SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Side 17

SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Side 17
8. ágúst 2010 17 M ary Ellen Mark hyggst standa fyrir námskeiði fyrir ljósmyndara hér á landi næsta sumar. Námskeiðið verður haldið í Myndlistaskólanum í Reykja- vík í ágústbyrjun. „Bækistöðvarnar verða í Mynd- listaskólanum en nemendurnir fara út að mynda á hverjum degi,“ segir Mark en námskeiðið stendur yfir í tólf daga. Hún útskýrir að þessi tími hafi verið valinn því að mikið sé um að vera, bæði versl- unarmannahelgin og Gay pride og því nóg mynd- efni. „Ég held að þetta verði frábært námskeið. Þarna gefst gott tækifæri fyrir ljósmyndara hvaðanæva úr heiminum til að koma til þessa ótrúlega fallega lands,“ segir hún og bætir við að þó landslagið sé fallegt sé svo miklu meira að mynda hér en það. „Fólkið er líka magnað. Ísland er einstakt á marga vegu og ég kann vel við menninguna hérna,“ segir hún og er innt eftir nánari skýringum. „Mér finnst Ísland hafa ákveðinn hreinleika yfir sér, sakleysi en þó ekki einfeldni. Það er einhver tilfinning fyrir því að ákveðin gömul gildi séu í hávegum höfð,“ segir hún og bætir við: „Kannski fyrir utan bankamenn- ina!“ Hún segir að nemendurnir eigi eftir að fá tækifæri til að sjá Ísland á mjög mannlegan hátt. „Flestir sem sækja námskeiðin mín hafa áhuga á að mynda fólk,“ segir hún og ítrekar að þó hún taki á filmu megi nemendurnir að sjálfsögðu taka stafrænar myndir. „Ég skipti mér ekki af því.“ Mark er einn allra þekktasti og virtasti heimilda- myndaljósmyndari samtímans og hefur hreppt allar helstu viðurkenningar sem ljósmyndara á þessu sviði getur hlotnast. Hún var um aldamótin valin mikilvægasti kvenljósmyndari samtímans af les- endum American Photo, stærsta bandaríska ljós- myndatímaritsins. Hún hefur sent frá sér hátt í 20 bækur með eigin myndum og myndröðum og verk hennar hafa verið sýnd í sýningarsölum um allan heim. Hún hefur starfað mikið fyrir mörg heims- kunn tímarit á borð við Life, Rolling Stone, The New Yorker og Vanity Fair á merkilegum ferli sem spannar rúmlega 40 ár. Námskeiðið er mikill fengur fyrir listalíf landsins en þetta er í fyrsta skipti sem Mark heldur nám- skeið af þessu tagi hérlendis en ljósmyndarinn Einar Falur Ingólfsson mun kenna með Mark. Námskeiðið verður ekki aðeins fyrir ljósmyndara því eig- inmaður Mark, heimildamyndaleikstjórinn Martin Bell, kennir þar einnig. Bell hefur verið tilnefndur til Óskarsverðlauna en hann gerði jafnframt mynd- ina Alexander, um líf Alexanders Pálssonar, nem- anda í Öskjuhlíðarskóla. Alls komast 20 manns að og þar af munu fjórir vinna að kvikmyndum með Bell. Einar Falur býst við mikilli ásókn í námskeiðið og því hafa 4-5 pláss verið sérstaklega tekin frá fyrir Íslendinga. Vafalaust verður mikil ásókn í þau en hópur Íslendinga hefur lagt löng ferðalög á sig til að sækja námskeið Mark á síðustu árum. Hún á stóran aðdáendahóp hérlendis bæði meðal fagfólks og almennings, sem end- urspeglast m.a. í hlutfallslega mörgum heimsóknum frá Íslandi á heimasíðu hennar. Einar Falur segir hana hafa kennt víða en síðustu árin hafi hún einbeitt sér að námskeiðshaldi í Oax- aca í Mexíkó tvisvar á ári. „Námskeiðin hennar hafa notið mikilla vinsælda. Þau sækja jafnt áhuga- ljósmyndarar sem atvinnumenn, sem eiga það sam- eiginlegt að hafa áhuga á því að skrásetja mannlífið í myndum,“ segir hann og ítrekar að Mark sé einn fremsti félagslegi heimildaljósmyndari samtímans. Einar Falur segir hana vera færan kennara. „Hún er góð í að beina fólki á rétta braut og finna hvar styrkleikar og veikleikar þess liggja.“ Sjálfur sótti hann áhrifaríkt námskeið hjá henni árið 1988. „Hún hefur verið mikilvægur mentor í mínu lífi sem ljós- myndari. Ég fór síðar í framhaldsnám til Bandaríkj- anna fyrir hennar tilstilli og hef unnið mikið með henni síðan.“ Einar Falur segir að Mark hafi gert það að köllun sinni að sýna heiminum hvernig hlutirnir eru í raun. „Það er oft sagt um hana að hún sé mann- eskjan sem lítur aldrei undan og að hún fegri ekki hlutina. Hún sýnir oft hliðar mannlífsins sem fólk í sumum tilvikum vill ekki vita af en eru engu að síð- ur staðreynd. Hún varpar ljósi á raunveruleg kjör fólks, sem lifir á jaðri samfélagsins, hvort sem það er í fátækrahverfum eða fólk sem glímir við ein- hvers konar fötlun.