SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Page 18
18 8. ágúst 2010
B
yrjum á byrjuninni.
Það er dragg en ekki
drag, eins og Georg
Erlingsson Merrit,
framkvæmdastjóri Dragg-
keppni Íslands, ítrekar við mig.
Keppnin 2010 var haldin síð-
astliðinn miðvikudag í Íslensku
óperunni þar sem 3 drottn-
ingar og 4 kóngar sjarmeruðu
til sigurs. Það var ofurgellan
Tæra Bænks sem var kynnir að
þessu sinni en þema keppn-
innar var hinn tvíræði frasi
stallsystur hennar, „Wanna be
on top?“
Keppendur vildu sennilega
bæði vera á toppnum og ofan á
því öllu var til tjaldað og á
sviðinu þetta kvöld braust fram
allur tilfinningaskalinn: hlátur,
grátur og gnístran tanna.
Kóngar kvöldsins voru tvíeykið
Freðinn og Tvistgeir sem unnu
dómnefndina á sitt band með
karlmanns-ást sinni en þeim
veittu harða samkeppni geð-
sjúklingurinn Donnie Marron,
sem þótti kynþokkafyllsti
kóngurinn, og ræstitæknirinn
Stanislav Smirnoff.
Drottningarnar voru hver
annarri glæsilegri en það var
Mary Fairy, nýkomin úr Ölp-
unum, sem var krýnd á end-
anum. Franska dívan Louise
DiPaoli Mikael þótti kynþokka-
fyllst kvenna en dularfulla
fljóðið Tila Star fór tómhent
heim. Fröken Star þekkir mót-
lætið vel frá uppvaxtarárum
sínum í Berlín en dyggir stuðn-
ingsmenn hennar létu skoðanir
sínar á dómnefndinni bersýni-
lega í ljós úr áhorfendaskar-
anum. Og það sannaðist sem
alþekkt er: Það er ekkert dragg
án drama.
Mary Fairy situr eins og sönn dama með leggina í kross.
Georg Erlingsson Merritt framkvæmdastjóri keppninnar og kynnir var flottur í leðurdragi. Listafólkið gluggar í skemmtilegan dagskrárbæklinginn í pásunni.
Atriði Berlínardrottningarinnar Tilu Star var ansi blóðugt.
Geðsjúklingurinn og leik-
fangasmiðurinn Donnie Marron.
Tila Star á myrka fortíð að baki og ótal leyndarmál. Atli Freyr Arnarsson er maðurinn á bakvið drottninguna.
Bak við tjöldin
Myndir: Eggert Jóhannesson eggert@mbl.is
Texti: Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is
Viltu vera ofan á?