SunnudagsMogginn - 08.08.2010, Page 27
8. ágúst 2010 27
Í vagninum með stóra bróður.
R
agna Björg Ingólfsdóttir fæddist í febrúar 1983 í
Reykjavík. Hún á einn eldri bróður, kíró-
praktorinn Ingólf Ragnar, en foreldrar hennar
eru Guðbjörg Kristinsdóttir og Ingólfur Ing-
ólfsson. Ragna byrjaði snemma að stunda íþróttir, fim-
leika þegar hún var 5-13 ára, en badminton frá 9 ára aldri.
Hún var fjórtán ára þegar hún valdi badminton fram yfir
flest annað og hefur stundað það af kappi síðan.
Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum við Sund lá
leiðin í Háskóla Íslands, þar sem Ragna útskrifaðist með
BA-gráðu í heimspeki og sálfræði haustið 2009. En
draumur hennar frá unga aldri var að spila á meðal bestu
badmintonspilara í heimi á Ólympíuleikunum og úr rætt-
ist þegar hún tók þátt í Ólympíuleikunum í Peking árið
2008. Ragna stefnir á þátttöku á Ólympíuleikunum í
London árið 2012 og er nú þegar farin að keppa á alþjóð-
legum mótum til þess að ná nauðsynlegum lágmörkum.
Ragna hefur búið í hverfi 104 nánast alla sína ævi, hún
er mikið náttúrubarn og þykir gott að búa nálægt Laug-
ardalnum, þar sem helstu æfingaaðstöðu hennar er að
Bestu vinkonurnar, Helena og
Linda, mæta á hvert mót og hvetja
sína til dáða.
Nokkrir af íslensku ólympíuförunum skelltu sér í dagsferð að sjá Kínamúrinn.
12 ára gömul á móti á Akranesi.
Ragna vann b-flokkinn í meistaramóti Nesklúbbsins í júlí, Steinn lenti í
þriðja sæti og Nökkvi bróðir hans fór með sigur af hólmi.
Íslenska landsliðið sigraði Evrópukeppnina í badminton á heimavelli í janúar 2007.
Ragna ásamt vinkonum sínum í desember 2007.
Kærustuparið í „surprise“-partýi eftir að
Ragna kom heim af Ólympíuleikunum 2008.
Úti að róla
á Kanarí.
Fjölskylda Rögnu á útskriftardegi Steins síðastliðinn júní.
Myndaalbúmið
Ragna Ingólfsdóttir er sjöfaldur Íslandsmeistari í ein-
liðaleik í badminton. Hún stefnir á þátttöku á Ólympíu-
leikunum í London árið 2012 en stefnir á golfið eftir að
badmintonferlinum lýkur.
Ögrar líkama sínum
finna á tveimur stöðum: í Tennis- og bad-
mintonfélagi Reykjavíkur og World Class. Eitt
af því skemmtilegasta sem hún gerir er að
endurskilgreina takmörk sín reglulega og
ögra líkama sínum og þjálfa hann upp á mis-
munandi vegu, í mismunandi íþróttum.
Ragna hefur í mörg ár verið í einkaþjálfun
hjá Konna í World Class, hún stundar hjólreiðar
og yoga reglulega og þykir mikið til hot-yoga
koma.
Á sumrin stundar hún golf og þykir afar lík-
legt að golfíþróttin taki alfarið við þegar bad-
mintonferlinum lýkur. Golfinu kynntist hún í
gegnum kærasta sinn, Stein B. Gunnarsson, sem
er golfari mikill og verja þau megninu af sumrinu saman á
Nesvellinum. Ragna hefur einnig gaman af því að þjálfa
huga sinn og nýtir tímann í flugvélum á badminton-
ferðalögum og frítíma sinn til að lesa fræðandi bækur,
ævisögur og heimspekibókmenntir. Hún stefnir á frekara
nám eftir Ólympíuleikana.