SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Side 20
20 8. ágúst 2010
L
jóst hefur verið um margra
mánaða skeið að til stæði að
Magma keypti HS Orku. Fjár-
málaráðherra ætlaði að stíga
inn í þetta á sínum tíma en ekkert varð
af því. Umhverfisráðherra boðaði tví-
vegis lagabreytingar sem ekkert varð af.
Bregðast stjórnvöld of seint við og hvers
vegna heldurðu að allt hafi farið á annan
endann í þjóðfélaginu einmitt núna?
„Þú verður eiginlega að spyrja stjórn-
völd að því af hverju var ekki brugðist við
fyrr. Ég get ímyndað mér þó að banka-
hrunið og skýrslan hafi tekið yfir. Það var
yfrið nóg að leysa þar. Og svo þegar það
mesta var liðið hjá gat þjóðarsálin tekist á
við næsta risavandamál. Þetta eru nátt-
úrlega ótrúlegir tímar. Mikið af risa-
ákvörðunum sem við þurfum að taka, all-
ar á mjög stuttum tíma. Og ákvarðanir
sem eiga eftir að skipta miklu máli tugi
ára fram í tímann … en þjóðin er búin að
fá algerlega nóg af slæmum samningum.
Og fólk er reitt yfir því að vera ekki bara
búið að taka á sig mistök bankanna, missa
hús, bíla, lífeyri og fleira. En að það eigi
líka að missa aðgang að orkuauðlindunum
sínum. Og ekki bara það, heldur börnin
þess og barnabörn.
Í bréfi sem HS Orku barst var tilkynnt
að nefnd um erlendar fjárfestingar hefði
komist að þeirri niðurstöðu að kaupin
væru heimil. Nefndin klofnaði reyndar í
afstöðu sinni. Sú ákvörðun var svo tekin
25. maí en tekið var fram að ráðherra
hefði tvo mánuði til að gera athugasemd
við niðurstöðuna. Þeir liðu án at-
hugasemda. Hvað finnst þér um skipun
þessarar nýju nefndar sem nú er ætlað
að kanna lögmæti kaupa Magma og á að
skila af sér 15. ágúst? Og hvað ef kaupin
standast lög, er þá vandamálið úr sög-
unni?
„Fyrri nefndin hafði ekki næga sér-
fræðinga. Þetta eru samningar sem þarf
alveg sérkunnáttu fyrir. Mér líst miklu
betur á seinni nefndina. Vonandi erum
við öll að læra á þessu. Það er ekki til
nægur infrastrúktúr á Íslandi til að takast
á við svona. Það þarf að finna hann upp
jafnóðum. Og aðlaga hann íslensku lands-
lagi og vilja þjóðarinnar.
Hvað segir þú um mögulega skaða-
bótakröfu ef kaupunum verður rift á
hendur íslenska ríkinu? Iðnaðarráð-
herra hefur lýst því yfir að riftun á
kaupunum myndi kosta „óhemju fjár-
muni“.
„Sama kom upp í REI-málinu en ekkert
varð af málaferlum. Gæti verið að það
væri of mikið um vafasamar skúffur og
alls kyns kommóður? Að það sé bara hót-
un? En þeir myndu ekki gera það ef færi í
hart? Annars hef ég ekki þá lögfræðilegu
sérþekkingu sem þarf til að svara svona
spurningu. Ég treysti á að nýskipaða
nefndin taki á þessu.
Þú gafst út yfirlýsingu eftir blaða-
mannafundinn í Helsinki þar sem þú
vildir leiðrétta fréttir um að þú hefðir
lýst því yfir að Magma og AGS ynnu
saman. En þú tókst jafnframt fram að
Magma hefði komið til landa sem hefðu
þurft á hjálp AGS að halda. „Löndin væru
þá á barmi gjaldþrots og Magma keypti
aðgang að auðlindum á mjög lágu
verði.“ Geturðu nefnt dæmi um þetta?
„Kannski er réttara að tala um Ross
Beaty og þau fyrirtæki sem hann er for-
stjóri fyrir og á meirihluta í eins og Pan
American Silver sem rekur miklar silf-
urnámur í Argentínu, Perú, Bólivíu og
Mexíkó. Það eru veruleg tengsl á milli t.d.
Magma og Pan American Silver; Ross
Beaty er stærsti hluthafi í báðum þessum
fyrirtækjum, en svo virðist sem nokkrir
stærstu hlutahafarnir í Magma séu einnig
viðriðnir Pan American Silver, til dæmis
er Robert Pirooz stór hluthafi í báðum
fyrirtækjunum og titlaður „general coun-
sel og corporate secratry“ fyrir Pan Am-
erican Silver og er skráður stór hluthafi í
Magma. Þessi lönd sem ég nefndi þar sem
hann hefur verið með sína starfsemi eru
allt lönd þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn hefur verið mjög virkur eftir efna-
hagsörðugleika. Fyrirtæki Beaty hefur
verið harðlega gagnrýnt m.a. fyrir slæma
meðferð á lögum, verkamönnum og nátt-
úrunni. Og það virðist vera sem arðurinn
af þessum miklu málmnámum hafi ekkert
skilað sér til heimamanna, það hefur ver-
ið mikið fjallað um það hvernig Perú-
menn t.d. sömdu svo illa af sér vegna ótta
við að fæla frá erlendu fjárfestana að þeir
fá sama og ekkert fyrir allan góðmálminn
sinn. Það hefur hvergi komið fram að
Beaty hyggist hegða sér öðruvísi í við-
skiptum Magma en Pan American … en já
tengsl Magma við AGS. Það hefur komið
fram í fjölmiðlum hérna að forstjóri
Magma á Íslandi hafi verið á ráðstefnu
með Mark Flanagan frá AGS þar sem verið
var að ræða um framtíð orkuauðlinda-
mála á Íslandi og það hefur líka komið
fram að AGS hefur miklar skoðanir á því
hvernig orkumálin eigi að þróast hérna og
mælir með einkavæðingu og það kom
fram í fjölmiðlum að AGS myndi gera at-
hugasemd við það ef stjórnvöld reyndu að
kaupa HS Orku.“
Björk vísar í frekari upplýsingar á
heimasíðu Magma, nánar tilgreint undir
„Management“: www.magmaenergy-
corp.com/s/management.asp
Þú vildir jafnframt taka fram að þú
hefði ekki talað um það á fundinum að
Magma hefði áhuga á að kaupa fimm
Þjóðin
þarf að
móta
stefnu
Kaup Magma á hlutum í HS Orku og
starfsumhverfi orkugeirans hafa vakið
miklar deilur hérlendis. Björk Guðmunds-
dóttir hefur verið atkvæðamikil í umræð-
unni og meðal annars farið fyrir undir-
skriftasöfnun sem yfir 16 þúsund hafa
lagt nafn sitt við. Hún svaraði spurningum
við tölvuna í eldhúsinu heima hjá sér.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is
„Ég dáðist alltaf mest að þeirri hlið
pönksins sem sneri að stjórnvöldum,
yfirvaldi og svona „anti-establishment“,“
segir Björk. „Tónlistin heillaði mig aldrei.“