.
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
Sveinn Ólafur Gunnarsson og Hilmar Guðjónsson í hlutverkum vegagerðarmanna.
Lítið kraftaverk
Á annan veg nefnist kvikmynd í fullri lengd
sem leikstjórinn Hafsteinn Gunnar Sigurðsson
tók upp í sumar. Í blíðskaparveðri var tökuliðið á
kafi í gerð myndarinnar á Dynjandisheiði.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Tökur hafnar eftir að bílaumferð hefur verið stöðvuð. Algjör kyrrð, aðeins
rofin af hamarshöggum þegar vegstikurnar eru negldar í veginn.