“ Þetta er þó ekki eina hlið hennar. „Á sama tíma er hún virt og vinsæl sem portrettljósmyndari fræga fólksins. Hún er jafnvíg í báðum heimum,“ segir hann en nýjasta bókin hennar heitir Behind the Scenes og sýnir myndir, sem Mark hefur tekið á tökustöðum kvikmynda á síðustu fjórum áratugum. „Það er enginn munur á persónunni Mary Ellen Mark og ljósmyndararnum Mary Ellen Mark því fyrir hana er ljósmyndun lífið. Það er ekki til neitt hjá henni sem heitir frí. Þetta er hennar líf og hún er frábær ljósmyndari og kennari af köllun.“ Kennari af köllun og ljósmyndari sem lítur aldrei undan Ljósmynd/Mary Ellen Mark Úr myndröðinni Undrabörnum sem sýnd var í Þjóðminjasafni Íslands. Hér eru vinirnir Páll og Bragi á ljósmynd sem Mary Ellen Mark tók á Lyngási við Safamýrarskóla árið 2006. Ljósmyndarinn sá leikhópinn á Youtube Að tökum loknum gefst tækifæri til að ræða við ljós- myndarann sjálfan nánar um hvernig þetta hafi komið til. „Ég sá Sigur Rósar-myndbandið á Youtube og heillaðist alveg. Mér fannst þau svo falleg og sjarmerandi,“ segir Mark og hafði í kjölfarið samband við Siggu sem tók vel í samstarfið. „Mér fannst leið- inlegt að hafa ekki myndað leikhópinn í síðasta verkefni mínu hér,“ segir hún um sýninguna Undra- börn, sem var sett upp í Þjóðminjasafni Íslands vet- urinn 2007-8. Mark fylgdist með lífi fatlaðra barna á Íslandi og ljósmyndaði í Öskjuhlíðarskóla, Safamýr- arskóla og Lyngási. Sýningin Undrabörn hefur ferðast um heiminn og var nýlega sett upp hjá Duke- háskóla í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum. Mark hefur hug á því að bæta myndum úr þessari töku við sýninguna í framtíðinni. Mark var ánægð með allar fyrirsæturnar og myndatökuna en hefði gjarnan viljað hafa meiri tíma til að fylgjast með Perlunni. „Ég fékk tækifæri til að taka portrett en ég hefði viljað vinna með þeim í nokkra daga, fylgjast með þeim dansa en það var því miður ekki hægt. Það var ekki tími til þess.“ Mark tekur allar sínar myndir á filmu. „Ég vil ekki taka á stafræna vél og ætla aldrei að gera það. Filma er annar miðill og það á að líta þannig á filmu- ljósmyndun. Ljósmyndaiðnaðurinn er breyttur og ekki lengur eins mikil áhersla á heimildaljósmyndun. Svo er allt fótósjoppað í dag. Það er ekki ekta. Mikið snýst um auglýsingar,“ segir hún og bætir við að markaðsfólk ráði almennt mikið til förinni. Ævintýraför Perlunnar á listahátíð í Bandaríkjunum Perlan er nýkomin úr leikferð til Bandaríkjanna þar sem hún var valin til að sýna á listahátíð á vegum VSA, alþjóðlegra samtaka um listir og fötlun, áður þekkt undir nafninu Very Special Arts. Þetta var í þriðja sinn sem hópurinn tók þátt í listahátíð á veg- um VSA. Sýningarstaðurinn var sjálft Smithsonian- safnið í höfuðborginni Washington en Sigga segir safnið hafa verið töfrandi stað. „Það er mikill heiður og viðurkenning að hafa verið valin til þátttöku,“ segir hún en Perlan sýndi ævintýraleikinn Ljón og mýs í leikgerð og leikstjórn Siggu. Tónlistina samdi „hirðtónskáldið okkar“ eins og Sigga kemst að orði, Máni Svavarsson. „Við fáum alltaf atvinnumenn með okkur.“ Fúsi var með í för og var ánægður með förina fyrir utan smávegis uppákomu. „Ég var tvisvar stoppaður í tollinum,“ segir hann með leikrænum tilburðum og ítrekar: „Tvisvar!“ Sigga er líka alveg steinhissa á því að tollurinn skuli hafa haft slíkan augastað á Fúsa. „Hann sem er algjör engill!“ Við myndatökuna kemur leikreynslan sér vel því það er þolinmæðisvinna að sitja fyrir .„Guð gaf okk- ur þolinmæði,“ heyrist Sigga segja við hópinn sem bíður hjá ljósmyndarabílnum og útskýrir nánar í samtali: „Ég hef stundum sagt að Guð hafi gefið mér þolinmæði en þau hafa kennt mér hana. Þau eru af- skaplega þolinmóð og það er ekki hægt að vinna saman leikhúsvinnu nema búa yfir þolinmæði. Það er gott að vera þolinmóður. Allt þarf sinn tíma.“ ’ Ég hef stundum sagt að Guð hafi gefið mér þolinmæði en þau hafa kennt mér hana. Þau eru afskaplega þolinmóð og það er ekki hægt að vinna saman leikhúsvinnu nema búa yfir þolinmæði. Það er gott að vera þolinmóður. Allt þarf sinn tíma.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.